Morgunblaðið - 14.09.2002, Blaðsíða 43
son prófessor en hann þýddi
guðspjallið og ritaði inngang og
skýringar.
Skráning fer fram í síma
535 1500 eða á vef Leikmannaskól-
ans www.kirkjan.is/leikmanna-
skoli
Kvennakirkjan
í Fríkirkjunni
í Hafnarfirði
KVENNAKIRKJAN heldur guðs-
þjónustu í Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði sunnudaginn 15. september
kl. 20.30. Yfirskrift messunnar er:
Fegurð haustsins – fegurð þín, þar
sem fjallað verður um uppskeruna
og önnur tákn haustsins.
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
prédikar. Valgerður Sigurðardóttir
segir frá kvennaþingi á vegum Al-
kirkjuráðsins sem haldið var í
Kenya í sumar. Kór Kvennakirkj-
unnar leiðir söng við undirleik Að-
alheiðar Þorsteinsdóttur.
Á eftir verður kaffi í safn-
aðarheimilinu.
Sunnudaginn 22. september
verður farin haustferð til Þingvalla
og haldin göngumessa sem hefst
við Hakið kl. 16.
Kvennakirkjan er sjálfstæður
hópur innan þjóðkirkjunnar og eru
messur hennar öllum opnar.
Kvennakirkjan stendur fyrir nám-
skeiðum og hinn 7. október hefjast
námskeiðin: Lífið eftir skilnað og
Hvað legg ég til lífs míns? Ábyrgð
mín á mér.
Kvennakirkjan opnaði nýlega
heimasíðu þar sem hægt er að
fræðast nánar um guðfræði hennar
og starfsemi.
Slóðin er: kirkjan.is/kvenna-
kirkjan.
Námskeið
um heimahópa
BIBLÍUSKÓLINN við Holtaveg
heldur námskeið fyrir fólk, sem
stjórnar svonefndum heimahópum
eða samfélagshópum sem koma
saman reglulega til að lesa í Biblí-
unni og ræða hana eða til að biðja.
Fjallað verður um hvers þarf að
gæta svo hópurinn nái vel saman,
umræður verði góðar og fólk haldi
sig við efnið. Hvert er hlutverk leið-
beinandans? Hvernig má forðast að
hópurinn verði eitthvað annað en
upphaflega var ætlunin? Fjallað
verður um æskilega stærð, hve oft
er ráðlagt að hittast o.fl. Hagnýtar
leiðbeiningar verða gefnar og að-
gengilegt lesefni fyrir slíka hópa
kynnt.
Leiðbeinendur verða Ragnar
Gunnarsson, Regina og Pétur
Björgvin Þorsteinsson. Kennt verð-
ur mánudagskvöldin 16. og 23.
september frá kl. 20-22 og er nám-
skeiðsgjald kr. 1.200. Skráning fer
fram í síma 588 8899 eða á skrif-
stofu @krist.is til kl. 12. mánudag-
inn 16. september.
Vetrardagskrá
KFUM og KFUK
UPPHAF vetrardagskrár KFUM
og KFUK verður sunnudaginn 15.
september. Ræðumaður á almennri
samkomu kl. 17 verður sr. Sigurður
Pálsson sóknarprestur í Hallgríms-
kirkju og fyrrverandi formaður
KFUM í Reykjavík. Í upphafi sam-
komunnar mun ungur læknanemi,
Sigurður Ragnarsson, segja nokkur
orð og nýr sönghópur mun sjá um
tónlistina. Þennan dag hefst barna-
starf, sem verður á sama tíma og
samkomurnar í vetur. Mikill und-
irbúningur hefur staðið undanfarið
við að undirbúa barnaefnið, sem er
mjög vandað. Börnin verða í ald-
ursskiptum hópum þar sem þau
föndra og gera ýmislegt annað
skemmtilegt og fræðandi. Að lok-
inni samkomu munu félagar úr
Kristilegu skólahreyfingunni bjóða
upp á ljúffengan kvöldverð á vægu
verði.
Vökur, kvöldsamkomur með
léttu sniði, hefjast kl. 20. Áhersla er
lögð á lofgjörð, tilbeiðslu og boðun.
Í lok samverunnar er boðið upp á
fyrirbæn. Ræðumaður verður sr.
Kjartan Jónsson framkvæmdastjóri
KFUM og KFUK í Reykjavík.
