Morgunblaðið - 13.07.2002, Side 1
162. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 13. JÚLÍ 2002
JACK Straw, utanríkisráðherra
Bretlands, skýrði frá því í gær að
bresk og spænsk stjórnvöld hefðu
náð samkomulagi í aðalatriðum um
sameiginleg yfirráð yfir bresku
krúnunýlendunni Gíbraltar á Suð-
ur-Spáni. Endanlegur samningur
liggur þó ekki fyrir.
Straw sagði á breska þinginu að
sameiginleg yfirráð væru á meðal
þeirra atriða sem samkomulag
hefði náðst um. Efnt yrði til at-
kvæðagreiðslu meðal íbúa Gíbraltar
um lokasamninginn.
Utanríkisráðherrann sagði að
bresk og spænsk stjórnvöld væru
nær því en nokkru sinni fyrr að
leysa deiluna um Gíbraltar, sem
hefur verið undir yfirráðum Breta í
300 ár. Samningurinn væri háður
samþykki íbúa Gíbraltar.
Íbúarnir andvígir
spænskum yfirráðum
Íbúar Gíbraltarskaga eru um
30.000, flestir af spænskum, ítölsk-
um og portúgölskum uppruna. Þeir
leggja metnað sinn í að vera bresk-
ari en allt, sem breskt er, og mega
ekki til þess hugsa að „Kletturinn“,
eins og skaginn er oft kallaður,
verði aftur undir yfirráðum Spán-
verja. Þeir saka bresku stjórnina
um svik en Straw sagði að óbreytt
ástand gengi ekki til lengdar og
óhjákvæmilegt væri að semja við
Spánverja um framtíð nýlendunn-
ar.
Utanríkisráðherrann sagði að
íbúarnir ættu að fá að halda venjum
sínum og lífsháttum og vera áfram
breskir ríkisborgarar. Þeir ættu
einnig að geta fengið ríkisborgara-
rétt á Spáni.
Ráðgert hafði verið að Straw
ræddi við utanríkisráðherra Spánar
í gær, en fundinum var frestað fyrr
í vikunni eftir að Ana de Palacio tók
við embættinu af Josep Pique því
hún þurfti að fá meiri tíma til að
setja sig inn í málið.
Samkomulag að nást í 300 ára deilu Breta og Spánverja
Sameiginleg yfir-
ráð yfir Gíbraltar
London. AFP.
ISMAEL Cem, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Tyrklands, skýrði
frá því í gær að hann væri að
stofna nýjan stjórnmálaflokk og
væri markmiðið að koma Bulent
Ecevit, hinum aldna forsætisráð-
herra landsins, frá völdum. Cem
sagði nýlega af sér ráðherraemb-
ætti og hvarf um leið úr flokki for-
sætisráðherrans, Hann sagði að
samsteypustjórn Ecevits hefði
brugðist vegna innri deilna. „Tyrk-
ir þurfa stjórn sem kemur hlut-
unum í framkvæmd,“ sagði Cem.
Ecevit hefur ekki getað veitt
stjórninni trausta forystu síðustu
tvo mánuði vegna veikinda en hef-
ur neitað að segja af sér þrátt fyr-
ir tilmæli margra helstu stjórn-
málaleiðtoga. Rúmlega 40
þingmenn og ráðherrar hafa yf-
irgefið Lýðræðislega vinstriflokk-
inn, flokk Ecevits, undanfarna
daga og er hann ekki lengur
stærstur á þingi. Ráðherrann við-
urkenndi aðspurður í gær að hann
myndi íhuga afsögn ef stjórnin
missti meirihlutann en gaf í skyn
að baráttan væri alls ekki töpuð.
„Ég er við stjórnvölinn núna. Ég
verð að sitja áfram,“ sagði hann.
Ecevit hefur fimm sinnum veitt
ríkisstjórn forystu en hann er nú
77 ára gamall. Hann skipaði í gær
náinn samstarfsmann, Sukru Sina
Gufel, í embætti utanríkisráðherra
í stað Cems.
Að sögn Cems verða Husamett-
in Ozkan, fyrrverandi aðstoðarfor-
sætisráðherra og Kemal Dervis
fjármálaráðherra í nýja flokknum.
Sjónvarpsstöðvar höfðu einnig eft-
ir Dervis, sem er utan flokka og
nýtur mikils álits erlendra sér-
fræðinga, að hann styddi nýja
flokkinn. Helsta stefnumálið verð-
ur að koma Tyrklandi inn í Evr-
ópusambandið en hart hefur verið
deilt um sum skilyrðin sem sam-
bandið setur, þ.á m. að dauðarefs-
ing verði afnumin og mannréttindi
Kúrda tryggð. Flokkur þjóðern-
issinna, sem á aðild að stjórn Ece-
vits, er nú stærstur á þingi en
hann er andvígur mörgum af skil-
yrðum ESB.
