Morgunblaðið - 27.08.2002, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 27.08.2002, Blaðsíða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 2002 35 ✝ Guðmundur Ár-mannsson fædd- ist á Akureyri 30. nóvember 1927. Hann lést á hjúkrun- arheimilinu Seli á Akureyri 14. ágúst síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Ármann Ísleifsson, f. 1885 í Hjaltastaðaþinghá í N-Múlasýslu, d. 1961, og Sigríður Benja- mínsdóttir, f. 1886 í Hvítársíðu í Borgar- firði, d. 1971. Systk- ini Guðmundar voru: Sæbjörg, f. 1923, d. 1926, og Benjamín, f. 1925, d. 1980, eigin- kona hans er Ebba Eggertsdóttir, f. 1935, börn þeirra eru Anna Jón- ína, Ármann, Sigríður, Guðrún Gréta, Eggert og Sævar Ísleifur. Guðmundur var vörubílstjóri alla starfsævina, en hætti störfum á síð- asta ári vegna heilsubrests. Hann bjó alla tíð við Aðal- stræti, lengst af í númer 2. Hann hélt heimili með móður sinni, en eftir lát hennar var hann í fæði hjá Jennýju Karlsdóttur og Ing- ólfi Magnússyni, sem einnig bjuggu lengi í Aðalstræti 2, og bast hann þeim og börnum þeirra nánum fjölskylduböndum. Útför Guðmundar fór fram í kyrrþey að ósk hans sjálfs. Nú hefur Guðmundur Ármanns- son, eða Gummi eins og við kölluðum hann alltaf, fengið hvíldina og úr því sem komið var ber að þakka það. Gummi hefur verið hluti af okkar fjöl- skyldu frá því við munum eftir okkur og tók virkan þátt í uppeldi okkar og umönnun. Hann bjó með foreldrum sínum og síðan móður sinni á neðri hæðinni í syðri endanum í Aðalstræti 2, en við með foreldrum okkar og föð- urömmu á efri hæðinni. Einhver skyldleiki mun vera með fjölskyldun- um, en það var ekki skyldleikinn held- ur náinn samgangur sem skapaði mikil og góð tengsl á milli okkar. Gummi var mjög barngóður og við hændumst öll að honum. Hann var sannkallaður fóstri. Enda héldu börn- in í næstu húsum lengi vel að við ætt- um tvo pabba. T.d. fannst einum litlum dreng, sem misst hafði föður sinn, það mikið óréttlæti að Magnús ætti tvo pabba en hann engan. Við matarborðið flysjaði hann gjarnan kartöflurnar fyrir okkur og hreinsaði fiskinn, þvoði okkur í framan ef þess þurfti og spýtti þá bara í vasaklútinn sinn og strauk framan úr okkur ef ekkert vatn var nærri. Gummi var handlaginn og málaði og dyttaði að leikföngum okkar, stórum og smáum og smíðaði ófáar jólagjafirnar, s.s. bíla og dúkkurúm. Gummi starfaði við akstur alla sína starfsævi. Hann byrjaði fjórtán ára gamall að keyra út mjólk á hesta- kerru. Hann tók bílpróf strax og hann hafði aldur til og einnig meirapróf og eignaðist fljótlega sinn fyrsta vörubíl. Í þá daga áttu fáir bíla og börn ekki búin að fá þann bílaleiða sem þau hafa nú til dags. En Gummi leyfði börnum mjög gjarnan að sitja í bílnum hjá sér og var það að vonum mjög vinsælt. Og okkur systkinunum þótti heldur ekki ónýtt að fá að vera með í bílnum nokkrar ferðir eða dagpart. Við nut- um þess að vera í bílnum með Gumma og aka um hverfi bæjarins sem við komum sjaldan í. Mörg sumur ók hann m.a. „pissubílnum“, þ.e. hann vökvaði þær götur bæjarins í þurr- katíð sem ekki var búið að malbika. Börnum þótti mjög gaman að hlaupa á eftir bílnum og reyna að snerta bununa. Þá gat komið fyrir að Gummi hastaði á þau út um hliðargluggann, því hann var mjög gætinn og öruggur bílstjóri. Gummi var afar hirðusamur og þrifinn og hirti bílana sína vel, enda átti hann þá lengi. Þann síðasta, rauða volvóinn, sem hann fékk nýjan árið 1974, átti hann þar til í fyrra að hann varð að láta af störfum. Bílstjórafélag Akureyrar á sum- arbústað innst í Eyjafirði, mikinn un- aðsreit sem heitir Tjarnagerði. Gummi var mörg ár í Tjarnagerðis- nefnd og naut þess mjög. Þar á hann mörg handtökin við slátt, fram- kvæmdir og viðgerðir. Við vorum svo lánsöm að fá að dvelja með Gumma vikutíma í Tjarnagerði í mörg sumur, einkum á meðan gamla húsið stóð, þá fengum við að vera þar áður en al- menn leiga hófst og á meðan Gummi dyttaði að ýmsu og gerði klárt fyrir sumarið. Það voru dýrðlegar vikur í einstaklega fallegu umhverfi. Báts- ferðir á kyrrum kvöldum og göngu- ferðir um skóginn í kringum vatnið, veiðar og útreiðar eru ógleymanlegar stundir. Gummi tók miklu ástfóstri við þennan stað og í okkar huga eru Gummi og Tjarnagerði nátengd. Það var því einstaklega ánægjulegt að geta dvalið þar með honum í nýja hús- inu og samglaðst honum þegar hann varð sjötugur. Minningarnar um sam- verustundirnar í Tjarnagerði eiga eft- ir að ylja okkur og foreldrum okkar um ókomna tíð. Gummi hafði mikið yndi af söng, einkum