Morgunblaðið - 13.07.2002, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 13.07.2002, Qupperneq 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 16 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ Netverk hf. hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta samkvæmt úr- skurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Skiptastjóri var skipaður Kristinn Bjarnason hrl. Ekki er ljóst hversu stórt gjaldþrotið er en skiptastjóri kannar nú sölu á öllum hugbúnaði og höfundarrétti þrotabúsins. Við- ræður standa yfir við tvo aðila en ekki fæst uppgefið hverjir þeir eru. Frestur til að lýsa kröfum í búið verður auglýstur á næstunni en skiptafundur þrotabúsins verður haldinn 11. október. Landsbanki Ís- lands er stærsti kröfuhafi í búið en Þórður Ólafur Þórðarson hdl., sem starfar hjá skiptastjóra, staðfesti við Morgunblaðið að ágreiningur væri kominn upp á milli þrotabús Netverks og veðsala um veðsetning- ar. Netverk er 12 ára gamalt fyrir- tæki sem var upphaflega í eigu Hol- bergs Mássonar og fjölskyldu hans. Í lok árs 1997 urðu þáttaskil í rekstri Netverks. Þá keypti Þróun- arfélag Íslands rúman 10% eignar- hlut í félaginu og hafnar voru við- ræður við innlenda og erlenda fjárfesta um útboð á nýju hlutafé. Á næstu árum bættust í hóp fjárfesta stórir aðilar á borð við fjárfestinga- félögin Citicorp Capital og WestLB og símafélögin Belgacom og Tele- Danmark (nú TDC). Þá eignuð- ust fjölmargir einstaklingar og sjóðir hérlendis samtals um fjórð- ungshlut á hinum svokallaða „gráa“ markaði auk þess sem Landsbankinn eignaðist um 17%. Óheppileg þróun á markaði Holberg Másson er stofnandi Netverks og var lengst af fram- kvæmdastjóri félagsins og stærsti eigandi. Hann segir að óheppileg þróun á markaði eigi stærstan þátt í rekstrarerfiðleikum Netverks en jafnframt telur hann að hægt hefði verið að komast hjá því að fara með félagið í gjaldþrot. „Síðastliðin fjögur ár hefur starf- semi Netverks miðað að því að þróa hugbúnað fyrir ákveðinn markað. Við fengum talsvert fjármagn til framleiðslunnar og vörurnar voru að mestu tilbúnar vorið 2001. Þá kom á daginn að markaðurinn hafði gjörbreyst frá því sem var og við- skiptavinum okkar tókst ekki að selja vöruna áfram. Verð á fyrir- tækjum eins og Netverki hrapaði sem þýddi að mjög erfitt varð að fjármagna þau. Þetta var afskap- lega erfið staða sem Netverk, eins og svo mörg fyrirtæki, stóð frammi fyrir. Allt hafði verið miðað við að samningar fyrirtækisins færu að skila tekjum á þessum tímapunkti. Þess í stað fór fyrirtækið að draga saman seglin, starfsmönnum fækk- aði úr 75 manns í 35 sl. haust og svo niður í 25 manns í vor.“ Hefði farið að skila tekjum á næsta ári Holberg segir að fyrirtækið sé ný- lega farið að skila einhverjum tekjum að ráði og reiknar hann með að reksturinn hefði getað farið að skila hagnaði á næsta ári. Hann ját- ar því að tekjur félagsins hafi aldrei verið miklar enda hafi allt kapp ver- ið lagt á að gera vörur þess tilbúnar. „Það var gert vegna samkeppni frá öðrum. Ef það hefði ekki verið gert þá hefði Netverk einfald- lega misst af öll- um samningum. Samningslaust er auðvitað lítið gagn að því að hafa