Morgunblaðið - 13.07.2002, Síða 25
ÍSLENSKI SAFNADAGURINN
Sunnudaginn 14. júli 2002
Reykjavík-Reykjanes
Árbæjarsafn – Minjasafn Reykjavíkur
Söguganga um Aðalstræti kl. 13. Þátt-
taka ókeypis og öllum heimil. Guðjón
Friðriksson, sagnfræðingur verður með
leiðsögn um sýninguna Saga
Reykjavíkur – frá býli til borgar kl. 13
og 15 á Árbæjarsafni. Opið 10-18.
Byggðasafn Hafnarfjarðar – Þar er
fortíðin sem framandi land. Smiðjan
Strandgötu 50. “Blóðug vígaferli og
götulíf víkinganna í Jórvík.” “Þannig
var ... .“ Saga bæjarins í máli og
myndum. Sívertsenshús við Vestur-
götu. Heimili yfirstéttafólks frá fyrri
hluta 19. aldar. Siggubær við Kirkju-
veg. Heimili verkamannafjölskyldu frá
byrjun 20. aldar.“ Og svo brosa.“
Ljósmyndasýning í skúrnum á lóðinni.
Tækifærismyndir teknar af Sigríði
Erlendsdóttur. Opið 13-17. Miði á
safnið gildir líka í Sjóminjasafn
Íslands við Vesturgötu.
Byggðasafn Suðurnesja, Hafnargötu
57, Reykjanesbæ. Sýningin: “Bátafloti
Gríms Karlssonar” í Duus húsum.
Opið 11-18.
Fjarskiptasafn Símans, Loftskeytastöð-
in v. Suðurgötu. Gömul síma- og rit-
símatæki frá upphafi símans á Íslandi.
Leiðsögn um safnið. Opið 13-17.
Hafnarborg – Menningar og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, Strandgötu
34. Aðalsalur: MÁLVERK David
Alexander listmálari frá Kanada sýnir.
Sverrissalur: COUNTING listhópurinn
Distill; þau Ann Chuchvara, Amy
Barillaro, Jaeha Yoo, Julie Piotras
Santos, Hrafnhildur Sigurðardóttir,
Maria Patricia, Tsehai Johnson og
Tinajero-Baker sýna. Opið 11-17.
Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41.
DYR/PORTALS Valgerður Hauksdóttir og
Kate Leonard. Myndræn túlkun lista-
mannanna á náttúru og menningu í
Colorado og á Íslandi. Ljósmyndir,
stálætingar og blönduð tækni. Opið
14-18. Aðgangur ókeypis.
Listasafn Einars Jónssonar, við
Njarðargötu. Safnið varðveitir á þriðja
hundrað verka Einars Jónssonar í hinu
stórmerka húsi hans Hnitbjörgum og
í höggmyndagarðinum. Opið 14-17.
Listasafn Íslands, Fríkirkjuvegi 7.
Sumarsýning Listasafns Íslands – fyrir
alla fjölskylduna. Verk úr eigu safnins
sem gefa innsýn í íslenska myndlist
fram undir 1980. Leiðsögn um sumar-
sýninguna kl. 15. Opið 11-17. Kaffi-
stofa safnsins, safnbúð og vinnustofa
barna opið á sama tíma.
Listasafn Kópavogs – Gerðarsafn
Glæsileg sýning úr einkasafni Þorvaldar
Guðmundssonar og Ingibjargar
Guðmundsdóttur. Aðgangur ókeypis.
Opið 11-17.
Listasafn Reykjavíkur –
Ásmundarsafn við Sigtún: Sýningin
Listin á meðal fólksins. Opið 10-16.
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir við Flókagötu:
Sýningarnar Maður og borg og
Myndir úr Kjarvalssafni. Leiðsögn um
sýningar kl. 15. Opið 10-17.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið
Sýningarnar MYND, íslensk samtíma-
list og Erró og listasagan. Leiðsögn
um sýningarnar kl. 16. Myndin GUDJON
eftir Þorfinn Guðnason, sem segir frá
arkitektinum og listamanninum
Guðjóni Bjarnasyni verður sýnd kl. 17.
