Morgunblaðið - 24.08.2002, Síða 44

Morgunblaðið - 24.08.2002, Síða 44
MINNINGAR 44 LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Nú á kveðjustund veltir maður því fyrir sér hvort hið forna máltæki eigi sér stoð í raunveruleikanum að þeir deyi ungir sem Guð elskar og ekki er hægt að komast að annarri niður- stöðu en að það séu réttmæli, að minnsta kosti elskaðir þú Guð þinn og tilbaðst hann og sóttir styrk í þína einlægu trú á hann. Það er að ég held mjög fátítt að unglingar í dag séu það þroskaðir að þora að gangast við frelsaranum, það gerðir þú og barst höfuðið hátt í öllum þínum veikind- um. Þú gerðir allt sem í þínu valdi stóð til að styrkja og hugga þá sem í kringum þig voru og stappa í okkur öll stálinu. Jafnt skyldmenni sem vandalausir og fólk yfirleitt undraðist æðruleysi þitt er þú sagðir: „Ég hræðist ekki að deyja en ég hefði kosið að fá að lifa lengur.“ Það er okkur mikill styrkur í sorginni að vita að þú ert nú komin til Guðs almáttugs, þess sem þú trúðir og treystir á. Það er okkar sannfæring að hjá honum séu þér ætluð æðri og háleitari störf en hægt er að leysa í jarðlífinu. Þegar horft er um öxl yfir hið jarð- neska líf þitt, sem ekki varð lengra en fjórtán ár, koma mörg atvik upp í hugann, myndir af kraftmikilli stelpu sem var orðin altalandi átján mánaða og sagði þá gjarnan: „Nei, nei, Unnur gera sjálf,“ þegar við vildum aðstoða þig við það sem þú hugðist gera. Mynd af stúlku sem farin var að ganga tíu mánaða og datt aldrei. Mynd af sjö ára stelpu sem hafði ráð undir rifi hverju og varð í leik barna sjálfkjörinn leiðtogi hópsins og sú stoð sem allir gátu treyst og trúað á. Upp í hugann kem- ur mynd af atviki sem varð er þú varst sjö ára gömul en það var með þeim hætti að þið systur, þú og Þor- gerður, sem er tveimur árum yngri, voruð heima við á Gunnlaugsgötunni að leika ykkur. Mamma hafði skroppið niður í búð að útrétta eitt- hvað og þá byrjaði Þorgerður að suða í þér að sig langaði í kók að drekka. Þú sagðir henni að það væri ekki til en sú stutta vildi ekki láta sér segjast og herjaði stíft á þig um kók- ið. Til þess að þú fengir nú frið fyrir henni brástu á það ráð að segja henni að ef hún setti kalt vatn í plastpoka og gengi að minnsta kosti sex hringi í kringum grunnskólann, sem er næsta hús við þáverandi heimili okk- ar, myndi vatnið verða kolsýrt og bragðast eins og kók. Þorgerður gerði eins og stóra systir lagði fyrir hana en vatnið smakkaðist eins og venjulega. Með þessu fékkstu frið til að kíkja í bók. Þegar ég kom heim og sá Þorgerði á röltinu með plastpok- ann og komst að því hvað var í gangi gat ég ekki varist brosi. Ég spurði þig: „Unnur mín, skammast þú þín ekki fyrir að hrekkja Þorgerði svona?“ Þá sagðir þú: „Nei, eiginlega ekki, ég vildi frá frið,“ en bættir svo við: „Jú, svolítið, en ég lét hana nú klára samt.“ Þarna er þér rétt lýst, úrræðagóð í meira lagi. Hrekkur sem engan sakaði nema trúgirni litlu systur sem varð af kókinu í það skiptið. UNNUR HELGA BJARNADÓTTIR ✝ Unnur HelgaBjarnadóttir, Borgarvík 12 í Borgarnesi, fæddist á Akranesi 20. mars 1988. Hún lést á barnadeild Land- spítalans við Hring- braut miðvikudag- inn 14. ágúst síðastliðinn. For- eldrar hennar eru Bjarni Kristinn Þor- steinsson, f. 14.6. 1959, slökkviliðs- stjóri í Borgar- byggð, og Guðrún Kristjánsdóttir, f. 17.4. 1962, framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar í Borg- arnesi. Systir Unnar er Þorgerð- ur Erla, f. 11.7. 