Morgunblaðið - 13.07.2002, Síða 36
MINNINGAR
36 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Gunnsteinn Eli-mundur Kjart-
ansson fæddist í
Reykjavík 13. júlí ár-
ið 1938. Hann lést á
heimili sínu í Reykja-
vík, 31. maí síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Guðríður Gunn-
steinsdóttir frá Nesi
við Seltjörn og Kjart-
an Ólafsson frá Sand-
prýði á Eyrarbakka,
og var hann einka-
sonur þeirra. Gunn-
steinn kvæntist eftir-
lifandi eiginkonu
sinni, Maríu Ernu Sigurðardóttur,
2. des. 1962. Börn þeirra eru: 1)
Sigurður Kjartan, kvæntur Benj-
avan Jannakhon, dætur hans eru
Tinna Rut og Erna Margrét, og 2)
Guðríður, gift Jó-
hannesi Ólafssyni,
börn þeirra eru: a)
María Erna, unnusti
Finnur Freyr Harð-
arson, b) Gunnsteinn
Hermann, c) Ingvar
Rúnar og d) Róbert
Andri. Sonur Gunn-
steins og Valgerðar
Jónsdóttur, fyrri
konu hans, er Kjart-
an, kvæntur Unni
Berglind Svavars-
dóttur og eru synir
þeirra: a) Elvar Már,
b) Svavar Snær, unn-
usta Anna Júlía Eiríksdóttir, son-
ur þeirra er Kristófer Marel, og c)
Sævar Örn.
Útför Gunnsteins var gerð frá
Áskirkju 7. júní síðastliðinn.
Ég kynntist föður mínum fyrir tíu
árum þegar afi minn og nafni dó. Þá
komst á mjög gott samband og ég
og fjölskyldan mín kynntumst því
hve frábær maður hann var. Alltaf
var gott að koma til hans og Maríu í
Skipasundið eða í sumarbústaðinn.
Hann var alltaf boðinn og búinn til
að hjálpa og aðstoða.
Ég minnist sérstaklega þegar við
fluttum í nýju íbúðina okkar og á
sama tíma fermdist elsti sonur okk-
ar. Þá lagði faðir minn nótt við dag
til að hjálpa mér við að smíða og
setja upp hringstiga í íbúðinni svo
allt væri tilbúið fyrir ferminguna.
Hann varð alltaf að hafa eitthvað
fyrir stafni og hlakkaði til að dunda
í nýja bílskúrnum sem hann lét
byggja í Skipasundinu. En það átti
ekki fyrir honum að liggja að setjast
í helgan stein og njóta efri áranna.
Hann dó langt fyrir aldur fram og
hans er sárt saknað. Ég vildi að ég
hefði kynnst honum miklu fyrr og
getað notið samvista við hann.
Hvíl í friði, elsku faðir minn.
Þinn sonur
Kjartan.
Mig langar til að minnast Gunn-
steins mágs míns með nokkrum orð-
um og geri ég það með hlýhug,
söknuði og þakklæti. Ekki grunaði
mig eða nokkurn annan að hann
ætti svona stutt eftir í fyrrasumar
þegar hann keyrði okkur systkinin
og maka um alla Vestfirðina og
norður á Strandir í mjög skemmti-
lega, sólríka og velheppnaða ferð,
sem allir voru sérstaklega ánægðir
með. Áður hafði hann lagt óhemju
vinnu og tíma í að gera upp bílinn
sem hann útvegaði til ferðarinnar,
án þess að hann minntist á það einu
orði. Við nutum ferðarinnar undir
hans öruggu stjórn, um hrikalega
fjallvegi og brattar brekkur.
Hann var aldrei margorður en
vinsamlegur og alltaf svo bóngóður
og hjálpsamur. Alltaf stóð heimilið
hans og Maju systur minnar opið
fyrir mér og fjölskyldu minni þegar
við vorum stödd hér í Reykjavík og
bjuggum úti á landi eða erlendis og
þurftum á gistingu að halda. Full af
þakklæti og söknuði sendi ég mína
hinstu kveðju og bið Guð að styrkja
Maju, Kjartan, Sigga, Gígju og fjöl-
skyldur þeirra.
