Morgunblaðið - 24.08.2002, Síða 56

Morgunblaðið - 24.08.2002, Síða 56
56 LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 4. Ísl. tal. Vit 418  SK Radíó X DV MBL Sýnd kl. 5 og 7. Bi. 14. Vit 417  Kvikmyndir.com 1/2 Kvikmyndir.is 1/2 MBL Sýnd kl. 6, 8, 9 og 10. Vit 422 FRUMSÝNING Aðal skvísan í skól- anum er komin með samkeppni sem hún ræður ekki við! PiperPerabo(CoyoteUgly) fer á kostum í þessari stór- skemmtilegu gamanmynd. Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 og 11. Vit nr. 426 Rómantísk gamanmynd úr raunveruleik- anum sem fjallar um íslenskan mann, Jón Gnarr, sem verður ástfangin af Kíverskri stúlku. Frá sömu aðilum og gerðu Íslenska drauminn. ÓHT Rás 2  SV Mbl SG. DV  Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða.  SK Radíó X Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.30.  Kvikmyndir.com 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 8 og 10.20. B. i. 16.  DV  SG. DV  HL. MBL Sýnd kl. 2 og 4. Með ísl. tali. Sýnd kl. 10. B.i. 16. Sýnd kl. 2, 4 og 6. Með ísl. tali. Sýnd kl. 2. Með ísl. tali. 27 þúsund áhorfendur Sýnd kl. 4, 6 og 8. DV Mbl RadíóX ÓHT Rás 2  Kvikmyndir.com  Kvikmyndir.is „Enginn ætti að missa af þessari,“ Kvikmyndir.is  SV Mbl Rómantísk gamanmynd úr raunveruleikanum sem fjallar um íslenskan mann, Jón Gnarr, sem verður ástfangin af Kíverskri stúlku. Frá sömu aðilum og gerðu Íslenska drauminn. Ben affleck Morgan Freeman Kvikmyndir.is DV Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10. B. i. 12.  Kvikmyndir.com 1/2 Kvikmyndir.is 1/2 MBL  ÓHT Rás2 1/2 Kvikmyndir.is 1/2 SV Mbl Sýnd kl. 6, 8 og 10.05. Missið ekki af einni skemmtilegustu mynd sumarssins Power sýning kl. 10. Sjáið myndina í frábæru nýju hljóðkerfi Háskólabíós COLDPLAY var eitt af nýju nöfn- unum í rokkinu árið 2000. Loksins, sögðu sumir, loksins bresk rokk- hljómsveit sem slær rækilega í gegn, rétt eins og hér áður fyrr þegar slíkt var daglegt brauð, í þá tíð er öll rokkvötn féllu til Stóra- Bretlands. En þótt margir hefðu séð að söngvarinn og aðallagahöf- undurinn Chris Martin hefði allt til að bera til að geta orðið stjarna spáði enginn fyrir þeirri velgengni sem sveitin hefur notið. Útgáfufyr- irtæki sveitarinnar, gamli rótgróni Bítlaútgefandinn Parlophone, gerði sér ekki einu sinni vonir um að frumraunin Parachutes, sem leit dagsins ljós í júlí árið 2000, myndi seljast í fleiri en 20 þúsund eintök- um, enda svo sem ekki við öðru að búast af „indí-bandi“ sem léki lág- stemmt og á stundum alls ekkert auðmelt tilfinningarokk. En nú þegar 5 milljónir eintaka hafa fokið út, „Yellow“ og „Trouble“ eru kom- in í hóp sígildra popplaga, vel heppnuð Íslandsferð er að baki og Coldplay orðið eitt af stóru nöfn- unum í rokkheiminum eru vænting- arnar aðrar og meiri, nú þegar langþráð önnur platan er að detta í plötuverslanir. Platan heitir því sérstaka nafni A Rush of Blood to the Head, nafn sem gefa á til kynna þá tilfinningu sem bærðist í brjósti sveitarmanna er þeir sömdu og tóku upp lögin ell- efu sem rötuðu á plötuna. Þeir voru ákafir og upprifnir, iðuðu í skinn- inu vegna þess að þeir vissu fyrir víst, voru sannfærðir um að þeim hefði tekist að gera betur en síðast, tekist hið næsta ómögulega verk að toppa vinsæla og óvænta frumraun. Og nú þegar – áður