Morgunblaðið - 24.08.2002, Side 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 43
✝ Helga Björnsdótt-ir fæddist á
Brunnum í Suður-
sveit í Austur-Skafta-
fellssýslu 11. apríl
1905. Hún lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
austurlands á Höfn í
Hornafirði 15. ágúst
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Björn
Klemensson, f. 27.11.
1869, d. 19.11. 1911,
bóndi og oddviti á
Brunnum, og kona
hans Jóhanna Jó-
hannsdóttir hús-
freyja, f. 23.11. 1863, d. 14.4. 1955.
Systkini Helgu eru: Björg, f. 13.11.
1896, d. 18.1. 1983, Sigríður, hús-
freyja í Hestgerði, f. 11.8. 1898, d.
25.8. 1946, Jóhann Klemens, bóndi
á Brunnum, f. 29.8. 1900, d. 4.1.
1996, og Jóhanna Dagmar, sauma-
kona í Reykjavík, f. 25.11. 1906.
Hinn 14.6. 1943 giftist Helga
Sigfúsi Jónssyni bónda, f. 9.1.
1904, d. 19.1. 1970. Helga og Sig-
fús reistu nýbýlið Brunnavelli í
Suðursveit og bjuggu þar. For-
eldrar Sigfúsar voru Jón Sigfús-
son, bóndi í Snjóholtií Eiðaþinghá
og Þorgerður Einarsdóttir hús-
freyja. Börn Helgu og Sigfúsar
eru: 1) Björn, f. 2.10. 1943, vörubíl-
stjóri, sonur Björns og Sigríðar
Magnúsdóttur frá
Svínafelli í Öræfum
er Ásgeir, kvæntur
Kristbjörgu Eiríks-
dóttur og eiga þau
tvo syni. 2) Sigríður
Jóhanna, f. 30.1.
1945, deildarstjóri á
tannlæknadeild HÍ.
3) Jón, f. 22.5. 1946,
bóndi á Brunnavöll-
um, sambýliskona
Linda María Fred-
riksen og eru börn
þeirra Helga, sam-
býlismaður Guð-
mundur Borgar
Baldursson, Sigfús og Emil, en
dóttir Lindu er Inga Helga Bald-
ursdóttir og á hún tvö börn.
Helga lauk barnaskólanámi í
farskóla sveitarinnar. Síðar stund-
aði hún nám í Ljósmæðraskóla Ís-
lands og lauk þaðan prófi 1929.
Helga stundaði ljósmæðrastörf frá
1929–1970, en síðast tók hún á
móti barni 1974. Auk þess sinnti
hún oft sjúklingum í heimahúsum.
Helga var alla tíð farsæl í störfum
sínum, sem ljósmóðir og var heiðr-
uð af sveitungum sínum á fimm-
tugsafmælinu og aftur er hún varð
sjötug.
Útför Helgu verður gerð frá
Kálfafellsstaðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Í minningabrotum okkar sem
þekktum Helgu Björnsdóttur, ljós-
móður og húsmóður að Brunnum og
síðar að Brunnavöllum í Suðursveit,
er margs að minnast. Við sem þessi
skrif tókum saman stiklum hér á ör-
fáum þeirra í minningunni um heið-
urskonu sem hafði svo óslökkvandi
lífsneista og starfsorku að fá dæmi
mæla.
Foreldrar Helgu voru Björn
Klemensson, oddviti á Brunnum, og
k.h., Jóhanna Jóhannsdóttir, hús-
freyja. Það hlýtur að hafa verið Jó-
hönnu móður Helgu mikill missir að
missa Björn Klemensson úr veikind-
um frá barnahópnum svo ungum
sem raun bar vitni, aðeins tæpra
42ja ára. Það voru því mörg erfið-
leikaspor sem þurfti að takast á við.
M.a. var Jóhann bróðir Helgu aðeins
um 11 ára gamall þegar hann tók við
skipsplássi föður síns sem var auð-
vitað gert af brýnni nauðsyn til að fá
fiskmeti til heimilisins. En slík ráð-
stöfun þætti sjálfsagt varða við
barnaverndarlög í voru þjóðfélagi
eins komið er fyrir því í dag. Lífsbar-
áttan byrjar því snemma hjá þessum
systkinum öllum og sú kvöð að kom-
ast af og reyna að hafa ofaní sig og á.
Það er því ljóst öllum sem til þekktu
að mikil samheldni ríkti milli þeirra
ásamt samofinni elsku og dugnaði
móður þeirra við að berjast fyrir líf-
inu hvað sem það kostaði.
