Morgunblaðið - 03.09.2002, Blaðsíða 37
ALDARMINNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2002 37
KIRKJUSTARF
Í dag, 3. september
2002, eru liðin 100 ár frá
fæðingu Brynhildar
Snædal Jósefsdóttur
barnakennara.
Hún fæddist í Látr-
um í Aðalvík þennan
dag 1902 og voru for-
eldrar hennar Jósef
Hermannsson bóndi á
Atlastöðum og Pálína
Ástríður Hannesdóttir.
Brynhildur var alin upp
hjá móðurforeldrum
sínum í Látrum, þeim
Hannesi Sigurðssyni og
Jórunni Sívertsen.
Að afloknu námi á heimaslóðum fór
Brynhildur til náms í Kennaraskóla
Íslands í Reykjavík og lauk hún kenn-
araprófi sínu 1925.
Stundaði hún síðan barnakennslu
alla tíð, fyrst í Látrum og í Dýrafirði,
þá á Húsavík, en í Þingeyjarsýslur
átti hún ættir að rekja. Brynhildur
kenndi síðan við Breiðagerðisskóla í
Reykjavík allt til starfsloka.
Brynhildur var tvígift. Fyrri maður
hennar var Karl Guðmundsson og
áttu þau Guðrúnu, Ástríði og Guð-
mund Stefán.
Seinni maður hennar var Ólafur
Friðbjarnarson og áttu þau Hrafn-
hildi, Hönnu, Þröst og Guðmund Pál.
Að vonum eru afkomendur Brynhild-
ar orðnir fjölmargir.
Við bekkjarsystkin sem útskrifuð-
umst frá Breiðagerðisskóla og Bryn-
hildi vorið 1961 minnumst hennar
með mikilli virðingu og hlýju. Finnst
okkur sem hún hafi lagt einstaklega
góðan grunn í lífi okkar allra með
hógværri en ákveðinni leiðbeiningu
sinni í hverju máli.
Brynhildi hlýtur að hafa verið
barnakennsla einkar lagin því aldrei
fundum við annað en að hún þekkti
vanda hvers og eins
okkar. Hún tók þátt í
allri okkar gleði og
sorgum og var ávallt
einstaklega persónuleg
og hlý. Vandvirkni var
henni í blóð borin.
Henni þótti því mikil-
vægt að kenna okkur
vandaða skrift eftir for-
skrift fagurrar rithand-
ar hennar sjálfrar. Að
vísu tókst okkur mis-
jafnlega upp í þeim efn-
um. Hið sama gilti um
íslenskukennsluna.
Vandað málfar og
tungutak var Brynhildi nær heilagt.
Þegar frá líður finnst okkur að sjálf-
stæði í hugsun og gjörðum hafi Bryn-
hildi þótt mikilvægt að miðla til okk-
ar, einnig mildi og umhyggjusemi.
Hún var aukinheldur sannur höfðingi.
Lífsgildi hafa misjafnt vægi á ýms-
um tímum. Nú um stundir, þegar efn-
ið þykir mikilvægara en andinn, er
gott að minnast barnakennarans okk-
ar sem kunni skil á hvoru tveggja,
vissi hvorum þættinum mölur og ryð
grandar og kunni að miðla þeirri
þekkingu. Mikilvægara getur hlut-
verk fyrsta kennarans vart verið.
Í gamla bekknum okkar voru 22
stelpur og 11 strákar. Tveir eru nú
látnir. Svo stórt teljum við hlutverk
Brynhildar í lífi okkar að enn komum
við saman af og til og minnumst
gamla kennarans og skemmtilegra
tíma. Í kvöld hittumst við í gömlu
skólastofunni okkar og heiðrum ald-
arminningu glæsilegs fulltrúa stéttar
sem hefur afar mikilvægu hlutverki
að gegna á þroskabraut hinnar vax-
andi kynslóðar.
Nemendur 12 ára F
í Breiðagerðisskóla sem luku
barnaskólaprófi vorið 1961.
BRYNHILDUR SNÆ-
DAL JÓSEFSDÓTTIR
SKÁLHOLTSSKÓLI efndi til all-
margra Kyrrðardaga á síðasta
starfsári og var þátttaka mjög góð
og vaxandi. Þátttakendur voru yf-
irleitt mjög ánægðir og bókuðu sig
margir á kyrrðardaga að ári.
Hvöttu þeir eindregið til þess að
boðið væri oftar upp á Kyrrðardaga
og þá jafnvel í mismunandi formi.
Skálholtsskóli hefur því skipulagt
Kyrrðardaga í Skálholti fram á
næsta sumar og verða þeir að jafn-
aði um helgar, tvisvar í mánuði.
Kyrrðardagarnir verða með nokkuð
mismunandi áherslum, stundum er
lögð áhersla á útivist og hlýtt á hug-
leiðingar í þögn undir berum himni,
stundum er tekið mið af kirkjuárinu
og mótast dagskráin t.d. af komu
aðventunnar eða föstunnar. Einnig
verða sérstakir kyrrðardagar fyrir
konur, systradagar, sem efnt hefur
verið til um árabil og boðið er til
kyrrðardaga fyrir hjón.
