Morgunblaðið - 13.07.2002, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
ÁBYRGÐARSJÓÐUR launa ábyrg-
ist ekki greiðslur á viðbótarlífeyris-
sparnaði launamanna sem unnið hafa
hjá fyrirtækjum sem orðið hafa
gjaldþrota. Allmörg dæmi eru um að
fólk hafi tapað lífeyrisréttindum
vegna þessa. Búið er að semja frum-
varp þar sem gert er ráð fyrir að
sjóðurinn tryggi greiðslur á viðbót-
arlífeyrissparnaði og stefnir félags-
málaráðherra að því að leggja það
fram á Alþingi í haust.
Fyrir nokkrum árum gerðu laun-
þegasamtökin og samtök vinnuveit-
enda með sér samkomulag um að
launþegar og fyrirtæki greiddu í sér-
eignarlífeyrissjóð. Ekki var um
þvingaðan sparnað að ræða heldur
urðu launþegar sjálfir að eiga frum-
kvæði að honum. Mismunandi er
hvað greiðtt er mikið í þennan sparn-
að en mjög margir greiða 4% af laun-
um í iðgjald. Þrátt fyrir að aðilar
vinnumarkaðarins hafi samið um
þennan viðbótarsparnað með sama
hætti og þeir gerðu þegar greiðslur í
almennu lífeyrissjóðina hófust eru
þessar greiðslur ekki tryggðar með
sama hætti. Ábyrgðarsjóður launa
greiðir iðgjald í almennu lífeyrissjóð-
ina ef fyrirtæki verða gjaldþrota og
geta ekki staðið við greiðslur. Sjóð-
urinn hefur hins vegar ekki laga-
heimild til að ábyrgjast greiðslur á ið-
gjaldi í viðbótarsparnað við gjaldþrot
fyrirtækja.
Halldór Grönvold, skrifstofustjóri
ASÍ, sem sæti á í stjórn Ábyrgðar-
sjóðs launa, sagði að þetta hefði kom-
ið sér illa og ljóst væri að eitthvað
væri um það að launafólk tapaði fjár-
munum og þar með lífeyrisréttindum
vegna þessa.
Umtalsverðar upphæðir
Ef launþegi greiðir 4% iðgjald í
viðbótarsparnað og er með 200.000
krónur í laun á mánuði nema ið-
gjaldagreiðslurnar 8.000 krónum á
mánuði. Þegar fyrirtæki sem er að
komast í þrot skilar ekki iðgjöldum er
oftast nær um nokkurra mánaða van-
skil að ræða. Fimm mánaða vanskil
þýða að viðkomandi launþegi tapar
40.000 krónum við gjaldþrot.
Guðmundur B. Ólafsson, lögfræð-
ingur Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur, sagði að það væri lög-
brot ef fyrirtæki drægju lífeyrisið-
gjöld af starfsmönnum sínum en skil-
uðu þeim ekki til lífeyrissjóðsins.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
kærði fyrirtæki sem stæðu þannig að
málum.
Halldór sagði að stjórn Ábyrgðar-
sjóðs launa hefði að beiðni félags-
málaráðherra endurskoðað lögin um
Ábyrgðarsjóðinn. Upphaflega hefði
það verið gert vegna dóms EFTA-
dómstólsins í máli Erlu Maríu Svein-
björnsdóttur, en hann komst að
þeirri niðurstöðu að ákvæði laganna
stönguðust á við skuldbindingar Ís-
lands í EES-samningnum. Halldór
sagði að í frumvarpið hefði einnig
verið sett ákvæði um að Ábyrgðar-
sjóðurinn tryggði greiðslur á viðbót-
arlífeyrissparnaði. Frumvarpið gerði
hins vegar þá kröfu að haldið hefði
verið uppi innheimtuaðgerðum. Þetta
myndi að öllum líkindum kalla á að
lífeyrissjóðir og bankastofnanir sem
sæju um að ávaxta þennan sparnað
yrðu að breyta um vinnubrögð varð-
andi innheimtu og ganga betur eftir
því að fyrirtæki skiluðu iðgjöldum.
