Morgunblaðið - 14.09.2002, Blaðsíða 32
LISTIR
32 LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
OLGA Soffía Bergmann hef-ur vakið athygli meðmyndlist sinni undanfarinár en þar hefur hún m.a.
gert möguleika erfðavísindanna að
viðfangsefni. Heimur náttúrunnar
hefur því birst í ýmsum myndum í
verkum Olgu og var það fyrir nokkr-
um árum að hinn tilraunaglaði Dokt-
or Bergmann tók að gera vart við sig.
Í dag verður opnuð sýning í vestursal
Listasafnsins á Akureyri, þar sem
Olga Soffía sýnir verk unnin á síðast-
liðnum tveimur árum er tengjast
Doktornum.
„Það má segja að Doktor Berg-
mann sé nokkurs konar alter-ego eða
hliðarsjálf í minni listsköpun,“ segir
Olga þegar hún er spurð nánar út í
umræddan doktor. „Ég hef haft mik-
inn áhuga á því sambandi milli
mannsins og náttúrunnar sem birtist
í náttúruvísindum og ýmsum hlið-
argreinum þeirra. Eitt af því sem ég
hef unnið mikið með er hin ræktaða
náttúra, eins og hún birtist t.d. í
ræktuðum gæludýrum, dýragörðum,
sædýrasöfnum og annarri náttúru
sem fólk hefur skapað. Mér finnst
m.a. áhugavert að velta fyrir mér af
hvaða hvötum þetta er gert og hvar
hin siðferðislegu mörk liggja í þeim
efnum. Doktor B. fór fyrst að gera
vart við sig eftir að fregnir af Dollý,
fyrstu einræktuðu kindinni, tóku að
berast fyrir um fimm árum. Síðan
hafa erfðavísindin orðið sífellt áleitn-
ara viðfangsefni hjá mér og hefur
Doktor B. því smám saman verið að
taka yfir.
– Og hvernig greinir Doktor B. sig
frá því sem þú varst að gera áður en
hann kom fram?
„Það komu upp ákveðnar spurn-
ingar hjá mér hvað varðar afstöðu
mína til viðfangsefnisins. Þó svo að
listsköpunin og vísindin séu ólík svið,
fann ég marga sameiginlega fleti þar
á milli. Sköpunargleðin er t.d. mikil í
báðum tilfellum, og má segja að
Doktor B. leyfi sér mun meira í þeim
efnum en ég mundi gera. Hann er
hömlulaus í úrvinnslu sinni á þeim
möguleikum sem vísindin bjóða upp
á.“
Olga bendir á að mörkin milli vís-
inda og listrænnar sköpunargleði séu
ekki eins skörp og almennt væri álit-
ið. „Vísindin búa yfir mörgum leynd-
ardómum og eru í raun mjög dul-
arfullur heimur. Þar gengur líka
ýmsilegt á sem maður gæti fengið
vitneskju um væri maður að leita eft-
ir henni, en lítið er almennt fjallað um
þær tilraunir og uppgötvanir sem
verið er að gera. Mörkin eru mjög
óljós um hvað sé leyfilegt í nafni vís-
inda og verða þau sífellt meira aðkall-
andi þegar möguleikar erfðavísind-
anna á því að hafa áhrif á gang
náttúrunnar verða meiri.“ Þegar
Olga er spurð hvort hún fordæmi vís-
indin í gegnum störf Doktors B. segir
hún svarið ekki svo einfalt. „Það er að
minnsta kosti mjög mikilvægt að við
séum okkur meðvitandi um það sem
fer fram í kringum okkur og tökum
afstöðu til þess.“
Yfirskrift sýningarinnar í Lista-
safninu á Akureyri er „Rækt“ og vís-
ar sá titill á skemmtilegan hátt til tví-
bentrar afstöðunnar til náttúrunnar í
verkum Olgu. „Sum verkanna á sýn-
ingunni hef ég sýnt áður en önnur eru
