Morgunblaðið - 27.08.2002, Blaðsíða 44
DAGBÓK
44 ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Árni
Friðriksson kemur í dag.
Poseidon og World of
Residensea fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss kom til
Straumsvíkur í gær. K
Sukhondyaevskiy kem-
ur í dag. Fornax fer í
dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun í dag
kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Boccia kl.
10, Sheena aðstoðar í
vinnustofu kl. 13, fé-
lagsvist kl. 14
Árskógar 4. Kl. 9 bað-
þjónusta, kl. 9.30 dans,
kl. 9.30 Íslandsbanki á
staðnum, kl. 13.30 frjáls
spilamennska. Púttvöll-
urinn opinn kl. 10–16 alla
daga. Allar upplýsingar í
s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 14–15
dans. Vetrarstarfið hefst
mánudaginn 2. sept.
Upplýsingar í s.
568 5052.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–14 baðþjón-
usta, hárgreiðslustofan
opin kl. 9–17 alla daga
nema mánudaga.
Félagsstarfið Furugerði
1. Vetrarstarfið hefst 2.
sept. Boðið verður upp á
bókband, smíðar og út-
skurð, alm. handavinnu
og leikfimi. Einnig verð-
ur námskeið í leirvinnslu.
Hárgreiðslustofa og
fótaaðgerðarstofa eru á
staðnum. Hægt er að fá
hádegismat og kaffi alla
virka daga. Allir vel-
komnir. Nánari upplýs-
ingar í síma 553 6040.
Félagsstarfið Lönguhlíð
3. Kl. 8 bað, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Brids og
frjáls spilamennska kl.
13.30. Pútt á Hrafn-
istuvelli kl. 14–16. Á
morgun, miðvikudag,
línudans kl. 11, pílukast
kl. 13.30. Orlofsferð að
Höfðabrekku 10. til 13.
sept. Farseðlar greiðist í
Hraunseli kl. 13–16, 28.
og 29. ágúst.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
kl. 9.30–12, kl. 14 þriðju-
dagsganga.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Uppselt er í
Suðurnesjaferðina 29.
ágúst, ráðgert er að fara
í aðra ferð í september ef
næg þátttaka fæst.
Skráning í þá ferð sem
fyrst, á lista sem liggja
frammi í Félagsmið-
stöðvunum Gjábakka og
Gullsmára. Frekari upp-
lýsingar hjá ferðanefnd
(Bogi Þórir, s. 554 0233,
eða Þráinn, s. 554 0999).
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan op-
in virka daga kl. 10–13.
Kaffi – blöðin og matur í
hádegi. Félagið hefur
opnað heimasíðu,
www.feb.is.
Þjórsárdalur, Veiðivötn,
Fjallabaksleið nyrðri,
27.–30. ágúst. Brottför
frá Glæsibæ kl. 8. Mið-
vikudagur: Göngu-
Hrólfar ganga frá Ás-
garði kl. 10. Línudans-
kennsla Sigvalda kl.
19.15. Réttaferð í Þver-
árrétt 15. september.
Leiðsögumaður Sig-
urður Kristinsson.
Brottför frá Ásgarði í
Glæsibæ kl. 12. Skráning
hafin á skrifstofu FEB.
Fyrirhugaðar eru ferðir
til Portúgals 10. sept-
ember í þrjár vikur og til
Tyrklands 30. september
í 12 daga fyrir fé-
lagsmenn FEB, skrán-
ing er hafin á skrifstof-
unni, takmarkaður fjöldi.
Silfurlínan er opin á
mánu- og miðvikudögum
kl. 10–12. Skrifstofa fé-
lagsins er flutt að Faxa-
feni 12, s. 588 2111. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, m.a. tré-
skurður, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 12.40 Bón-
usferð, kl. 13.15 bókabíll.
Haustferð verður farin
miðvikudaginn 28. ágúst.
Ekið verður til Þingvalla
yfir Lyngdalsheiði að
Laugarvatni. Gullfoss og
Geysir heimsóttir. Máls-
verður í Brattholti. Leið-
sögumaður Hólmfríður
Gísladóttir. Lagt af stað
kl. 10.30. Vinsamlegast
tilkynnið þátttöku fyrir
23. ágúst.
Gerðuberg, félagsstarf.
Frá 9–16.30 eru vinnu-
stofur opnar, frá hádegi
er spilasalur opinn, kl. 13
boccia. Myndlistarsýn-
ing Huga Jóhannessonar
stendur yfir. Veitingar í
Kaffi Berg. Allar upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í síma
575 7720.
Gullsmári, Gullsmára 13.