Helga ólst upp, eins og áður sagði,
ásamt systkinum sínum að Brunn-
um. Skólaganga var eins og víðast
gerðist í þá daga, fremur fábrotin og
sóttu systurnar Helga og Jóhanna
Dagmar saman hinn svokallaða „far-
skóla“, en Jóhanna Dagmar, er nú
ein eftirlifandi úr systkinahópnum.
Farskólanum var í þá daga þannig
komið fyrir að kennarinn var látinn
gista eina viku í senn á hverjum bæ,
þar sem barn eða börn áttu heima.
Þannig háttaði til að börnin frá Mið-
þorpsbæjunum fengu með þessum
hætti þriggja vikna kennslu fyrir
áramót og aftur þriggja vikna
kennslu eftir áramót eða samtals að-
eins sex vikna kennslu um veturinn.
Það þætti ekki mikið varið í þá
skólagöngu í dag eða við núverandi
aðstæður. Það var lagður í það mikill
metnaður á hverju heimili í þá daga
að hvert barn væri orðið læst og gæti
svolítið dregið til stafs áður en það
hæfi skólagöngu. Einkum voru börn
þeirra tíma látin hjálpa til við að lesa
húslestrana á kvöldin fyrir allt fólkið
í baðstofunni. Ef lesturinn var ekki
áheyrilegur, mátti viðkomandi þola
gagnrýni á lestur sinn og framburð.
Það tímabil sem börnin byrjuðu í
farskólanum var yfirleitt um tíu ára
aldur. Þær Helga og Jóhanna Dag-
mar gengu því saman í farskólann og
var Jóhanna þá níu ára. Kennslan
var yfirleitt framkvæmd á þann veg
að kennarinn færði sig milli bæja og
gengu þá börnin frá nærliggjandi
bæjum eða úr Miðþorpi sem voru á
svipuðu aldursskeiði til þess bæjar
þar sem farkennarinn dvaldi til að
njóta kennslunnar.
Sá sem kenndi þeim systrum hét
Ari Guðmundsson, frá Reynivöllum í
Suðursveit. Hann hafði orðið fyrir
þeirri þungu raun að fá lömunarveik-
ina og varð upp frá því máttlaus upp
að mitti. Hann mátti gera sér að
góðu heimasmíðaðar spelkur og
hækjur til hreyfa sig örlítið úr stað
en að öðru leyti varð hann að sitja í
sínum stól. Einhverjum hefði líkast
þótt erfitt að stunda farkennslu við
slíka áraun og fötlun. En það hef ég
eftir móður minni Jóhönnu Dagmar,
að betri og skemmtilegri kennara
hefðu þau börnin ekki getað hugsað
sér. Enda báru þau ríkulega um-
hyggju fyrir honum og sýndu honum
mikla virðingu.
Hann kenndi þeim af myndugleik,
m.a. lestur, skrift, réttritun, landa-
fræði og sögu. Hann þótti draga al-
veg listavel til stafs. Ari Guðmunds-
son var einnig mikil söngmaður og
kenndi börnunum að syngja. Hann
spilaði líka á harmonikku fyrir börn-
in sem auðvitað kom í góðar þarfir.
Þegar sveitin kom saman til mann-
fagnaðar var hann borinn á börum út
að samkomuhúsinu til að spila á
mannamótum. Með því sem hér er
sagt er aðeins verið að lýsa því í ör-
stuttu máli hvernig lífshættir Helgu
og aðstæður voru í barnæsku.
Þegar Helga var um 23 ára að
aldri var það einhverju sinni að hún
var á ferð austur á Mörk (en svo
nefnast bæirnir austan Hestgerðis
austast í sveitinni) að Lúlla, Lússía
Þórarinsdóttir á Smyrlabjörgum,
sem átti mörg börn með manni sín-
um Jóni, varð mikið veik við barns-
burð. Þar sem Helga var þar stödd
að þessu sinni, tók hún að sér að
hjálpa til og reyndi að aðstoða sem
best hún gat, þar til Lússia náði fullri
heilsu á ný. Eftir þennan atburð varð
það úr að sveitungar Helgu, lögðu að
henni að kynna sér ljósmóðurstörf í
þágu sveitarinnar. En ástand þess-
ara mála var með þeim hætti að sú
kona sem annaðist þau störf, hét
Lússía Þorsteinsdóttir frá Gerði sem
er einn svokallaðra Breiðabólsstaða-
bæja sunnan við Sand. Í þá daga var
einatt mikið mál að komast leiðar
sinnar og varð ætíð að fara á hestum
yfir fljótin, bæði í austri og vestri.