1990. Útför Unnar verður gerð frá Borgarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Eftir að þú greindist með krabbameinsæxlið í höfðinu hinn 15. apríl sl. fórstu að vinna í því að búa okkur sem að þér stöndum undir það sem getur orðið, eins og þú komst að orði. Þú varst búin að segja til um hvernig útför þín ætti að fara fram. Þú varst einstakur og þroskaður unglingur sem barst hag allra annarra meir fyrir brjósti en þinn eigin. Það lýsir sér best í því að það var að þínu frumkvæði að hjúkrunarfræðingur kom frá Landspítalanum í vor í grunnskólann hér í Borgarnesi og fræddi bæði kennara og bekkjar- systkini þín og Þorgerðar um veik- indi þín. Þú sagðir við mig: „Mér finnst eins og fólk haldi að ég sé smitandi.“ Hinn 22. maí sl. byrjaðir þú í geislameðferð á Landspítalan- um. Þá bjuggum við á tveimur stöð- um í Reykjavík, í Ljósheimum og á Flókagötunni. Eftir að geislameð- ferðinni lauk fékkst þú að vera heima í þrjár vikur en varst svo flutt hinn 25. júlí á barnadeild Landspítalans við Hringbraut þar sem þú naust frá- bærrar hjúkrunar og umönnunar starfsfólks sem við munum minnast um ókomin ár. Meðan þú lást þar rúmföst kom fjöldi fólks, vinir og skyldmenni, og heimsótti okkur, þessu fólki færum við alúðarþakkir fyrir tryggðina við þig og okkur fjölskylduna. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki öllu á barnadeildinni en ekki síst frænku þinni, Brynju Ragnarsdóttur lækni, fyrir allt sem hún gerði fyrir þig og okkur, hún var okkur öllum ómet- anleg stoð og stytta allan þann tíma sem þú áttir í veikindum þínum. Elsku Unnur okkar, Guð geymi þig að eilífu. Mamma, pabbi og Þorgerður. Sumri er tekið að halla og ágúst- mánuður genginn í garð, af mörgum talinn einn fegursti mánuður ársins, með hlýja vinda og allt í fullum blóma. Dag einn þá skyndilega fellur tjaldið og sýningin á enda. Sá sem skrifar leikrit lífs vors lætur okkur ekki í té fullunnið handrit og þessi sýning varð styttri en við hugðum og endirinn óvæntur. Hún Unnur frænka mín hefur nú verið kölluð heim úr sýningunni langt um aldur fram. Hví er lífið svona óréttlátt? Hví er manneskja sem er rétt að hefja lífið kölluð burt á þennan hátt? Engin svör eru til sem geta svarað því. Nú er baráttu þinni við illvígan sjúkdóm lokið, þú lést aldrei á neinu bera, trúðir á guð og sýndir sannan baráttuvilja en á endanum varðst þú að láta undan vilja Guðs. Í vor vissu allir að næstu mánuðir yrðu erfiðir en allir vonuðu það besta – að tíminn sem þú fengir að vera með okkur yrði miklu lengri. En þú vissir greinilega eitthvað meira en við hin, það sést best á því hverju þú varst búin að koma í kring ef svona færi. Þú varst sérstök ung stúlka sem allir sakna nú sárt. En við sem eftir lifum trúum því að þú sért nú í faðmi kærleikans í nýjum störfum á nýjum stað. Ég bið þann Guð sem gefur og tekur að styrkja fjölskyldu, ættingja og alla sem nú syrgja og sakna og bið hann að blessa þeim minningu sér- stæðrar stúlku. Takk fyrir tímann sem með þér áttum, tímann sem veitti birtu og frið. Ljós þitt mun loga og leiðbeina áfram, lýsa upp veg okkar fram á við Gefi þér guð og góðar vættir góða tíð yfir kveðjuna hér. Þinn orðstír mun lifa um ókomna daga, indælar minningar í hjarta okkar ber. (p.