Morgunblaðið - 28.06.2002, Side 51

Morgunblaðið - 28.06.2002, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 51 DAGBÓK Árnað heilla 50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 28. júní, er fimmtug Gyða Margrét Arnmundsdóttir, sérkennari. Hún og eigin- maður hennar, Viðar Már Aðalsteinsson, eru erlend- is á afmælisdaginn. 50 ÁRA afmæli. Ámorgun, laugardag- inn 29. júní, er fimmtug Hallbera Gunnarsdóttir, Huldubraut 18, Kópavogi. Eiginmaður hennar er Kristinn Skúlason. Þau taka á móti gestum á af- mælisdaginn á heimili sínu eftir kl. 18. 80 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 28. júní, verður áttræð Stein- unn Þorsteinsdóttir, Enn- isbraut 8, Ólafsvík. Í til- efni dagsins býður Steinunn og fjölskylda ættingjum og vinum í af- mælishóf föstudaginn 5. júlí nk. í Félagsheimilinu á Klifi, Ólafsvík, milli kl. 17 og 20. 80 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 28. júní, er áttræð Þóra Krist- ín Kristjánsdóttir hús- móðir, Sogavegi 158, Reykjavík. Þóra er stödd erlendis á afmælisdaginn. GULLBRÚÐKAUP. Í dag, föstudaginn 28. júní, eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Sigfríð Valdimarsdóttir frá Fáskrúðsfirði og Guðmundur Einarsson garðyrkjubóndi frá Iðu, búsett að Heiðarbrún 88 í Hveragerði. Þau verða að heiman í dag. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson SETTU þig í spor vesturs sem á út gegn þremur gröndum. Makker hefur opnað á Standard-laufi, sem oft er þrílitur, og síð- an taka NS við og renna sér í þrjú grönd í tveimur sögnum Austur gefur; Norður ♠ K83 ♥ G7 ♦ KD10753 ♣76 Vestur Austur ♠ G10976 ♠ Á2 ♥ 9864 ♥ Á1053 ♦ 82 ♦ 964 ♣42 ♣KDG10 Suður ♠ D54 ♥ KD2 ♦ ÁG ♣Á9853 Vestur Norður Austur Suður -- -- 1 lauf 1 grand Pass 3 grönd Pass Pass Pass Það er auðvitað góð og gild regla að koma út í lit makkers, en eftir þessar sagnir gæti austur hæg- lega verið með fjórlit í spaða og þrjú lauf. Spaða- gosinn hefur mikið að- dráttarafl. En það útspil er gjörsamlega misheppn- að. Þó svo að makker taki með ás til að spila laufi leggur sagnhafi upp næstu níu slagi. Hann þarf ekki slag á hjarta. Laufútspil hnekkir þremur gröndum augljós- lega og það veit austur. Við erum þessa dagana að ræða útspilsdobl og nú kemur til skjalanna regla sem flestir fylgja: Þegar doblarinn hefur meldað lit og mótherjarnir enda í þremur gröndum biður doblið um útspil í þeim lit. Sumum finnst það vera að bera í bakkafullan læk- inn að „tvíbiðja“ um útspil í sama lit (ef litið er á sögnina sem útspilsbeiðni), en reynslan sýnir að það er oft nauðsynlegt. LJÓÐABROT ALASKA Ég hvíli í svölum skugga grænna greina í grasi mjúku sjávarhamra við. Hér finnur hjartað fró og létti meina við fuglasöng og mararbáru nið. Mér finnst ég þekkja að fornu þennan klið, mér finnst ég útlegð minni læri að gleyma, mér finnst, að hér ég geti fundið frið, mér finnst, að hér sé gott að eiga heima. – – – Jón Ólafsson 1. d4 e6 2. c4 Rf6 3. Rf3 d5 4. Rc3 Be7 5. Bf4 0-0 6. e3 c5 7. dxc5 Bxc5 8. a3 Rc6 9. b4 Rxb4 10. axb4 Bxb4 11. Db3 a5 12. 0-0-0 Bd7 13. Hd4 De7 14. Be5 Hfc8 15. Kb1 Staðan kom upp á Sigem- an-mótinu sem lauk fyrir skömmu í Málmey í Svíþjóð. Vladimir Epishin (2.606) fet- aði í fótspor dálka- höfundarins í skák hans gegn Jaan Ehlvest á síðasta Reykjavíkurmóti. Eins og í þeirri við- ureign var illilega snúið upp á hönd hvíts en í þessu til- viki var það Nigel Short (2.673) sem sá um aftökuna fyr- ir svartan. 