Morgunblaðið - 14.09.2002, Blaðsíða 41
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 41
FYRIR um tveimur
árum kynntu bæjaryfir-
völd í Kópavogi hug-
myndir að skipulagi
íbúðarbyggðar í Vatns-
enda. Þá ætlaði allt um
koll að keyra þar sem
samstilltur hópur fólks
hrópaði sig hásan á torg-
um. Hópi þessum var
ekkert heilagt enda virt-
ist markmið hans aðeins
það eitt að níða verk
bæjarins í Vatnsenda og
endurtaka leikinn í sí-
fellu því þá hlyti eitthvað
að sitja eftir í hugskoti
samborgaranna.
Þessi ófrægingarherferð stóð fram
að síðustu bæjarstjórnarkosningum.
Hver man ekki eftir upphrópunum
eins og „skipulagsslys“, „umhverfis-
slys“, „sex hæða blokkir milli vatns og
vegar“, „framtíð í lausu lofti“, „steypa
við Vatnsenda“, „mikilvægri náttúru-
perlu höfuðborgarsvæðisins er stefnt
í hættu fyrir skammtímahagsmuni
eins sveitarfélags“, „ástandið þegar
óviðunandi“, „valdið og Vatnsendi“,
„aðför að íbúum“, „valdníðsla og
hroki“, „óheiðarleiki“, „þetta eru
sjónhverfingar“, „lífríki Elliðaáa við
hættumörk“, „yfirklór“, „náttúru-
hamfarir við Elliðavatn“ o.s.frv.
En hvar eruð þið nú? Hvers vegna
standið þið ekki á torgum og hrópið?
Því heyrist lítið frá ykkur sem nú eru
að fara að byggja 3.300 manna blokk-
arhverfi í Norðlingaholti með 4, 5 og 6
hæða fjölbýlishúsum við bakka
Bugðu og Elliðavatns. Hvað varð um
náttúruverndarsjónarmiðin, um-
hverfisverndarsjónarmiðin, röskun á
lífríki Elliðavatns og skerðingu úti-
vistarsvæða? Hvers vegna gagnrýnið
þið ekki þá fyrirætlan að heimila tvær
bensínstöðvar í Norðlingaholti sem er
á sprungusvæði. Hvers vegna hefjist
þið handa við þéttingu byggðar í út-
jaðri borgarlandsins og það á bökkum
Elliðavatns?
1.
Í grein sem birtist eftir Stefán Jón
Hafstein í Degi 13. september 2000
skrifar hann eftirfarandi: „Lágreist
byggð hefur risið með gróskumiklum
lóðum og leyfilegt að hafa rúmt um
sig með dýrahald…“ „…Elliðavatn er
í dag „villt vatn með óspillta bakka,
fiska- og fuglalíf.“ „…Það tengist við
vatnsból Reykjavíkur og er vinsæll
útivistarstaður veiðimanna, hesta-
manna, göngufólks – sumar og vetur
– auk þess sem frá vatninu liggja
ósnert lönd í Heiðmörk og áfram í
Bláfjöll. Elliðahvammur og landið
með bakkanum og upp í hæðina verð-
ur nú eins og hvert annað Voga- og
Heimahverfi þar sem ekki vex villt
strá, valtað yfir móa og grundir, gerð
uppfylling út í vatnið, rétt ofan við
vatnsbakkann verður leikskóli, en svo
taka við fimm hæða blokkir og í skjóli
þeirra taka við verslanakjarnar og til-
heyrandi vídeóleigur og bensínstöðv-
ar…“
Hvar ertu nú, Stefán Jón? Þessar
hugrenningar þína ættir þú að rifja
upp fyrir samstarfsfólki þínu í borg-
arstjórnarflokki Reykjavíkurlistans
þegar þið fjallið um skipulag Norð-
lingaholts. Í leiðinni ættir þú einnig að
kynna þeim hugmynd þína um bygg-
ingu kúluhúsa á bakka Elliðavatns.
