Morgunblaðið - 14.09.2002, Side 52
52 LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Þjónanemar
Viltu læra til þjóns í einum bjartasta og glæsi-
legasta veitingasal landsins þar sem fag-
mennska er í fyrirrúmi? Hafðu þá samband við
okkur eftir kl. 13 í dag og næstu daga, á staðn-
um eða í síma 562 0200.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Landssamtök
hjartasjúklinga
halda 7. þing sitt dagana 20. og 21. september
nk. í Borgartúni 6, Reykjavík. Þingið hefst með
málþingi föstudaginn 20. september kl. 17:00.
Þingstörf samkvæmt 7. gr. laga LHS.
Lagabreytingar.
Stjórnin.
KENNSLA
Söngheimar söngskóli
Hægt er að bæta við nemendum í söngnám.
Um er að ræða námskeið í 2 eða 3½ mánuð
jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna.
Upplýsingar í símum 553 0926, 899 0946 og
fax 553 0926.
TIL SÖLU
Handavinna — lagersala
Hannyrðapakkningar (til að telja út), sauma-
kassar, árórugarn og margt fleira. Komið og
gerið góð kaup.
Opið hús í dag, laugardag frá kl. 11—17,
Mánagull, Efstasundi 10,
sími 553 9746.
Lagersala — silkivörur
í dag, laugardaginn 14. september,
frá kl. 11.00—15.00.
Silkivörur: Peysur, bolir, toppar, slæður,
náttföt, náttkjólar og náttsloppar.
Tilboð helgarinnar:
Silkináttföt kr. 4.000.
Staðgreiðslusala.
Toja,
Skógarhjalla 19, 200 Kópavogi,
sími 898 5111.
SMÁAUGLÝSINGAR
KENNSLA
Ungbarnanudd
stuðlar að værum svefni, öryggi
og ró. Upplýsingar í síma
552 7101 eða 823 4230.
FÉLAGSLÍF
15. sept. Reykjavegurinn (R-
7): Lambafell — Dyradalur.
Næst síðasti hluti Reykjavegar-
ins. U.þ.b. 4—5 tíma róleg
ganga. Brottför frá BSÍ kl.
10:30. Verð kr. 1.500/1.700. Far-
arstjóri er Steinar Frímannsson.
20.—22. sept. Jökulheimar —
Breiðbak — Sveinstindur —
Fjallabak (Jeppadeild)
Brottför frá skrifstofu Útivistar
kl. 19:00. Verð kr. 4.500/5.100 á
bíl + 2.000 kr. á mann í gistingu.
Fararstjórar eru Haukur Parelíus
og Skúli Haukur Skúlason.
15. sept., sunnud. Varðaða
leiðin á Hellisheiði. Heiðin
gengin austan frá eftir gömlu
vörðuðu leiðinni um Hellisskarð
og niður að Kolviðarhóli, um 3
klst. ganga. Kaffi og brauð í Litlu
kaffistofunni í göngulok, inni-
falið. Fararstjóri Þórunn Þórðar-
dóttir. Brottför frá BSÍ kl. 10:30
með viðkomu í Mörkinni 6. Verð
kr. 1.400/1.600.
20.—22. sept. Fræðslu- og
fjölskylduferð í Þórsmörk.
Dagskrá fyrir alla fjölskylduna,
stóra sem smáa, grillveisla,
kvöldvaka og sérfræðingar á
ýmsum sviðum á staðnum. Verð
8.500/9.600 með grillmáltíð.
27.—29. sept. NÝTT Óvissu-
og ævintýraferð með Ferða-
félagi Íslands. Spennandi við-
fangsefni, ferð einkum ætluð
fólki 18—40 ára. Nánari uppl. á
skrifstofu FÍ í síma 568 2533 og á
textavarpi RUV bls. 619.
www.fi.is .
upplýsingar er að finna á mbl.is/upplýsingar
ATVINNU- OG RAÐAUGLÝSINGAR
NÚ ER að ganga í garð sá tími
sem berjarunnar í görðum lands-
manna fara að skila uppskeru og
tími saft- og sultugerðar fer í hönd.
Ýmsar tegundir berjarunna er
hægt að rækta með góðum árangri
hér á landi og ber þar helst að nefna
rifs, sólber og stikilsber.
Best er að rækta berjarunna á
skjólgóðum og sólríkum stað. Það
stuðlar að meiri blómgun og síður
er hætta á því að blómin fjúki af ef
skjól er sæmilegt. Hins vegar geta
rifs- og sólber vaxið bæði í skugga
og á berangri með ágætum árangri
en þá er hætta á því að uppskeran
verði lakari. Hæfilegt millibil fyrir
þessar tegundir er einn til tveir
metrar, jafnvel minna ef ætlunin er
að fá þétt limgerði. Best er að jarð-
vegurinn sé frjór og með jöfnum
jarðraka en þó ekki of blautur. Ef
ræktað er í sendnum og þurrum
jarðvegi er nauðsynlegt að vökva
öðru hvoru yfir sumartímann og
líka þarf að huga að áburðargjöf.
Berjarunnar eru fremur viðkvæmir
fyrir kalíumskorti. Blandaður
áburður eins og Blákorn ætti samt
yfirleitt að duga en líka er gott að
dreifa lífrænum áburði í kringum
plönturnar á vorin. Stundum kemur
það fyrir að blóm eða berjavísar
falla af. Oftast eru skýringarnar lé-
leg frjóvgun, kuldi, þurrkur eða
röng áburðargjöf og þá of lítið kal-
íum eða of mikið nitur.
