Morgunblaðið - 18.08.2002, Blaðsíða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 2002 31
Fyrir þá sem vilja ná árangri
Tölvunám fyrir kennara
Skeifan 11b · 108 Reykjavík · Sími 568 5010 · Fax 581 2420 · skoli@raf.is · www.raf.is
E k k i g r a f a h ö f u ð i ð í s a n d i n n
Hvernig mætir þú auknum kröfum um notkun
tölvunnar í skólastarfinu?
Rafiðnaðarskólinn hefur um árabil þjálfað kennara í
tölvunotkun með góðum árangri. Sumir sem hafa
sótt námið sjá nú um tölvunám og tölvukerfi við
skóla sína, aðrir nýta tölvuna við kennsluna af mun
meiri áhuga og öryggi.
Að náminu standa tölvukennarar með kennara-
menntun og reynslu.
Verkefni námsins tengjast starfsumhverfi kennarans.
Við leggjum áherslu á þægilegt námsumhverfi og
stuðning við nemendur.
Á báðum námsbrautunum fylgja vönduð
kennslugögn.
Rafiðnaðarskólinn býður einnig mikið úrval styttri
tölvunámskeiða. Kynnið ykkur málið á www.raf.is
Nánari upplýsingar í síma 568 5010
eða á www.raf.is
Sættir þú þig við að vera slarkfær í notkun tölvunnar eða viltu ná valdi á henni og
uppgötva hvernig tölvan getur hjálpað þér að verða betri kennari?
Rafiðnaðarskólinn býður, fimmta árið í röð, tölvunám sérstaklega ætlað kennurum:
Starfsmenntalán
Landsbankans
Ertu kennari, viltu vera tölvukennari?
Þessi námsbraut er ætluð kennurum sem vilja ná verulega góðum tökum á tölvunni. Námið hefur
nýst mjög vel sem undirbúningur fyrir tölvukennslu, enda hafa margir kennarar nýtt sér þessa leið
til þess að skipta um starfsvettvang. Aðrir völdu námsbrautina fyrst og fremst til þess geta nýtt
möguleika tölvunnar betur við starfið.
Námið hefur bæði hentað byrjendum og þeim sem hafa notað tövlur í nokkur ár. Þátttakendur
læra mjög vel á Windows stýrikerfið, Office hugbúnaðinn, þeir læra að nota FrontPage við
vefsíðugerð og að vinna með myndefni í tölvunni. Þá kynnast þeir umsjón netkerfa, með það fyrir
augum að geta sjálfir séð um tölvustofu.
Þátttakendur takast á við kennslufræði tölvukennslu og kennslufræði fullorðinna og nýta síðan
það sem þeir hafa lært við æfingakennslu. Lokaverkefni kórónar síðan námið, þar sem
þátttakendur nýta mest allt sem þeir hafa lært í einu stóru verkefni. Í náminu venjast þátttakendur
því að nota Netið við nám og kennslu.
Námið hefst 2. september og stendur fram í byrjun maí. Alls 580 kennslustundir.
Kennt kl. 8:30-12:00 fjóra daga í viku. Verð: 398.000.-
Tölvur og kennsluumhverfi - fjarnám
Námsbrautin er ætluð byrjendum eða fólki sem vill styrkja undirstöðurnar, og byggja tölvunotkun
sína á sterkum grunni. Þátttakendur læra að nota helstu forritin sem gagnast við starf kennarans:
Windows stýrikerfið, ritvinnsluforritið Word, töflureikninn Excel og kynningarrforritið PowerPoint,
auk þess þjálfast þeir í notkun Netsins og tölvupósts. Þátttakendur fá einnig tækifæri til þess að
bæta hæfni sína í vélritun sé þess þörf. Þetta er nám ætlað fólki sem vill læra með starfi.
Námið hefst 16. september og stendur fram í febrúar. Verð: 112.000.-
Í BRÆÐSLUHÚSI Síldar-
minjasafnsins á Siglufirði hefur
verið sett upp sýning á málverk-
um og smíðisgripum Guðmundar
„góða“ Kristjánssonar sem var
búsettur á Siglufirði um áratuga
skeið. Guðmundur lést á tíunda
áratugnum, þá kominn yfir ní-
rætt, og er það vinafólk hans,
Guðný Róbertsdóttir og maður
hennar, Örlygur Kristfinnsson,
safnstjóri Síldarminjasafnsins,
sem standa að sýningunni í minn-
ingu hans.
Guðmundur góði fæddist 1902.
Hann ólst upp á Snæfellsnesi en
settist síðar að á Siglufirði og
setti þar upp vélsmiðju sem hann
rak til margra ára og lagði mikið
í smíðagripi sína. Um 1930 hafði
hann svo mikinn hug á málaralist
að hann setti upp málverkasýn-
ingu á Akureyri með ríflega 30
myndum. Þar heyrði hann á tal
tveggja manna sem hann taldi
hafa vit á slíkum hlutum og
fundu þeir myndunum ýmislegt
til foráttu. Eftir það brenndi
hann velflest málverk sín og
snerti síðan ekki pensil – eða
fjöðurstaf – í um fimmtíu ár. Er
hann loks tók aftur til við mál-
verkin var það til að selja myndir
í þágu góðgerðarmála, einnig
seldi hann smíðisgripi úr tré og
málaði steinvölur. Allur ágóði af
verkum hans rann til starfsemi
móður Teresu á Indlandi.
Verk Guðmundar flokkast að
mestu undir það sem kallað er
„naive“ list, og Aðalsteinn Ing-
ólfsson hefur íslenskað sem næfa
list í bókinni sem gefin var út í
tilefni sýningarinnar Einfarar í
íslenskri myndlist sem haldin var
í Hafnarborg 1990. Þar er m.a.
fjallað um hvað skilgreinir næfa
list frá alþýðulist.
