Morgunblaðið - 24.08.2002, Síða 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 23
FÁTÆKIR landlausir íbúar Suður-
Afríku hafa reynt að notfæra sér þá
athygli sem nú beinist að landi
þeirra vegna leiðtogafundar Samein-
uðu þjóðanna um sjálfbæra þróun
sem hefst í Jóhannesarborg á mánu-
dag. Samtök landlausra S-Afríkubúa
hafa efnt til mótmæla við fundar-
staðinn og fyrirhuguð er mótmæla-
ganga 31. ágúst þegar fundurinn
stendur sem hæst. Fyrr í vikunni
voru 72 landlausir S-Afríkumenn
handteknir og í gær var handtöku
þeirra mótmælt við lögreglustöð í
Jóhannesarborg.
Búist er við að fundurinn í Jó-
hannesarborg dragi til sín mótmæl-
endur alls staðar að úr heiminum líkt
og jafnan gerist þegar þjóðarleiðtog-
ar koma saman til að fjalla um mál-
efni eins og fátækt, umhverfismál og
efnahagsþróun. Ef marka má mót-
mæli landlausra S-Afríkumanna má
búast við að heimamenn láti sitt ekki
eftir liggja. Andrúmsloftið er hins
vegar enn sem komið er tiltölulega
afslappað. Öryggisgæsla er ekki yf-
irþyrmandi og erlendir gestir eiga
auðvelt með að fara allra sinna ferða.
Mótmæli landlausra í gær voru
ekki fjölmenn og hefðu án efa farið
framhjá flestum ef fjölmiðlamenn,
sem eru að tínast til borgarinnar,
hefðu ekki veitt mótmælendum þá
athygli sem þeir vonuðust eftir.
Mugabe litinn hornauga
Thabo Mbeki, forseti S-Afríku,
hefur verið gagnrýndur í s-afrískum
fjölmiðlum fyrir að bregðast ekki
nægilega hart við aðgerðum Roberts
Mugabe, forseta Zimbabwe, gegn
hvítum bændum í Zimbabwe, en
Mugabe hefur fyrirskipað þeim að
yfirgefa jarðir sínar sem hann ætlar
að úthluta til svartra landlausra íbúa
landsins. Mugabe ætlar að koma til
leiðtogafundarins í Jóhannesarborg
og í s-afrískum fjölmiðlum í gær kom
fram að viss ótti væri um að Mugabe
myndi reyna að „hertaka fundinn“
með kröfum um að tekin yrði til um-
ræðu á fundinum áætlun hans um að
stjórnvöldum verði heimilt að taka
land af bændum sem hafi komist yfir
það með „ólögmætum“ hætti.
Ekki fer á milli mála að margir af
leiðtogum Afríku óttast að aðgerðir
Mugabe eigi eftir að hafa neikvæð
áhrif fyrir Afríku í heild sinni og
draga úr líkum á að fjárfestar horfi
þangað en Afríka þarf nauðsynlega á
erlendu fjármagni að halda.
Leiðtogafundur Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun
Landlausir S-Afr-
íkumenn handteknir
Jóhannesarborg. Morgunblaðið.
FORMLEGAR friðarviðræður
hefjast á milli leiðtoga stríðandi
fylkinga á Sri Lanka 16. sept-
ember nk. Norsk stjórnvöld til-
kynntu þetta í gær en þau hafa
undanfarin ár reynt að miðla
málum á milli stjórnvalda og
skæruliða tamíla, sem um árabil
hafa barist fyrir sjálfstæðu ríki
tamíla í norðurhluta landsins.
Meira en 60 þúsund manns hafa
farist í borgarastyrjöldinni á Sri
Lanka en vopnahlé hefur hins
vegar verið í gildi síðan 23. febr-
úar sl. og standa nú vonir til að
binda megi enda á átökin í eitt
skipti fyrir öll.
Abu Nidal
ábyrgur fyrir
Lockerbie?
BRESK stjórnvöld voru í gær
hvött til að láta fara fram rann-
sókn á fullyrðingum þess efnis
að Abu Nid-
al, hryðju-
verkamað-
urinn ill-
ræmdi sem
lést fyrr í
vikunni,
hefði borið
ábyrgð á
sprenging-
unni um
borð í flugvél Pan Am-flug-
félagsins yfir Lockerbie í Skot-
landi árið 1988 sem kostaði 270
manns lífið. Atef Abu Bakr,
fyrrverandi talsmaður samtaka
Nidals, Byltingarráðs Fatah,
hélt því fram í fyrradag að Nidal
hefði viðurkennt fyrir dauða
sinn að hreyfing hans hefði stað-
ið á bak við ódæðið.
Skipti við
bróður sinn
MEINTUR, baskneskur
hryðjuverkamaður slapp úr
rammgerðu fangelsi í París með
því að skipta um stað við bróður
sinn á heimsóknartíma, að því er
fangelsisyfirvöld í Frakklandi
greindu frá á fimmtudag. Fang-
inn slapp úr Sante-fangelsinu á
laugardaginn, en það kom ekki í
ljós fyrr en á fimmtudag. Rann-
sókn er hafin á málinu.
Bræðurnir eru mjög líkir í út-
liti. Fanginn sem slapp er sagð-
ur vera Ismael Berasategui
Escudero, sem talinn er vera
meðlimur í aðskilnaðarhreyf-
ingu Baska, ETA. Hann var
handtekinn 14. maí sl.
Líkin
voru færð
MEINAFRÆÐINGAR í Bret-
landi greindu frá því í gær að
öruggt mætti telja að stúlkurn-
ar tvær, Holly Wells og Jessica
Chapman, hefðu ekki verið
myrtar á þeim stað þar sem lík
þeirra fundust sl. laugardag.
Mátti ráða þetta af ásigkomu-
lagi líkanna sem var afar slæmt
og hefur lögreglan sagt að nota
hafi þurft erfðaefni (DNA) til að
staðfesta að um Holly og Jess-
icu hafi verið að ræða. Þá
greindu yfirmenn unglinga-
skólans í Soham frá því í gær að
þeir hefðu ákveðið að reka Ian
Huntley þegar úr starfi hús-
varðar en Huntley er sakaður
um að hafa myrt stúlkurnar
tvær.
STUTT
Viðræður
hefjast á
Sri Lanka
Abu Nidal