Opið alla virka daga kl.
9–17, hádegismatur,
kaffi og heimabakað
meðlæti.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9.45 bankaþjónusta, kl.
13 handavinna. Fótaað-
gerð, hársnyrting. Allir
velkomnir.
Hraunbær 105. Kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–11
boccia, kl. 12.15 versl-
unarferð, kl. 13–17 hár-
greiðsla.
Háteigskirkja, eldri
borgarar. Á morgun,
miðvikudag, er samvera
og fyrirbænastund í
kirkjunni kl. 11, súpa í
Setrinu kl. 12, spil kl. 13.
Fyrirhuguð er sum-
arferð, Heiðmörk-
Kaldársel, fimmtudaginn
29. ágúst, lagt af stað frá
Setrinu kl. 13. Skráning
og upplýsingar í s.
511 5405 eða
511 5400.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 er opin vinnustofa
og tréskurður, kl. 10–11
boccia, kl. 9–17 hár-
greiðsla. Leirnámskeið
hefst 5. september,
skráning hjá Birnu í s.
568 6960.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15–16 handavinna,
kl. 13 spilamennska. Tví-
menningur í brids verður
á þriðjudögum í vetur frá
kl. 13–16.30. Stjórnendur
Bjarni Guðmundsson og
Guðmundur Pálsson
(einnig verður frjáls
spilamennska). Upplýs-
ingar og skráning í síma
562 7077. Allir velkomn-
ir.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
kl. 9.30 morgunstund og
handmennt, kl. 10.30
boccia, kl. 14 félagsvist.
Kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10
fótaaðgerð.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svarað
í s. 552 6644 á fund-
artíma.
Minningarkort
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555
og 588-7559 á skrifstofu-
tíma. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort eru
afgreidd á skrifstofu fé-
lagsins á Suðurgötu 10
(bakhúsi), 2. hæð, s. 552-
2154. Skrifstofan er opin
miðvikud. og föstud. kl.
16–18 en utan skrifstofu-
tíma er símsvari. Einnig
er hægt að hringja í síma
861-6880 og 586-1088.
Gíró- og kredit-
kortaþjónusta.
Minningarkort MS-
félags Íslands eru seld á
skrifstofu félagsins,
Sléttuvegi 5, 103 Rvk.
Skrifstofan er opin
mán.–fim. kl. 10–15. Sími
568-8620. Bréfs. 568-
8621. Tölvupóstur
ms@msfelag.is.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimer-
sjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd alla
daga í s. 533-1088 eða í
bréfs. 533-1086.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eftirtöldum
stöðum: Í síma 588-9220
(gíró), Holtsapóteki,
Vesturbæjarapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og hjá
Gunnhildi Elíasdóttur,
Ísafirði.
Parkinsonsamtökin.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd í síma
552-4440 frá kl 13–17.
Eftir kl. 17 í s. 698-4426
Jón, 552-2862 Óskar eða
563-5304 Nína.
Minningarkort Samtaka
sykursjúkra fást á skrif-
stofu samtakanna á
Tryggvagötu 26 í
Reykjavík. Opið virka
daga kl. 9–13, s. 562-
5605, bréfsími 562-5715.
Í dag er þriðjudagurinn 27. ágúst,
238. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Hingað til hafið þér einskis beðið
í mínu nafni. Biðjið, og þér
munuð öðlast, svo að fögnuður
yðar verði fullkominn.
(Jóh. 16, 24.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 möguleg, 4 mýgrútur, 7
vasabrotsbók, 8 kynið, 9
húsdýr, 11 korna, 13
vaxa, 14 sjónvarpsskerm-
ur, 15 hávaði, 17 ábætir,
20 leyfi, 22 kvendýr, 23
setjum, 24 út, 25 sterkja.
LÓÐRÉTT:
1 bogna, 2 skriðdýrið, 3
rekald, 4 lemur, 5 at-
hygli, 6 rás, 10 öfgar, 12
ílát, 13 á litinn, 15 hrós-
aði, 16 glerið, 18 lögum,
19 lengdareining, 20
hvöss, 21 vætlar.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 mararbotn, 8 andar, 9 lifur, 10 alt, 11 sárar, 13
aumum, 15 leggs, 18 ógert, 21 tær, 22 grípa, 23 aftra, 24
skaprauna.
Lóðrétt: 2 aldir, 3 aurar, 4 bolta, 5 tófum, 6 hass, 7
hrum, 12 agg, 14 ugg, 15 logn, 16 grísk, 17 stapp, 18
óraga, 19 ertan, 20 tían.
