Morgunblaðið - 19.09.2002, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 19.09.2002, Blaðsíða 42
MINNINGAR 42 FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Hjálmtýr Ed-ward Hjálmtýs- son fæddist á Sól- vallagötu 33 í Reykjavík 5. júlí 1933. Hann lést á líknardeild Landa- kotsspítala 12. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Lucinde Sigurðsson, f. 13. mars 1890, d. 17. júní 1966, og Hjálmtýr Sigurðsson kaupmaður, f. 14. júlí 1878, d. 5. júlí 1956. Systkini hans eru: María, f. 29.9. 1913, d. 1.12. 1991, Ludvig, f. 17.10. 1914, d. 24.6. 1990, Ásta, f. 26.3. 1917, d. 25.11. 1999, Sigurður Örn, f. 28.5. 1918, d. 20.8. 1994, Gunnar, f. 16.2. 1920, Ásdís (Íja), f. 23.7. 1921, og Jóhanna (Blía), f. 30.9. 1924. Hjálmtýr kvæntist 11. desember 1954 Margréti Matthíasdóttur, f. 10.1. 1936, d. 1.11. 1995. Foreldrar 23.12. 1980, sambýliskona hans er Guðrún Þorgerður Ágústsdóttir, f. 11.10. 1977, Margrét, f. 7.7. 1984, og Rannveig Sól, f. 14.5. 1997. 5) Jóhanna Steinunn, f. 19.2. 1962, synir hennar eru Marlon Lee Úlfur Pollock, f. 18.1. 1982, og Arthur Óðinn Pollock, f. 31.10. 2000. 6) Arnar Gunnar, f. 11.2. 1964, sam- býliskona hans er Kristín R. Sig- urðardóttir, f. 3.2. 1968, synir hans eru Natan, f. 10.12. 1991, og Krist- ján Orri, f. 27.9. 1993, og stjúpsyn- ir hans eru Sigurður Rúnar, f. 25.2. 1990, og Ísleifur Unnar, f. 24.9. 1991. 7) Páll Óskar, f. 16.3. 1970. Hjálmtýr lauk gagnfræðaprófi. Hann hóf störf hjá Útvegsbanka Íslands 1947 og starfaði þar alla sína starfsævi eða þar til Útvegs- bankinn var lagður niður og sam- einaður Íslandsbanka. Hann stundaði söngnám hjá Sigurði Demetz og Sigurði Birkis. Hann söng í ýmsum kórum, bæði sem kórfélagi og einsöngvari. Einnig tók hann þátt í revíum og mörgum uppfærslum Þjóðleikhússins. Hann lék og söng í ýmsum íslensk- um kvikmyndum. Útför Hjálmtýs verður gerð frá Háteigskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. hennar voru Matthías Sveinbjörnsson lög- regluvarðstjóri, f. 16.10. 1904, d. 13.10. 1975, og Sigrún B. Melsteð, f. 11.5. 1902, d. 16.8. 1965. Börn Hjálmtýs og Mar- grétar eru: 1) Ásdís, f. 21.8. 1954, sonur hennar er Ingi Þór Steinþórsson, f. 9.5. 1972, í sambúð með Sigrúnu Önnu Jóns- dóttur, sonur þeirra er Jakob Breki. 2) Sig- rún, f. 8.8. 1955, maki Þorkell Jóelsson, f. 28.5. 1952, dæt- ur þeirra eru Salome og Valdís, f. 30.12. 1985, og Melkorka, f. 26.6. 1997. 3) Lucinda Margrét, f. 7.6. 1957, börn hennar eru Egill Bjarkason, f. 3.8. 1976, og Theo- dóra Bjarkadóttir, f. 5.9. 1984. 4) Matthías Bogi, f. 25.5. 1959, maki Guðríður Loftsdóttir, f. 16.8. 1959, börn þeirra eru Loftur Guðni, f. Látinn er í Reykjavík Hjálmtýr Edward Hjálmtýsson. Alltaf kallaður Ebbi af öllum í fjölskyldu Lucinde og Hjálmtýs Sigurðssonar á Sólvalla- götu 33 í Reykjavík. Hann var yngst- ur systkina Ásdísar, konunnar minn- ar, og einn af sjö mágum og svilum þessarar samheldnu fjölskyldu, sem ég kynntist þegar við vorum gefin saman í Landakotskirkju 1946, og við Ebbi höfum átt ánægjulega samveru í hvert skipti sem við höfum komið til Íslands, í öll þessi 56 ár. Glaðværð var hans aðalsmerki og hann ýmist söng einsöng með sinni fallegu tenórrödd eða stjórnaði fjöldasöng þegar þessi léttlynda fjöl- skylda kom saman. Mikil sönggleði og lífsgleði einkennir allt þeirra líf. Öll börnin mín kynntust Ebba í heimsóknum til Íslands og við höfum bundist okkar stóru og hjartfólgnu íslensku fjölskyldu órjúfanlegum böndum, sem við metum mikils. Bænir okkar Ásdísar og dýpsta samúð eru með fjölskyldu hans á sorgar- og saknaðarstundu. Kveðjur, John H. Callaghan, Wetherfield, Connecticut, Bandaríkjunum. Mig langar að skrifa nokkur orð um Hjálmtý tengdaföður minn. Fyrst og fremst til að koma til skila orðum sem hann lét sér um munn fara þegar ljóst var hvert stefndi. En hann sagði: „Ég bið að heilsa öllum.