tilbúnar vörur. Svo þegar fyrstu vörurnar voru tilbúnar var allt í einu komin önnur staða á markaðnum, fjár- málamarkaðurinn erfiður, fyrir- tækjamarkaðurinn erfiður og síma- félögin fóru ekki í að kynna nýjungar, voru bara blönk og á eftir með sínar eigin fjárfestingar. Netverk lenti einfaldlega í mjög svipaðri stöðu og mörg önnur sam- bærileg fyrirtæki. Símafélögin hvöttu fyrirtækin til að standa í þró- un og gerðu viðskiptasamninga um að þeir ætluðu að selja fyrir þá vör- urnar þegar þær yrðu tilbúnar en tóku ekki neinar skuldbindingar á sig um magn eða tímasetningar. Þegar símafélögin héldu svo að sér höndum í sölu- og markaðsstarfsemi fyrir nýjungar þá lentu þessi fyr- irtæki mörg hver í miklum erfiðleik- um.“ Fjárfestar heltast úr lestinni Holberg er ósáttur við að Netverk hafi verið lýst gjaldþrota auk þess sem hann er ekki fullviss um stöðu sína gagnvart fyrirtækinu. „Það má segja að fulltrúar Lands- bankans, TeleDanmark og Belga- com hafi ýtt mér til hliðar sl. haust, ég hætti sem framkvæmdastjóri í ágúst og hætti í stjórninni í október. Þeir buðu félaginu nýtt hlutafé á lægra gengi, til að lækka meðal- gengi sitt, en vildu þá fá að ráða ferðinni sjálfir. Sem stór hluthafi var ég alls ekki sáttur en ákvað að taka því og sjá fyrirtækið eiga tæki- færi á að halda áfram. Það fór hins vegar svo að útlendingarnir voru ekki ánægðir með reksturinn þó svo að þeir sjálfir, ásamt Landsbankan- um, sætu einir eftir í stjórninni og réðu alfarið fyrirtækinu.“ Holberg segir að erlendu fjárfest- arnir hafi fljótlega farið að heltast úr lestinni. Fulltrúar Citicorp og WestLB hafi sagt sig úr stjórn félagsins um sl. áramót en Landsbankinn hefði lánað fyrir- tækinu fjármagn í byrjun árs gegn loforðum um hlutafé frá TeleDan- mark og Belgacom. Það hlutafé hafi hins vegar ekki skilað sér og ljóst hafi verið í maí sl. að þeir ætluðu sér ekki að setja meira fjármagn inn í reksturinn. Öll hlutabréfin seld en ekkert greitt Holberg átti 34% eignarhlut í Netverki en seldi hann í mars sl. „Stjórnendur fyrirtækisins fóru fram á að ég seldi þeim og nú er ég eiginlega í hálfundarlegri stöðu, að hafa selt öll hlutabréfin mín fyrir lít- ið en hafa ekki fengið greitt. Maður hefur séð fjárfesta setja fyrirtæki í gjaldþrot í þeim tilgangi að kaupa það út úr gjaldþroti og reka það síð- an einir. Eftir áramótin var ég búinn að tapa allri trú á því að Landsbankinn og hinir í stjórninni auk yfirmann- anna, hefðu það sem þyrfti til þess að ná árangri í sölu- og markaðs- málum, sem er náttúrlega grund- völlurinn fyrir svona fyrirtæki þeg- ar vörurnar eru tilbúnar.“ Höfnuðu nýju fjármagni Hann vekur athygli á því að Landsbankinn hafi hafnað fjár- magni sem bandarískt fyrirtæki bauðst til að leggja í Netverk í byrj- un júnímánuðar sl. „Þessir fjárfestar höfðu trú á að reksturinn yrði orðinn arðbær á næsta ári. Fulltrúar Landsbankans höfnuðu hins vegar öllum samning- um, vildu ekki ræða samninga um nýtt fjármagn. Það er dálítið sér- stakt að fyrirtækinu eru boðnir 4 milljónir dollara en þeim er hafnað og næsta sem gerist er að það er sett í gjaldþrot. Mér sýndist það ein- ungis gert í þeim tilgangi að þeir gætu eignast fyrirtækið allt. Þeir munu líklega kaupa fyrirtækið út úr gjaldþrotinu og verða þannig eini eigandinn. Ég yrði ekki hissa ef það gerðist.