karlakórssöng, og söng sjálf- ur með Karlakór Akureyrar um skeið á yngri árum. Ef frá er talið stússið í kringum Tjarnagerði sinnti hann ekki áhugamálum sínum að neinu ráði. Hann las þó mikið og hafði auk þess gaman af að ferðast en gerði þó lítið af því. Honum leið best heima og lifði einföldu og reglubundnu lífi. Vinnan hans var mjög árstíðabundin og mest á sumrin, þá gáfust ekki margar frí- stundir. Hann fór þó nokkrar ferðir með foreldrum okkar austur á land og um Suðurlandið og naut þess mjög, en foreldrar hans voru ættuð úr þessum landshlutum. Einu sinni fór hann líka með foreldrum okkar til Noregs með- an þær bjuggu þar báðar Bjargey og Dagbjört. Gummi missti Benna bróður sinn á besta aldri og hefur það eflaust verið honum mikið áfall. En hann átti alla tíð mikið og gott samband við fjöl- skyldu hans, Ebbu mágkonu sína og börn þeirra Benna, sem hann fylgdist vel með og var afar stoltur af. Gummi var einstaklega vel gerður maður, greiðvikinn og þægilegur í allri umgengni. Hann var brosmildur og léttur í lund og sannkallað ljúf- menni, en skaplaus var hann þó ekki. Hann gat snöggreiðst ef gengið var fram af honum, en það var jafn snöggt úr honum aftur. Það fengum við systkinin nokkrum sinnum að reyna, t.d. ef gauragangurinn í okkur og fé- lögum okkar gekk fram úr hófi á efri hæðinni eða ef honum mislíkuðu uppátæki okkar. Það gerðist þó furðu sjaldan. Gummi var ákaflega röskur til allra verka og gat verið fljótfær. En hann var alltaf að og kunni best við sig í ein- hverju stússi og var duglegur að finna sér eitthvað til að gera. Gummi var alltaf mjög heilsu- hraustur, léttur og liðugur í öllum hreyfingum og hafði lítið haft af lækn- um að segja þar til á fyrri hluta síð- asta árs að hann fór að kenna sér þess meins sem að lokum dró hann til dauða. Það er sárt hlutskipti fyrir heilbrigðan og skýran huga að vera fjötraður í líkama sem ekki lætur að stjórn og verða svo ófær um að tjá sig. En Gummi tók þessum sjúkdómi með aðdáunarverðu æðruleysi og mikilli skynsemi. Frá því um síðustu jól bjó Gummi á hjúkrunarheimilinu Seli og naut þar frábærrar umönnunar starfsfólks sem gerði honum síðustu mánuðina eins léttbæra og kostur var. Fyrir það viljum við þakka. Öll- um þeim sem heimsóttu Gumma á Sel og styttu honum stundir viljum við líka færa bestu þakkir. Við færum Ebbu mágkonu hans og börnum hennar samúðarkveðjur. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk Gumma sjálfs. Gummi var hlédrægur, krafðist aldrei neins af öðrum fyrir sjálfan sig og honum var mjög óljúft að láta nokkuð hafa fyrir sér, því vildi hann hafa þennan háttinn á. Blessuð sé minning Guðmundar Ármannssonar. Anna Þorbjörg, Bjargey, Magnús, Karl og Dagbjört. Elsku Gummi frændi. Okkur langar til að kveðja þig og þakka þér samfylgdina með hluta úr kveðju sem Jórunn Ólafsdóttir frá Sörlastöðum samdi eftir lát pabba okkar, Benna bróður þíns, fyrir 22 ár- um. Við vitum að þér mun farnast vel á nýju tilverustigi og að vel hefur ver- ið tekið á móti þér. Minning þín mun ávallt lifa með okkur. Gafstu af auðlegð þíns góða hjarta – gafst með fögnuð í hug. Vígðir þú líf þitt vorinu bjarta, – vísaðir öðru á bug. Mild var þín hyggja og mundin haga, – mild var hún gerð þín brags. Með ljósum stöfum var lífs þíns saga, – letruð til hinsta dags. Burtu er vinur og breytt er högum, – brennir sig undin inn. En gullnar perlur frá gæfudögum – geymast við arin þinn. Minning þín vakir sem vor í hjarta, – veitandi yl og frið. Gróðurinn angar og geislar skarta, – er gistir þú hærra svið. Anna, Ármann, Sigríður, Gréta, Eggert, Sævar og fjölskyldur. GUÐMUNDUR ÁRMANNSSON                                 ! ! "       # $%$       !    %            $       !          ! !"" #           $"  #      %&" "&'$&    ( &&)*#          $"  #+ &               , -(./01  2//% &#" " 3  ' (#  )  * ! ! "  + # 0&- "4&& $&  5- "4&& $& 5- "4&& #   &"# & & & $" & & &+                      %  6   &# 5  7 4  585 75 7 4  #5 &# 5    ,         *-! ! (7&&8 764#  "$& - &7 #8 764#  %&" "#  (7&&#   "&$& *  &&$&  &&"#  ! #  5 2 "$& ! "#  9  &&2 $&  & &$" & & &+ &              0  : 6 "   96'& ;3   5  ' (#  )  * ! ! "  # $%$       <7&5 $& "&&&5 $& $ 5  &5 #  - " &$& %&" "&5 #  $"44 & &+ &                   %1(2 2//%  &"  9 &   6 " =9 &        * !  ! &&%&" $& "/$ #  "&%&" $& "'& "#  * 5&%&" #  *0+%&" $& !##*$ '&<$" #  "5%&" #  -# "$&   %&" $& 5& +*#  9#%&" $& 9-+: #  %&" %&" $& 0- & # #  & & & & & $" & & & &+

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.