15. ...b5! opnar kóngstöðu hvíts upp á gátt. Þrátt fyrir harðvítuga mótspyrnu var fátt sem stöðvaði sókn svarts. 16. Rxb5 a4! 17. Da2 Bxb5 18. Bxf6 gxf6 19. cxb5 Hc3! 20. Hd3 Hac8 21. Be2 Ba3 22. Dd2 Db4+ 23. Ka1 Hc1+ 24. Hxc1 Hxc1+ 25. Ka2 Dc4+ 26. Kxa3 Ha1+ 27. Kb2 Da2+ 28. Kc3 Db3+ og hvítur gafst upp saddur líf- daga. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik.             STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake KRABBI Afmælisbörn dagsins: Þú hefur mikla kímnigáfu og ert í góðum tengslum við sjálfan þig. Þér gengur vel í lífinu vegna samskiptahæfi- leika þinna. Nánustu sam- bönd þín eiga eftir að skipta þig miklu máli á þessu ári. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Einbeittu þér að vinum þín- um í dag. Hugleiddu alvar- lega að taka námskeið eða ganga í samtök þar sem þú getur notið þess að skiptast á skoðunum við annað fólk. Naut (20. apríl - 20. maí)  Hringdu í foreldra þína eða sendu þeim kort í dag. Vertu þakklátur þeim sem hjálp- uðu þér og leiðbeindu í æsku. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Gerðu eitthvað öðruvísi í dag, annaðhvort eitthvað lít- ið eða stórbrotið. Vertu bara viss um að það kynni þig fyr- ir einhverju alveg nýju. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Sinntu bankamálum í dag og farðu yfir fjármálin. Borg- aðu reikninga og skilaðu hlutum sem þú hefur fengið lánaða. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Vinskapur skiptir þig miklu máli. Vertu vinalegur við einhvern í dag. Vináttubönd líkjast garði, sem sífellt þarf að vökva og veita athygli. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þér á eftir að ganga vel í dag ef þú skipuleggur þig nógu vel. Taktu stundarfjórðung í að skipuleggja þann hluta lífs þíns sem þarfnast mestr- ar athygli. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vogin er umfram önnur merki sérlega næm gagnvart fallegu umhverfi. Umbunaðu þér með því að gera eitthvað sérlega skemmtilegt í dag. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Minningar úr barnæsku koma upp á yfirborðið í dag. Taktu tíma í að hugsa um þær frá sjónarhorni hins fullorðna. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Gerðu lista yfir allt sem þig langar að gera í dag. Þú nærð kannski ekki að klára allt á listanum en hann hjálpar þér að hugsa skýrar. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Kannaðu kaup á einhverju sem þú hefur augastað á. Það á eftir að hjálpa þér að gera kjarakaup að vita allar staðreyndir málsins. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Tunglið er í merki þínu í dag. Það hjálpar þér við að láta hlutina ganga vel og undir- búa jarðveginn fyrir frekari framtíðaráætlanir. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Vikan öll einkennist af róm- antík og uppákomum í fé- lagslífinu. Taktu því tíma fyrir sjálfan þig í dag. Laum- astu burtu í klukkustund eða svo og safnaðu kröftum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. mbl.isFRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.