EFTIR AÐ hafa lesið pistil
sem birtist í Velvakanda
hinn 21.8., undir heitinu
„Fjöllin í sárum“, finn ég
mig knúinn til að svara
greinarhöfundi. Íslending-
ar hafa á undanförum árum
margfaldað bílafjölda sinn
svo um munar. Þessari
fjölgun fylgja auknar kröf-
ur um betra vegakerfi, mis-
læg gatnamót, fleiri akrein-
ar, meira malbik.
Til að það sé hægt að búa
til þessa hluti verður að fást
efniviður í þá. Þess vegna
eru settar á stofn malar-
námur til að framleiða efni-
viðinn. Til þess að sam-
þykki fáist fyrir þessum
námum verður að fara
flókna leið sem endar inni á
borði náttúruverndarráðs.
Ráðið verður að sam-
þykkja beiðnina til þess að
námugröftur geti hafist.
Þess vegna mætti ætla að
námurnar væru opnar með
leyfi ráðsins. Náttúruunn-
andi, gott er stundum að
skoða málin til hlítar áður
en lagst er í svona skrif.
Vil ég einnig benda á að
náman sem er á Sandskeiði
er mjög snyrtileg og til al-
gerrar fyrirmyndar. Það er
aðeins starfrækt ein náma í
Ingólfsfjalli en ekki tvær
eins og kom fram pistlin-
um. Í lokin vil ég minna á
gamlan málshátt: „Eins
dauði er annars brauð.“
Malbiksaðdáandi.
Frjálsíþróttamót
á Stykkishólmi
DAGANA 2. til 3. ágúst sl.
var haldið frjálsíþróttamót
í Stykkishólmi. Hvergi hef-
ur komið fram skrá yfir
verðlaunahafa. Krakkarnir
sem tóku þátt í þessu móti
lögðu mikið á sig og voru
mjög duglegir. Mörg þeirra
ferðuðust langar vega-
lengdir til að geta tekið
þátt. Það ætti að bæta úr
þessu hið snarasta og birta
nöfn þeirra sem tóku þátt í
mótinu á Stykkishólmi.
Þarna var annars ekki
nokkur manneskja með víni
og skemmtu allir sér kon-
unglega. Því þótti mér leið-
inlegt að sjá að fréttir fjöl-
miðla eftir verslunar-
mannahelgi snerust nær
eingöngu um drykkjulæti
og dólgshátt ungmenna.
Gott er að flytja einnig
fréttir af því sem vel fer.
Ein vonsvikin.
Góð þjónusta hjá
Einari Farestveit
og Europay
NÝLEGA keypti ég ísskáp
hjá Einari Farestveit. Það
sem kom mér á óvart var
það að boðið var upp á
ókeypis heimsendingu.
Önnur fyrirtæki mega taka
sér þetta til fyrirmyndar.
Einnig var ég ánægð með
símsvarann hjá Europay,
en þar er sagt númer hvað
símtalið þitt er í röðinni.
Það er mun betra en að
hlusta á lyftutónlist í marg-
ar mínútur og vita hvorki
upp né niður.
Ánægður
viðskiptavinur.
Íslenskan er
dönskuskotin
ÉG FURÐA mig á því hve
íslenskan er dönskuskotin.
Það er allt orðið „fínt“.
Margt má koma í staðinn
fyrir fínt, t.d. „prýðilegt“.
Einnig má nota orðið
„hindra“ í stað þess að
segja ætíð „stoppa“. Þetta
er afturför og er okkur ekki
til framdráttar. Fullmikið
er af slettum í okkar máli.
Lesandi.
Tapað/fundið
Týnd treyja
STUTTERMA reiðhjóla-
treyja, blá og svört að lit,
tapaðist í Hveragerði eða á
Selfossi, eða þar á milli.
Þeir sem vita um afdrif
hennar hringi í s. 551 8248
eftir kl. 6 á kvöldin.
Klútur á
Krossanesi
LANGUR og þunnur kven-
hálsklútur með gráu
munstri gleymdist í bún-
ingsklefa sundlaugarinnar
á Krossanesi á Ströndum
hinn 9. ágúst sl. Skilvís
finnandi vinsamlega hringi
í 566 7066.
Veski úr
mátunarklefa
VESKI var tekið ófrjálsri
hendi í mátunarklefa í
verslun Hagkaupa í Smára-
lind 13. ágúst sl., milli kl. 11
og 12. Sá sem hefur veskið
undir höndum er vinsam-
lega beðinn að skila skil-
ríkjum og kortum úr vesk-
inu í afgreiðslu verslun-
arinnar.