ó.t.) Þín frænka Þórhildur á Brekku. Elsku Unnur mín er nú farin. Ég veit að aðeins þeir sem hafa gengið í gegnum svona þrautagöngu vita hvernig okkur, sem eftir stöndum líður. Unnur, þú varst tekin frá okk- ur í blóma lífsins, rétt fermd. Það er ekki sanngjarnt. Við getum samt huggað okkur við það að þér líður al- veg afskaplega vel núna. Ég finn oft fyrir því, eins og eitt kvöldið eftir að þú varst farin þegar ég var á leiðinni í rúmið, ég var meira að segja ekki að hugsa til þín þegar þú birtist í huga mér svo skælbrosandi og ánægð. Þá vissi ég loksins að þú ert komin á góðan stað með Unna heitnum, Helgu gömlu, Kristjáni afa þínum og mörgum fleirum. Við höfum alla tíð verið eins og systkini, ég og þú, Unn- ur mín. Við ólumst upp saman í Borgarnesi og urðum vinir þrátt fyr- ir að það eru sex ár á milli okkar. Strax frá fæðingu var eins og ein- hver tengsl mynduðust á milli okkar. Ég man að ég fór með pabba þínum út á Akranes til að ná í þig og mömmu þína eftir að þú fæddist, og mamma þín sagði við mig að ég ætti að passa þig. Ég horfði á þig sofa alla leiðina frá Akranesi upp í Borgar- nes. Eftir það passaði ég þig heima, sá til þess að allt færi vel fram. Seinna meir passaði ég þig þegar mamma þín og pabbi fóru í vinnuna og svo enn seinna bæði þig og Þor- gerði, eða Dellu systur þína, sem er ekki síður tengd mér en þú. Svo kom sá dagur er þú byrjaðir í skólanum. Það voru oft fagnaðar- fundir þegar við hittumst í frímín- útum en í skólanum eignaðist þú margar góðar vinkonur og í náminu blómgaðist þú svo sannarlega. Enn liðu dagar og barnalegt tal varð að heimspekilegum umræðum um allt sem snerti lífið og tilveruna, líka ástamál og unglingaveiki… Þrátt fyrir að ég flytti frá Borgar- nesi til Reykjavíkur héldum við ennþá sambandi með SMS og sím- hringingum. Þið systur voruð var- kárar þegar ég kom með kærustuna heim fyrst, hana Önnu Siggu. Það var ekki sama hver væri með frænda. Á þessum tímum áttum við margar samræður sem við lærðum mikið af, þó sérstaklega ég því, al- máttugur, hvað þú vissir mikið. Ég man eftir því á aðfangadagskvöld þegar þú varst tólf ára, þá fórstu að íhuga trúna því þá leið að fermingu. Þú varst viss um að Guð væri til í hjarta þínu. Þess vegna ákvaðst þú að fara í messu. Ég sótti þig og þú komst labbandi fram í sparifötunum og mikið hvað þú varst falleg. Ég var stoltur af þessari litlu frænku minni og minntist á það við hana að passa sig nú á strákunum. Enn liðu stundir og áramótin 2002 gengu í garð. Þú vildir fá að vera með okkur þetta gamlárskvöld, sem þú fékkst og áttum við góðar stundir þrátt fyrir að þú hafir átt í þínum erf- iðleikum þá. Þú komst í heimsókn til okkar Önnu til Reykjavíkur. Við töl- uðum um allt, þú ætlaðir að koma til London og heimsækja okkur þegar við færum þangað að læra. Þú ætl- aðir að leika í stuttmyndinni minni og við fórum saman í ,,menningar- reisu“ eins og þú sagðir sjálf. Ég tók mynd af þér í þeirri ferð og þar varstu hamingjusöm, lífsglöð og hraust ung kona, þrátt fyrir að böl sjúkdómsins væri farið að hrjá þig. Ég fer dálítið aftur núna og hugsa út í það þegar þú varst fjögurra ára. Þá dreymdi mig að þú hefðir dáið, og ég sá í draumnum að þú lést með pabba minn þér við hlið. Ég vonaði alla daga síðan að þetta ætti aldrei eftir að gerast. Það var svo mánudag í apríl sem pabbi hringdi í mig. Þetta var erfið nótt fyrir mig, ég svaf illa og dreymdi ljóta drauma þannig að ég var syfjaður. Pabbi sagði mér að Unnur væri komin með æxli. Ég fór eins fljótt og ég gat til þín á spít- alann. Þar tókstu á móti mér og brostir. Ég brosti á móti og sagði: ,,Þú veist að þú mátt ekki hugsa svona mikið!