ný. Gróðurhús Doktors B. sem er
stór klippimynd af landslagi sýndi ég
í Listasafni ASÍ í fyrra. Þetta verk
myndar nokkurs konar „macrokosm-
os“ andspænis hinum verkunum, þar
sem sýningargesturinn getur horft
inn í nokkurs konar microkosmos,
eða smáheima sem er að finna í mis-
munandi deildum á tilraunastofu
Doktors B.“
Þegar Olga er spurð nánar út í
nálgunaraðferðir sínar við viðfangs-
efnið segir hún hinn fagurfræðilega
þátt skipta miklu máli. „Mér finnst
mjög áhugavert hvernig náttúran er
framsett, eða sviðsett, í nátt-
úrugripasöfnum, dýragörðum og öðr-
um tilbúnum „smáheimum“ sem nú-
tímamaðurinn býr sér til. Ég sæki
dálítið til þessara framsetninga í mín-
um verkum, t.d. í því hvernig búin eru
til nokkurs konar leiktjöld í kringum
dýralífið sem er til sýnis. En úrvinnsl-
an á viðfangsefnunum mótast auðvit-
að mjög sterklega af því að þau séu
áhugaverð á myndrænan hátt.“
Rækt stendur til 27. október og
stendur yfir á sama tíma og sýningin
Rembrandt og samtímamenn hans í
Listasafninu á Akureyri.
Morgunblaðið/Sverrir
Olga Soffía Bergmann sýnir í Listasafninu á Akureyri næstu vikur.
Ólíkar deildir
Doktors B.
Í vestursal Listasafnsins á Akureyri
verður opnuð í dag nokkurs konar yfirlits-
sýning á sköpunarverkum og tilraunum
Doktors B. Heiða Jóhannsdóttir spurði
Olgu Soffíu Bergmann myndlistarmann
út í störf doktorsins.
heida@mbl.is
DANNY van Walsum frá Hollandi
og Elva Dögg Kristinsdóttir opna
samsýningu í Listamiðstöðinni við
Reykjanesbraut í dag kl. 16.
Danny sýnir abstrakt málverk
með blandaðri tækni og dúkristur
sem hann hefur unnið í vinnustofu í
Straumi frá því í janúar. Myndir
hans eru unnar undir áhrifum nán-
asta umhverfis Straums.
Elva Dögg sýnir þrívítt verk, gos-
brunn unninn í trefjaplast, en Elva
hefur einnig unnið verk sitt í
Straumi.
Elva Dögg er útskrifuð úr Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands 1994
úr skúlptúrdeild og hefur tekið þátt í
ýmsum samsýningum.
Danny van Walsum hefur haldið
yfir 50 einka- og samsýningar víða
um heim og er þetta önnur sýning
hans á Íslandi.
Sýningin er síðan opin fimmtu-
daga, föstudaga, laugardaga og
sunnudaga frá 14-19 og stendur til
29. september.
Samsýning
í Straumi
Í LISTASAFNI Borgarness opnar í
dag, laugardag, kl. 14, Rótarýklúbb-
ur Borgarness sýningu, sem ber yf-
irskriftina Sögusýning. Tilefnið er
hálfrar aldar afmæli klúbbsins en
hann var stofnaður hinn 14. septem-
ber 1952. Stofnendur voru 23,
fulltrúar jafnmargra starfsgreina í
Borgarnesi og nágrenni. Afmælisins
verður minnst með ýmsum hætti,
m.a. með sýningu með textum, mun-
um og myndum úr sögu og starfi
Rótarýklúbbs Borgarness, sem ætl-
ast er til að gefi hugmynd um verk-
efni klúbbsins í starfi og leik og þau
mál sem þar hafa verið reifuð og
rædd. Við opnunina verður afhent í
fyrsta sinn viðurkenning úr Hvatn-
ingarsjóði klúbbsins, sem veitt er
fyrir markvert framlag til menning-
ar eða atvinnulífs á klúbbsvæðinu.