Ég er þess fullviss, þar sem þú ert
mikill umhverfissinni, samanber
ofangreint, að þú munir gera þá kröfu
og beita þér fyrir því sem borgar-
fulltrúi að skipulag Norðlingaholts
fari í umhverfismat. Eða er tónninn
þinn nú holur og penninn þurr?
2.
Ætli það sé ekki allt gott að frétta
af Árna Bragasyni, forstjóra Nátt-
úruverndar ríkisins? En haft var eftir
forstjóranum, m.a. í Morgunblaðinu
16. september 2000, að ljóst væri að
Vatnsendasvæðið væri eingöngu með
lágri byggð í dag og samkvæmt lög-
um sé kveðið á um að við hönnun
mannvirkja beri að tryggja að þau
falli sem best að svipmóti lands. Svo
er eftir honum haft. „Þá
er umhugsunarvert
hvort menn vilji fara að
stíga þau skref á þessu
svæði (þ.e. í Vatnsenda –
innskot) að reisa sex
hæða hús, sem eru í
hróplegu ósamræmi við
allt annað á þessu
svæði.“
Hvar er nú forstjóri
Náttúruverndar alls Ís-
lands, þegar R-listinn
byggir 4, 5 og 6 hæða
blokkir í Norðlingaholti
með tveimur bensín-
stöðvum á sprungusvæði
og það í jaðri vatnsverndarsvæðis fyr-
ir drykkjarvatn? Er „svipmótið“
norðan við Elliðavatn, þ.e í Norð-
lingaholti, allt annað en vestan þess
þ.e. í Vatnsenda? Hvað með hróplega
ósamræmið? Af hverju heyrist ekkert
í Árna nú? Ef forstjórinn vill taka þátt
í pólitík, skal honum bent á að hægt er
að leggja fram framboð stuttu fyrir
sveitarstjórnakosningar á fjögurra
ára fresti. Hvað varð um trúverðug-
leika hins óháða sérfræðings?
3.
Hvar eru þeir félagar í Landvernd?
Af hverju heyrist ekkert í þeim? Hef-
ur áhuginn dvínað eða líst þeim bara
ágætlega á tillögur R-listans að
skipulagi blokkarbyggðarinnar í
Norðlingaholti með bensínstöðvunum
tveimur? Í Morgunblaðinu 16. sept-
ember 2000 er haft eftir Landvernd-
armönnum að „…byggðin í Vatns-
enda sé mjög sérstæð jaðarbyggð á
mörkum þéttbýlis og sem slík myndi
hún sérstakt menningarlandslag sem
fái aukið vægi vegna þess að við
Elliðavatn séu til staðar höfuðein-
kenni eftirsóttra dvalar- og útivistar-
svæða auðugt og fjölbreytilegt lífríki
stöðuvatnsins, skóglendi og fjöl-
breytt, mishæðótt land.“ Þá segir:
„Þá sé svæðið á virku sprungusvæði
sem ástæða sé til að ætla að sé miklu
sprungnara en virðist við fyrstu sýn
eða lauslega könnun.“ … „Það (þ.e.
sprungusvæðið – innskot) hefði í för
með sér aukna hættu fyrir stöðug-
leika bygginga, einkum stórra og
hárra. Auk þess greiða sprungurnar
leið menguðu vatni frá yfirborði niður
til grunnvatns.“ Einnig höfðu þeir
áhyggjur af því að mengað yfirborðs-
vatn frá fyrirhugaðri byggð í Kópa-
vogi geti borist í Elliðavatn og haft
skaðleg áhrif á lífríki þess.
Svo kom fram í Morgunblaðinu að
þeir félagar virtust hafa miklar
áhyggjur af því að byggðin í Vatns-
enda kæmi til með að þrengja að
göngu- og reiðleiðum, skerða óbyggt
svæði eða gróið land og draga þar
með úr gildi þeirra.