Fyrstu kyrrðardagarnir núna í
haust eru einmitt ætlaðir hjónum og
eru dagana 13.–15. september. Sig-
urbjörn biskup Einarsson flytur þar
hugleiðingu en þau hjónin eiga 70
ára brúðkaupsafmæli á næsta ári.
Auk þess annast hjónin Guðrún
Dóra Guðmannsdóttir og sr. Magn-
ús Björn Björnsson fræðslustund
undir yfirskriftinni Stefnumótun
hjónabandsins og vinna þátttak-
endur síðan verkefni tengt því í ein-
rúmi. Rannveig Sigurbjörnsdóttir
hefur umsjón með kyrrðardög-
unum. Gert er ráð fyrir að þátttak-
endur komi til Skálholts síðla dags á
föstudegi. Eftir kvöldverð verður
skoðun staðarins og listaverka
kirkjunnar. Í setustofu við arineld
er fjallað um kyrrðardaga og leiðir
til að njóta þeirra sem best og dag-
skráin kynnt. Síðan er gengið inn í
kyrrðina, sem ríkir fram á hádegi á
sunnudag. Þannig gefst góður tími
til þess að njóta kyrrðarinnar, þagn-
arinnar, í hlýju samfélagi, draga sig
í hlé frá hinu daglega áreiti og
amstri, fara í hvarf frá álagi dagsins
sem mörgum er þungbært og vera
einn með sjálfum sér og Guði og
nærast af orði hans.
Kvöld- og morguntíðir í svipuðu
formi og tíðkaðist fyrr á öldum í
Skálholti, eru sungnar daglega í
Skálholtskirkju.
Þátttakendur búa í notalegum
herbergjum með sérbaði og boðið er
upp á heimilislegt og fjölbreytt
fæði. Kostnaði er mjög í hóf stillt.
Upplýsingar og bókanir eru í Skál-
holtsskóla sími 486 8870, netfang:
skoli@skalholt.is
Kyrrðardagar
hjóna í Skálholti Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópakl. 10–14 í neðri safnaðarsal.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Laugarneskirkja. Bænanámskeið kl.
20. Fyrsta samvera fullorðinsfræðslu
Laugarneskirkju á nýju starfsári.
Næstu sjö þriðjudaga mun sr. Bjarni
Karlsson ræða um bænina. Ókeypis
þátttaka, gott samfélag. Gengið inn um
dyr á austurgafli kirkjunnar. Þriðjudagur
með Þorvaldi kl. 21. Lofgjörðarstund
þar sem Þorvaldur Halldórsson leiðir
sönginn við undirleik Gunnars Gunnars-
sonar, en sóknarprestur flytur guðs orð
og bæn. Fyrirbænaþjónusta kl. 21.30 í
umsjá Margrétar Scheving sálgæslu-
þjóns og hennar samstarfsfólks. (Sjá
síðu 650 í Textavarpi.)
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefn-
um má koma til sóknarprests í viðtals-
tímum hans.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borg-
ara í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl.
13–16. Spilað og spjallað. Blöðin liggja
frammi og heitt á könnunni. Stutt ferð á
vegum starfsins einu sinni í mánuði í
sumar. Allir velkomnir.
Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund með Taizé-söngvum í dag kl. 18.
Hægt er að koma fyrirbænaefnum til
sóknarprests eða kirkjuvarðar.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–
12 ára börn í safnaðarheimilinu Strand-
bergi, Vonarhöfn frá kl. 17–18.30.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar
alla þriðjudaga kl. 10–12.
Hveragerðiskirkja. Foreldramorgnar
þriðjudagsmorgna kl. 10–11.30.
Borgarneskirkja. TTT tíu–tólf ára starf
alla þriðjudaga kl. 17–18. Helgistund í
kirkjunni sömu daga kl. 18.15–19.
Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag
kl. 13.40.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Kefas. Brauðsbrotning og bænastund
kl. 20.30. Allir velkomnir.
Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9.
Safnaðarstarf
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Brandtex fatnaður
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
Stretchbuxur kr. 2.90
Konubux r frá kr. 1.790
ragtir, kjólar,
blús ur og pils.
Ódýr nát fatna
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
Erfidrykkjur
Heimalöguð kaffihlaðborð
Grand Hótel Reykjavík
Sími 514 8000
5
(
6
1
$
1 (
( *2:)7 0:88
L$
/
.
-%. - $
), . - $
%
# -
$ > /./
$
60- -
$
-%
-.
5
6
1
$
1 ( /
*=1*.: 0:88
9F.
0
& ( #.;
$ %
,* $
;
%
, $ *
:
$
* 62.%
,
$
: " $
%
,* $#
#.
21
(
6
1 $6$
1
/
&
/)*0:88 #"'4$
.
* 6%
,
$
%
2
$
2
$
#
$ 2
$
+#)#
.
6
1
$6$
1 ( ))
%8
,
#*#
$
$
$
2 7
$
6*
$
*
*
.
)"
7
1
5:2*3 #;2*:2 #;2*:23<:2*
$
%$
/
*&
!""=
$ "6- 'F$
* , $;
$@"3
"
"3
$ "6 6
4.
5
6
1 $6$
1 (
(
(
:/ +*M
N
# $
@
.
* $ ,
$
$ /
* $
B> $
$ %
-
O
$
--.