Morgunblaðið - 14.09.2002, Síða 61
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 61
Hljómsveitin JAPONIJAZZ
mun halda jazz tónleika í
SALNUM, Kópavogi sunnudaginn
15. september kl. 21.00
í boði Sendiráðs Japans.
Allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
AÐGANGUR ÓKEYPIS.
Laugardaga ..................kl. 10:00 - 18:00
Sunnudaga....................kl. 12:00 - 18:00
Mánudaga - föstudaga...kl. 10:00 - 18:30
HULTET
bambusbakki
Nýr vörulisti - nýjar vörur - nýjar hugmyndir
990 kr.
MÁNUDAGINN 4. nóvember mun
Björk Guðmundsdóttir gefa út tvö
verk sem spanna feril hennar til
þessa.
Fyrra verkið er platan Greatest
Hits en um lagaval á hana sáu net-
tengdir aðdáendur Bjarkar, sem
voru beðnir um að velja þau lög
hennar sem þeim þættu best og/eða
endurspegluðu list hennar best.
Þetta var gert í gegnum opinberu
heimasíðuna www.bjork.com. Nið-
urstaða kosningunnar var athygl-
isverð, þar sem vinsælustu lögin
toppuðu ekkert endilega lista aðdá-
endanna. Á meðal laganna eru t.d.
„All Is Full of Love“, „Play Dead“,
„Human Behaviour“ og „Venus As
a Boy“.
Síðara verkið ber titillinn Family
Tree og er öllu veigameira að allri
gerð og innihaldi. Um er að ræða
kassa, sem inniheldur sex geisla-
diska; einn venjulegan fimm tomma
disk og svo fimm smádiska sem eru
þrjár tommur að breidd. Venjulegi
diskurinn mun innihalda tólf lög
sem eru bestu lög Bjarkar að henn-
ar mati en hinum diskunum er skipt
upp í eftirfarandi söfn: Roots, Beats
og Strings.
Roots er dreift á tvo diska og
inniheldur tíu lög, meðal annars
nokkur Sykurmolalög en einnig
lagið „Síðasta ég“ sem hún samdi á
flautu er hún var fimmtán ára.
Beats er á einum diski og inniheld-
ur fjögur lög. Þar eru á ferðinni
fyrstu tæknópælingar Bjarkar sem
hún vann með 808 State-liðanum
Graham Massey og LFO-liðanum
Mark Bell. Að síðustu prýðir
Strings tvo diska en þar eru á ferð-
inni nokkur af lögum Bjarkar í „sí-
gildum“ búningi. Kassinn verður úr
gegnsæju plasti, skreyttur rósrauð-
um lit. Meðfylgjandi verður m.a.
sextán síðna textabók. Hönnun
verður í höndum ’M/M’ frá París og
teikningar og ljósmyndir eru eftir
Gabríellu Friðriksdóttur.
Tvær
safnplötur
frá Björk
Björk Guðmundsdóttir verður
með tvær safnplötur í haust.
TÓMAS Ingi Olrich, menntamálaráðherra,
opnaði á fimmtudag spænska kvikmyndahá-
tíð í Regnboganum sem standa mun til 22.
september. Opnunarmyndin var nýjasta
mynd Pedros Almódovars, Hable con ella
(Ræddu málin), en Almódovar er talinn með
fremstu leikstjórum Spánar fyrr og síðar. Á
hátíðinni verða sýndar um fimmtán nýlegar
spænskar kvikmyndir, sem ekki hafa verið
sýndar hér áður, auk nokkurra heimilda-
mynda og stuttmynda. Fjölmenni sótti
þessa frumsýningu og var hátíðarbragur yf-
ir Regnboganum; boðið var upp á spænskar
veitingar auk þess sem nemendur í spænsku
við Menntaskólann í Hamrahlíð sáu um að
skreyta kvikmyndahúsið.
Spænsk kvikmyndahátíð settOpnað með
Almodóvar
Morgunblaðið/Golli
Hér má sjá Þórhall Sigurðsson leikstjóra, lista-
mennina Baltasar og Kristjönu Samper og Sjöfn
Pálsdóttur, konu Þórhalls.
Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra, Eduardo
Garrigues López-Chicheri, sendiherra Spánar, og
Javier Cámara, heiðursgestur og aðalleikari í
Ræddu málin. Með þeim eru Gréta Hlöðversdóttir
og Hrönn Marinósdóttir hátíðarstýrur.