“ Vantaði 3 milljónir dollara Alls hafa verið lagðar tæpar 30 milljónir dollara í rekstur Netverks á undanförnum fjórum árum. Holberg segir að vegna þeirrar grundvallar- breytingar sem varð á rekstrar- umhverfi fyrir- tækisins þá hefði það þurft um 3 milljóna dollara viðbótarfjármögn- un og úthald í eitt ár enn til þess að fjárfestingin færi að skila einhverju. „Það hefði verið gaman að sjá þessa nýju fjárfesta koma að félag- inu og fyrirtækið halda áfram. Verst er að búið er að fjárfesta svo mikið í þessu. Sú viðbótarfjárfesting sem þyrfti til að brúa bilið fram á næsta ár er ekki nema 10% af þeirri fjár- festingu sem er þegar komin.“ Holberg segist ekki geta sagt til um hvað verður um þær vörur sem Netverk þróaði en hann gerir ekki ráð fyrir því að hann verði sjálfur viðloðandi framhaldið. Hann sé ekki í aðstöðu til þess í dag að fjármagna slíkt. Netverki bauðst nýtt fjár- magn en því var hafnað Skiptastjóri þrotabúsins á í viðræðum við tvo aðila um sölu eigna. Ágrein- ingur um veðsetningar við veðsala ’ Hefði þurft 3milljóna dollara við- bótarfjármögnun og úthald í eitt ár enn ‘ ’ Þá kom á daginnað markaðurinn hafði gjörbreyst frá því sem var ‘ VERÐ á hlutabréfum Arcadia hefur lækkað verulega að undanförnu. Lokagengi dagsins í gær var 301 pens en gengi bréfanna fór hæst í 407 pens á hlut í lok apríl. Lækkunin nemur því 26% frá hæsta gengi bréf- anna á árinu. Baugur á sem kunnugt er 20 pró- senta hlut í Arcadia en hóf viðræður við félagið um kaup á öllu hlutafé þess í október síðastliðnum. Arcadia sleit viðræðunum við Baug í byrjun febrúar. Bréf í Arcadia lækkuðu strax í kjölfar viðræðuslitanna en hækkuðu aftur nokkrum dögum síð- ar. Gengi bréfanna fór svo stighækk- andi fram yfir miðjan maí. Hæst var gengið á tímabilinu frá 13. apríl og til 22. maí, en þá fór það aldrei niður fyrir 385 pens og var flesta daga yfir 400 pens á hvern hlut. Hefði tapað miklu á gengismun Baugur gerði tilboð í Arcadia í lok október sl. og vildi greiða 280–300 pens hvern á hlut. Gengi bréfanna hefur verið á því bili undanfarna daga en var 218,5 þegar tilboðið var gert. Staða pundsins gagnvart krónu hefur veikst verulega síðan þá. Pundið var um 150 krónur í lok októ- ber en var aðeins 133,7 krónur í gær. Séu þessar gengisbreytingar teknar með í reikninginn sést að Baugur hefði tapað miklu fé í gengismun hefði tilboðinu verið tekið. Ef litið er á stöðu punds gagnvart dollar kemur hins vegar önnur mynd upp. Pundið hefur styrkst gagnvart dollar og því hefði Baugur hagnast á viðskiptunum að því gefnu að þau hefðu verið gerð í dollurum en ekki íslenskum krónum. Bréf í Arcadia taka dýfu                                      VERÐHÆKKUN hefur orðið á bylgjupappa til umbúðagerðar frá Evrópu og Bandaríkjunum og einn- ig á tilbúnum pappaumbúðum. Hækkunin á hráefninu er á bilinu 8–12% en á umbúðunum á bilinu 7,5–9%, samkvæmt upplýsingum frá Kassagerðinni hf. og Sam- hentum – Kassagerð ehf. Bjarni Lúðvíksson, fram- kvæmdastjóri Kassagerðarinnar hf., segir að hækkanir séu mis- jafnar