MESSUR Á MORGUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 43
ÁSKIRKJA: Barna- og fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Kór Áskirkju syngur. Organisti
Kári Þormar. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Hjúkrunarheimilið Skjól: Guðsþjónusta kl.
14. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11.
Hljómsveit ungmenna undir stjórn Guð-
mundar Sigurðssonar. Foreldrar hvattir til
þátttöku með börnum sínum. Guðsþjón-
usta kl. 14. Einsöngur Þórunn Stef-
ánsdóttir. Organisti Guðmundur Sigurðs-
son. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson prédikar. Dómkórinn
syngur, Marteinn Friðriksson leikur á org-
el. Barnastund á kirkjuloftinu í umsjá
Hans G. Alfreðssonar æskulýðsfulltrúa
meðan á messu stendur.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11.
Messa kl. 11. Altarisganga. Kirkjukór
Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Ar-
inbjarnarson. Tónleikar Kirkjukórs Grens-
áskirkju kl. 20. Ólafur Jóhannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Messa kl. 14. Sr. Lárus Halldórsson
messar. Organisti Kjartan Ólafsson. Félag
fyrrverandi sóknarpresta.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barna-
starf kl. 11. Sr. Kristján Valur Ingólfsson
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sig-
urði Pálssyni. Hópur úr Mótettukór syngur.
Organisti Jónas Þórir.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðrún Helga Harðardóttir og sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir. Messa kl. 14.
Organisti Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas
Sveinsson.
LANDSPÍTALI, Hringbraut: Guðsþjónusta
kl. 10:30. Sr. Sigfinnur Þorleifsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa og barnastarf kl. 11.
Svala Sigríður Thomsen djákni kveður
söfnuðinn. Nýir starfsmenn boðnir vel-
komnir. Jóhanna Sigríður Halldórsdóttir
syngur einsöng. Prestur sr. Jón Helgi Þór-
arinsson. Organisti Jón Stefánsson. Fé-
lagar úr Kór Langholtskirkju leiða söng.
Kaffisopi eftir messu. Barnastarfið hefst í
kirkjunni en síðan fara börnin í safn-
aðarheimilið og eiga þar stund.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Kór Laugarneskirkju
syngur undir stjórn Gunnars Gunn-
arssonar organista. Sunnudagaskólinn er
undir stjórn Hildar Eirar Bolladóttur guð-
fræðinema og hennar samstarfsmanna.
Sr. Bjarni Karlsson þjónar fyrir altari, Þor-
kell Sigurbjörnsson er meðhjálpari og
messukaffi Sigríðar Finnbogadóttur kirkju-
varðar í safnaðarheimilinu á eftir.
NESKIRKJA: Messa kl. 11 í samvinnu við
KR. Ræðumaður Ellert B. Schram forseti
ÍSÍ. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng.
Organisti Hrönn Helgadóttir. Prestur sr.
Örn Bárður Jónsson. Sunnudagaskólinn
og 8-9 ára starf á sama tíma. Frá kl. 10
verður boðið upp á kaffi og meðlæti í safn-
aðarheimili Neskirkju.
SELTJARNARNESKIRKJA: Kynningarguð-
sþjónusta kl.11 fyrir fermingarbörn og for-
eldra þeirra. Sunnudagaskólinn á sama
tíma. Börnin hvött til að mæta. Organisti
Viera Manasek. Prestur sr. Siguður Grétar
Helgason.
ÍSLENSKA KIRKJAN ERLENDIS:
GAUTABORG: Guðsþjónusta í Skårs-kirkju
sunnudag 15. sept. kl. 14. Organisti Tuula
Jóhannesson. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson
prófastur prédikar. Skúli S. Ólafsson,
Hannes Björnsson og Guðrún Karlsdóttir
þjóna fyrir altari. Kórsöngur. Kirkjukaffi.
FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK: Barnastarf
vetrarins hefst með barnaguðsþjónustu
kl. 11.00 í kirkjunni. Boðið verður upp á
skemmtilegt og um leið uppbyggilegt
fræðsluefni auk léttra söngva þar sem all-
ir geta sungið með og tekið virkann þátt.
