Morgunblaðið - 17.07.2002, Síða 36
MINNINGAR
36 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Það voru þungbær-
ar fréttir sem bárust
föstudaginn 28. júní.
Aggi, æskuvinur
minn, hafði í einu vet-
fangi verið hrifinn á
brott í blóma lífsins
aðeins 36 ára gamall.
Kynni okkar Agga hófust þegar
við vorum saman í 2. bekk í Lund-
arskóla og urðum við strax miklir
vinir. Við vorum því sem næst óað-
skiljanlegir á þessum árum og var
margt brallað. Ásamt fleirum var
stofnað leynifélag með bækistöðvar
í kjallaranum hjá mér. Leituðum
við uppi ráðgátur og grunsamlega
hluti í nærliggjandi hverfum með
mismiklum árangri en öll málin
voru þó samviskusamlega skráð af
Agga til frekari úrvinnslu.
Við Aggi fylgdumst að í gegnum
barna- og gagnfræðaskóla og einn-
ig vorum við um tíma saman í Iðn-
skólanum eða þar til hann fór í
nám til Reykjavíkur.
Aggi hafði hæglátt yfirbragð, gat
virkað alvörugefinn en jafnan var
stutt í grínið og hinn lúmska húm-
or sem hann bjó yfir, en umfram
allt var hann traustur vinur.
Aggi var ungur fróðleiksfús, las
mikið og sökkti sér oft niður í hin
ýmsu mál og man ég eftir að hann
hafði sérstakan áhuga á síðari
AGNAR RAFN
VILHJÁLMSSON
✝ Agnar Rafn Vil-hjálmsson fædd-
ist á Akureyri 9. maí
1966. Hann lést af
slysförum 28. júní
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Akureyrarkirkju 8.
júlí.
heimsstyrjöldinni.
Hann vissi allt um or-
ustuna um Atlantshaf-
ið og var vonlaust að
ætla að reka hann á
gat í sögulegum stað-
reyndum.Við vinirnir
settum saman módel
af Hood og Bismarck
og lifðum okkur inn í
atburðarásina. Þetta
voru skemmtilegir
tímar.
Hin síðari ár urðu
samfundir okkar fáir,
en þegar við hittumst
voru endurfundirnir
enn skemmtilegri og gafst þá færi
til þess að spjalla um hvað á daga
okkar hafði drifið og rifja upp liðna
tíma. Það er erfitt til þess að hugsa
að endurfundir okkar verði ekki
fleiri.
Með trega og þakklæti fyrir
samfylgdina kveð ég Agga. Fjöl-
skyldu og aðstandendum votta ég
mína dýpstu samúð.
Hjalti M. Bjarnason.
Elsku vinur og vinnufélagi. Orð
fá því ekki lýst hversu sárt það var
að heyra um fráfall þitt. Allar
minningarnar streymdu í gegnum
huga okkar á örskotsstundu og
sárt að vita til þess að við eigum
ekki eftir að eyða meiri tíma með
þér. En þú ert kominn á stað þar
sem við vitum að vel er tekið á
móti þér.
Takk fyrir allar góðu stundirnar
sem við áttum saman.
Við sendum fjölskyldu Agnars
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Friðbjörn og Hrafnhildur.
Hann Aggi, en það var hann
ætíð kallaður af vinum og vanda-
mönnum, var sannkallað náttúru-
barn og ferðalög um landið fagra,
Ísland, voru hans uppáhald. Einnig
naut hann þess að ferðast um hafið
bláa hafið, en hann fór af stað í
sína hinstu ferð á haf út hinn 27.
júní og fannst síðan látinn hinn 28.
Á svona sorgarstundum óskar
maður þess að vakna sem fyrst af
vondum draumi.
Hugur minn hvarflar til baka
aftur til ársins 1974 er ég und-
irrituð kynntist Agnari. Mér varð
starsýnt á fallega lokkað dökk-
brúnt hár og brosmilt andlit. Ég
mun aldrei gleyma hversu hlýlegar
viðtökur ég og mín tvö kornungu
börn fengum hjá honum og systur
hans Eydísi, þrátt fyrir að uppá-
haldsfrændinn þeirra sem vanalega
var til reiðu fyrir þau er færi gafst
væri allt í einu kominn með konu
og tvö börn uppá sína arma. Þau
voru um árabil eins og systkini,
þessi fjögur börn, og Aggi varð
strax í hlutverki hins umhyggju-
sama stóra bróður og stend ég og
mín fjölskylda í mikilli þakkarskuld
fyrir ógleymanlegar samverustund-
ir hvort heldur sem var úti á ferða-
lögum sem fjölskyldurnar fóru
saman, eða inni við alls konar leiki
og störf. Aggi lét sig t.d. aldrei
vanta, hvort heldur um berjaferðir,
sláturtíðina á haustin eða laufa-
brauðsgerðina fyrir jólin var að
ræða.
