Morgunblaðið - 24.08.2002, Qupperneq 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRGANGABLÖNDUN í Vestur-
bæjarskóla var til umræðu á fundi
foreldra, skólastjóra og fræðsluyfir-
valda sem haldinn var í skólanum á
fimmtudagskvöld. Að sögn formanns
foreldrafélags skólans var talsverð-
ur hiti í fólki vegna málsins en fyrir
utan árgangablöndunina komu mat-
armál í skólanum til tals á fundinum.
Morgunblaðið hefur greint frá
óánægju foreldra með þá ákvörðun
skólans að árgangablanda í tvo bekki
næsta skólaár. Verður þannig einn
bekkur með 6 og 7 ára börnum og
einn bekkur með 8 og 9 ára börnum.
Erlendur Pálsson, formaður For-
eldrafélags Vesturbæjarskóla, segir
umdeilanlegt hvort foreldrar hafi
fengið viðhlítandi skýringar á ár-
gangablönduninni á fundinum.
„Sumir höfðu á orði að ekkert hefði
komið út úr þessu. Engu að síður var
ljóst að þessu verður ekki breytt.
Þarna voru ákveðin sjónarmið, t.d.
varðandi faglegu hliðina, sem var
gott að komu fram. Þannig sagði
Gerður G. Óskarsdóttir fræðslu-
stjóri, sem var á fundinum, að það
væri stefna fræðsluyfirvalda að
reyna að blanda bekkjum í skólum.“
Að sögn Erlends var þó greinilegt
á fundinum að ráðist væri í árganga-
blöndunina einkanlega vegna hús-
næðisskorts skólans.
„Þarna var mikið rætt um hús-
næðismál og eins að ekki skyldi hafa
fengist fjárveiting fyrir aukakenn-
ara. Það hefði létt á áhyggjum fólks
ef menn hefðu verið öruggir um að
það væri aukakennsla í þessum
blönduðu bekkjum en það verður
ekki allan tímann.“
Aðeins ein sjö ára
stúlka í bekknum
Hann segir einnig hafa verið
gagnrýnt að í öðrum þeirra bekkja
sem til stendur að blanda saman ár-
göngum í yrðu aðeins sex sjö ára
börn og þar af bara ein telpa. „Þann-
ig að okkur finnst blöndunin ekki
hafa verið alveg sanngjörn,“ segir
hann.
Aðspurður segir hann að sjálfsagt
finnist einhverjum foreldrum hið
faglega látið sitja á hakanum með
ákvörðunum um árgangablöndun en
erfitt sé að alhæfa um skoðanir for-
eldra. Hægt sé að benda á margt
gott líka. „Það eru frábærir kenn-
arar sem fá þessa bekki og sömuleið-
is voru vinir dregnir saman innan
skólans. Þannig að það var passað
upp á að brjóta ekki upp vinskap
milli þeirra krakka sem fyrir voru í
skólanum.“
Hann segir þó standa upp úr að
ástæður árgangablöndunarinnar séu
húsnæðismál og vöntun á stöðugild-
um innan skólans.
Matarmál nemenda voru einnig
töluvert rædd á fundinum þótt þau
hafi ekki verið á dagskrá hans. Að
sögn Erlends var í fyrra gerð tilraun
með að nemendur fengju heitan mat
á bökkum einu sinni í viku sem tókst
mjög vel. Í ár hafi foreldrar svo ósk-
að eftir því að slíkur matur yrði á
boðstólum alla daga vikunnar og
gekkst foreldrafélagið fyrir því að
Fræðslumiðstöð myndi greiða niður
kostnað við matinn.
Hann segir að á fundinum hafi
komið fram að niðurstaðan varð sú
að heitur matur verður í boði þrjá
daga vikunnar og nokkurrar
óánægju hafi gætt með að það yrði
ekki alla daga. „Skólastjórinn telur
að aðstaða sé ekki fyrir hendi í skól-
anum til þess að veita mat alla daga
vikunnar og hún hafi ekki starfsfólk í
það,“ segir hann og bendir á að í
fyrra hafi foreldrar tekið þátt í að
bera matarbakkana inn í kennslu-
stofurnar. Í ár standi það ekki til.