Umsjón hafa Hreiðar Örn Stefánsson en
hann hefur margra ára reynslu sem leið-
togi í barna og æskulýðsstarfi og Ása
Björk Ólafsdóttir guðfræðinemi.Og ómiss-
andi í helgihaldinu er síðan andabrauðið í
lok samverunnar en þá er fuglunum við
tjörnina gefið brauð að borða. Kl. 20.30
Kvöldguðsþjónusta við kertaljós. Efni
kvöldsins: „Hafa öfgar og ofstæki komið
óorði á Guð – hvernig talar Guð til okkar í
nútímanum?“ Tónlist verður í höndum
Carls Möller orgel og píanista og Önnu Sig-
ríðar Helgadóttur söngkonu og kórstjóa,
ásamt Gospellkór Fríkirkjunnar. Allir vel-
komnir. Hjörtur Magni Jóhannsson
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Sigrún Óskarsdóttir þjónar fyrir altari.
Kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn Pavel
Manasek organista. Sunnudagaskólinn á
sama tíma í safnaðarheimilinu. Steina
steinaldarstelpa mætir og hlakkar til að
sjá sem allra flesta. Kaffi og djús að
stundinni lokinni. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11.
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Organisti Peter
Maté. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Kirkjuhátíð. Hátíðin
hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11.
Heimasíða Digraneskirkju www.digra-
neskirkja.is formlega opnuð. Leikja- og
fræðslubíll á tveimur hæðum með Play
Station-leikjum KFUM&K kynnir vetrarstarf
barnanna. Leikir í nýrri kapellu á neðri
hæð fyrir börn allan daginn. Eldri borgarar
sýna senior-dans. Á lóðinni verða hestar
og útileikir. Veitingar – kaffihús á neðri
hæðinni. Helgistundir á ýmsum tímum.
Kórsöngur: Nýstofnaður unglingakór og
kór Digraneskirkju taka lagið. Stutt-
myndagerð á neðri hæð. Þorvaldur Hall-
dórsson leiðir létta stund í helgri alvöru kl.
15. Vetrarstarfið kynnt í safnaðarsal.
Safnaðarfélagið, hjónaklúbburinn, Alfa-
námskeið, foreldramorgnar, starf eldri
borgara og ÍAK, Höklar Guðrúnar Vigfús-
dóttur og orgel Digraneskirkju.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Org-
anisti Lenka Mátéová. Kór Fella- og Hóla-
kirkju syngur. Sameiginleg guðsþjónusta
safnaða í Reykjavíkurprófastsdæmi
eystra kl. 20. Sr. Gísli Jónasson prófastur
prédikar. Sr. Hreinn Hjartarson, sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson og Lilja G. Hall-
grímsdóttir djákni þjóna fyrir altari. Hér-
aðsnefndarfólk les ritningarlestra.
Kaffiveitingar að lokinni guðsþjónustu. All-
ir velkomnir en þess er sérstaklega vænst
að prestar, djáknar, sóknarnefndarfólk og
annað starfsfólk safnaðanna taki þátt í
guðsþjónustunni sem markar upphaf vetr-
arstarfsins í prófastsdæminu.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Vigfús Þór Árnasonar prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Önnu Sigríði
Pálsdóttur. Organisti Hörður Bragason,
kór Grafarvogskirkju syngur. Eftir guðs-
þjónustuna verður fundur með ferming-
arbörnum úr Folda- Húsa- og Hamraskóla
og foreldrum þeirra. Dregið verður um
væntanlega fermingardaga.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Fé-
lagar úr kór kirkjunnar syngja. Organisti
Jón Ólafur Sigurðsson. Barnaguðsþjón-
usta kl. 13. Orgelandakt kl. 17. Kári Þor-
mar organisti við Áskirkju situr við orgelið
og leikur verk eftir J.S. Bach, Johannes
Brahms, Luis Vierne o.fl. Við minnum á
bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18.
Sr. Íris Kristjánsdóttir.
LINDASÓKN: Sunnudaginn 15. sept-
ember verður fjölskylduguðsþjónusta í
Lindaskóla í Kópavogi. Guðsþjónustan
markar upphaf barnastarfs í sókninni
þennan fyrsta starfsvetur hennar. Í vetur
verða guðsþjónustur á vegum safnaðarins
allaf í Lindaskóla hvern sunnudag kl. 11.
Leiðtogar barnastarfsins í vetur kynna sig
og taka fullan þátt í guðsþjónustunni.
