Morgunblaðið - 27.08.2002, Síða 19

Morgunblaðið - 27.08.2002, Síða 19
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 2002 19 ALÞJÓÐABANKINN hefur sent þau skýru skilaboð til leiðtogafundar Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem hófst í Jóhannesarborg í gær að leiðtogar heimsins verði að koma sér saman um að lækka nið- urgreiðslur til landbúnaðarmála. Ian Johnson, talsmaður bankans í um- hverfis- og þróunarmálum, sagði á blaðamannafundi í Jóhannesarborg í gær að niðurgreiðslur iðnríkjanna á landbúnaðarvörum væru komnar út fyrir öll skynsamleg mörk. „Iðnríkin verja árlega 350 milljörðum dollara í niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum sem teknir eru úr vösum skattgreið- enda. Þetta gengur ekki lengur,“ sagði Johnson. Í nýrri ársskýrslu Alþjóðabank- ans segir: „Mikilvægasta framlag ríku þjóðanna til fátækari hluta heimsins er að lækka niðurgreiðslur til landbúnaðar. Engin ein aðgerð skiptir meira máli.“ Landbúnaðarvörur 25% allrar framleiðslu í Afríku Í yfirlýsingu leiðtogafundarins í Jóhannesarborg er það markmið sett að fátækt í heiminum minnki um helming fram til ársins 2015. Enginn ágreiningur er um þetta markmið, en deilt er hins vegar um hvaða leiðir eigi að fara til að ná því. Í yfirlýsingu frá Alþjóðabankanum segir að ef takast eigi að ná þessu markmiði verði landbúnaður í þróunarlöndun- um að eflast. Bent er á að um 25% af öllu því sem framleitt sé í Afríku sé landbúnaðarvörur. Ef Afríka eigi að ná markmiðum um að fækka fátæk- um íbúum álfunnar um helming fram til ársins 2015, bæta menntun, ná tökum á alnæmissjúkdóminum og auka framboð á öruggu drykkjar- vatni verði landsframleiðsla í álfunni að aukast um 3,5% á ári fram til 2015. Ian Johnson lagði á blaðamanna- fundinum í gær sérstaka áherslu á að efla yrði landbúnað í Afríku. Hann benti á að bóndi í Afríku framleiddi að meðaltali þrisvar sinnum minna en bóndi í Asíu. Hann tók fram að fleira þyrfti að gera en að lækka nið- urgreiðslur á landbúnaðarvörum. Bæta þyrfti innviði Afríkulanda, s.s. vegakerfi, svo að bændur ættu auð- veldara með að koma vörum sínum á markað. Aðspurður sagði Johnson að Al- þjóðabankinn væri ekki alfarið á móti öllum niðurgreiðslum á land- búnaðarvörum. Þegar markmiðið væri að útvega fátækum íbúum ódýr matvæli ættu niðurgreiðslur rétt á sér. Það væri hins vegar ekki hægt að færa slík rök fyrir niðurgreiðslum iðnríkjanna á landbúnaðarvörum. Mikill ágreiningur um niðurgreiðslur Frelsi í viðskiptum er eitt stærsta ágreiningsmálið á leiðtogafundi SÞ í Jóhannesarborg. Búið er að mynda sérstaka undirnefnd sem falið hefur verið að reyna að ná samkomulagi í málinu. Talið er að ef samkomulag næst um þetta mál muni veruleg hreyfing komast á önnur ágreinings- efni. Á undirbúningsráðstefnunni í Balí í Indónesíu var stefnt að því að ná samkomulagi um alla meginþætti yfirlýsingar ráðstefnunnar. Það tókst hins vegar ekki og megin- ástæðan var ágreiningur um niður- greiðslur á landbúnaðarvörum. Á endanum varð það þetta atriði sem varð til þess að upp úr viðræðunum slitnaði. Ríkin sem standa gegn því að nið- urgreiðslur á landbúnaðarvörum verði lækkaðar eru aðallega Evrópu- sambandsríkin og Bandaríkin og ástæðan er fyrst og fremst pólitískar ástæður í löndunum sjálfum. Bret- land og Austur-Evrópuríkin hafa þó ekki staðið gegn því að dregið verði úr niðurgreiðslunum, en Frakkar mega hins vegar ekki heyra á það minnst. Reuters Stjórnarandstæðingar frá Zimbabve stóðu fyrir mótmælum í Jóhannesarborg í gær, þar sem ráðstefna SÞ fer fram, en þeir vilja aðstoð erlendra ríkja við að koma Robert Mugabe, forseta Zimbabve, frá. „Mikilvægasta fram- lag ríku þjóðanna“ Alþjóðabankinn vill að ríki heims komi sér saman um að lækka niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum ’ Iðnríkin verja ár-lega 350 milljörðum dollara í niður- greiðslur á landbún- aðarvörum sem teknir eru úr vösum skattgreiðenda. ‘ Jóhannesarborg. Morgunblaðið. EINN helsti fulltrúi Aslans Makh- adovs, leiðtoga aðskilnaðarsinna í Tsjetsjníu, sagði í viðtali í gær, að Tsjetsjenar væru reiðubúnir að lúta rússneskri stjórn að því tilskildu, að landið heyrði beint undir forsetann. „Nú gilda engin lög í Tsjetsjníu, hvorki rússnesk né alþjóðleg. Þar ríkir lögleysan ein,“ sagði Akhmed Zakayev, fulltrúi Maskhadovs, í við- tali við rússneska vikuritið Novaja Gazeta. Sagði hann, að mestu skipti, að um beina forsetastjórn yrði að ræða og minnti á, að Vladímír Pút- ín, forseti Rússlands, hefði lýst yfir, að hann væri persónulega ábyrgur fyrir öllu, sem gerðist í Rússlandi. Í viðtali við AFP-fréttastofuna sagði Zakayev, að Tsjetsjenar myndu halda áfram að berjast fyrir sjálfstæði en lagði um leið áherslu á, að þeir vildu ræða beint við Pútín en ekki fulltrúa hans í Tsjetsjníu. Sagði hann, að þetta hefði raunar verið hluti af bráðabirgðasamkomu- lagi, sem Rússar hefðu hafnað. Rússneska stjórnin hafði ekkert sagt um þessar yfirlýsingar Zakay- evs í gær. Rússar staðfestu í gær, að tsjetsj- neskir skæruliðar hefðu skotið nið- ur herþyrlu fyrir viku en með henni fórust 117 manns. Hafa þeir hand- tekið einn Tsjetsjena, sem grunaður er um aðild að málinu. Sótt inn í Pankisi-skarð Hermenn Georgíustjórnar sóttu í gær inn í Pankisi-skarð við landa- mærin að Tsjetsjníu í leit að skæru- liðum, sem Rússar segja, að hafist þar við. Þeir kváðust þó enga hafa fundið en Eduard Shevardnadze, forseti Georgíu, hafði áður varað þá við og sagt þeim að koma sér burt. Fulltrúi leiðtoga tsjetsjneskra aðskilnaðarsinna Fallast á beina stjórn Pútíns Moskvu. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.