Morgunblaðið - 19.09.2002, Blaðsíða 15
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2002 15
kynning
Sérfræðingur frá Kanebo kynnir
það nýjasta í förðun frá Kanebo
fimmtudag og föstudag kl. 13-17 Austurstræti
SOROPTIMISTAKLÚBBUR Ak-
ureyrar afhenti á dögunum heilsu-
gæslustöðvunum á Akureyri, Greni-
vík, Dalvík og Ólafsfirði
fræðslumöppur um getnaðarvarnir.
Möppurnar eru aðgengilegar fyrir
skólahjúkrunarfræðinga, lækna og
aðra heilbrigðisstarfsmenn sem
sinna fræðslu um getnaðarvarnir.
Soroptimistasamtökin á Íslandi
eru starfsgreinasamtök og eru þau
hluti af alþjóðasamtökum kvenna.
Þau láta sig varða mannréttindi og
sérstaklega bætta stöðu kvenna.
Verkefni Evrópusambands
Soroptimista 1999-2001 var ákveð-
ið; „Inn í 21. öldina með æskunni.“
Því þótti vel við hæfi að sameig-
inlegt verkefni samtakanna á Ís-
landi yrði að styrkja gerð fræðslu-
möppu um getnaðarvarnir í samráði
við starfsfólk getnaðarvarn-
aráðgjafar við Kvennadeild Lands-
spítala háskólasjúkrahúss.
Veg og vanda af gerð möppunnar
höfðu Anna Guðný Björnsdóttir
hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir
og Sóley S. Bender hjúkrunarfræð-
ingur, dósent við Háskóla Íslands.
Ákveðið var að afhenda möppurnar
heilsugæslustöðvum um allt land.
Soroptimistaklúbbur Akureyrar
Margrét Guðjónsdóttir hjúkrunarforstjóri, Júlía Björnsdóttir, verkefn-
isstjóri heilbrigðismála hjá Soroptimistaklúbbi Akureyrar, og Ragn-
heiður Stefánsdóttir formaður við afhendinguna.
Afhenti fræðslumöppur
um getnaðarvarnir
Bæjarstjórn Ólafsfjarðar
um jarðgangagerð
Framkvæmdir
verði boðnar út
Ólafsfjörður
BÆJARSTJÓRN Ólafsfjarðar hef-
ur sent frá sér ályktun þar sem skor-
að er á stjórnvöld að hvika hvergi frá
fyrri ákvörðun varðandi jarðganga-
gerð milli Ólafsfjarðar og Siglufjarð-
ar. Þótti nauðsynlegt að eyða vafa
sem sáð hefði verið vegna umfjöll-
unar í fjölmiðlum sl. daga.
„Til að svo megi verða teljum við
rétt að hnykkja á fyrri samþykktum
um að fyrirhugaðar jarðgangafram-
kvæmdir verði boðnar út sem fyrst,“
segir í ályktun bæjarstjórnar Ólafs-
fjarðar.
♦ ♦ ♦