Morgunblaðið - 03.09.2002, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2002 47
Hverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 6, og 10.Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 10 ára
The Sweetest Thing
Sexý og Single
„Besta mynd ársins
til þessa“
1/2HÖJ Kvikmyndir.com
„Ein besta mynd þessa
árs. Fullkomlega
ómissandi.“
SV Mbl
HK DV
Radíó X
Yfir 25.000 MANNS
Sýnd kl. 5, 8 og 10.50. B. i. 14.
„meistaraverk sem lengi mun lifa“
ÓHT Rás 2
i t l i lif
Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.45.
mikeMYERS beyoncé KNOWLES and michaelCAINE
Sýnd kl. 6. með ísl. tali.
Radíó X
Yfir 15.000 MANNS
1/2Kvikmyndir.is
HL Mbl
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 4 og 6. með íslensku tali.
Ben affleck Morgan Freeman
27.000 kjarnorkusprengjur
Einnar er saknað
SK Radíó X
ÓHT Rás2
„Enginn ætti að missa af þessari,“
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 8 og 10.10.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 6 og 9. B. i. 14.
Yfir 25.000 MANNS
Radíó X
Yfir 15.000 MANNS
1/2Kvikmyndir.is
HL Mbl
INNLIT-Útlit hefur göngu sína á
Skjá einum í kvöld kl. 21 – fjórða
veturinn í röð. Umsjónarmenn-
irnir frá því í fyrra, Valgerður
Matthíasdóttir og Friðrik Weiss-
happel verða sem fyrr í góðum gír
en auk þess bætist í hópinn Kor-
mákur Geirharðsson, fyrrum
kaupmaður í versluninni Herra-
fataverslun Kormáks og Skjaldar,
auk þess sem hann er tónlist-
armaður og lífskúnstner. Fyllir
hann skarð Arthúrs Björgvins
Bollasonar sem fer til annara
starfa.
Morgunblaðið setti sig í sam-
band við Kormák og spurði hvern-
ig honum litist á veturinn.
„Jú, mér líst bara ansi vel á
þetta,“ segir Kormákur. „Ég
reyndar renni blint í sjóinn með
þetta þar sem ég hef aldrei horft
á þáttinn. Ég bý í Skuggahverfinu
og næ ekki Skjá einum.“
Aðspurður segir hann að sú
staðreynd verði líkast til ekki til
trafala, líklega sé betra að reka
sig á en að fara í kjölfar einhvers
annars.
„Ég hef náttúrlega ákveðnar
hugmyndir um hvernig ég ætla að
koma að þessu. En Vala stjórnar
og það er ákveðinn rammi sem
maður fer ekki út fyrir. Þetta er
þannig að ég og Friðrik skiptumst
á að vera á móti Völu og verðum
með eitt fast innslag og eitthvað
annað aukreitis.“
Kormákur segir að áhorfendur
geti vænst ýmissa breytinga, en
segir þó hlæjandi að hann viti ekki
hvers eðlis þær eru, þar sem hann
viti ekkert hvað var í gangi í
fyrra!
Aðdáendum Völu og félaga er
því ráðlagt að setja sig í stellingar
því fyrsti þátturinn fer í loftið í
kvöld eins og áður segir.
Umsjónarmenn Innlits-Útlits, þau Friðrik Weisshappel,
Valgerður Matthíasdóttir og Kormákur Geirharðsson.
Ýmsar breyt-
ingar í vændum
Kormákur Geirharðsson slæst í Innlits-Útlits-hópinn
NATASHA Hamilton, ein söng-
kvenna tríósins Atomic Kitten, varð
léttari síðastliðinn laugardag er
hún fæddi soninn Joshua Hamilton
Cosgrove.
Þetta er fyrsta barn hinnar tví-
tugu söngkonu og unnusta hennar
Fran Cosgrove og heilsast móður
og syni að sögn vel.
Natasha er önnur liðsmanna
Atomic Kitten sem verður móðir en
söngkonan Kerry Katona sagði
skilið við sveitina á síðasta ári er
hún eignaðist erfingja með Bryan
McFadden úr Westlife. Þau eiga nú
von á öðru barni.
Atomic Kitten, Natasha Hamilton
er lengst til vinstri á myndinni.
Fæddur
er atóm-
kettlingur
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
LEIKKONAN
Halle Berry
hefur ráð undir
rifi hverju og
hefur hún nú
deilt því með al-
þjóð hvað hún
gerir til að
losna við ágang
aðdáenda, hún
talar einfald-
lega með bresk-
um hreim.
Barry segir
þetta svínvirka
og um leið og
einhver ókunnugur gefur sig á tal
við hana segi hún einfaldlega á
breska vísu: „Ég er ekki sú sem þú
heldur að ég sé.“
Berry segist hafa lært að tala
með breskum hreim af móður sinni,
sem fædd er í Bretlandi.
Berry talar
bresku
Halle Berry
kann að
bjarga sér.