Fuglinn Konni kemur í heimsókn og sitt-
hvað fleira skemmtilegt verður gert.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í safn-
aðarheimilinu Borgum kl. 11. Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópa-
vogskirkju syngur og leiðir safnaðarsöng.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Mikill söngur og lífleg fræðsla. Guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Bolli Pétur Bollason prédik-
ar. Organisti er Jón Stefánsson. Sókn-
arprestur.
REYKJAVÍKURPRÓFASTSDÆMI EYSTRA:
Sameiginleg guðsþjónusta safnaða í
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra verður í
Fella- og Hólakirkju sunnudag kl. 20. Sr.
Gísli Jónasson prófastur prédikar. Sr.
Hreinn Hjartarson, sr. Guðmundur Karl
Ágústsson og Lilja G. Hallgrímsdóttir
djákni þjóna fyrir altari. Héraðsnefndarfólk
les ritningarlestra. Kaffiveitingar að lok-
inni guðsþjónustu.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Bíldshöfða
10, 2. hæð. Morgunguðsþjónusta kl.11.
Fræðsla fyrir börn og fullorðna. Lesnir
verða valdir kaflarúr Lúkasar guðspjalli
næstu sunnudaga og þeir útskýrðir undir
leiðsögn Friðriks Schram. Samkoma kl.
20. Mikil lofgjörð og fyrirbænir. Sr. María
Ágústsdóttir predikar. Allir velkomnir.
FRÍKIRKJAN VEGURINN: Bænastund kl.
16. Almenn samkoma kl. 16:30. Högni
Valsson predikar, lofgjörð, fyrirbænir og
mjög skemmtilegt aldursskipt barnastarf
á sama tíma. Athugið breyttan samkomu-
tíma. Allir hjartanlega velkomnir.
BOÐUNARKIRKJAN: Guðsþjónusta í dag,
laugardag, kl. 11. Frú Lilja Guðsteinsdóttir
mun leiða guðsþjónustuna, en predikun
mun flytja frú Erna Johnson, en hún er ís-
lensk og er búsett á Nýja Sjálandi. Barna-
og unglingastarf hefst í deildum um leið
og predikunin byrjar. Biblíufræðslu annast
dr. Steinþór Þórðarson í lok guðsþjónust-
unnar að venju og kirkjugestir eru hvattir
til að taka virkan þátt með spurningum og
athugasemdum. Veitingar í boði að lokinni
guðsþjónustu.
FÍLADELFÍA: Laugardagur: Bænastund kl.
20. Sunnudagur: Brauðsbrotning kl. 11.
Ræðumaður G. Theodór Birgisson. Al-
menn samkoma kl. 16:30. Ræðumaður
Hafliði Kristinsson. Lofgjörðarhópur Fíla-
delfíu syngur. Allir hjartanlega velkomnir.
KEFAS, Vatnsendabletti 601: Samkoma
sunnudag kl. 14. Sigrún Einarsdóttir talar.
Bænastund fyrir samkomu kl. 13.30. Lof-
gjörð og fyrirbænir. Barnastarfið hefst að
nýju eftir sumarfrí og er tvískipt fyrir 1-5
ára börn og 6-12 ára. Þriðjudag: Bæna-
stund kl. 20.30. Miðvikudag: Sam-
verustund unga fólksins kl. 20.30. Lof-
gjörð, hugleiðingar, fróðleiksmolar og
vitnisburðir. Allir velkomnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma
kl. 17. „Guð kennir Abraham í bæninni“
upphafsorð: Sigurður Ragnarsson. Sr. Sig-
urður Pálsson talar. Stutt bænastund kort-
eri fyrir samkomu. Barnastarfið hefst. Þar
verður Undraland kynnt. Heitur matur til
sölu eftir samkomu. Vaka kl. 20. Mikil lof-
gjörð, fyrirbæn. Kjartan Jónsson talar. Allir
velkomnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík - Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka: Sunnudaga: Hámessa
kl. 10.30. Messa á ensku kl. 18. Alla
virka daga: Messa kl. 18.
Reykjavík - Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11. Laugardaga:
Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga:
Messa kl. 18.30
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16.
Miðvikudaga kl. 20.
Hafnarfjörður - Jósefskirkja: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30. Frá júlí til sept. fellur
messan á miðvikudögum kl. 18.30 niður.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
8.30. Virka daga: Messa kl. 8.
Keflavík - Barbörukapella: Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14. Fimmtudaga:
Skriftir kl. 19.30. Bænastund kl. 20.