“ Þá brostirðu þannig að það sást í tennurnar. Ég kvaddi þig og fór með Dellu okkar heim. Viku seinna hringdir þú sjálf og sagðir að útlitið væri ekki gott. Nú í sumar átti ég aðra andvökunótt því mér leið svo illa. Þá varstu orðin svo mikið veik, elsku Unnur mín. Þarna sérðu hvað við erum tengd. Þetta sama kvöld voru örlögin kveðin. Ég vildi vera hjá þér eins lengi og ég gat, og sat hjá þér þegar þú fórst úr þessum heimi. Þetta var allt alveg eins og í draumn- um, pabbi sat hjá þér og ég við hlið hans. Eins og í draumnum vorum við Della saman og ég passa hana eins og alltaf, ekki hafa áhyggjur af því. Þrátt fyrir að þú sért nú komin óralangt í burtu veit ég að þú ert enn hjá okkur. Okkar síðustu samræður um Guð, himnaríki og dauðann og margt annað sem ég á með mér eru til marks um það. Minningin um þig verður með mér þar til við hittumst á ný á efsta degi. Þinn uppáhaldsfrændi, Sigursteinn. „Sælir eru hjartahreinir því þeir munu guð sjá.“ Elsku Unnur. Í dag er komið að kveðjustund, stund sem kom allt of snemma. Þú sem barðist svo hetju- lega við þennan illvíga sjúkdóm, miklu lengur en við munum nokkurn tímann fá að vita. Aldrei heyrðist þú kvarta, heldur hafðir þú meiri áhyggjur af þeim sem stóðu þér næst. En það lýsir því best hvernig manneskja þú varst. Við þökkum þér fyrir þau ár sem við áttum með þér og munum við alltaf minnast þín sem yndislegrar frænku, sem við erum ríkari fyrir að hafa þekkt. Sum börn sem gestir koma sólríkan dag um vor og brosið þeirra bjarta býr til lítil spor í hjörtum sem hljóðlaust fela sinn harm og djúpu sár við sorginni er bænin svarið og silfurlituð tár. Það er svo erfitt að skilja með okkar veiku vörn og enga fró að finna þegar fara lítil börn. Börn Guðs sem gestir koma gleymum aldrei því. Í minningunni brosið bjarta býr hjarta okkar í. Það gull við geyma skulum og allt sem okkur er kært, við vitum þegar birtu bregður börn Guðs þá sofa vært. (Bubbi Morthens.) Elsku Gunna, Bjarni og Þorgerð- ur. Missir okkar allra er mikill, en mestur er þó missir ykkar. Við biðj- um Guð að styrkja alla þá sem syrgja yndislega og góða stúlku sem hafði hjarta úr gulli. Þórður, Júlía og Þórunn Birta. Elsku Unnur mín, nú kveð ég þig með miklum söknuði í hinsta sinn. Það var svo yndislegt tækifæri að fá að kynnnast svona fallegri og sér- stakri stúlku eins og þú varst. Svona hjartahlýrri og gáfaðri ungri stúlku sem vissi alveg nákvæmlega hvað hún vildi. Þú bættir heiminn bara með því að vera þú. Ég man eftir því þegar ég hitti ykkur systur fyrst, maður var nú mældur út á alla kanta, hvort ég væri nú í hæfi fyrir uppá- halds frænda ykkar, þetta varð nú að kanna. Ég man líka tímann okkar saman í Breiðholtinu, þegar þú fékkst að koma í heimsókn og gista og þegar við tókum video og Sigursteinn sofn- aði í sófanum og við tvær rákum hann inn í rúm, og var það aðallega vegna þess að hroturnar í honum yf- irgnæfðu myndina. Og við tvær klár- uðum að horfa á hana og spjölluðum svo saman um heima og geima langt fram eftir nóttu. Þú varst svo gáfuð, og þó þú værir svona ung að árum vissir þú samt ansi margt um lífið og tilveruna. Þú varst einnig afskaplega trúuð og vitnaðir oft í setningar úr Biblíunni, hana varst þú sko með á hreinu. Sagt er að þeir sem guðirnir elski mest deyi ungir og þér hefur verið ætlað eitthvað mikilvægara á æðstu stöðum. Það er ofboðslega erfitt að fá ekki að hafa þig ekki lengur hjá okkur en þér líður örugglega vel núna eftir þessa þrautagöngu þína og það var sama hvað þú þurftir að upplifa mik- inn sársauka í sambandi við veikind- in þín, þá var þér meira í mun að öll- um öðrum liði vel í kringum þig, og þú máttir ekkert aumt sjá. En um leið og ég kveð þig, Unnur mín, þá bið ég góðan guð um að styrkja