en platan er formlega komin út – eru menn farn- ir að tala í fúlustu alvöru um að Coldplay sé líklegust allra sveita til þess að taka við krúnunni af U2, þegar og ef hinir drottnandi Írar þá einhvern tímann gefa hana eftir. Blessað Bláa lónið Morgunblaðið náði tali af Guy Berryman bassaleikara um það leyti sem sveitin hafði nýlokið strembinni 10 mánaða upp- tökuhrinu og platan var loksins klár, nokkru seinna en til stóð í upphafi. Lagið „In My Place“ var þá nýfarið að heyrast á útvarps- og sjónvarpsstöðvum og öll teikn voru á lofti um að velgengnin héldi áfram og færi jafnvel vaxandi. „Ó, ertu frá Íslandi!“ segir Berry- man við blaðamann eftir að sá síð- arnefndi kynnir sig kurteislega. „Ahhh, það var svo frábært að koma þangað, Bláa lónið var magn- að.“ – Já, myndirnar sem náðust af ykkur þar sýndu vel hversu góðum gír þið voruð í. „Voru teknar myndir? – Jú, ein- mitt, Palli tók þær.“ – Þú átt við Palla Sveins ljós- myndara. Þið þekkið hann eða hvað? „Já, reyndar er hann góður vinur okkar. Hann er indæll náungi sem við kynntumst þegar við vorum á Ís- landi og hann hefur komið nokkrum sinnum að heimsækja okkur síðan.“ – Þannig að þið fenguð mikið út úr Íslandsferðinni? „Já, og getum ekki beðið eftir því að koma aftur. Veit þó ekki hvort búið sé að leggja á ráðin um eitt- hvert tónleikahald. Vonum það.“ Sjálfstæðir Berryman er 23 ára gamall, skoskur að uppruna en fluttist ung- ur að árum til Kent. Hann kynntist félögum sínum í Coldplay í Univers- ity College í Lundúnum á fyrstu vikum skólagöngunnar um miðbik lokaáratugar síðustu aldar. Chris Martin söngvari kom frá Devon en hann stofnaði Coldplay ásamt gít- arleikaranum Jonny Buckland sem á ættir að rekja til Norður-Wales. Berryman var þriðji til að ganga um borð en síðastur kom tromm- arinn Will Champion, sunnan frá Southampton, kunni reyndar bara á gítar en færði sig yfir á settið, svo æstur var hann í að fá að vera með og leggja sitt af mörkum til laganna sem Martin og Buckland höfðu þá þegar samið. Þeir voru ekki lengi að taka upp fjögurra laga kynning- arplötu sem þeir sendu út um allt, fengu inni á nokkrum litlum tónlist- arhátíðum fyrir vikið, og frammi- staðan vakti áhuga litla útgáfufyr- irtækisins Fierce Panda, sem m.a. hafði Bellatrix á sínum snærum. Áður en stóra platan kom út hafði sveitin þó fært sig yfir til risaútgáf- unnar Parlophone, en þrátt fyrir að vera á mála hjá slíku bákni hefur sveitin haldið fullu sjálfstæði og ræður sínum málum í einu og öllu og reynir að láta sig flest mál varða er snúa að sköpunarhliðinni, upp- tökustjórn, kápuhönnun, mynd- bandagerð, tónleikaplönum og þar fram eftir götunum. En þeim hlýtur að líða talsvert öðruvísi nú fyrir út- komu nýrrar plötu en áður en fyrsta platan kom út. „Já, vissulega. Fyrsta platan var fyrsta platan og því ekki hægt að Meðan járnið er heitt A Rush of Blood to the Head heitir lang- þráð önnur plata Íslandsvinanna í Coldplay sem kemur út á mánudaginn. Skarphéðinn Guðmundsson ræddi við Skotann Guy Berryman, bassaleikara sveitarinnar, fyrr í sumar, um það leyti sem gerð plötunnar lauk. Ljósmynd/Ellis Parrinder Martin & Buckland. Nýja plata Coldplay heitir A Rush of Blood to the Head og kemur út á mánudag

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.