Nú má spyrja: „Hafið þið félagar í
Landvernd ekki nokkrar áhyggjur
eða efasemdir t.d. um „menningarlegt
gildi“ fyrirhugaðrar 6 hæða blokkar-
byggðar í Norðlingaholti eða tveimur
bensínstöðvum á sprungusvæði og
iðnaðarsvæði sem í fermetrum talið
er á stærð við Kringluna? Hvar eruð
þið nú? Af hverju heyrist ekkert í
ykkur? Hvar eru andmælin og fras-
arnir? Mun fyrirhuguð byggð í Norð-
lingaholti ekki þrengja að götu- og
reiðleiðum, skerða óbyggð svæði og
gróið land o.s.frv. Af hverju lítið þið
Landverndarmennirnir núna undan?
4.
Jæja, Ólafur F. Magnússon, borg-
arfulltrúi. Manstu eftir grein sem þú
skrifaðir í Dagblaðið 19. september
2000: „Afstýrum skipulagsleysi við
Elliðavatn“? En þar brýnir þú al-
menning til varnar gegn skipulagi
Kópavogs í Vatnsendalandi. Ekki hef
ég enn heyrt hvatningarhrópin frá
þér varðandi Norðlingaholtið. Því
spyr ég þig: „Telur borgarfulltrúinn
sig áhrifalausan í borgarstjórn
Reykjavíkur og umhverfis- og heil-
brigðisnefnd borgarinnar? Er ekki
bráðnauðsynlegt fyrir þig, borgar-
fulltrúann, að vera samkvæmur sjálf-
um þér og taka hressilega á málum
jafnt fyrir kosningar sem og eftir
þær, einnig í þínu eigin sveitarfélagi
Reykjavík?
Einhvers staðar var haft eftir borg-
arfulltrúa F-listans, að því færi víðs-
fjarri að skipulag í Vatnsenda væri
einkamál Kópavogsbúa. Þú talaðir
um „barnaskap“ bæjaryfirvalda í
Kópavogi hvað það varðaði. Nú er það
svo að fyrirhuguð sérbýlishúsabyggð
í Vatnsenda er hreinn barnaleikur
miðað við hina tröllslegu blokkar-
byggð með bensínstöðvunum tveimur
í landi Reykjavíkur í Norðlingaholti.
Hvar ertu nú? Var þetta bara leikara-
skapur í þér og ekkert mark á tak-
andi?
5.
Í Árna Þór Sigurðssyni, forseta
borgarstjórnar Reykjavíkur, fyrrver-
andi formanni skipulagsnefndar
Reykjavíkur og vinstri grænum, hef-
ur heldur ekkert heyrst varðandi fyr-
irhugaða 4, 5 og 6 hæða blokkarbyggð
í Norðlingaholti með bensínstöðvun-
um tveimur. Skipulag sem þó var
unnið undir hans stjórn sem formað-
ur skipulagsnefndar borgarinnar.
Þú fórst mikinn þegar við Kópa-
vogsbúar skipulögðum Vatnsendann
en hvar ertu nú, vinstri grænn? Þinn
flokkur „Vinstrihreyfingin – grænt
framboð“, telur sig ákafan talsmann
„heilsteyptrar umhverfisverndar-
stefnu og að skammtímahagsmunir,
neysluhyggja og gróðafíkn víki fyrir
verndun umhverfis og varðveislu
náttúrugæða“ eins og fram kemur í
stefnu flokksins. Þið segið að verkefni
vinstri grænna sé að „lyfta gildum
raunverulegra lífsgæða, skapa sam-
félag réttlætis og jafnaðar í góðri sátt
við lífríkið allt og móður jörð.“ Þið í
Vinstrihreyfingunni – grænu fram-
boði viljið vernda íslenska náttúru,
þið gasprið um sjálfbæra þróun og að
þið séuð bestu vinir samtaka áhuga-
fólks um umhverfisvernd.
Já, hvar ertu nú? Ég hef það á til-
finningunni að hugmyndir þínar að
blokkarbyggð í Norðlingaholti séu
allar á skjön við flokkslínuna í vinstri
grænum. Ætli Steingrímur viti af
þessu? Orð og efndir virðast ekki fara
saman hjá forsetanum. Telur hann,
forsetinn og stýrimaðurinn, að baki
skipulagshugmyndum í Norðlinga-
holti, að með blokkarbyggð með þétt-
leikanum 26 íbúðir á hektara á bakka
Elliðavatns, sé „verndun umhverfis
og varðveisla náttúrugæða að víkja
fyrir gróðafíkn“? Ég spyr. Hvort
myndi Árni Þór telja, ef olíur eða
bensín lækju út í Bugðu eða Elliða-
vatn frá bensínstöðvunum tveimur, að
um væri að ræða mengunarslys eða
skipulagsslys?