Þegar merking orðsins „naive“
er skoðuð – barnslegur, einfald-
ur, saklaus, auðtrúa – er nokkuð
ljóst hvað næf list felur í sér. Í
grófum dráttum er næfur lista-
maður er því sá sem hefur á ein-
hvern hátt varðveitt sína barns-
legu sýn á heiminn og býr að
henni allan sinn aldur. Næfir
listamenn búa oftar en ekki yfir
ríku hugarflugi og skapa sér sinn
sérstaka myndheim. Myndefnið
er oftast mikilvægt, að koma frá-
sögn til skila. Aðalsteinn flokkar
næfa myndlistarmenn í tvo hópa,
sögumenn og skreytilistamenn.
Alþýðulist er oftar en ekki hand-
verk ýmiss konar og einkennist
ekki af jafnsérstökum hugar-
heimi og list næfra listamanna.
Guðmundur sómir sér ágæt-
lega í hópi næfra listamanna,
bæði persóna hans, líf og mynd-
verk. Þegar hugað er að merk-
ingu orðsins eins og hún er útlist-
uð hér að ofan má segja að hvert
orð eigi vel við líf hans og per-
sónu, en hann var mikill frum-
kvöðull á sviði góðgerðarmála.
Hann barðist gegn mengun frá
síldarverksmiðjunum á sjöunda
áratugnum og fékk litlar þakkir
fyrir. Áhugi hans á austrænum
fræðum og andlegum málefnum
var alla tíð mikill. Á sýningunni í
Gránu má sjá þrjú af fjórum olíu-
málverkum Guðmundar sem lifðu
af bálför vonbrigðanna. Þau bera
hæfileikaríkum málara vitni og
mikil synd er að svona hafi farið.
Það hefði verið áhugavert að sjá
hvernig honum hefði tekist að
þróa áfram verk sín hefði hann
mætt meiri skilningi. Seinni mál-
verk Guðmundar sýna flest skip
að veiðum á heiðríkum góðviðr-
isdögum, yfir þeim er einstök
birta sem einnig virðist hafa ríkt
um líf Guðmundar og persónu. Í
anda næfra listamanna segja
myndirnar sögu af ýmsum at-
burðum, flestir tengjast veiðum
og sérstaklega síldinni auðvitað.
Smáatriði eru nosturslega máluð
og ávallt mikill fjöldi skipa á
fjörðum, af ýmsum stærðum og
gerðum. Á sýningunni má líka sjá
smíðisgripi Guðmundar úr tré
sem og járngripi sem hann vann í
vélsmiðjunni að ógleymdum mál-
uðum steinum, skærbláum með
gulum heillastjörnum sem frekar
virðast ættaðir frá Indlandi en
Siglufirði.
Sýningin í heild er vel fram
sett og góð viðbót við hana eru
skjöl sem varða líf Guðmundar,
bréf og blaðagreinar, sem og
myndband með viðtali við hann.
Persóna hans gæðir myndirnar
lífi og eykur skilning á verkunum
á sýningunni. Sýningin er ágætt
framtak og minnir á mikilvægi
okkar næfu listamanna sem
ómissandi hluta af íslenskri
myndlist.
Hrein og klár heiðríkja
MYNDLIST
Grána, bræðsluhúsi Síld-
arminjasafnsins á Siglufirði
Til 20. ágúst.
OLÍUMÁLVERK OG SMÍÐISGRIPIR
GUÐMUNDUR KRISTJÁNSSON
„Norðmenn nema Ísland í annað sinn í júlí 1903 og fyrstir salta þeir
síld á Siglufirði þetta sama sumar.“
Ragna Sigurðardóttir
Sýn af eldi hef-
ur að geyma
14 sönglög eft-
ir Salbjörgu
Sveinsdóttur
Hotz í flutningi
Bergþórs Páls-
sonar barí-
tónsöngvara
og Signýjar
Sæmundsdóttur sópransöngkonu.
Undirleikari á píanó er Salbjörg
Hotz. Sönglögin eru ballöður fyrir
einsöngsrödd með píanóundirleik
og eru þau samin við ljóð úr ljóða-
bókinni Aldahvörf eftir Eðvarð T.
Jónsson. Flest sönglaganna voru
frumflutt af þessum sömu flytj-
endum á ljóðatónleikum í Íslensku
óperunni sumarið 2000 og er disk-
urinn sá fyrri af tveimur.
Sýn af eldi er saga í tónum og
fjalla ljóðin um hugsjónir, þjáningar
og raunir. Í sönglögunum er mynd-
ræn lýsing á atburðum, sem áttu
sér stað í Mið-Austurlöndum á
nítjándu öld og lýsir á dramatískan
hátt lífi og örlögum söguhetjanna
sem komu fram með nýjar hugsjónir
í rótgrónu samfélagi síns tíma. Titill
disksins dregur nafn sitt af einu
sönglaganna sem Signý flytur.
Höfundur sönglaganna, Salbjörg
Sveinsdóttir Hotz, er íslenskur pí-
anóleikari sem býr og starfar í
Sviss. Hún lauk burtfararprófi í pí-
anóleik frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík og stundaði m.a. nám við
Tónlistarskólann í Vínarborg. Hún er
nú búsett í Zug í Sviss þar sem hún
hefur m.a. starfað við píanó-
kennslu, undirleik, kammermúsík
og tónsmíðar. Tónsmíðanám hefur
hún stundað á námskeiðum hjá
svissneska tónskáldinu Theo Weg-
mann í Tónlistarskólanum í Zürich.
Útgandi er Fermata sem einnig
sá um hljóðupptökur en þær fóru
fram í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði.
Sönglög