Það gat því verið örðugt að komast
milli bæja og læknir var næstur
austur á Djúpavogi á þessum tímum.
Konur í sveitinni höfðu einatt áður
fyrr nýtt sér að geta kallað í Björgu
Björnsdóttur, ömmu Helgu, til hjálp-
ar við barnsburði og hafði hún reynst
konum vel og farsællega. Það var því
ekki ólíkt því sem gerist svo oft hjá
móður náttúru að hún kallar fram
hæfileika hjá einstaklingum eftir
sínum þörfum.
Helga tók því áskorun sveitunga
sinna og fór til Reykjavíkur 1928 til
að læra ljósmóðurstörfin. Þá voru
sennilega ekki fleiri en fjórar ljós-
mæður fullmenntaðar í allri Reykja-
vík. Það var því nóg að gera hjá ljós-
mæðranemunum sem fengu að
annast allar sængurkonur í Reykja-
vík um veturinn sem fæddu börn
ásamt því að stunda bóklega kennslu
hjá læknum. En mikinn hluta af bók-
lega náminu kenndi Guðmundur
Björnsson f.v. landlæknir. Eftir
námið í Ljósmæðraskólanum, tók
Helga við ljósmóðurstörfum í Suð-
ursveit og var til hennar leitað út fyr-
ir sveitina ef á þurfti að halda.
Helga stundaði ljósmóðurstörf frá
1929 til 1970 eða í um 51 ár en síðast
tók hún á móti barni 1974. Auk þess
sinnti hún oft sjúklingum í heima-
húsum. Helga þótti sérstaklega far-
sæl í öllum sínum störfum. Helga var
heiðruð af sveitungum sínum á
fimmtugsafmælinu og aftur er hún
varð sjötug.
Árið 1939 var hafist handa við
byggingu nýs íbúðarhúss og var
bærinn þá fluttur fjær fjallinu. Fjöl-
skyldan flutti í nýja húsið á haust-
dögum 1940. Síðar byggðu þau Sig-
fús og Helga sitt eigið hús aðeins
vestar en þar eru Brunnavellir.
Gestrisni og hjálpsemi á öllum
sviðum var þessum systkinum öllum
í blóð borin. Einkum var unun að sjá
hve lífskrafturinn knúði Helgu
áfram við eldhúsborðið, jafnvel þótt
hún þyrfti að styðjast við hækjur, ef
einhvern bar að garði. Þá var eins og
alltaf væri til full kista af meðlæti
með kaffi, brauði, flatbrauði, rúllu-
pylsu, hangiketi og hverskyns mat.
Allt var það mjög vel útilátið. Það
var ekki við annað komandi en Helga
gæfi gestum sínum einhvern viður-
gerning er einhvern bar að garði.
Það var ekki óalgengt að slegið
væri í lummur eða vöflur með sultu
og rjóma, allt saman dregið fram á
svipstundu. Það var líka öllum ljóst
að þar fór ákveðin húsmóðir sem
vildi að sér væri hlýtt. Það var t.d.
ekki gott að ætla sér ekki tíma til að
njóta veitinga sem boðnar voru, það
var eitthvað sem Helga átti erfitt
með að skilja.
Þau Sigfús og Helga tóku móður
þeirra systkina, Jóhönnu Jóhanns-
dóttur, og Björgu inn á heimili sitt og
ólu önn fyrir meðan þær lifðu. En
Björg var nær ósjálfbjarga og síð-
ustu ár Jóhönnu var hún blind. Fyrir
þessa umönnun alla og elskulegheit
verður seint eða aldrei þakkað. En
Helga og Sigfús önnuðust þær ásamt
börnum sínmum af alúð og dreng-
skap miklum.
