Morgunblaðið - 18.08.2002, Side 48
48 SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!"#
$
%
&
'
(!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
LOKSINS þegar yfirvöld fóru að
taka á málum strippstaða þá kemur
einn þingmaður með meiru fram á
sjónarsviðið sem heitir Gunnar I.
Birgisson. Þessi mektarmaður hafn-
ar því alfarið að eitthvað vafasamt sé
við starfsemi nektardansstaða.
Hann hefur væntanlega verið í út-
löndum þegar niðurstöður nefndar
um hugsanlegt vændi á Íslandi voru
birtar. Hann hefur líklega haft
slökkt á sjónvarpinu þegar það
sýndi sænskan heimildamyndarþátt
um mafíustarfsemi og m.a. vændi í
kringum konur frá austantjaldsríkj-
um. Hann hefur sjálfsagt aldrei haft
nennu til þess að hlusta á Stígamóta-
konur segja okkur hinum frá vand-
ræðum nektardansmeyjanna sem
voru hlunnfarnar og þvingaðar hér á
landi til vændis.
Já, það er líklega best að láta sér
líða vel heima í stofu og vera ekkert
að spá í þetta vafasama líferni allt
saman sem er að gerast í kringum
okkur. Eða kannski er hann Gunnar
I. Birgisson í svona mikilli afneitun
að hann tekur ekkert mark á svona
leiðinda hugmyndum? Hvað sem því
líður þá talar hann nú samt í and-
stöðu við sjálfan sig þegar hann seg-
ir ekkert vafasamt vera inni á þess-
um stöðum. Hann segir einkadans
vera dans en ekki vændi. Hann
minnist svo á undirheimana og að
bannið myndi þá færa starfsemina
þangað en bíddu við; hvaða starf-
semi? Ef það er ekkert vændi eða
annað óeðlilegt að gerast inni á
nektardansstöðunum Gunnar, af-
hverju má þá ekki banna einkadans-
inn? Þetta eru jú blásaklausir bossa-
dillistaðir sem gera engum mein og
allra síst útlensku stelpunum sem
skilja varla ensku og eru ekki þving-
aðar til neins þarna inni. En samt
segist Gunnar I. Birgisson vita af því
að Kaupmannahöfn sé nú undirlögð
af vændiskonum eftir að yfirvöld
bönnuðu einkadansinn þar! Bíddu
við en einkadans er ekki vændissala
eða hvað? Hvað er maðurinn að
segja, röksemdarfærsla hans stenst
engan veginn. Er einkadans þá leið
fyrir vændissölu eða ekki?
Annars var ég að koma frá Köben
og sá ekkert meira af vændiskonum
þar en áður á götunum svo ég veit
ekki hvaðan hann fær þessa bábilju.
Það sem ég sá á götum Köben núna
voru miklu fleiri eiturlyfjaneytendur
en voru þar á síðasta ári.
Það er pínulítið sorglegt hér á Ís-
landi að loksins þegar ráðamenn
þjóðarinnar þora að taka á þessum
skítakompum sem prýða m.a.
miðbæ höfuðborgarinnar og margir
anda léttar, þá kemur einn svona
háttsettur kall og gefur frat í allt
sem á undan er gengið varðandi
þessi blessuðu nektardansstaðamál.
Og Gunnar, það er ekki verið að
sópa neinu undir teppi þegar maður
tekur á málunum því þá erum við
einmitt hugrökk og erum að gera
eitthvað sem krefst þess að við horf-
umst í augu við vandann. En að láta
sem ekkert sé og afturkalla þessar
skynsamlegu reglur sem yfirvöld
eru að setja þessari starfsemi, það
er heigulsháttur af verstu gerð. Það
kalla ég að sópa undir teppið! Við
verðum alltaf að hugsa stærra og
spyrja okkur: Hvernig viljum við
hafa framtíð Íslands? Viljum við láta
ímynd landsins vera tengda við heil-
brigðan gæðastaðal? Viljum við hafa
Reykjavík þekkta fyrir skemmtilegt
sakleysi eða rottugang? Hvað ger-
um við þegar taka þarf til í skíta-
kompum heima hjá okkur? Látum
við þær bara eiga sig eða nennum
við að taka til og hafa þær sóma-
samlegar?
Fyrst það er þörf á strippstöðum
fyrir einhverja hér á landi þá sé ég
enga ástæðu til að loka þeim bara af
því að mér finnst þetta ekkert smart
staðir. En mér finnst rík ástæða til
þess að setja þeim fastar reglur og
aga eins og öðrum stöðum þar sem
fólk kemur saman. Það má alveg
gera allt fallegt ef maður vill og hver
segir að allsbert fólk sé ekki fallegt
eða erótík sé ekki falleg? Það er ekki
nektin sem truflar okkur heldur
þessi eilífa umræða um vafasama
starfsemi í þessum næturlífsgeira-
.Við erum alltaf á réttri leið þegar
við reynum að gera umhverfið okkar
hreinna. Fagurt mannlíf og réttlæti,
það er jú toppurinn.
MARTA EIRÍKSDÓTTIR,
kennari í Reykjaneskjördæmi.
marta@fss.is
Einkadans og
Gunnar I. Birgisson
Frá Mörtu Eiríksdóttur:
Síðumúla 24 • Sími 568 0606
Heimaskrifstofa
166.000,-
Toppárangur
með
þakrennukerfi
þakrennukerfi
Fagm
enns
ka
í
fyrir
rúmi
BLIKKÁS EHF.
SKEMMUVEGUR 36
200 KÓPAVOGUR
SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111
Söluaðilar um land allt