“ Við kveðjum hann Ebba okkar með djúpum trega og söknuði. Orð Guðs veitir mikla huggun með upp- risuvoninni. Ég leyfi mér að taka undir orð Mörtu. En hún sagði: „Ég veit að hann rís upp í upprisunni á efsta degi.“ Hún var að vísu að tala um bróður sinn Lazarus, sem Jesús reisti síðan upp við þetta tækifæri, en upprisan á efsta degi er ennþá til- hlökkunarefni. Þvílík gleðistund það verður að heyra sönginn hans Ebba óma að nýju í paradís. Guðríður Loftsdóttir. Það var árið 1953 að elsta systir mín kynnti fyrir fjölskyldu minni pilt sem hafði orðið á vegi hennar og sungið með henni í kór. Foreldrar mínir fögnuðu þessum ráðahag, faðir minn sérstaklega þeg- ar það kom í ljós að hann hafði sér- staka og fagra tenórrödd. Ekki spillti fyrir að pilturinn var af dönskum ættum, móðir mín var vel kunnug danskri menningu, hafði dvalist í Danmörku í nokkur ár og bar mikla virðingu fyrir þeirri þjóð. Pilturinn, sem var ætíð nefndur Ebbi, gerðist frá þessum degi bróðir númer tvö og síðar meir, þegar öllum formsatriðum var lokið, minn fyrsti mágur. Ebbi bar með sér nýja strauma inn á æskuheimili mitt, þar sem tónlist var aðaláhugamálið, ítalskir söngvar voru fluttir beint úr barka á stofu- gólfinu, tónlist sem aðeins hafði heyrst um útvarp eða flutt úr grammófóni. Einnig tók hann undir þegar faðir minn spilaði Kaldalóns og önnur tónskáld sem tilheyrðu vor- mönnum íslenskrar tónlistarsögu. Ebbi bar með sér að hann var mik- ill tilfinningamaður og viðbrögð hans voru okkur oft framandi. En húmor- inn varð þess valdandi að mikið var hlegið, skoðanir á fólki skýrar, ann- aðhvort gott eða vont, þeir sem voru settir á stall voru settir á háan stall, aðdáun á einstökum mönnum gat verið mikil. Fjölskyldan söng saman á stórhá- tíðum og heimilisfaðirinn lék undir. Þetta var vísir að kór sem í dag syngur við sérstök tækifæri og kall- ast „tertukórinn“. Nafnið er til komið vegna þess að kvenfólkið gætir þess að nóg sé til með kaffinu á æfingum. Það var mikið stúderað hver væri bestur af heimssöngvurunum og var aðdáun hans á Benjamín Gigli hvað mest. Meðferð hans á ítölsku söngvunum gerði það að verkum að maður fékk nýja reynslu í hlustun á söng og þegar hann söng aríuna „una furtiva lagrima“ úr Ástardrykknum eftir Donizetti komst ég að þeirri niður- stöðu að þessari aríu væri ekki mögu- legt að gera betri skil. Ebbi hafði mikil áhrif á minn smekk og það var ekki tilviljun að þegar ég fór að safna plötum var fyrsta settið sem ég keypti óperan Aida eftir Verdi. „Long play“-tæknin ruddi sér til rúms og var mikil bylting þar sem mögulegt var að koma heilli óperu á aðeins þrjár plötur. Ebbi og Magga stofnuðu sitt fyrsta heimili í húsinu hjá foreldrum mínum á Bergþórugötu 31, var íbúð í risi standsett, samgangur var mikill milli hæða og börnin fóru að koma í heiminn, þeim fjölgaði ört. Þegar þrengslin voru farin að verða verulega íþyngjandi fluttist fjölskyldan í Miðtún 90, eftir það var millilent á Tómasarhaga áður en fjöl- skyldan settist að á varanlegum stað á Sólvallagötu 33. Ebbi var mikið snyrtimenni og klæddist vönduðum fötum. Ebbi hafði gott auga fyrir myndlist en tónlistin var hans ær og kýr og átti hann orðið gott plötusafn sem hann flutti með fullu afli af BO-græjunum svo glumdi í. Ég var ósammála honum þegar ákveðið var að kaupa borðstofusett sem átti að koma fyrir í risinu á Berg- þórugötu, bæði fannst mér borðið vera stórt og þungt. Sá ég fyrir mér að erfitt yrða að bera það upp, settið var úr gegnheilli eik og til að kóróna allt var heljarstór skenkur með. Borðið var keypt og því komið fyr- ir eftir mikla fyrirhöfn. Borð þetta átti eftir að skila stóru hlutverki, börnin lærðu við það og systir mín bar