Aðgangseyrir er kr. 500 og gildir sam-
dægurs í öll húsin. Opið 11-18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
Laugarnestanga 70. TAKIÐ PABBA OG
MÖMMU MEÐ Á HÖGGMYNDASÝNINGU.
Á safnadeginum verður sérstök leið-
sögn fyrir börn í fylgd fullorðinna um
sýninguna “Hin hreinu form.” Leið-
sögnin hefst kl. 14.30. Aðgangur er
ókeypis fyrir börn. Opið daglega frá
14 -17. Lokað á mánudögum.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur –
Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.
Grófarsalur: Íslenskar blaðaljósmyndir
´65-´75. Á annað hundrað blaðaljós-
myndir frá árunum 1965-1975. Með
fjölbreyttu myndavali veitir sýningin
innsýn í tíðarandann hvort sem um er
að ræða blaða- og fréttaefni á borð
við stjórnmál, mótmæli og kröfu-
göngur, eða íþróttir og tísku. Opið
13-17. Aðgangur ókeypis.
Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur,
Rafstöðvarvegi við Elliðaár. Safnið
verður opið frá 13-17 á safnadaginn,
og einnig verður gamla rafstöðin við
Elliðaár opnuð sérstaklega.
Náttúrufræðistofa Kópavogs,
Hamraborg 6A. Fjölbreytt safn nátt-
úrumuna í nýju og glæsilegu safna-
húsi að Hamraborg 6A. Leiðsögn um
safnið og sérstök fræðsla um hina
sjaldgæfu vatnabolta (kúluskít) í
Mývatni kl. 15. Opið 13-17 um helgar,
10-21 mánud.-fimmtud. og 11-17 á
föstud. Aðgangur ókeypis .
Náttúrugripasafn Íslands, Hlemmi 5,
gengið inn frá Hverfisgötu. Fegurð
og fjölbreytni íslenskrar náttúru:
myndunarsaga landsins og lífríki þess.
Dýr, plöntur, steingervingar, helstu
bergtegundir, steindir og holufylling-
ar. Geirfuglinn, sem keyptur var fyrir
söfnunarfé árið 1971, er til sýnis ásamt
eggi og beinagrind, en geirfuglinn
varð útdauður árið 1844 þegar síðasta
parið var drepið í Eldey. Opið 13-17.
Aðgangur ókeypis á safnadaginn.
Norræna húsið. Sumarsýning
Norræna hússins: List með lyst - Yndi
fyrir augað og borðið. Komdu með
uppáhalds norrænu mataruppskrift-
ina þína og fáðu frítt inn á íslenska
safnadaginn! Sýningarsalurinn er
opinn frá 12-17.
Þjóðmenningarhúsið, Hverfisgötu 15.
Fjölbreyttar sýningar í fallegu húsi.
Sýning á vegum Skáksambands Íslands
í tilefni af 30 ára afmæli einvígis aldar-
innar. Ljósmyndir úr Foxleiðangrinum
1860 (sumarsýning á vegum Þjóðminja-
safns) Vestur-Íslenskar bókmenntir
(sumarsýning á vegum Landsbókasafns
Íslands - Háskólabókasafns) Landnám
og Vínlandsferðir. Opið 11-17.
Þjóðminjasafn Íslands. Ljósmyndir úr
Fox-leiðangrinum Í Þjóðmenningar-
húsinu. Merkar ljósmyndir sem eru
með þeim elstu sem varðveist hafa
frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi.
Jafnframt eru á sýningunni íslenskir
kvenbúningar frá 18. og 19. öld og
munir úr Fjarskiptasafni símans.
Athygli er vakin á húsasafni Þjóð-
minjasafns Íslands. Sér í lagi á
Reykholtskirkju, Litlabæ í Skötufirði,
Sauðanesi á Langanesi og Teigarhorni
við Berufjörð.
Sjá nánar www.natmus.is
Sjóminjasafn Íslands, Vesturgötu 8,
Hafnarfirði. Sýning á íslensku hand-
verki þar sem unnið er í járn, tré, horn,
silfur, og bein og teflt saman nýjum
og gömlum munum. Sjómannalög
leikin á harmóniku og gamlir fiski-
menn dytta að veiðarfærum. Opið
13-17.