Klipping af og til er nauðsynleg
til þess að stjórna vaxtarlagi runn-
anna og grisja þá. Oftast er nóg að
gera það á nokkurra ára fresti. Þá
eru gamlar greinar fjarlægðar og
líka er gott að klippa í burtu greinar
sem vilja leggjast. Ef það er ekki
gert verða runnarnir alltof um-
fangsmiklir. Þegar gamlar greinar
eru fjarlægðar eru þær sagaðar al-
veg niðri við jörð. Klipping hefur
líka ýmsa aðra kosti svo sem að gefa
meiri birtu, minni líkur á sjúkdóm-
um og stærri ber.
Rifs (Ribes spicatum) er algeng-
asti berjarunninn hér á landi og er
tegundin með eindæmum harðgerð
og þolir t.d. sjávarseltu betur en
flestar aðrar runnategundir sem
ræktaðar eru hér á landi. Til eru
ýmis yrki af rifsi en
„Röd Hollandsk“ er
nánast allsráðandi hér
á markaðinum. Líka
eru til yrki með hvít-
um berjum og hafa
þau stundum verið fá-
anleg. Rifslús getur
verið til ama í rifsi og
veldur hún því að blöð
rúllast upp og verða
ljót en til eru varnar-
efni til þess að verjast
lúsinni.
Sólber (Ribes nigr-
um) eru líka algeng
gér á landi og auð-
ræktuð við erfið skil-
yrði eins og rifsið.
Berin eru svört og nokkru stærri en
á rifsi. Sum sólberjayrki vilja leggj-
ast og eru því hálfleiðinlegar garð-
plöntur. Getur því verið betra að
velja yrki með stífan og uppréttan
vöxt, t.d. „Jankisjarvi“ eða „Mala-
lathi“. Nokkur önnur yrki hafa
reynst mjög vel hér á landi svo sem
„Öjebyn“, „Sundebyn“ og „Nik-
kala“. Lirfa haustfeta getur stund-
um farið illa með sólber. Þá getur
þurft að úða runnana.
Stikilsber (Ribes
uva-crispa) eru ekki
eins mikið í ræktun og
fyrrnefndar tegundir
en eru vel harðgerð
og gefa að jafnaði
góða uppskeru. Berin
eru miklu stærri en á
rifsi eða sólberjum og
þau eru ýmist gul,
græn eða rauð á lit.
Stikilsber eru mjög
þyrnótt og geta því
nýst vel þar sem tak-
marka þarf umferð.
Runninn er ekki eins
vindþolinn og rifs og
hættir til að brotna í
roki nema hann sé í
sæmilegu skjóli. Ýmis yrki eru til
hér af stikilsberjum og eru t.d.
„Hinnomaki rauð“ og „Hinnomaki
gul“ til á markaðinum. Stikilsber
eru að mestu laus við óþrif.
Hindber (Rubus idaeus) eru enn
sem komið er sárasjaldgæf hér á
landi. Þó hefur runninn gefið af sér
ágætis uppskeru á nokkrum stöð-
um og greinilegt að hann getur þrif-
ist með ágætum í skjólsælum görð-
um. Hindberjarunninn er allólíkur
rifsi því hann myndar aldin á grein-
um frá fyrra ári og eru greinarnar
síðan klipptar niðri við jörð að upp-
skeru lokinni. Alltaf þarf að fjar-
lægja allar gamlar og dauðar grein-
ar. Gott getur verið að binda upp
plönturnar á víra sem strengdir eru
á milli staura sem ná upp í 130 cm á
hæð. Strengdir eru vírar í 75, 100 og
130 cm hæð. Síðan eru greinarnar
bundnar við vírana með garni þann-
ig að um 10–15 cm séu á milli
greina. Hæfilegt millibil á milli
plantna er 40–50 cm, þannig mynda
þær hálfgert limgerði. Líka má
rækta plönturnar án stuðnings.
Hindber senda út mikið af rótar-
skotum og þau þarf að uppræta
reglulega.
Ýmsar fleiri runnategundir bera
aldin sem hæf eru til manneldis, t.d.
úlfareynir, blárifs, hélurifs, hlíðara-
mall og ýmsar tegundir rósa.
Þegar velja skal berjarunna er
nauðsynlegt að velja yrki sem hafa
verið þróuð nægilega vel við ís-
lenskar aðstæður og varast ber því
innfluttar plöntur af lítt eða óreynd-
um yrkjum.
Jón Guðmundsson
garðyrkjufræðingur
BERJARUNNAR
VIKUNNAR
BLÓM
Um s j ó n S i g r í ð u r
H j a r t a r
nr. 481. þáttur
Mörkinni 3, sími 588 0460
Opið mán.-fös. kl. 11-18,
lau. kl. 11-15
Húsgögn
Sérpantanir
Glæsilegar danskar innréttingar
í öll herbergi heimilisins.
G
æ
ð
i
á
N
e
tt
o
ve
rð
i.
..
ASKALIND 3, KÓP., SÍMI: 562 1500
Fást aðeins hjá okkur
og kosta minna en
þig grunar!