Kosningar eiga að verða næst
2004. Kannanir hafa bent til þess
að ef kosningum yrði flýtt og þær
haldnar í haust, eins og sumir hafa
lagt til, myndi flokkur heittrúaðra
múslíma vinna mikinn sigur en
stjórnarflokkarnir bíða afhroð.
Veruleg hækkun varð á verðbréfa-
mörkuðum í landinu er fréttist af
nýja flokknum í gær. Tyrkir hafa
gengið í gegnum miklar efnahags-
þrengingar undanfarna mánuði og
gengi gjaldmiðilsins, lírunnar, hef-
ur fallið mikið.
Nýr flokkur til höfuðs Ecevit
Ankara. AP, AFP.
Leggur áherslu á aðild Tyrk-
lands að Evrópusambandinu
MUAMMAR Gaddafi Líbýu-
leiðtogi, sem er nú á ferðalagi
um suðurhluta Afríku, sló upp
tjaldi í konungdæminu Swazi-
landi í gær og neitaði að gista á
hóteli. Mswati III konungur,
sem er alger einvaldur í Swazi-
landi, þar sem býr um ein millj-
ón manna, sæmdi Gaddafi heið-
urstitlinum Æðsti ráðgjafi
Sobhuzas heitins II konungs,
sem var faðir Mswatis en lést
1982. Hlaut Líbýuleiðtoginn
þennan heiður fyrir það sem
hann hefur gert fyrir Afríku og
Swaziland.
Gaddafi er á ferð í 90 bíla lest
og eru með honum lífverðir,
gráir fyrir járnum, allt að 400
talsins, að því er fjölmiðlar í S-
Afríku segja. Herma óstaðfest-
ar fregnir að ekið verði alla leið
frá S-Afríku, þar sem ferðin
hófst, og norður til Líbýu – eftir
Afríku endilangri.
Aðdáendur Gaddafis í Swazi-
landi vörðu fimmtudeginum að
mestu í að söngla nafn hans og
halda á lofti myndum af honum.
Er Gaddafi kom yfir landamær-
in frá Suður-Afríku tóku marg-
ir þeirra æðisköst og greindi
fréttamaður frá því að sumt af
fólkinu sem var við landamærin
hefði haldið að S-Afríkumenn
hefðu gert innrás í Swaziland.
Gaddafi
tjaldar
Lozitha í Swazilandi. AFP.
VERÐ á hlutabréfum á fjármála-
markaðinum í London féll enn í gær,
og við lokun var það hið lægsta síðan
í apríl 1997, að því er fram kom á
fréttavef breska ríkisútvarpsins,
BBC, í gær. Eftir lífleg viðskipti í
gærmorgun féll FTSE 100 vísitalan
aftur og er upp var staðið hafði hún
lækkað um 5,9 stig og stóð í 4224,1.
Á fimmtudaginn lækkaði FTSE
um fjögur prósent og fór þá lægra en
hún hafði verið í fimm ár, og eftir
áframhaldandi fall í gær hefur hún
lækkað um 8,5 af hundraði í þessari
viku. Þetta þýðir að hlutabréf í 100
helstu fyrirtækjum Bretlands hafa
lækkað í verði um 94 milljarða punda
síðan um síðustu helgi.
Reyndar varð hækkun á flestum
evrópskum mörkuðum í gærmorg-
un, að því er BBC greindi frá, en
þegar viðskipti hófust á mörkuðum í
New York urðu stakkaskipti. Dow
Jones-vísitalan lækkaði snarlega
þegar birt var skýrsla er sýndi að
dregið hefur úr neytendatrausti í
Bandaríkjunum, og varð þá einnig
lækkun á evrópsku mörkuðunum. Þó
hafði orðið lítilsháttar hækkun á
mörkuðunum í París og Frankfurt er
viðskiptum lauk í gær, að því er
AFP-fréttastofan greindi frá.
Enn lækk-
un á mörk-
uðum
FJÓRIR bændur stilltu sér upp á
dráttarvél og veifuðu til keppenda í
frönsku hjólreiðakeppninni, Tour
de France, í gær, þegar sjötta leiðin
í keppninni var hjóluð, alls tæpir
200 km. Þýski hjólreiðakappinn Er-
ik Zabel sigraði á þessari leið á fjór-
um klst. 23 mínútum og sjö sek-
úndum. Tveir árekstrar urðu í
keppninni í gær og varð einn kepp-
andi að hætta vegna meiðsla.
Spánverjinn Igor Gonzalez de
Galdeano hefur forystu í keppninni
en Bandaríkjamaðurinn Lance
Armstrong, sem hefur sigrað í þess-
ari þekktustu hjólreiðakeppni
heims undanfarin þrjú ár, er þriðji.
Erfiðustu leiðirnar eru þó eftir,
þær sem liggja um Alpana, en alls
eru leiðirnar tuttugu og lýkur
keppninni á Champs Elysees í mið-
borg Parísar 27. júlí.
AP
Franska
hjólreiða-
keppnin