Sýningin er opin frá kl. 13–18 alla
virka daga og til kl. 20 á þriðjudags-
og fimmtudagskvöldum. Sýningin
stendur til 2. október.
Sögusýning
Rótarýklúbbs
Borgarness
UNDANFARNAR vikur hefur tríó
skipað flautuleikurunum Guðrúnu
Birgisdóttur, Martial Nardeau og
Pétri Jónassyni gítarleikara leikið
fyrir unglinga í Kópavogi. Þessu
verkefni lýkur með fjölskyldu-
tónleikum í Salnum, tónlistarhúsi
Kópavogs í dag kl. 16.
Þremenningarnir hafa heimsótt
alla grunnskóla bæjarins og leikið
fyrir nemendur unglingadeilda. Á
þessum tónleikum hafa þau kynnt
verk frá ýmsum tímum, meðal ann-
ars eftir Bach, Mozart, Mist Þor-
kelsdóttur og Britney Spears. Auk
þess leikur tríóið verk eftir Jón
Múla Árnason, Martial Nardeau,
Tarrega, Granados, Farruca og
Dinicu.
Tónleikarnir eru klukkustundar
langir og er aðgangseyrir 500 kr.,
en ókeypis fyrir börn í fylgd full-
orðinna.
Morgunblaðið/Golli
Guðrún Birgisdóttir, Martial
Nardeau og Pétur Jónasson.
Tónlist fyrir
alla í Kópavogi
♦ ♦ ♦
ÞAU eru sérstakir og skemmtileg-
ir félagar þau Líló og Stitch. En fyrir
þá sem ekki vita þá er Stitch eins
konar geimvera, til-
raunadýr eitt sinnar teg-
undar, gætt þeim eigin-
lega að eyðileggja allt
sem það kemur nærri.
Stitch er ólöglegt fyrir-
bæri í samfélaginu úti í
geimnum og er því send-
ur á brott í geimskipi.
Stitch flýr til jarðarinnar
og lendir á Hawaií þar
sem hann er tekinn í mis-
gripum fyrir furðulegan
hund sem litla Líló og
stóra systir hennar Naní
ættleiða. Þar með verður
hann hluti af – ohana –
fjölskyldu þeirra systra
sem eru munaðarlausar.
Þær eru ekki alveg eins
og yfirvöld kjósa og er félagsmála-
fulltrúi því á hælunum á þeim og vill
setja Líló á fósturheimili.
Þessir tveir félagar lenda í miklum
ævintýrum sem bæði börn og full-
orðnir geta lifað sig inn í. Myndin er
spennandi þar sem þau eru með fé-
lagsráðgjafa og útsendara geim-
veruyfirvaldsins á hælunum. Og
saman læra þau hvernig er að eiga
besta vin, að vera fjölskylda og að
skemmta sér í lífinu, þótt það geti
stundum verið erfitt.
Stitch er með frumlegri týpum
sem Disney hefur komið með fram á
sjónarsviðið. Líló er að vissu leyti
ekki svo ólík uppáhaldinu mínu,
henni Fríðu (sem líka átti dýr að
vin), hún er listræn, öðruvísi, veit
hvað hún vill og full af tilfinningum.
En hún er ekki sérlega fríð. Stóra
systirin á í sama basli og margir
þekkja bæði hér á landi og annars
staðar í heiminum, að reyna að ná
endum saman.
Teikningarnar eru líka mjög
skemmtilegar, þar sem fólkið er
raunsærra en oft áður. Í fyrsta skipti
í átatugi er líka notaður vatnslitaður
bakgrunnur, sem mér finnst mjög
fallegt og koma vel út, ekki síst á
þessari fallegu eyju. Öðrum gæti
þótt það skref aftur á bak á tölvu-
tækniöld.