Við munum ætíð minnast hins
glaðlega og hjálpsama Agga með
þakklæti og biðjum almáttugan
Guð að hugga fjölskyldu hans og
ástvini.
Jesús sagði: „Komið til mín, allir
þér, sem erfiði hafið og þungar
byrðar, og ég mun veita yður
hvíld.“ (Matt. 11,28.)
Innilegustu samúðarkveðjur.
Sólveig, Frímann, Ágúst,
Bryndís og fjölskyldur.
Elskuleg frænka er
látin. Gulla frænka var
öllum mjög kær, sama
hvernig á er litið, sem
ömmu, móður, eða
frænku, hún var yndis-
leg. Allir sem voru svo
lánsamir að kynnast
Gullu vita hversu hlýr persónuleiki
hún var og hversu hreint hjarta
hennar var. Hún vildi öllum allt það
besta.
Alltaf var Gulla hýr og dugleg, það
er margt sem amma María hefur sagt
mér um tíðina um Gullu frænku. Hún
talaði um prakkarastrik þeirra systra
og ýmislegt sem þær stöllur höfðu
brallað í gegnum tíðina.
Ömmu þótti svo vænt um þig,
Gulla, hún unni þér mikið og var þér
ávallt mjög góð.
Amma talaði alltaf um það hvað
Gulla hefði verið lánsöm að kynnast
honum Ella sínum. Að hann hefði
verið henni mikið í lífinu og alltaf ver-
ið henni svo góður. Þau voru svo góð
hvort við annað, áttu alveg einstak-
lega vel saman. Elli var alltaf dugleg-
ur að fara með hana út á rúntinn og
drífa hana í heimsóknir til ömmu og
afa. Einnig voru Gulla og Elli dugleg
að fara í hjólhýsið sitt sem þau áttu í
Þjórsárdalnum. Þangað var ávallt
gott að koma og þiggja gott kaffi og
með því. Já, ég gæti endalaust skrifað
vel og fallega um hana Gullu mína.
Það var okkur systkinunum mikil
lukka þegar hún kom og passaði okk-
ur, hún passaði Thelmu systur fyrir
mömmu og pabba í nokkra mánuði
þegar hún var bara kornabarn og það
var ekki annað að sjá en að Thelmu
hefði liðið vel hjá henni.
Svona var Gulla, vildi allt fyrir alla
gera, og alltaf var hún svo blíð og góð.
Þetta verða að vera mín lokaorð til
þín, elsku Gulla mín, ég mun sakna
þín, líkt og allir hinir sem þig þekktu
og voru svo lánsamir að fá að kynnast
þér.
Elsku Elli minn, söknuður þinn er
mestur og ég óska þess heitar en
nokkuð annað að guð verði með þér í
þessari erfiðu sorg og gefi þér þann
styrk sem þú þarfnast. Einnig votta
GUÐLAUG
BERGMANN
✝ Guðlaug Berg-mann fæddist 17.
október 1932. Hún
lést 20. júní síðastlið-
inn og var útför
hennar gerð frá
Keflavíkurkirkju 28.
júní.
ég börnum, barnabörn-
um Gullu og ömmu
Maríu samúð mína.
Þín frænka,
María Kristins.
Gulla mágkona mín
er látin. Fréttin kom
okkur á óvart þótt hún
hefði átt við veikindi að
stríða um nokkurn
tíma.
Ég kynntist Gullu
fyrir um 54 árum þegar
við María systir hennar
rugluðu saman reitum
okkar. Síðan var alltaf náið samband
milli fjölskyldna.
Þeir voru lánsamir sem fengu að
kynnast Gullu. Hún mátti ekkert
aumt sjá. Alltaf tók hún hlut þeirra
sem minnimáttar voru. Hennar
mesta gæfuspor var þegar hún
kynntist Ella, sem reyndist henni svo
vel. Það var virkilega gaman að sjá
hvað þau gátu verið samrýnd. Hún
var hans eyru og munnur. Hann var
svo duglegur að fara með hana út að
keyra í heimsóknir til ættingja og
vina. Það má segja að þau bættu svo
sannarlega hvort annað upp.