6.
Ingibjörg Sólrún borgarstjóri tal-
aði um mikla sjónmengun fyrir þá
sem stunda útivist í Heiðmörk ef
byggt yrði í Vatnsendalandi. En hvað
nú? Hefur minnið brugðist borgar-
stjóranum eða hefur hún sett upp
önnur gleraugu þegar horft er til
Norðlingaholts? Verður minni sjón-
mengun ef 6 hæða blokkarbyggðinni
með bensínstöðvunum tveimur í
Norðlingaholti en sérbýlishúsa-
byggðinni í Vatnsendalandi. Leit
borgarstjórinn svo á að 6 hæða blokk-
irnar með bensínstöðvunum tveimur í
Norðlingaholti kæmu hvort er til með
að falla inn í 8 hæða blokkarbyggðina
í Breiðholtinu? Var þetta bara pólitík
og öfund? Hvar ertu nú? Ég held að
borgarstjórinn í Reykjavík geti lært
margt af því að horfa yfir til Kópa-
vogs. Kópavogur er eftirtektar verð-
ur.
HVAR ERTU NÚ…?
Gunnar I. Birgisson
Ég held að borgarstjór-
inn í Reykjavík, segir
Gunnar Ingi Birgisson,
geti lært margt af því að
horfa yfir til Kópavogs.
Höfundur er formaður bæjarráðs
Kópavogs.
SKOÐUN
ÞAÐ er þörf og góð
hugsun sem fer af
stað þegar efnt er til
viku símenntunar sem
nú stendur yfir. Við
megum samt ekki
gleyma því að sí-
menntunarvikur eru
52 í árinu. Allt árið er
verið að vinna að
bættri þjónustu, betri
upplýsingagjöf, skil-
virkari vinnuaðferðum
og meiri fróðleik um
vöruna sem er verið
að selja, til dæmis í
ferðaþjónustu. Til
þess að land eins og
Ísland geti tekið á
móti rúmlega 300.000 erlendum
gestum þarf góðan undirbúning,
mikla skipulagningu og hagræð-
ingu, mikið samstarf seljenda,
þjónustuaðila og birgja. Hinn 11.
september sl. er dagur sem við
vildum helst gleyma, en hann
hljómar í eyrum okkar ferðaþjón-
ustuaðila sem öskur enn í dag. Það
öskur kallar þó helst á það að við
þurfum að taka höndum saman og
styrkja atvinnugreinina ferðaþjón-
ustu enn betur. Þegar slíkir at-
burðir koma upp sem hryðjuverka-
árásir og margt annað sem hefur
gerst í gegnum tíðina fylgja því
ákveðin eftirköst, en það er mín
trú að upp stytti um síðir og ef ein-
hvern tímann þarf á styrkingu að
halda og samstöðu þá er það eftir
svona áföll.
Nú er nýtt skólaár að hefjast í
Ferðamálaskólanum í Kópavogi.
Fjölmargir nemendur eru að setj-
ast á skólabekk, nýnemar og eldri
nemar sem stunda nám í starfs-
tengdu ferðafræðinámi. Námið er
þrjár bóklegar annir og þrír mán-
uðir í starfi hjá ferðaþjónustufyr-
irtæki þar sem nemendur eru
ráðnir inn á nemasamningi. Sam-
starf milli skólans og fyrirtækja í
atvinnugreininni fer
vaxandi og þá ber
helst að nefna starfs-
þjálfun og að fyrir-
tækin ráða í auknum
mæli starfsfólk sem
hefur menntað sig í
faginu. Símenntun og
endurmenntun fyrir
starfandi aðila í grein-
inni er afar nauðsyn-
leg, þar hafa fyrirtæk-
in í atvinnugreininni
ótal leiðir til að hvetja
starfsmenn til að
sækja sér aukna
menntun eða að halda
sjálfstæð námskeið.