Hvíli hann í friði og Guð blessi
minningu hans.
Aðalheiður L. Sigurðardóttir.
Hinn 7. júní síðastliðinn var
Gunnsteinn vinur okkar og félagi til
moldar borinn frá Áskirkju í
Reykjavík. Hann lést eftir stutta
legu á heimili sínu 31. maí sl.
Gunnsteinn varð aðeins 63 ára
sem er ekki talinn hár aldur nú til
dags. Ólst hann upp hjá foreldrum
sínum í Reykjavík. Hann hreifst af
bílaöldinni eins og svo margir ungir
menn á þessum árum og hóf ungur
nám í bifvélavirkjun og starfaði við
bifreiðaviðgerðir. Síðan réðst hann
sem bifreiðastjóri til Vegagerðar-
innar um miðjan sjöunda áratuginn.
Vann hann einkum á stórum flutn-
ingabifreiðum sem fluttu efni til
brúar- og vegagerðar út um allt
land. Á vetrum vann hann við ýmis
störf sem til féllu í Reykjanesum-
dæmi. Lengst af vann hann við vetr-
arþjónustu á Hellisheiðinni, oft við
mjög erfiðar aðstæður. Þetta var
mikil vinna sem krafðist mikillar
vandvirkni, og leysti Gunnsteinn
það vel og örugglega. Sífellt var
verið að gera tækin fjölhæfari, það
reyndi því meira á einstaklinginn og
þar sýndi hann einnig hvað hann
var frábær við þessi störf, fullur
áhuga fyrir því að reyna allar nýj-
ungar. Einnig var Gunnsteinn af-
burða vel fær um að leysa úr öllum
vandamálum sem upp komu hjá fé-
lögum hans, sem og hjá fólki þar
sem eitthvað bjátaði á í umferðinni.
Margir sem þekktu Gunnstein vissu
hvað hann var ráðagóður og hand-
laginn, og nutu nýir starfsmenn
góðs af þekkingu hans. Hann kom
sér vel við alla, háa og lága.
Síðustu árin var hann við þjón-
ustu á Hafnarfjarðarveginum og
öðrum vegum í nágrenni Reykjavík-
ur. Þótt veður séu oft mildari í ná-
grenni Reykjavíkur heldur en á
Hellisheiðinni, var umferðin þeim
mun þyngri á Hafnarfjarðarvegin-
um, hann er með umferðarþyngstu
vegum landsins.
Góður drengur er fallinn í valinn.
Við vottum Maríu og fjölskyld-
unni allri okkar dýpstu samúð.
Vinnufélagar hjá
Vegagerðinni.
GUNNSTEINN
ELIMUNDUR
KJARTANSSON
Jæja, Gummi minn, nú ert þú kom-
inn á betri stað. Við ætlum ekki að
segja bless vegna þess að þú ert
ennþá hérna í hjarta okkar og við eig-
GUÐMUNDUR
AGNARSSON
✝ GuðmundurAgnarsson fædd-
ist á Ísafirði 14.
mars, 1933. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Nes-
kaupstað 2. júlí síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru hjónin
Sturla Agnar Guð-
mundsson, skipstjóri
og kona hans, Krist-
jana Margrét Sig-
mundsdóttir. Hann
var níundi í hópi fjór-
tán systkina, en fjög-
ur eru látin áður.
Guðmundur verður jarðsung-
inn frá Norðfjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
um öll eftir að sjást aft-
ur.