eftir pappírstegundum og löndum, t.d. hafi hækkunin orðið 12% í Svíþjóð í júlí en 8% í Dan- mörku í júní. Viðskiptavinirnir fá reikninginn Um ástæður fyrir þessu segir Bjarni að undanfarin ár hafi verið umframframboð á pappa í kassa- framleiðslu, hafa pappaframleið- endur því átt erfitt uppdráttar og margir tapað verulegum fjár- hæðum. Þessi staða hefur leitt af sér fækkun og sameiningar í grein- inni og mörgum verksmiðjum hefur verið lokað. Nú er svo komið að betra samræmi er á milli framboðs og eftirspurnar og hafa framleið- endur bæði vestan hafs og austan þá hækkað verð á framleiðslu sinni. Bjarni segir að verðhækkanirnar hafi nýlega tekið gildi og fari nú fyrst að gæta áhrifa þeirra hér á landi. „Við höfum ekki bolmagn til annars en að rétta viðskiptavin- unum þann reikning. Þeirra fram- leiðsluvörur hækka þá í verði að sama skapi,“ segir Bjarni. Stærstu viðskiptavinir Kassagerðarinnar eru fiskvinnslufyrirtæki, auk mat- væla- og sælgætisframleiðenda. Kassagerðin flytur inn bylgju- pappa, hráefni til kassaframleiðslu, frá Evrópu og Bandaríkjunum. Kassagerðin er eina fyrirtækið sem vinnur úr umbúðapappa á Íslandi en önnur fyrirtæki flytja inn full- búnar umbúðir. Þ. á m. er fyr- irtækið Samhentir – Kassagerð ehf. Hráefniskostnaður helmingur Finnur Harðarson, fram- kvæmdastjóri Samhentra – Kassa- gerðar ehf., segir að almennar verð- hækkanir hafi orðið á umbúðum í nágrannalöndunum 1. júlí sl. á bilinu 7,5–9%. Samhentir – Kassa- gerð ehf. flytja inn um 400 gáma á ári af umbúðum og tengdum vörum og helstu viðskiptavinir fyrirtæk- isins eru í sjávarútvegi. Fyrirtækið kaupir umbúðir m.a. frá Svíþjóð, Noregi og Póllandi. Finnur segir að þegar hráefnið hækkar um 10%, hækki fullunnin vara um 5–7% þar sem um helm- ingur af framleiddri vöru sé hráefn- iskostnaður. Almennar verðhækk- anir komi einnig til. Að sögn Finns eru verðhækkanirnar þegar farnar að hafa áhrif hér á landi og verð- hækkunin hjá Samhentum nemi 4–6%. Samhentir hafi þó áður lækk- að verð frá áramótum um 10% vegna gengisbreytinga. Hækkun á pappírsverði 8–12% Morgunblaðið/Þorkell ÞÝSKA fyrirtækið SAP, stærsti hugbúnaðarframleiðandi Evrópu, var rekið með tapi á öðrum fjórðungi þessa árs, og er þetta fyrsta tap fyr- irtækisins frá skráningu þess á hlutabréfamarkað árið 1988. Tap var einnig af rekstri félagsins þegar litið er til fyrstu sex mánaða ársins, en vegna jákvæðra fjármagnsliða á fyrsta ársfjórðungi var félagið þá rekið með hagnaði þrátt fyrir rekstr- artap. Þetta kom fram í afkomuvið- vörun frá félaginu um leið og skýrt var frá því að veltan yrði minni en gert hafði verði ráð fyrir. Viðskipta- dagblaðið Handelsblatt í Þýskalandi hefur eftir talsmanni SAP að ein- kenni markaðarins nú séu litlar fjár- festingar í hugbúnaði og hefur eft- irspurn ekki tekið við sér eins og búist hafði verið við. Strax eftir að hinar neikvæðu fréttir bárust á fimmtudag féll SAP um 20% í verði frá lokaverði síðasta dags en í lok dags höfðu bréfin hækkað aðeins aftur og var lækkun- in yfir daginn 14%. Viðmiðunarvísi- tala félagsins lækkaði um tæp 3% sama dag. Fyrsta tap SAP frá skráningu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.