Námið í Ferðamála-
skólanum í Kópavogi byggist á
hagnýtri kennslu þar sem lögð er
áhersla á að nemandi sé fær í flest
störf hjá ferðaþjónustufyrirtæki að
námi og starfsnámi loknu. Skólinn
er kvöldskóli og miðað er við ald-
urstakmarkið 20 ára og eldri.
Kennarar koma að stórum hluta úr
atvinnulífinu og miðla þannig
reynslu líðandi stundar til nem-
enda. Skólinn stendur líka fyrir
sjálfstæðum námskeiðum fyrir fyr-
irtæki og áhugahópa sem koma ná-
lægt ferðaþjónustu.
Símenntun í
ferðaþjónustu
Hildur
Jónsdóttir
Höfundur er fagstjóri Ferðamála-
skólans í Kópavogi.
Menntun
Allt árið er unnið að
bættri þjónustu, segir
Hildur Jónsdóttir,
betri upplýsingagjöf,
skilvirkari vinnuaðferð-
um og meiri fróðleik.
FRÁ því var sagt í
sjónvarpsfréttum fyrir
skömmu að verslun á
höfuðborgarsvæðinu
hefði dregist saman í
sumar. Rætt var um
þrjá verslunarkjarna
og fullyrt að mestur
samdráttur hefði verið
í verslun í miðborg-
inni.
Þetta kemur ekki
heim og saman við þá
sögu sem rótgrónir
kaupmenn í miðborg-
inni hafa að segja.
Flestir telja þeir
verslun svipaða og í
fyrrasumar og síst
minni.
Alltaf eiga sér þó stað breyt-
ingar, enda eru þær einkenni alls
þess sem lifir og dafnar. Ef ekkert
breyttist og allt stæði í stað væri
eðlilegt að hafa áhyggjur. En auð-
vitað má deila um hraða breyting-
anna og menn hafa misjafnar
skoðanir á því hvaða starfsemi sé
æskilegast að hafa á hverjum stað
í miðborginni.
Verslanir ganga kaupum og söl-
um og hætta starfsemi af ýmsum
ástæðum, t.d. vegna fjölskylduað-
stæðna, – jafnt í miðborginni sem
annars staðar.
Nokkuð er um lítið, þröngt og
óhagkvæmt verslunarhúsnæði við
Laugaveg. Sumir þeirra sem þar
hafa verslað hafa neyðst til að
hverfa burt. Því er aðkallandi að
staðfesta nýtt deiliskipulag Lauga-
vegar, þar sem gert er ráð fyrir að
verslunarhúsnæði eigi vaxtar-
möguleika norðanmegin í átt að
Hverfisgötu.
Ofarlega á Lauga-
vegi ríkir ákveðið
millibilsástand vegna
þess að borgin hefur
keypt Stjörnubíó og
fleiri fasteignir þar í
kring. Húsin bíða
niðurrifs og fyrirhug-
að er að reisa þarna
bílastæðahús, enda
mun ekki af veita.
Breytingar á lífs-
máta og þar með
verslun eru eðlilegar
og þær birtast í mið-
borginni m.a. í mikilli
fjölgun kaffihúsa og
veitingastaða, einkum
í Kvosinni. Lauga-
vegur og Skólavörðustígur halda
sínu sem helstu verslunargöturnar
og munu gera það um ókomna
framtíð.
Auðvitað vill fólk hafa áfram
verslun í miðborginni. Gleðilegt er
að sjá hve mjög unga fólkið sækir í
miðborgina, vill versla og njóta
lífsins þar. Á meðan svo er þarf
miðborgin engu að kvíða.
Miðborgin lifir
Einar Örn
Stefánsson
Miðborgin
Laugavegur og
Skólavörðustígur, segir
Einar Örn Stefánsson,
halda sínu sem helstu
verslunargöturnar.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Þróunarfélags miðborgarinnar.