Söfnin á Seltjarnarnesi
Lyfjafræðisafnið og Lækningaminja-
safnið við Neströð/Þjóðminjasafn
efna til fyrirlestrar á safnadaginn, kl.
14. Þórunn Guðmundsdóttir flytur
fyrirlesturinn: “Þessar kerlingar hjálpa
hver annarri„ og fjallar hann um
störf yfirsetukvenna á 18. öld. Eftir
fyrirlesturinn er boðið uppá leiðsögn
um bæði söfnin. Opið 13-17.
Vesturland og
Vestfirðir
Búvélasafnið, Hvanneyri. Tæknisafn
landbúnaðarins – tæknisagan 1880-
1970 – elstu dráttarvélar landsmanna
og verkfæri hestaaldar. Opið 13-18.
Byggðasafn Akraness og nærsveita,
Görðum – Safnasvæðið á Akranesi.
Einstakt og veglegt safn á einum stað
þar sem ólíkar og áhugaverðar sýning-
ar eru í boði: Byggðasafn Akraness og
nærsveita, Steinaríki Íslands, Íþrótta-
safn Íslands og Forsýning Landmæl-
inga Íslands. Opið 10-18 alla daga.
Byggðasafn Dalamanna, Laugum,
Sælingsdal. Gott safn gamalla muna
úr bændasamfélaginu í Dölum fyrir
síðustu aldamót. Leiðsögn um safnið.
Opið sunnudaga 10-14 og þriðjudaga
til laugardaga frá 10-17.
Byggðasafn Snæfellinga og
Hnappdæla – Norska húsið,
Stykkishólmi. Fastasýning Norska
hússins: „Heldra heimili í Stykkishólmi
á 19. öld„. Forvitnileg safnbúð með
listmunum, handverki, minjagripum,
póstkortum o.fl. Sýningar á jarðhæð:
Ólöf Sigríður Davíðsdóttir og Snjólaug
Guðmundsdóttir sýna glerverk og
flókamyndir og Guðfinna Hjálmars-
dóttir myndlistarkona – barna- barna-
barn Árna og Önnu Thorlacius er
byggðu Norska húsið 1832 - sýnir
verk sem gerð voru sérstaklega fyrir
Norska húsið. Opið 11-17.
Byggðasafn Vestfjarða, Turnhúsinu,
Ísafirði. Sjóminjar í Turnhúsi, 150 ára
minning Ásgeirsverslunar í Tjöruhúsi.
Opið 10-17 alla daga.
Gamla pakkhúsið Ólafsgötu – Ólafsvík.
Á byggðasafninu á annarri hæð
hússins má m.a. upplifa íslenskt
alþýðuheimili 19. aldar og skyggnast
inn í undraverða atvinnu- og
lifnaðarhætti sjómanna fyrr á öldum.
Einnig verður opin sýning á grafík-
myndum færeyskra listamanna.
Byggðasafn. Upplýsingamiðstöð.
Krambúð. Handverksverslun.
Listagallerí. Opið 9-19 alla daga.
Minjasafn Egils Ólafssonar, Hnjóti,
Örlygshöfn. Á safnadeginum kl. 14.
mun Atli Þór Ólason bæklunarlæknir
flytja fyrirlestur um Jón Thorberg frá
Litlanesi. Safnið byggir á frumkvöðla-
starfi Egils Ólafssonar bónda og flug-
vallarstjóra á Hnjóti. Munir frá héraðs-
sjúkrahúsi Patreksfjarðar, símstöð,
sparisjóður, flugminjasafn og flug-
skýli. Kaffisala. Leiðsögn. Opið 9 -18.
Aðgangur ókeypis.
Safn Jóns Sigurðssonar, Hrafnseyri
við Arnarfjörð. Hefðbundin dagskrá.
Veitingasala í burstabæ. Tónlist
Sigfúsar Halldórssonar kynnt. Opið
allan daginn.
Safnahús Borgarfjarðar, Bjarnarbraut
4-6. Milli fjalls og fjöru. Skógasýning í
Borgarnesi. Sláist í för með skógar-
mönnum, eldsmiðum og eldakonum.
Upplifið eldforna náttúruskóga og
íslenska skógarmenningu. Skemmti-
leg og fróðleg skógasýning fyrir alla
fjölskylduna. Opið 13-18 alla daga.