Líf Gullu var ekki alltaf dans á rós-
um, en hún tók því sem að höndum
bar alltaf með jafnaðargeði.
Nú er hún komin yfir móðuna
miklu þar sem sonur hennar og for-
eldrar taka á móti henni, og hún er
hætt að þjást.
Elsku Elli minn, ég veit að sökn-
uður þinn er sár. En guð græðir öll
sár um síðir. Megi góður guð gefa þér
styrk og kraft. Einnig votta ég systr-
um hennar, börnum og barnabörnum
innilega samúð.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig,
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér.
Því veit mér feta veginn þinn
og verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson.)
Elsku mágkona, hvíl í friði. Þökk
fyrir allt og allt.
Kristján Geir Pétursson.
Vignir var ekki
venjulegur ungur
maður. Hann var sönn
hetja, bardagamaður
og oft sigurvegari.
Vignir hafði hreina
sál, hann öfundaði
engan, umbar flesta og ég veit fyr-
ir víst að hann talaði aldrei illa um
nokkurn mann. Það eru ekki marg-
ir sem geta státað af slíku á lífs-
leiðinni.
Vignir safnaði ekki auði, völdum
eða metorðum og hann var ekki
langskólagenginn. Samt átti hann
stóran þátt í því að þroska og
auðga líf þeirra sem mest umgeng-
ust hann. Einnig er ég viss um að
hann gaf læknavísindunum mikið.
Oft var hann hrein ráðgáta. Allt
hans líf var hann rannsakaður,
skorinn, þuklaður og sprautaður –
meira og oftar en nokkur ætti að
þurfa að þola. Oft var honum vart
VIGNIR
ÞÓRSSON
✝ Vignir Þórssonfæddist í Reykja-
vík 20. maí 1967.
Hann lést á heimili
sínu miðvikudaginn
10. júlí síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Fossvogs-
kirkju 16. júlí.
hugað líf, en ótrúlegur
dugnaður og seigla
bjó í þessum líkama –
hann virtist hafa níu
líf.
Það mætti ætla að
líf Vignis hefði verið
samfelld píslarganga –
en svo var ekki því
hann stóð ekki einn.
Fúddi og Mallý, for-
eldrar hans, elskuðu
hann og vernduðu og
háðu ótrúlega margar
baráttur með honum –
og fyrir hann. Þau
fögnuðu með honum
hverju framfaraskrefi sem hann
náði og höfðu undurnæman skiln-
ing á líðan hans og þörfum.
Það kemur því kannski ekki á
óvart að aðeins mánuði eftir lát
Fúdda kvaddi Vignir líka. Ég hitti
þá síðast saman á sjötugsafmæli
Fúdda í mars s.l. þar sem þeir sátu
og borðuðu upp úr sömu sælgæt-
isskálinni, brosandi út að eyrum.
Þannig er ljúft að minnast þeirra.
Elsku Mallý, vonandi er það dá-
lítil huggun í sorginni að hugsa um
þá sameinaða aftur heilbrigða og
hrausta.
Guð blessi minningu Vignis.
Anna Eyvör (Úgga).
ANNA
MARGRÉT
SIGURÐ-
ARDÓTTIR
✝ Anna Margrét Sigurðardóttirfæddist í Reykjavík 25. októ-
ber 1990. Hún lést af slysförum 9.
mars síðastliðinn og var útför
hennar gerð frá Skálholtskirkju
23. mars.
Anna Margrét, ég vona að þér líði
vel hjá Guði nú þegar þú ert fallegur
engill. Ég veit að þú ert hjá mér, en
samt sakna ég þín.
Ekki gráta amma og afi, því Anna
Margrét er líka hjá ykkur og elskar
ykkur og sér hve þið eruð sorg-
mædd.
Björgvin Pétur.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með-
allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
'
&
&
(
$($ "#
"#
"#
"
"
) =
- $ (
%<<4$$ <4$
+'%7 01<4$$ #0 ''$
'";
<4$$ '"< 0<
" "(
'
&
&
(
$($ "#
"#
"#
" "
?
>
+)
-
0<G9
01 ! % (
+'% 0 $
? '
H3< $
(? '$ #3
ID#? ' %
0$
" "(
&
# & (
$
"#
?
+
(
-
&
0 - $7
"%
"
*
#
3%
$# % %
4 ?' 0(