„Þessi tilraun í fyrra tókst frábær-
lega að okkar mati. Krakkarnir voru
alsælir og kennararnir líka þannig
að þess vegna kom þetta okkur á
óvart núna að þeir skyldu ekki sam-
þykkja þetta alla daga.“
Ber að halda sig
innan fjárhagsramma
Að sögn Kristínar G. Andrésdótt-
ur skólastjóra eru bæði kennslu-
fræðileg og hagkvæmnisrök fyrir því
að ráðist er í að árgangablanda
tveimur bekkjum í skólanum. Að-
spurð hvort ekki hafi komið til
greina að árgangablanda öllum
bekkjum í umræddum árgöngum,
hafi hið faglega ráðið ferðinni, segir
hún það vera matsatriði. „Við mátum
stöðuna þannig að við gerðum það
ekki.“
Innt eftir því hvort vöntun á stöðu-
gildum hafi haft áhrif á ákvörðunina
segir hún: „Fjárhagsrammi skólans
er ákveðinn og fjármögnun kennsl-
unnar er hluti af honum. Mér ber að
halda mig innan fjárhagsramma og
það geri ég.“
Hvað varðar fjölda sjö ára barna
og kynjahlutfall þeirra í öðrum hinna
árgangablönduðu bekkja segir hún
skipta höfuðmáli fyrir einstak-
lingana að fjöldinn í bekkjardeildinni
sé hóflegur og kynjaskipting sem
jöfnust. „Á allra síðustu dögum æxl-
aðist það þannig að það fjölgaði nem-
endum í sex ára árganginum þannig
að það urðu hlutfallslega færri sjö
ára nemendur í þessum blandaða
bekk en við höfðum áætlað. Til þess
að jafna fjöldann í bekkjunum urðu
færri sjö ára nemendur eftir. Það er
einfaldlega óheppilegt að þarna er
ein stúlka.“ Hún segir að verið sé að
ræða hugsanlegar breytingar hvað
þetta varðar.
Þegar hún er spurð um matarmál-
in segir hún búið að koma til móts við
foreldra um að heitur matur verði
þrisvar sinnum í viku í staðinn fyrir
einu sinni í fyrra. Hún segir fjárveit-
ingum um að kenna að ekki sé hægt
að bjóða upp á bakkamat daglega.
„Það fékkst ekki sérstök fjárveiting
til að bæta við starfskrafti til þess að
afgreiða mat en við stefnum að því á
næsta ári.“
Fundað um árgangablöndun í tveimur bekkjum í Vesturbæjarskóla
Rætt um húsnæðisskort og
of fá stöðugildi við skólann
Morgunblaðið/Jim Smart
Á fundinum kom meðal annars fram að það er stefna fræðsluyfirvalda í borginni að blanda árgöngum í bekki.
Vesturbær
ENGIN kennsla verður í Klé-
bergsskóla á Kjalarnesi í
næstu viku en gert er ráð fyr-
ir að nemendur komi til skóla
2. september. Þá tekur við
vika með samblandi af
kennslu og vettvangsferðum.
Eins og Morgunblaðið hef-
ur greint frá er skólahúsnæði
Klébergsskóla ekki tilbúið til
notkunar en meðal annars er
beðið eftir að ný skrifstofu-
álma komist í notkun. Að
sögn Sigþórs Magnússonar
skólastjóra er ljóst að fella
þarf niður kennslu í næstu
viku. „Við ætlum að reyna að
bjarga vikunni þar á eftir.
Það lítur ekki út fyrir – nema
kraftaverkin gerist sem við
vonumst náttúrulega alltaf
eftir – að við getum flutt
skrifstofuna fyrr en einhvern
tímann í kring um tíunda
september.“
Knöpp áætlun
Hann segir að til þess að
brúa bilið verði brugðið á það
ráð að vera með sambland af
vettvangsferðum og kennslu
frá 2. september. „Þetta verð-
ur þá þriðja haustið sem það
verður. Reyndar ætluðum við
okkur það hvort sem er en
núna verðum við að skipu-
leggja þær út frá því að við
verðum alltaf með eina stofu
lausa því skrifstofan er í einni
kennslustofunni.“
Sigþór segir þó mjög
knappt að þessi áætlun stand-
ist. „Núna eru kennararnir
hreinlega að reyna að koma
sér fyrir og það er ekki allt
klárt til þess. Svo tökum við
næstu viku í þennan hefð-
bundna undirbúning á meðan
við erum að bíða eftir hús-
næðinu.“
Klébergsskóli
Kennsla
felld nið-
ur fyrstu
vikuna
Kjalarnes
BYGGINGASTJÓRI verktakafyrir-
tækisins Riss ehf. segir ekki rétt að
tafir á skólahaldi í Selásskóla séu
vegna þess að ekki hafi tekist að ljúka
við viðbyggingu skólans. Hið rétta sé
að skólastjóranum hafi verið boðið að
flytja húsgögn inn í kennslustofur
síðastliðinn þriðjudag.