Norðurland
Byggðasafn Húnvetninga og
Strandamanna, Reykjum Hrútafirði.
Sýnd verða gömul vinnubrögð í
heyskap og tóvinnu, leiðsögn verður
um sýningu um Hákarlaveiðar við
Húnaflóa í Ófeigsskála og boðið upp
á kasaðan hákarl í tengslum við
sýninguna. Þá verður kaffisala og
fleira gert til skemmtunar. Opið 10-
18 alla daga.
Byggðasafnið Hvoll á Dalvík
Sýningar opnar á safnadaginn kl. 13-
17. Boðið upp á kaffi.
Byggðasafn Skagfirðinga, Glaumbæ.
Dagskrá safnadagsins hefst með messu
í Glaumbæjarkirkju kl. 14. Prestur
séra Gísli Gunnarsson. Frá 15-16.30
verður unnið í og við gamla bæinn
og sýnd tóvinna og matargerð, tón-
list og heyskapur.
Byggðasafn Suður-Þingeyinga
Safnahúsið á Húsavík og gamli bær-
inn á Grenjaðarstað verða opin 10-18.
Heimilisiðnaðarsafnið, Blönduósi. Í
Halldórustofu verður kembt og
spunnið á rokka og halasnældu.
Safnverðir munu klæðast íslenskum
búningum. Stefnt er að því að nýja
safnhúsið verði opnað á næsta ári
svo þetta er síðasta sumarið sem
hægt er að sjá Heimilisiðnaðarsafnið
í óbreyttri mynd. Opið 14-17.
Listasafn Akureyrar. Akureyri í mynd-
list 2: samsýning 23 myndlistarmanna
frá Akureyri. Sýningin er eins fjölbreytt
og listamennirnir eru margir. Hér eru
málverk, óskilamunir, trúðar, þorsk-
hausar og póstkort. Sumir eru með
sól í hnakka en aðrir vökva ræturnar
sínar með óhefðbundum hætti. Opið
12-17. Verið velkomin og njótið vel.
Minjasafnið á Akureyri, Aðalstræti 58
og Gamli bærin í Laufási. Garðveisla í
tilefni af 40 ára afmæli safnsins og
100 ára afmæli Minjasafnsgarðsins.
Tímamótanna verður minnst með
dagskrá úti og inni kl. 14-17. Allir
velkomnir. Gamli bærinn er opinn kl.
10-18. Leiðsögn, lummur og kúmen-
kaffi. Í tilefni dagsins verður sýndur í
Brúðarhúsinu brúðarbúningur
Laufeyjar Bjarnardóttur prestsdóttur í
Laufási sem hún saumaði um 1880.
Þjóðlegar veitingar og minjagripir í
þjónustuhúsi. Allir velkomnir.
Safnasafnið – Svalbarðsströnd, 10 km
norðan Akureyrar. Miðstöð Alþýðu-
listar á Íslandi. Alþýðulist – handverk
– minjagripir – ný myndlist – leikföng
– bókasafn. Opið 10-18 daglega .
Síldarminjasafnið á Siglufirði, þar
sem ævintýrið gerist enn. Söltunar-
sýning á laugardögum kl. 15. Opið
10-18 alla daga sumars . Safnið hlaut
Safnaverðlaunin árið 2000.
Austurland
Byggðasafn Austur-Skaftafellssýslu,
Höfn í Hornafirði – Menningarmiðstöð
Hornafjarðar. Gamlabúð: Krambúð,
fornbílasýning. Opið 13-21. Vöruhús:
Jöklasýning og verk Svavars Guðna-
sonar. Opið 13-18 og 20-22. Pakkhús:
Handverkshús, sjóminjasafn, búta-
saumssýning. Opið 10-12, 14-18 og
20-22. Gestakort Hafnar veitir aðgang
að söfnum, sýningum og sundlaug.
Minjasafn Austurlands, Laufskógum 1,
Egilsstöðum. Munir sem tengjast
menningu, atvinnuháttum og dag-
legu lífi á Austurlandi frá upphafi
landnáms til okkar daga. Vesturfara-
sýningin „Þó þú langförull legðir...„
„Mörk heiðni og kristni„, sem sýnir
afrakstur fornleifarannsókna safnsins
að Geirsstöðum í Hróarstungu og á
Þórarinsstöðum í Seyðisfirði. Kaffisala
og krambúð. Opið 11-17.