Akranes, sjúkrahúskapella: Sunnudaginn
15. september kl. 15.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka
daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.
Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.
Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.
Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa
kl. 18. Sunnudaga: Messa kl. 11.
REYNIVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Gunnar Kristjánsson
sóknarprestur.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Fyrsta barna-
samvera vetrarins. Nýjar bækur og nýtt
barnaefni kynnt. Litlir lærisveinar og Kór
Landakirkju. Allir hjartanlega velkomnir.
Kaffisopi á eftir. Sr. Kristján Björnsson, sr.
Þorvaldur Víðisson og barnafræðararnir.
Kl. 20.30 fyrsti fundur í Æskulýðsfélagi
landakirkju/KFUM&K í safnaðarheimilinu.
Nýir félagar úr 8.-10. bekkjum grunnskól-
anna velkomnir. Hulda Líney Magn-
úsdóttir, Ingveldur Theódórsdóttir og sr.
Þorvaldur Víðisson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Sunnudagaskólinn
byrjar. Munið kirkjustrætóinn. Barna og
unglingakórinn syngur undir stjórn Helgu,
hljómsveit leiðtoga sunnudagaskólanna
leikur undir söng, öll börn fá barnamöppu
kirkjunnar, farið verður í leiki og barn verð-
ur borið til skírnar. Prestar eru sr. Þórhallur
Heimisson og sr. Þórhildur Ólafs. Eftir
guðsþjónustuna er boðið upp á góðgæti í
safnaðarheimilinu.
HRAFNISTA í Hafnarfirði: Guðsþjónusta
kl.13.30. Kór Hrafnistu leiðir söng. Prest-
ur sr. Þórhallur Heimisson. Allir velkomnir.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Barna-
guðsþjónusta sunnudag kl. 11. Barna-
starf kirkjunnar hefst á sunnudaginn og
eru öll börn í sókninni hvött til að vera með
frá upphafi, njóta skemmtilegra stunda,
syngja saman, hlusta á sögur og safna í
kirkjubókina sína nýju og spennandi efni í
hvert sinn sem mætt er til kirkju. Guðs-
þjónusta kl. 14. Kirkjukór Víðistaðasóknar
syngur undir stjórn Antoníu Hevesi. Ein-
söngur Guðbjörg Tryggvadóttir. Allir vel-
komnir. Sóknarprestur
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl.11. Umsjón hafa Sigríður
Kristín, Edda, Hera og Örn. Guðsþjónusta
kl. 13 (ath. sami messutími og var síðasta
vetur). Organisti Þóra Vigdís Guðmunds-
dóttir og kórstjórn og gítarleikur Örn Arn-
arson. Prestarnir, Einar og Sigríður Kristín,
flytja samtalspredikun.
GARÐASÓKN: Guðsþjónusta í Vídal-
ínskirkju sunnudaginn 15. september kl.
11. Kór kirkjunnar leiðir almennan safn-
aðarsöng. Organisti Jóhann Baldvinsson.
Sunnudagaskóli, yngri og eldri deild, á
sama tíma í kirkjunni. Við athöfnina þjóna
Nanna Guðrún Zoëga djákni og sr. Hans
Markús Hafsteinsson. Prestarnir.
BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagaskólinn
tekur til starfa á ný á morgun kl. 11.00 í
sal Álftanesskóla. Kristjana og Ásgeir Páll
leiða hann áfram í vetur. Nýtt efni. Rúta
ekur hringinn á undan og eftir. Foreldrar
eru hvattir til að styrkja börnin í þessu mik-
ilvæga og skemmtilega starfi. Prestarnir.
HVALSNESKIRKJA: Laugardag 14. sept.:
Safnaðarheimilið í Sandgerði. Kirkjuskól-
inn kl. 11. Allir velkomnir, sjáumst hress.
Sunnudag 15. sept. Safnaðarheimilið í
Sandgerði. Guðsþjónusta kl. 14. Kór
Hvalsneskirkju syngur. Organisti Steinar
Guðmundsson.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Laugardagur 14. sept.
Safnaðarheimilið Sæborg. Kirkjuskólinn
kl. 14. Allir velkomnir, sjáumst hress.
Sunnudagur 15. sept. Útskálakirkja.
