Morgunblaðið - 13.07.2002, Blaðsíða 13
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 13
Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30
Laugardaga kl. 10:00 - 17:00
Sunnudaga kl. 12:00 - 17:00
OPIÐ
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
18
03
7
06
.
20
02UTSALA
OPNAÐ hefur verið tölvuver fyrir
almenning í Keflavík. Starfsemin
er nokkurs konar netkaffi, án
kaffis, því ekki er aðstaða til veit-
ingareksturs.
Icelan heitir tölvuverið sem hjón-
in Árni Hjörleifsson og Geirþrúður
Gestsdóttir hafa komið upp á Hafn-
argötu 54, beint á móti Flughót-
elinu. „Ég er mikill áhugamaður
um tölvur en hef verið að vinna í
fiski. Þegar ég stóð uppi atvinnu-
laus ákvað ég að skella mér í þetta í
stað þess að fara með hálfum huga
aftur í fiskinn,“ segir Árni. Hann er
ákveðinn í að mennta sig í tölvu-
fræðum og byrjar á að fara á nám-
skeið í Rafiðnaðarskólanum í haust.
Icelan býður alhliða netþjónustu
þar sem fólk getur til dæmis komið
og skoðað tölvupóstinn sinn, jafnt
ferðafólk sem heimamenn, eða leit-
að á Netinu, nemendur geta unnið
að ritgerðum og stundað fjarnám
og síðast en ekki síst geta áhuga-
menn um tölvuleiki fengið útrás
fyrir áhugamál sitt í tölvuverinu. Í
tölvunum eru margir leikir og fer
þeim fjölgandi, aðallega svokall-
aðir fyrstupersónuleikir, sem hægt
er að leika á milli tölva eða á Net-
inu.
Árni tekur undir það að Icelan sé
nokkurs konar netkaffi án kaffis.
Hann segir að ekki sé aðstaða til að
hafa þar eldhús en í staðinn eru
seldir gosdrykkir og annað slíkt.
En Árni þvertekur ekki fyrir það
að gestirnir sníki kaffi hjá starfs-
fólkinu.
Tölvuverið er opið frá kl. 13 til
23 alla virka daga og fram á nótt
um helgar. Segir Árni að strák-
arnir komi venjulega fljótlega eftir
að opnað er til að fara í leiki og
sumir sitji lengi. Starfsemin hefur
farið ágætlega af stað, að sögn
Árna, og í fyrradag var í fyrsta
skipti biðröð. Hann segist hafa
möguleika á að stækka húsnæðið
en vill sjá áhugann betur áður en
ákvarðanir um slíkt verða teknar.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Árni Hjörleifsson í tölvuverinu, fyrir opnun, dag einn í vikunni.
Netkaffi án kaffis
Keflavík
BÆJARYFIRVÖLD í Reykja-
nesbæ hafa fengið heimild umhverf-
isráðuneytisins til að taka eignar-
námi tæpa 52 hektara lands á
Hólmsbergi í Keflavík. Stefnt mun
að því að ljúka mati landsins á þessu
ári.
Landið á Hólmsbergi, ofan við
smábátahöfnina í Grófinni, er í
einkaeigu. Fyrir nokkrum árum
skipulagði Reykjanesbær þar íbúða-
hverfi fyrir 20–30 einbýlishús og
byrjaði að úthluta lóðum. Innflutt
einingahús frá Kanada voru byggð á
tveimur lóðanna en eigendur þeirra
fengu ekki lóðarleigusamning hjá
landeigendum og síðan hafa menn
staðið í stappi um landið. Í fundar-
gerðum bæjarins hefur þetta svæði
stundum verið nefnt „þrætuland“ af
þeim sökum.
Heimild til
eignarnáms á
„þrætulandi“
Keflavík
FLEIRI fluttu frá öllum sveitarfélög-
unum á Suðurnesjum fyrstu sex mán-
uði ársins en fluttu þangað, nema
Gerðahreppi þar sem fjölgaði um
einn. Í heildina voru brottfluttir frá
Suðurnesjum 31 fleiri en aðfluttir.
Frá Suðurnesjum fluttu 625 íbúar á
fyrstu sex mánuðum ársins á móti 594
sem fluttu þangað, samkvæmt nýjum
upplýsingum Hagstofu Íslands. Leið-
ir þetta til þess að þar hefur fækkað
um 31 íbúa á þessu tímabili ef ein-
göngu er litið á búferlaflutninga.
Flestir fóru til höfuðborgarsvæðisins.
Frá Reykjanesbæ fluttust tíu fleiri
en þangað komu, 9 frá Sandgerði, 8
frá Vatnsleysustrandarhreppi og 5
frá Grindavík.
Fleiri flytja
í burtu
en koma
Suðurnes
NÝTING herbergja á hótelum og
gistiheimilum á Suðurnesjum var
tæplega 59% í fyrra. Er það betri
nýting en í öðrum landshlutum fyrir
utan höfuðborgarsvæðið og talsvert
yfir landsmeðaltali sem er liðlega
45%.
Þessar upplýsingar koma frá í rit-
inu Gistiskýrslur 2001 sem birt er á
heimasíðu Hagstofu Íslands. Nýt-
ingin á Suðurnesjum miðast við þrjú
hótel og eitt gistiheimili sem samtals
eru með 277 rúm í 135 herbergjum.
Suðurnes áttu um 3% af heildar-
fjölda gistinátta á landinu öllu í
fyrra.
Tæplega 59%
nýting hótel-
herbergja
Reykjanes
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