Í grein í blaðinu í gær var greint
frá því að skólahaldi í skólanum hefði
verið aflýst þar til á miðvikudag í
næstu viku og gaf Örn Halldórsson
skólastjóri þær skýringar að hópur
iðnaðarmanna væri enn að störfum í
skólanum. Eftir væri að ljúka við frá-
gang á lögnum og minniháttar smíða-
vinnu. Sigurfinnur Sigurjónsson,
byggingastjóri Riss ehf. sem er með
framkvæmdina, segir þarna á fyrir-
tækið hallað. „Það er alveg klárt að
það er engin lagnavinna eða smíða-
vinna eftir þarna. Það sem við vorum
að gera í morgun var að hengja upp
sápuskammtara og klósettrúllustatíf
inni á baðherbergi auk þess sem við
vorum að ryksuga. Að öðru leyti var
þetta tilbúið fyrir kennslu.“ Hann
segist hafa boðið skólastjóranum að
koma inn með húsgögnin á þriðjudag-
inn var. „Þegar ég hitti hann á mið-
vikudaginn og fór að grennslast fyrir
um hvers vegna hann væri ekki byrj-
aður á þessu kom upp úr dúrnum að
þeir hafa ekki fengið borð og stóla
fyrir nemendur. Hann sagði einfald-
lega við mig að húsið yrði ekki notað
fyrr en á miðvikudaginn í næstu viku
og þá hætti ég að pressa mína menn.“
Sigurfinnur segir að hefði verið
ástæða til að klára verkið fyrr hefði
hann látið vinna á kvöldin og um helg-
ar. „Við höfum ekki gert það, við unn-
um tvö kvöld í þessari viku en að öðru
leyti hefur ekki verið nein pressa á
þessu þannig.“
Hann bætir þó við að verkið hafi
verið unnið í góðri samvinnu við Fast-
eignastofu Reykjavíkurborgar og
stjórnendur skólans. „Við höfum far-
ið talsvert mikið inn í eldri skóla-
bygginguna til þess að lagfæra fyrir
þá og ég hef verið að eyða tíma í það.
En það er alveg á hreinu að ég hefði
getað verið búinn að ryksuga og
þurrka af og gera klárt fyrr í vikunni
ef það hefði þurft.“
Verktaki segir tafir á skólahaldi í
Selásskóla ekki sér að kenna
Húsgögnin ekki
komin í skólann
Seláshverfi
SKIPULAGS- og byggingarnefnd
Reykjavíkur hefur samþykkt breyt-
ingu á gildandi aðalskipulagi þess
efnis að nýtingu Stakkahlíðar 17
verði breytt og þar verði íbúðar-
svæði. Þar er nú verslunarhúsnæði,
sem sótt hefur verið um að rífa.
Í stað verslunarhúsnæðisins hefur
lóðarhafi óskað eftir að byggja tví-
lyft steinsteypt fjölbýlishús með tíu
íbúðum, auk bílakjallara með 15 bíla-
stæðum undir því. Í umsögn um at-
hugasemdir, sem hafa borist eftir
grenndarkynningu á nýbygging-
unni, kemur fram að upphaflega hafi
staðið til að byggja ofaná- og við-
byggingu við núverandi hús með tólf
námsmannaíbúðum en vegna mikilla
mótmæla hafi verið horfið frá því og
unnin tillaga að nýbyggingu. Sú til-
laga hafi síðan verið endurbætt og
grenndarkynnt.
Hörð andmæli hagsmunaaðila
Sex athugasemdabréf bárust
skipulags- og byggingaryfirvöldum
borgarinnar að lokinni grenndar-
kynningunni. Eru þar gerðar at-
hugasemdir við það sem íbúar telja
ófullnægjandi kynningu meðal íbúa,
skuggavarp, fjarlægð að nærliggj-
andi húsum, skerðingu á útsýni,
verðrýrnun eigna, stærð byggingar-
innar, aukningu umferðar og svo
mætti lengi telja.
Niðurstaða umsagnar fulltrúa
skipulags- og byggingarsviðs og full-
trúa skipulagsfulltrúa er hins vegar
sú að samþykkja beri byggingarleyf-
isumsóknina þrátt fyrir „nokkuð
hörð andmæli hagsmunaaðila“. Telja
fulltrúarnir að grenndarkynning
hafi verið í samræmi við lög og að
húsið fari ekki illa í umhverfi sínu.
Grenndaráhrif þess séu ekki meiri
en almennt megi búast við í þéttbýli
og húsið muni ekki varpa miklum
skugga á nálægar lóðir. Þá sé útsýn-
isskerðing af völdum þess ekki meiri
en búast megi við.
Sem fyrr segir var aðalskipulags-
breyting samþykkt á fundi skipu-
lags- og byggingarnefndar í vikunni
en ekki hefur verið tekin afstaða til
byggingarinnar sem slíkrar.
Íbúðir í stað verslunar-
húsnæðis í Stakkahlíð
Morgunblaðið/Þorkell
Íbúar telja að húsið, sem áformað er í Stakkahlíð 17, þar sem Félags-
heimilið Drangey er til húsa, verði of nálægt nærliggjandi íbúðarhúsum.
Hlíðar