Guðsþjónusta kl. 11. Kór Útskála-
kirkjusyngur. Organisti Steinar Guðmunds-
son. Sóknarprestur Björn Sveinn Björns-
son.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta og sunnudagaskóli kl. 11 árdegis.
Undirleikari í sunnudagaskóla Helgi Már
Hannesson. Prestur sr. Sigfús Baldvin
Ingvason. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng.
Organisti Hákon Leifsson. Meðhjálpari
Björgvin Skarphéðinsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11 sunnudag. Léttur hádeg-
isverður að messu lokinni. September-
tónleikar þriðjudaginn 17. september kl.
20.30. Morguntíð sungin þriðjudag til
föstudags kl. 10. Kaffisopi að henni lok-
inni. Foreldrasamvera miðvikudaga kl. 11.
Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta sunnudag kl. 11. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Messa sunnudag
kl. 14. Sóknarprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA: Fyrsti sunnudaga-
skóli vetrarins í Hveragerðiskirkju hefst
sunnudaginn 15. september kl. 11 með
fjölskylduguðsþjónustu. Þema dagsins
verður sköpunin og kirkjan verður skreytt í
þeim anda, mikill söngur, fræðsla og
gleði. Foreldrar eru hvattir til að koma með
börnum sínum og eiga góða samveru í
kirkjunni. Stefanía, Berglind, Jörg og séra
Bára Friðriksdóttir leiða stundina.
VÍKURKIRKJA í Mýrdal: Kvöldguðsþjón-
usta sunnudag kl. 20.30. Ath. breyttan
tíma. Nýr organisti, Kristín Waage, leikur á
orgelið og stjórnar kór Víkurkirkju. Vík-
urkirkja fagnar nýju tónlistarfólki í Mýrdal-
inn og er söfnuðurinn hvattur til að mæta
og sýna þannig hug sinn. Fermingarbörn
næsta vors í Víkursókn og foreldrar þeirra
eru sérstaklega hvött til að mæta.
ÓLAFSVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta og
skírn sunnudag kl. 14. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 11. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Sóknarprestur.
HNÍFSDALSKAPELLA: Guðsþjónusta kl.
11. Fermingarbörn eru beðin um að mæta
til skráningar. Kirkjuskóli barnanna kl. 13.
Sóknarprestur.
MÖÐRUVALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta fyrir allt prestakallið sunnudag
kl. 11. Beðið fyrir fermingarbörnum vetr-
arins. Átak til hjálpar hungruðum og fá-
tækum kynnt. Léttir söngvar fyrir alla fjöl-
skylduna. Allir velkomnir. Sóknarprestur.
GLERÁRKIRKJA: Guðsþjónusta í kirkjunni
kl. 11.
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Félagar
úr Kór Akureyrarkirkju leiða almennan
söng. Organisti Björn Steinar Sólbergs-
son.
HVÍTASUNNUKIRKJAN á Akureyri: Í dag,
laugardag kl. 20, brauðsbrotning. Snorri
Óskarsson prédikar. Sunnudagur: Sunnu-
dagaskóli fjölskyldunnar kl. 11.30. Er
ástandið millli Bandaríkjamanna og Íraka
liður í endurkomu Jesú Krists? Snorri Ósk-
arsson kennir. Barnastarf vetrarins hefst
og verður skipt í hópa eftir aldri. Almenn
samkoma kl. 16.30, Rúnar Guðnason pré-
dikar. Fjölbreytt lofgjörð, fyrirbænaþjón-
usta og barnapössun fyrir 1-6 ára börn.
Allir hjartanlega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Sunnu-
dagur: Kl. 20 almenn samkoma. Erlingur
Níelsson talar. Mánudagur: Kl. 15 heim-
ilasamband, miðvikudagur kl. 20 hjálp-
arflokkur. Allar konur velkomnar.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Sköpunarmessa kl.
11. Allir aldurshópar sameinast við upp-
haf barnastarfsins. Barnakór kirkjunnar
leiðir sönginn. Mán. 16. september:
Kyrrðarstund kl. 18. Sóknarprestur.
ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Prestur sr. Ingólfur Guðmundsson. Org-
anisti Guðmundur Vilhjálmsson.
Guðspjall dagsins: Son-
ur ekkjunnar í Naim.
(Lúk. 7.)
Morgunblaðið/Einar Falur
Hlíðarendakirkja í Fljótshlíð.