Minjasafnið Bustarfelli, Vopnafirði –
lifandi safn. Dagkrá frá klukkan 14-
17. Sýnd verða vinnubrögð fyrri tíma
t.d. tóvinna, eldsmíði, heyskapur og
veggjahleðsla. Ýmsar veitingar í boði,
m.a. lummur steiktar á hlóðum og
kaffi í baðstofu.
Sjóminjasafn Austurlands,
Gömlubúð, Strandgötu 39b Eskifirði.
Safnið er í gömlu verslunarhúsi frá
1816. Sjóminjar frá upphafi síldveiða
á Íslandi um 1880. Krambúð með
gömlu sniði og minjar um iðnað frá
fyrri tíma. Við Strandgötu 96 er síl-
darsjóhús frá 1880 ásamt bryggju,
móturbátur frá 1912 ofl. Opið 14-17.
Suðurland
Húsið á Eyrarbakka - Byggðaafn
Árnesinga: Opið 10-18.
Sjóminjasafnið á Eyrarbakka: Opið
10-18. Rjómabúið á Baugsstöðum:
Opið 13-18. Þuríðarbúð á Stokkseyri.
Opin allan daginn. Dagskrá frá 13-18:
Rjómabúið á Baugsstöðum, vélar
bússins eru gangsettar fyrir gesti.
Leiðsögn. 13,30: Sjóminjasafnið á
Eyrarbakka: Gönguferð um þorpið.
14-16: Húsið á Eyrarbakka: Tónlistar-
dagskrá í stofu Hússins á Eyrarbakka.
Leikið verður á hið forna píanó
Hússins og sagt frá tónmenningu á
Suðurströndinni fyrrum. Einnig
verður spunnið, kveðið og jafnvel
dansað. Sérsýningar safnanna eru
opnar: „Ísland 1951. Ljósmyndir Hans
Malmbergs„ í borðstofu Hússins,
„Sitthvað um selinn„ í Assistenta-
húsinu og „Skóli í 150 ár„ í Sjóminja-
safninu. Sjóminjasýning í Þuríðarbúð
opin allan daginn. Sjá nánar á
heimasíðu safnanna www.husid.com
Byggðasafnið að Skógum undir
Eyjafjöllum. Sjóminjadeild, landbún-
aðardeild, handverksdeild, handrita-
og skjaladeild auk vísis að náttúru-
gripasafni. Nokkur endurbyggð hús
sýna þróun húsakosts landsmanna frá
torfbæ til timburhúsa. Safnkirkja.
Opið 9-18.30 alla daga. 20. júlí verður
opnuð sýningin Samgöngur á Íslandi í
nýju sýningarhúsi. Húsið er 1500 fm.
að stærð, 1200 fm. sýningarsalur,
veitingastaður og minjagripaverslun.
Byggðasafn Vestmannaeyja
Byggðasafn Vestmannaeyja og Land-
lyst. Sjón er sögu ríkari. Opið 11-17.
Íslandsdeild ICOM sér um framkvæmd
safnadagsins.
FJALLAMJÓLK – FORNBÍLAR – BLAÐALJÓSMYNDIR – KÚLUSKÍTUR – KÚMENKAFFI – YFIRSETUKONUR – SKÓGARMENNING – SÍLDARSÖLTUN – SAMTÍMALIST – TÓVINNA –
BLÓÐUG VÍGAFERLI – KUML – KASAÐUR HÁKARL – SÍÐASTI GEIRFUGLINN – SÖGUGANGA – HARMÓNIKKULEIKUR – KRAMBÚÐ – TORFBÆIR OG TIMBURHÚS
Hö
nn
un
:
Be
rg
dí
s
Si
gu
rð
ar
dó
tt
ir
Nánari upplýsingar um
söfn landsins og dagskrá
Safnadagsins er í
Safnahandbókinni á
heimasíðu Íslandsdeildar
ICOM: www.icom.is
Kynnist undraheimi íslenskra safna.
Fraeðsla og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.