Tónlistin er góð. Alan Silvestri
klikkar sjaldan, og hér fær Elvis að
lifna við í sex lögum. Ekki vitlaust að
kynna kónginn fyrir smávöxnum
bíóförum, þótt einn hafi sagt við mig:
„Nei, þetta er ekki lag með neinum
Elvis. Þetta er nýtt lag og var samið
um Stitch!“ Og hana nú.
Íslenska raddsetningin er góð að
vanda. Það mæðir mest á systrunum
sem þær Inga María Valdimarsdótt-
ir og Unnur Sara Eldjárn túlka
skemmtilega með fallegu röddunum
sínum.
Líló og Stitch eru öðruvísi og
hressilegt par sem ættu að eiga auð-
velt með að bræða hjörtu hvaða
fjölskuyldumeðlims sem er, sama
hversu gamall hann er.
Hressilegt par
KVIKMYNDIR
Sambíóin Reykjavík, Akureyri og
Keflavík
Leikstjórn og handrit: Dean Deblois og
Chris Sanders. Listræn stjórn: Ric Slui-
ter. Tónlist: Elvis Presley og Alan Silv-
estri. Leikstj. ísl. raddsetn: Júlíus Agn-
arsson. Raddir: Unnur Sara Eldjárn, Inga
María Valdimarsdóttir, Atli Rafn Sigurð-
arson, Ólafur Darri Ólafsson o.fl. USA. 85
mín. Buena Vista 2002.
LILO & STITCH Hildur Loftsdóttir
Líló og Stitch lenda í miklum ævintýrum sem
bæði börn og fullorðnir geta lifað sig inn í.
ÞRJÁR einkasýningar verða opn-
aðar í Listasafni Kópavogs, Gerð-
arsafni í dag, laugardag, kl. 15. Þar
gefur að líta olíu- og akrílmálverk
og myndverk og skúlptúrar úr
gleri.
Í Austursal opnar Sigtryggur
Bjarni Baldvinsson listmálari sýn-
inguna Lög/Layers. Þar sýnir hann
á þriðja tug olíumálverka sem unn-
in eru á síðustu fjórum árum. Sig-
tryggur kannar í verkum sínum
mörkin milli hlutbundinnar og
óhlutbundinnar málaralistar. Lista-
maðurinn sækir efnivið í náttúruna,
athugar og einangrar lífræna
hrynjandi hennar og reynir á þan-
þol náttúrulegs litrófs. Þá eru bein-
ar og óbeinar tilvitnanir í listasög-
una, einkum í abstraktlist síðustu
aldar, ríkur þáttur í mörgum verka
Sigtryggs.
Í tengslum við sýninguna kemur
út bæklingur þar sem Aðalsteinn
Ingólfsson listfræðingur ritar grein
um listsköpun Sigtryggs.
Í Vestursal opnar Pétur Már Pét-
ursson sýningu á akrílmálverkum
og nefnir sýninguna Stæður. Í ab-
straktverkum Péturs Más segir af
stæðum bæði háum sem bláum,
lyklum og lengjum, hlustað á heiði
– þá er gluggað og krassað – graf-
ist fyrir um tímann og vatnið, skaf-
ið og flett í gegnum tíðina. Þó heyr-
ist einnig ýll og á. Á milli er gruflað
og spáð í veður og nýslegnar villur.
Á neðri hæð opnar Jónas Bragi
Jónasson sýningu sem hann nefnir
Brim. Þar eru myndverk og skúlp-
túrar úr gleri og birtast í verkunum
kraftar og andi náttúruaflanna sem
túlkuð er á óhlutbundinn hátt með
geómetrískum formum.
Listasafn Kópavogs er opið alla
daga nema mánudaga frá 11-17 og
standa sýningarnar til 29. sept-
ember.
Þrjár einkasýningar
í Gerðarsafni
Morgunblaðið/Þorkell
Myndlistarmennirnir í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni: Pétur Már
Pétursson, Sigtryggur Bjarni Baldvinsson og Jónas Bragi Jónasson.