Ég vil sérstaklega
þakka þér fyrir að hafa
verið yndislegur afi
barnanna minna, Rann-
veigar, Daníels og Stef-
áns. Rannveig sagði
mér um daginn að hún
hefði verið að rifja upp
minningar frá Súðavík
þegar hún notaði bumb-
una á þér fyrir kodda,
og ég man eftir því þeg-
ar þú og mamma fóruð
frá okkur síðast að þá
voru Daníel og Stefán
stöðugt að suða í okkur að fara til afa
og ömmu á Íslandi vegna þess að þeir
söknuðu þín og mömmu.
Þú hefur verið mér, Nadiu og
börnunum mjög góður faðir, afi og
tengdafaðir og við elskum þig fyrir
það. Við áttum mjög góðar stundir
saman í gegnum árin, sem við eigum
eftir að lifa á lengi og njóta minning-
anna um ókomin ár.
Það er eitt sem mig langar sérstak-
lega til að þakka þér fyrir og það er
allt það sem þú kenndir mér um sjó-
mennsku. Ég man eftir fyrsta túrn-
um okkar saman á Bergvíkinni frá
Keflavík, þar sem ég fékk stóran vír
upp í fótinn og ég var að kvarta og
kveina yfir sársauka og að ég gæti
ekki stigið í fótinn, en þú sagðir mér
að stíga bara í fótinn og hætta þessu
volæði. Nú ég steig í fótinn og sárs-
aukinn fór fljótt. Einnig vorum við
saman á Ásgeiri Magnússyni frá
Keflavík og á ég góðar minningar frá
þeim tíma líka.
En þú kenndir mér að volæði og
sjálfsvorkunn komi mér ekkert
áfram í lífinu.
Við sendum samúðarkveðjur til
barnanna og barnabarna þinna og
biðjum góðan Guð að gefa þeim styrk
á þessari erfiðu stund.
Einnig sendum við samúðarkveðj-
ur til systkina þinna og annarra ætt-
ingja.
Og til þín, mamma mín: Hann
Gummi þinn (minn) er ennþá hjá þér
og mun alltaf vera og hann mun halda
verndarhendi yfir þér þangað til þið
hittist aftur.
Allavega, Gummi minn, ég gæti
haldið lengi áfram að skrifa þetta
bréf, en ég veit að þú veist hvað við
elskum þig mikið og við sjáumst öll
seinna.
If tears could build a stairway,
and memories a lane,
I’d walk right up to heaven and...
bring you home again.
(Ef tár gætu myndað stiga
og minningarnar veg
þá gengi ég beint upp til himna
og leiddi þig aftur heim.)
Ásgeir, Nadia, Daníel
og Stefán,
Nassau, Bahamaeyjum.
!"!##$
! "# $# % &
'() "# & *+' $#
,"# & #) %-.& $#
- "# $#
/ ) $&
! "# $# 01 $
2 2! & 2 2 2! /
%
&
' &
(
)() '
*
+(
,
"
3453 6
& 7
+-1 8
-/
-+
%-5 9% $#
"#9 5 :"#9 $# - 5 ;&
-) $"#9 & ! .&1 $$#
1 2'! 5 ;+' & 22 &2; 1$#
% + +' $# $& &
5 9% <1 +' &
"#9 5 :"#9 $# -) $.& &
5 % "# $# 1"# &
5 9$-) $$# %-) $&
.& -) $& $#
-) $-) $& % $#
& 2 2! /
34=
>5
9
&
.'
/
!#
!##$
0
) +
'
$ & & /
1
&
( )(
) '
"
3
3 @! 9%-
! ($ /
/
&
*
0
)
'( ) &
5 % +'!'( $# ;
&
-!-'( &
-$% 7 '( $#
#1 '( $# -5 9% &
$
& >+'!
9$- $#/
%
*
.
3 6
5 ( ! $)
) &
2
$%& % $
& '! $
+!-1 "# & & '! $ /
MORGUNBLAÐIÐ tekur minningargreinar til birtingar endurgjalds-
laust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1,
Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er
enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvu-
pósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/send-
anda fylgi.
Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Birting minningargreina