Árið 1954 var móðir mín Jóhanna í
heimsókn hjá systur sinni Helgu. Þá
bar svo við að Anna Elín kona
prestsins sem þá var sr. Sváfnir
Sveinbjarnarson var að fæða eitt
sinna barna en þau eignuðust mörg
börn hjónin. Helga var þá alveg hjá
þeim og móðir mín Jóhanna annaðist
heimilisstörfin á meðan. Þá hafði
Skarphéðinn Gíslason, þúsundþjala-
smiður frá Vagnstöðum, farið austur
í Hálsa og skotið sel. Hann reið með
hluta af selnum heim á Kálfafells-
stað, því það þótti góðs viti að gefa
sængurkonum selkjöt og spik. Ein-
hver afgangur varð af selnum og
kom hann heim til Sigfúsar og
Helgu. Móðir mín segir svo frá að
hún hafi lagt kjötið í mjólk og tilreitt
eftir sinni bestu þekkingu. Björn
Sigfússon sem þá var barn að aldri
var sá eini systkinanna sem vildi
fylgjast mjög grannt með elda-
mennskunni og þorði móðir mín ekki
að segja annað en að um hrossakjöt
væri að ræða. Þegar eldamennsku
lauk borðaðist vel af réttinum. Síðar
varð Björn matsveinn á vertíðarbát-
um frá Höfn og fórst vel úr hendi en
annars leikur honum allt í hendi
hvort sem um tré eða járn er að
ræða. Hann hefur að mestu verið
vörubílstjóri í sýslunni á umliðnum
árum. Sigríður Jóhanna varð fljótt
mikil hjálparhendi tannlækna og
starfar nú sem deildarstjóri við tann-
læknadeild Háskóla Íslands. Hún
hefur því að nokkru fengið hjúkrun-
arþáttinn með móðurmjólkinni ef
svo má segja. Jón sem er yngstur
hefur að mestu helgað sig bú-
mennskunni og hefur honum farnast
vel enda fengið umhyggju fyrir dýr-
um í vöggugjöf frá foreldrunum.
Það kann því að vera einhver
sannleikur í eftirfarandi orðum:
Þótt náttúran lamin sé með lurk,
þá leitar hún út um síðir.
Þannig varð móður minni að orði
og við ljúkum í sameiningu þessum
fátæklegu orðum og minningabrot-
um um Helgu Björnsdóttur frá
Brunnavöllum, mikilhæfa konu sem
ann öllum sem áttu bágt og veikindi
stríddu.
Börnum hennar og niðjum óskum
við velfarnaðar. Megi Guð vera með
þeim í náð og reynd.
Jóhanna Dagmar Björnsdóttir,
Gígja og Harald.
Níu ára gamall var ég sendur til
sumardvalar í Suðursveit. Næstu
fjögur sumur var ég á Brunnavöllum
hjá þeim Helgu og Sigfúsi. Þetta var
góður tími. Eftir því sem árin líða
hugsa ég oft um það hversu ríkur
þáttur dvölin hlýtur að hafa verið í
uppeldi okkar krakkanna sem feng-
um að dveljast hjá þeim. Þar kom
margt til.
Rafmagnið kom á öðru ári dvalar
minnar og brúin yfir Skeiðará kom
síðasta sumarið. Á þriðja ári komu
tveir þýskir ferðalangar og þótti það
tíðindum sæta. Þetta voru tímar
mikilla umskipta, bæði efnahags-
legra og tæknilegra. Heimamenn
löguðu sig að breytingunum á hug-
vitssaman hátt jafnvel þó nú sé orðið
ljóst að kröfur nútímans hafi að lok-
um orðið ráðandi.
Suðursveit var einangruð í land-
fræðilegum skilningi en öðru máli
gegndi með menninguna. Þetta var
heimur út af fyrir sig og á margan
hátt ríkur. Mér er minnisstætt
hversu umburðarlyndið var mikið.
Daglegt líf var viðburðaríkt. Það var
séð til þess að allir væru með og
grunntónn þessa samfélag var sam-
hjálp.
Helga var ljósmóðir og var til þess
tekið hversu vel hún gegndi því hlut-
verki. Hún fylgdist með lífshlaupi
þeirra barna sem hún hafði hjálpað í
heiminn og var í sambandi við mörg
þeirra alla tíð. Aðalstarfi hennar var
þó heimilishaldið. Það var erfitt að
starfrækja svona mannmargt heim-
ili. Þannig er það þó ekki í minning-
unni. Allt var heimagert. Hún og
Lilla dóttir hennar ráku heimilið af
stakri prýði. Þær voru meistarar í
matseld og heimilið var rekið af festu
og ráðdeild. Þrátt fyrir erilinn hafði
heimilisfólkið tíma til að ala okkur
upp. Við strákarnir ræddum efni
Búnaðarblaðsins Freys við Sigfús
eða syni þeirra Jón og Bödda en
Helga gaukaði að okkur skáldsögum
eftir því sem við höfðum þroska til.
Lilla kenndi okkur góða siði.
Helga var einstaklega kraftmikil
kona. Í senn stolt en lítillát á sinn
hátt. Við andlát Helgu er mér þakk-
læti efst í huga. Að hafa fengið tæki-
færi til að kynnast henni, bæði sem
manneskju og fulltrúa þess sam-
félags sem hún var hluti af. Sam-
félags sem nú er æ fleirum hulið.
