Morgunblaðið - 28.06.2002, Síða 57

Morgunblaðið - 28.06.2002, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002 57 BANDARÍSKA kvikmyndastjarnan Tom Cruise er ekki hár í loftinu, 1,67 metrar, og hefur það oft verið honum til trafala, nú síðast þegar hann gat ekki keyrt nýjan Lexus-sportbíl af dýrustu gerð vegna þess að hann náði ekki niður á petalana. Atvikið átti sér stað við upptökur á nýjustu kvikmynd stjörnunnar, Minority Report, sem frumsýnd var í London í fyrrakvöld. Cruise sendi bílinn aftur til síns heima og skipaði Lexus-fólki að hanna nýjan framtíðarbíl handa honum. „Það getur ekki stærri persónuleiki en Cruise passað inn í bílinn,“ sagði hönnuður bílsins, Harald Belker. „Endanlega útgáfan var í raun byggð utan um Cruise,“ sagði talsmaður Lexus, Meg Seiler. Þá virðist sem smávaxna stórstirnið sé eitthvað að slaka á í samskiptum við fyrrverandi eiginkonu sína Ni- cole Kidman og sé jafnvel að íhuga að eftirláta henni að ala upp tvö börn þeirra í heimalandi hennar Ástralíu eins og hún hefur farið fram á. Hann ræddi við aðdáendur og blaðamenn í einn og hálfan tíma fyrir frumsýningu myndarinnar við Leicester-torg í fyrrakvöld en þar samsinnti hann Kid- man og sagði það hættulegt að ala upp börn í Banda- ríkjunum. „Maður verður aðeins að líta á stöðu mála í Banda- ríkjunum. Ég hef áhyggjur af börnunum mínum. Sem foreldri hefur maður alltaf áhyggjur. Ég vil að þau alist upp þar sem þau geta orðið nógu ábyrg til að taka eigin ákvarðanir,“ sagði Cruise, sem nú býr með leikkonunni Penelope Cruz í Beverly Hills. Náði ekki niður á bílpetalana Tom Cruise mætti til frumsýningarinnar í Lund- únum í fylgd mótleikkonu sinnar Samönthu Morton. Hæðin hamlar Tom Cruise KARÍBAHAF - sept. uppselt Hópferð á hálfvirði - næst 7. feb. 03 Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA BRESKA rokksveitin Coldplay hefur lagt loka- hönd á nýja plötu sem kemur út síðar í sumar. Coldplay var án efa eitt stærsta nafnið í rokkinu í fyrra – ekki síst hér á Fróni en sveitin lék fyrir landann síðasta sumar við góðan orstír. Frum- burðurinn Parachutes seldist í yfir 6 þúsund ein- tökum hér á landi og af því einu að dæma bíða ef- laust margir með öndina í hálsinum eftir nýju efni. Forsmekkurinn að annarri plötu sveitarinnar, sem hlotið hefur nafnið A Rush Of Blood To The Head í höfuðið á einu nýju laganna, er þegar far- inn að heyrast á útvarpsstöðvum. Lagið heitir „In My Place“, er lag númer tvö á plötunni og sver sig sterklega í ætt við sjálft lagið sem kom Coldplay á kortið, „Yellow“. Í samtali við Morgunblaðið fyrr í vikunni segir bassaleikari sveitarinnar, Guy Berryman, lagið, sem og nýju plötuna í heild, rökrétt framhald af Parachutes: „Platan endurspeglar hljómsveit sem heldur sínu striki og er með fæturna á jörðinni, þrátt fyrir allt sem á undan hefur gengið.“ Berry- man segir nýju lögin kröftugri en eldra efnið, ekki í þeim skilningi að þau séu eitthvað háværari eða rokkaðri, heldur séu þau einbeittari og gerð af miklu sjálfstrausti. Myndbandið við lagið „In My Place“ er þegar farið að sjást á tónlistarstöðvum. Það er hreint og beint, hljómsveitin að leika á hljóðfæri sín í bláu rými. „Við vildum undirstrika einfaldleikann, vilja okkar til að nálgast tónlistina og umgjörð hennar á umbúðalausan hátt,“ skýrir Berryman fyrir blaða- manni, „við kærum okkur ekkert um neina þvælu. Þolum ekki allt prjálið í þessum bransa því að á endanum eru það gæði tónlistarinnar sem við- halda lífi í henni.“ Smáskífan með „In My Place“ kemur í búðir mánudaginn 5. ágúst og breiðskífan A Rush Of Blood To The Head fylgir svo á eftir nákvæmlega þremur vikum síðar, eða mánudaginn 26. ágúst. Coldplay hefur þegar hafið tónleikahald vegna útkomu nýju plötunnar og í júlí verður sveitin á þeysingi um Evrópu þvera og endilanga en nánari upplýsingar um hvar og hvenær má finna á heima- síðu sveitarinnar. Coldplay gefur út nýtt lag og breiðskífu í ágúst „Strákar, horfiði nú einu sinni á myndavél- ina.“ Hinir jarðbundnu liðsmenn Coldplay. Ekkert plast eða prjál TENGLAR ....................................................................... www.coldplay.com skarpi@mbl.is DV Kvikmyndir.is  Mbl  Kvikmyndir.com 1/2 kvikmyndir.is 1/2 kvikmyndir.com  Tímaritið Sánd  Rás 2 Eina leiðin til að verða einn af strákunum aftur... er að verða “ein” af stelpunum! Ekki missa af þessum geggjaða sumarsmell! Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit nr. 370.  kvikmyndir.isMBL Sýnd kl. 6, 8, 10 og 12. Vit 393. Sýnd kl. 7.30 og 10. Vit 384. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 397. Sýnd kl. 7.15 og 10. B. i. 16. Vit 381. Yfir 32.000 áhorfendur Kvikmyndir.is FRUMSÝNING Sýnd kl. 5.30, 8, 9.30, 10.30 og 12. B.i. 14. Vit 393. FRUMSÝNING Matrix Reloaded sýnishorn frumsýnt á undan mynd Úr smiðju Jerry Bruckheimer (ConAir, The Rock) kemur þessi magnaða sumarsprengja undir leikstjórn Joel Schumacher. (Batman Forever, 8mm) Martin Lawrence er trítilóður og tímavilltur! Í einni af fyndustu mynd ársins Hverfisgötu  551 9000 www.regnboginn.is 1/2 kvikmyndir.com Radíó X Rás 2 1/2HK DV Leitin er hafin! Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i 16.Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i 16. Yfir 50.000 áhorfendur! Sýnd kl. 5.30. B.i. 10. 1/2 RadióX 1/2 kvikmyndir.is SándON LINEthe Þegar pabbinn neitar að borga enn eitt skólaárið fyrir son sinn, tekur partýdýrið Van til sinna ráða... Drepfyndin grínmynd með Ryan Reynolds úr Two Guys and a Girl og Töru Reid úrAmerican Pie 1 & 2. Frumsýning Menn eru dæmdir af verkum sínum. Bruce Willis í magnaðri spennumynd. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Nýskr: 11/2001, 3500cc, 5 dyra, sjálfskiptur, grár, ekinn: 8 þ. Leðurinnrétting, rafmagn í sætum. Verð: 4.950 þ. 575 1230 Opið mán.-fös. frá kl. 9-18 Mitsubishi Pajero GLS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.