Leðurjakki
á kántríhátíð
SVARTUR karlmanns-
jakki úr leðri tapaðist á
Skagaströnd um verslunar-
mannahelgina. Hann gæti
einnig hafa tapast á leið til
Reykjavíkur. Skilvís finn-
andi er beðinn að hringja í
Hilmar í síma 866 5078.
Fundarlaun.
Saknar
símans
GRÆNN farsími af Nokia
5110-gerð tapaðist á milli
Háaleitisbrautar og Vest-
urbæjar Reykjavíkur 9.
ágúst sl. Síminn er með
svörtu hulstri og má finn-
andi vinsamlega hringja í
síma 861 4978.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Blessað malbikið
Víkverji skrifar...
HINAR illvígu deilur á Norður-Írlandi virðast engan enda ætla
að taka og brjótast oft fram með ein-
kennilegum hætti. Nýjasta dæmið er
mál knattspyrnumannsins Neils
Lennons, sem hefur ákveðið að leika
ekki framar með norður-írska lands-
liðinu vegna hótana, sem honum hafa
borist. Lennon er katólikki og hefur
leikið sem atvinnumaður hjá skoska
liðinu Celtic. Lennon hafði áður
fengið hótanir, en skömmu áður en
landsliðið átti að leika í liðinni viku
var honum hótað lífláti. Lennon átti
að vera fyrirliði landsliðsins og hafði
lýst yfir stolti vegna þess heiðurs, en
þegar hótunin barst ákvað hann að
nú væri komið nóg.
Þetta atvik hefur vakið miklar um-
ræður á Bretlandseyjum og virðist
það vera mál flestra að við svo búið
verði ekki unað. Reyndar heyrðist
það sjónarmið í fréttaskýringu um
málið í breska útvarpinu, BBC, um
helgina að landsliðið allt hefði átt að
sýna samstöðu í þessu máli og allir
leikmenn liðsins hefðu átt að neita að
leika landsleikinn, sem var í vænd-
um. Þar með hefði þeim, sem settu
fram hótunina, verið sýnt að þeim
yrði ekki kápan úr því klæðinu að
einangra einn leikmann með fordóm-
um sínum og ofsóknum og bola hon-
um út úr liðinu. Oft er talað um að
íþróttir eigi að vera yfir deilur og
flokkadrætti hafnar og á íþróttavell-
inum gefist kostur á að sýna það
besta, sem í manninum býr. Það er
engin tilviljun að það er kölluð
íþróttamannsleg framkoma að koma
fram af heilindum og að sama skapi
er talið óíþróttamannslegt að hafa
rangt við. Leikurinn fór hins vegar
fram og eftir situr norður-írska
landsliðið með sárt ennið og mun
sennilega ekki njóta hæfileika snjalls
knattspyrnumanns.
x x x
ÍSLENSKUR körfubolti hefur ver-ið í mikilli sókn. Það fer ekki
framhjá neinum, sem fylgst hefur
með körfubolta undanfarin ár. Það
sést af frammistöðu inni á vellinum
þar sem vörn er spiluð af mun meira
kappi en áður og varnarmenn eru
iðulega límdir á sóknarmenn eins og
frímerki, en eins sýna leikmenn iðu-
lega tilburði í sókn, sem fólk kom til
að sjá útlendingana sýna þegar
fyrstu erlendu leikmennirnir komu
til landsins.
Íslenska landsliðið í körfubolta
hefur notið góðs af þessari þróun í
körfuboltanum eins og sást á Norð-
urlandamótinu nú um helgina þar
sem liðið sigraði í tveimur leikjum af
þremur rétt eins og hin liðin í þrem-
ur efstu sætunum, lið Finna og Svía,
en varð engu að síður að sætta sig við
þriðja sætið vegna innbyrðis úrslita.
Íslendingum hefur áður gengið vel
á Norðurlandamóti í körfubolta, en
sennilega hefur íslenskt landslið
aldrei verið nær því að sigra á mót-
inu.
Hins vegar vekur athygli þegar
horft er á þetta gengi landsliðsins á
mótinu að þetta eru fyrstu leikir þess
síðan í byrjun september í fyrra og
ekki að undra að þjálfari liðsins sé
óánægður með þá stöðu mála. Ef
nýta á þá hæfileika, sem einstakir
leikmenn búa yfir, þannig að þeir
nýtist liðsheildinni eins og best verð-
ur á kosið þarf liðið að öðlast reynslu.
Íslenska liðið hefur allt til að bera,
sem til þarf, nema eitt og það er hæð-
in. Eina leiðin til að yfirvinna þann
veikleika er að afla leikreynslu.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16