í gegnum tíðina nokk- ur tonn af kræsingum á það, þegar flest var hjá henni dugði ekki minna en tvö læri í sunnudagssteikina. Ebba varð það mikið áfall þegar systir mín féll frá langt um aldur fram eða 59 ára gömul og hann var orðinn einn. Ekkert gat komið í stað Möggu, hjónaband þeirra hafði verið farsælt, upp voru komin sjö börn og afkomendur orðnir 22. Ebbi naut góðs af hjálpsemi og fórnfýsi barna sinna, sem sinntu hon- um vel, yngsti sonurinn fluttist heim. Ebbi var ekki alveg einn. Genginn er maður sem breytti miklu í fjölskyldu minni, afkomend- urnir framúrskarandi fólk sem hafa orðið gleðigjafar og öllum til heilla. Ebba verður oft minnst og gleði- stundirnar rifjaðar upp. Þannig vill hann örugglega hafa það. Hann hafði yndi af því að vekja hlátur. Ég sé hann fyrir mér heils- andi í allar áttir með bros á vör, þann- ig verður hann í minningunni. Blessuð sé minning Ebba, hann hvíli í friði. Sveinbjörn Matthíasson. „Takið eitt lag enn,“ gall í hópnum á þorrablóti frænkufélags Túllu Han- sen í janúar sl. þegar Ebbi og Diddú tóku saman lagið á sinn einstaka hátt, og tár sáust renna niður kinnar af hrifningu. Fjölskyldan hefur notið í ríkum mæli söngs, skemmtunar og góðrar nærveru allrar við Ebba frænda í gegnum tíðina, en á árvissum þorra- blótum hafa hann og hans fjölskylda stýrt söngnum. Áður sungu þau og spiluðu, hann og Magga, frábær sam- an, en svo missti hann Möggu 1995 eftir áralanga og farsæla sambúð við uppeldi sjö barna sem fengu tónlist- ar- og leikhæfileika foreldra sinna í arf. Sorg og söknuður ríkir þegar kvaddur er í dag hinstu kveðju föð- urbróðir okkar Hjálmtýr E. Hjálm- týsson. Á kveðjustund viljum við systkinin þakka honum góða og gjöfula nær- veru og samfylgd alla. Við andlát Ebba er horfinn sjónum drengur góður og hvers manns hug- ljúfi. Ebbi var yngstur föðursystkina okkar, hann fæddist inn í stóra og glaðlynda fjölskyldu á Sólvallagötu 33, þar sem hann bjó stærstan hluta ævi sinnar, fyrst með foreldrum og systkinum, en seinna kvæntur maður með fjölskyldu. Ebbi frændi var Vesturbæingur í húð og hár, vann í miðbænum, sann- ur Reykvíkingur. Vegna ljúfrar og skemmtilegrar framkomu og frá- sagnarhæfileika var hann vinsæll og eftirsóttur, þá kom hann m.a. fram við hinar ýmsu uppfærslur og kvik- myndatökur. Ebbi var lánsamur í lífinu, hann kvæntist ungur Margréti Matthías- dóttur, tónlistin var þeim sameigin- legt áhugamál sem fórst þeim sér- staklega vel úr hendi. Þau voru bæði glaðlynd og hress og var það börnum þeirra gott veganesti út í lífið, en far- sæld og hamingja barna þeirra var þeim mikils virði. Ebbi var systkinum sínum um- hyggjusamur og góður bróðir, sem HJÁLMTÝR E. HJÁLMTÝSSON      #     #   #    #  ()**+)* , "-%. / 00 % 1##0'!% # %0 2!0 3 & #  405#  "#6-% / %5    *     +   ,  !        #  *        '  ! ,(( !% %  # 0!# 7!#  8290!# :#%;2#%3% &0%# &# 82903%  "/1 % # "%% 82903% (  / (#% !# #  43' %  8290!# #&#%! 3% ' #% '#%3' #% ' #% '#%     #      #    #   $,: $* , <#! "3# $!#0= $!< /3      -  !       #  *        ')  !  ))( .      #/$   73#0!&!# 73#0!&# /"%3% # &#2#" !# 4# /"%3% ""% 7!#& #!# ("#&# /"%!#  # 0#!0"%3% %%8# /"%!# / %'2#%83#3"% 3' #% '#% 01     #      + #    #   ;, , >4%#  & #'1&?  #& '> 2    *  !      3  !  "#$     4  " #! 9#!# %%'3 %%"3% "%%%) # !# ;#%  %%"!# 3' #% '#%      #       #   #   # *  , #9 4"&8983 /    -  !  !8 %%  !%!# !8 %%  # &# !# ) ##@ !%  !# "#7!#& #3% ( ;#%  !# #&'"# " 9%3% &# #<  !# %"&0 # !%3% !%;#  3% $# %%% #!# %% #7!# 3% ( 8"&#%0 #!# ' #% '#%3' #% ' #% ' #%             +     # 1    ;A       !!   2     /    -  !  "#$  # # # *    #$  '-  ! ))(  -("#3% $ # #  -!# (- 7# &#  -!# !8 %%"73#"%3% 43# "%  -3% #%  /"##!#  %8"&#;#1%2! !# # &#;#1%2! !# # % 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.