Örn Daníel Jónsson.
Drottinn, þú lætur manninn hverfa aftur
til duftsins
og segir: „Hverfið aftur, þér mannanna
börn!“
Því að þúsund ár eru í þínum augum sem
dagurinn í gær, þegar hann er liðinn,
já, eins og næturvaka.
Þú hrífur þá burt, sem í svefni,
þá er að morgni voru sem gróandi gras.
Að morgni blómgast það og grær,
að kveldi fölnar það og visnar.
Kenn oss að telja daga vora,
að vér megum öðlast viturt hjarta.
(90. Davíðssálmur.)
Látin er í hárri elli heiðurskonan
Helga Björnsdóttir, Brunnavöllum í
Suðursveit. Hún hafði lengst af verið
heilsugóð og haldið sér furðu vel,
fyrir utan þær hremmingar sem slit
og lúi setja óhjákvæmilega á eldri
borgara. Andlegum kröftum sínum
hélt hún alla tíð. En fyrir nokkrum
misserum fékk hún slag, missti afl
hægra megin og mátti ei framar
mæla. Eftir það dvaldi hún á Skjól-
garði, Höfn, uns hún leystist í frið úr
lúðum líkama sínum hinn 15. ágúst.
Hún fæddist á Brunnum í Suður-
sveit, eitt fjögurra barna þeirra
Björns Klemenssonar, þingeyskrar
ættar, og Jóhönnu Jóhannsdóttur
frá Borgarhöfn, en af þeim systkin-
um er nú Jóhanna Dagmar ein á lífi.
Föður sinn missti Helga sex ára
gömul, og mátti því taka til hendinni
í æsku. En Helgu var ekki fisjað
saman. Hún braust af litlum efnum
til mennta, lærði til ljósmóður syðra
og gegndi því starfi um áratuga
skeið hér í Suðursveit. Þá annaðist
hún og sjúklinga af mikilli prýði.
Helga var varfærin og notaleg við
sængurkonur, og fannst þeim öruggt
og gott að láta hana sitja yfir sér.
Húsakostur á Brunnum var þröng-
ur, að þeirra tíma hætti, ekki hvað
síst eftir að Helga giftist Sigfúsi
Jónssyni frá Snjóholti í Eiðaþinghá
og börnin tóku að koma í heiminn.
Því varð úr að Brunnum var skipt og
nýbýlið Brunnavellir stofnað um
miðja síðustu öld. Varð þá allt hæg-
ara viðfangs, þótt ærinn starfi biði
húsráðenda, en Sigfús var elju- og
starfsmaður.
Helga var afbragðskona, þar var
ekki óðagotið, hún gaf sér tíma í
hvaðeina sem hún tók sér fyrir hend-
ur og allt hafðist þetta í rólegheit-
unum. Hún var frændrækin, vinsæl
og trygglynd og fylgdist vel með um-
hverfi sínu, án þess að láta hávaða
dagsins hafa áhrif, sívakin yfir vel-
ferð síns fólks, umhyggjusöm í öllu
sínu atferli. Hjá henni var löngum
gott að sitja og gott að una, og ekki
spilltu flatkökurnar hennar og
heimalagaða kæfan heldur fyrir.
Mikið vinfengi var milli Helgu og
foreldra minna á Kálfafellsstað. Hún
tók á móti mér í heiminn og passaði
mig stundum, óvita barnið. Eitt sinn
fannst ég sofandi á milli bæjanna.
Ég hafði verið á leið til Helgu fóstru
minnar, en mig skort úthald.
En tíminn líður og tekur vor ár, og
fyrr en varir er komið að kveðju-
stund. Það er fallegt á Brunnavöllum
undir fossinum háa og hamravirkj-
unum mikilfenglegu. En þar er líka
kvöldsett, og nú er hinsta kvöldið
upp runnið. Þá er sælt að mega
ganga til hvílu eftir langan og farsæl-
an starfsdag.
Megi Helga vinkona okkar hvíla
mjúklega í faðmi fósturmoldarinnar í
Suðursveit. Líf hennar var líf í
sæmd. Hafi hún þökk fyrir allt og
allt.
Einar og Sigrún,
Kálfafellsstað.
HELGA
BJÖRNSDÓTTIR
6
-$
/
5
.
2>32%
9
2>32%
$)<*?5
3
-
- !!" ' !
$
! (/01'-
)01&
!!"")<7 ! #