fjölskyldu þína og vini og hugreysta á þessum erfiðu tímum, því missirinn er mjög mikill. Elsku Gunna, Bjarni og Þorgerður, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Vertu sæl, elsku hjartað mitt. Þín Anna Sigríður. Í dag kveðjum við hana elsku Unni okkar, þessa myndarlegu stúlku sem átti framtíðina fyrir sér, en fljótt skipast veður í lofti. Unnur lést 14. ágúst eftir erfiða píslargöngu um það bil þegar grös fara að falla og haustið að koma. Unnur Helga var ákaflega vel gerð og miklum gáfum gædd. Hún var mjög trúuð og var ekki í vafa um hvað hún ætlaði að verða og var farin að leggja drög að þeim starfsvett- vangi, en enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Núna getum við ekki annað en ylj- að okkur við minninguna um hana. Hún hafði mjög gaman af að koma með okkur í sumarbústaðinn. Þar gátum við skemmt okkur við spil og annað, það var ekki alveg þrauta- laust að kenna mér á farsímann, þá hlógum við mikið og grínuðumst. Hún hafði yndi af skepnum og í vor fórum við oft saman í útreiðatúra ásamt Þorgerði og Sigursteini. Og ekki má gleyma honum Snúð, hund- inum þeirra systra sem hún hélt mikið upp á, og varð hann svo frægur að heimsækja hana á spítalann, þar sem henni var ekið í sjúkrarúmi nið- ur í bílageymslu. Þar urðu mikil fagnaðarlæti hjá báðum. Unnur bar ekki veikindi sín á torg. Ef hún var spurð: „Hvernig líður þér?“ var svar- ið: „Það er allt í lagi með mig, en hvernig hefur þú það?“ Æðruleysi og væntumþykja í garð annarra einkenndi Unni. Hún var mikill sólargeisli foreldra sinna og systur Önnu Siggu og afa Steina. Við vonum að Unnur sé búin að hitta Unna (eldri) frænda sinn sem fórst í bílslysi fyrir u.þ.b. 38 árum og afa Kristján. Elsku Unnur. Við kveðjum þig með söknuði og eftirsjá. Megi guð styrkja ykkur, elsku Gunna, Bjarni, Þorgerður, Sigga, Steina og María. Ó, guð ég veit hvað ég vil er ég vakna með rísandi sól, þakka sumar sælu og yl. Nú er sólskin um byggðir og ból. Þér sé lof, því að loftið er tært og ég leik mér um grundir og hól svo ég geti af lífinu lært þín ég leita og á hjá þér skjól. (Kristján Valur Ingólfsson.) Steinunn og Sigurður. Sumarið 1999 er mér minnisstætt fyrir margt. Þetta sumar starfaði ég í fyrsta sinn sem læknir en ég hafði ráðið mig í afleysingar á heilsu- gæslustöðina í Borgarnesi. Dvölin var mjög lærdómsrík og kynntist ég mörgu góðu fólki. Mér þótti ákaflega vænt um að kynnast betur frænd- fólki mínu sem þar býr og áður en varði var ég orðin daglegur gestur hjá Siggu og Steina Bjarna, ömmu og afa Unnar. Fjölskyldan er stór og samheldin og tóku Gunna og Bjarni mér strax opnum örmum og dætur þeirra einnig. Þorgerður, yngri syst- ir Unnar, hljóp strax til mín og var spennt að kynnast frænku sinni en Unnur hélt sig meira til hlés, aðeins feimin. Eftir stutt kynni sá ég að þessi hægláta stúlka var skarp- greind, hlý og þroskuð miðað við ald- ur. Hún hafði gaman af að spjalla um hlutina og sýndi mikla víðsýni í skoð- unum sínum og mannúð var henni of- arlega í huga. Þrátt fyrir ungan ald- ur hafði hún þegar ákveðið að verða prestur og þeir sem þekktu hana vissu að það myndi eiga vel við hana. Þegar Unnur veiktist kom styrkur hennar enn betur í ljós. Hún sýndi mikið æðruleysi þótt hún ætti auð- vitað erfitt með að sætta sig við að fá ekki að lifa lengur og sjá drauma sína rætast. Hún sótti mikinn styrk í trúna og átti margar kvöldstundir í Borgarneskirkju á spjalli við Þor- björn Hlyn sóknarprest. Í vor kom

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.