Ábyrgðarsjóður tryggir ekki greiðslur á viðbótarlífeyrissparnaði
Fólk hefur tapað rétt-
indum við gjaldþrot
TÖLUVERÐUR viðbúnaður var á
Keflavíkurflugvelli í gær þegar
flugmenn einkaþotu tilkynntu um
torkennilegan pakka í flugstjórnar-
klefanum á leið sinni frá London til
New York. Þotan, sem er af gerð-
inni Falcon 900 lenti á Keflavíkur-
flugvelli um kl. 16 og var tekin af-
síðis á meðan sprengjusérfræðing-
ar Landhelgisgæslunnar rannsök-
uðu pakkann.
Í ljós kom að einnota myndavél
var í pakkanum en óljóst er hvernig
pakkinn rataði inn í flugstjórnar-
klefann. Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar var myndavélin vafin
í einangrunarband, en það gerði
það að verkum, að hluturinn var tal-
inn grunsamlegur og ákvörðun var
tekin um að lenda vélinni í Keflavík.
Fimm farþegar, þar af korna-
barn, voru um borð auk tveggja
flugmanna. Ekki bar á hræðslu
meðal farþega að sögn Gunnars
Schram aðstoðaryfirlögregluþjóns
á Keflavíkurflugvelli.
Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli
kom á vettvang með allt að sjö
slökkvibíla auk lögregluliðs og sér-
fræðinga Landhelgisgæslunnar.
Pakkinn var skoðaður með færan-
legri röntgenmyndavél og kom þá í
ljós að í honum var myndavél og var
pakkinn þá opnaður.
Viðbúnaðarástandi var aflétt kl.
18.10 og var gert ráð fyrir að þotan
héldi síðan áfram ferð sinni vestur
um haf, en vélin var að sögn lög-
reglunnar í Keflavík á leiðinni frá
Bretlandi til Bandaríkjanna.
Morgunblaðið/Jim Smart
Viðbúnaður vegna
torkennilegs pakka
í flugstjórnarklefa
HÚN brosir mót lífinu þessi litla
stúlka, alsæl með vistina í hoppu-
kastalanum í ferðatívolíinu sem nú
er að finna við Hafnarbakkann í
Reykjavík. Tívolíferðir hafa löngum
höfðað til yngri kynslóðarinnar sem
heillast af stemmningunni í kringum
þau og setur snúninga og hristing í
hinum ýmsu tækjum ekki fyrir sig.
Margir hinna eldri, sem heimsækja
tívolíið, láta góðar minningar um
salíbunur fyrri tíma nægja og fylgj-
ast með ungviðinu skemmta sér.
Morgunblaðið/Sverrir
Ungviðið
skemmtir
sér í tívolíi
BANASLSYS varð á tjald-
stæðinu við Varmaland í Borg-
arfirði í gærkvöld er ekið var á
fimm ára gamla stúlku. Slysið
var tilkynnt til lögreglunnar í
Borgarnesi kl. 20.45 og voru
tvær sjúkrabifreiðar sendar á
slysstað ásamt lækni úr Borg-
arnesi. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar var kölluð út og flutti
hún barnið á Landspítalann í
Fossvogi en við komuna á
sjúkrahús var það látið.
Tildrög slyssins liggja ekki
ljós fyrir en eru í rannsókn hjá
lögreglunni í Borgarnesi. Ekki
er unnt að birta nafn hinnar
látnu að svo stöddu.
Fimm ára
stúlka
lést í
bílslysi
ÓVÍST er hvort Fjármálaeftirlitið
kemur til með að kveða upp úrskurð
í ágreiningi fimm stofnfjáreigenda
SPRON og stjórnar SPRON um lög-
mæti tilboðs sem fimmmenningarnir
hafa gert í hlut annarra stofnfjáreig-
enda sparisjóðsins. Jón Steinar
Gunnlaugsson, lögmaður fimm-
menninganna, hefur krafist þess að
forstjóri, aðstoðarforstjóri og allir
starfsmenn Fjármálaeftirlitisins víki
sæti vegna þess að stjórnendur Fjár-
málaeftirlitsins og sparisjóðanna
sömdu frumvarp að lögum sem um
er deilt í þessu máli.
Ágreiningur er um það hvort til-
boð stofnfjáreigendanna fimm er í
samræmi við lög um viðskiptabanka
og sparisjóði.
Í ráðherraskipaðri nefnd sem
samdi frumvarpið sátu m.a. þeir Páll
Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármála-
eftirlitsins og Ragnar Hafliðason,
aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlits-
ins.
Allir starfs-
menn Fjár-
málaeftir-
litsins víki
Sömdu lögin/6