Morgunblaðið - 04.10.2002, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.10.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÁKVEÐIÐ hefur verið að tak- marka lengd aðsendra greina vegna mikilla þrengsla í blaðinu og sívaxandi fjölda þeirra. Mun fleiri greinar berast daglega en unnt er að birta og því óhjá- kvæmilegt að bregðast við því. Framvegis verður hámarks- lengd aðsendra greina 5.000 tölvu- slög með orðabilum. Lengd svo- nefndra raðgreina, þar sem félagasamtök og stofnanir kynna ákveðin málefni og starfsemi, verður framvegis 2.500 tölvuslög með orðabilum og greinafjöldinn takmarkaður við 2–3. Prófkjör Framundan eru prófkjör stjórnmálaflokka og í því sam- bandi er rétt að benda á að há- markslengd greina frambjóðenda verður 2.500 tölvuslög með orða- bilum og greinar stuðningsmanna 1.000 tölvuslög með orðabilum eins og áður. Morgunblaðið býður þeim höf- undum, sem dugar ekki fyrr- greind lengd greina og takmörk- un á fjölda, að birta lengri greinar á mbl.is og á þetta jafnt við um venjulegar aðsendar greinar sem prófkjörsgreinar. Greinar á mbl.is Þá vill blaðið vekja athygli á þeim kosti, sem höfundum býðst, að birta greinar eingöngu á mbl.is án lengdartakmörkunar. Hér er um góðan valkost fyrir höfunda að ræða því aðsókn les- enda að mbl.is er mjög mikil. Nú bíða um 90 frágengnar greinar birtingar í blaðinu og næstu daga munu lesendur því sjá lengri greinar í blaðinu en nýjar reglur segja til um. Tölvupóstur Greinar er unnt að senda með tölvupósti, svo og myndir af greinarhöfundum, á netfangið rit- stj@mbl.is, einnig að koma grein- um til ritstjórnar á tölvudiskum ásamt útskrift. Starfsheiti, kenni- tala og heimilisfang höfunda þarf að fylgja með. Breytt fyrirkomulag aðsendra greina UMRÆÐAN æði náðist í Herjólfs- nýtt var til hagsbóta, nn, með fjölgun ferða urnar gegna lykilhlut- komandi byggðir auk mikilvægur þáttur í erlenda og innlenda m nýta sér þær. Í kjöl- fjölgaði ferðum Herj- l og með 2002 um 24% fyrir 12% aukningu á rþegum, sem ferðast hefur einnig fjölgað Mikilvægt er að huga þeirri þjónustu sem ætlað að sinna. Í ljósi ég, fyrr á þessu ári, em vinna nú að því að ðarhlutverk ferjanna Baldurs. Er þess að gur liggi fyrir innan gja megi á ráðin um um á landi. Meginbreyting laganna snýr að fólksflutningunum og er nú skýlaus heimild veitt fyrir því að gera svokallaða þjónustusamninga við sérleyfishafa. Gert er ráð fyrir að endurbætt sérleyfisfyrirkomulag hertar þannig að þessi þjónu farið að bera sig saman við þ gerist annars staðar. 4. Gert er ráð fyrir því að fram til 2005 muni sérleyfish nota til þess að endurskip starfsemina enn frekar þan þegar að útboðum kemur, þ það kraftmikil grein sem taki nýja tíma, en ekki atvinnug undanhaldi eins og þróunin vel verður á haldið af sérleyfi ættu þeir að geta bætt þjónu góðum bílum og lækkað ver ungis við þær aðstæður mun um fjölga. Flug til jaðarbyggða Miklar breytingar hafa o flugsamgöngum síðasta áratu þegum í flugi hefur fækkað áfangastöðum í áætlunarflug ber að bættum ingssamgöngum „Nú er búið að tryggja til langframa samfellt grunnkerfi almenningssamgangna á Íslandi, hvort sem er með ferjum, flugi eða sérleyfisbifreiðum.“ Chelsea féll úr leik í UEFA-keppninni / C2 Kjartan genginn til liðs við Fylkismenn / C1 8 SÍÐUR Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is 4 SÍÐUR  Ponsjó upp á pallborðið/B1  List er okkar ástríða/B2  Burt með mistökin/B2  Herdís og Tinnurnar tvær/B4  Sigríður og dæturnar þrjár/B5  Fósturbörn/B6 Sérblöð í dag UNNIÐ er að uppsetningu á sérstök- um sprengjuleitarbúnaði á Keflavík- urflugvelli sem taka á í notkun um áramót. Búnaðurinn, sem kostar um 300 milljónir króna, er settur upp að kröfu Evrópustofnunar flugmála- stjóra, en innan stofnunarinnar eru 38 ríki sem öll vinna nú að uppsetn- ingu slíks búnaðar á flugvöllum. Stefán Thordersen, forstöðumaður öryggissviðs Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli, segir að farþegar verði ekki varir við neina breytingu þegar þeir fara í gegnum flugstöðina og engar tafir verði á afgreiðslu. Stefán segir að rekja megi ákvörð- un um að setja upp sprengjuleitar- búnað til Lockerbie-slyssins, en þá grandaði sprengja í farþegarými þotu yfir skoska bænum Lockerbie. Hann segir að undirbúningur að þessu máli hafi staðið í nokkur ár. Miðað sé við að farangur þeirra sem millilenda þurfi aðeins einu sinni að fara í gegnum búnaðinn. Ef Ísland verði hins vegar ekki búið að setja hann upp í tæka tíð gæti svo farið að leita þyrfti í farangri farþega frá Ís- landi, sem hefði í för með sér óþæg- indi fyrir farþega. Stefán segir reiknað með að 12–15 einstaklingar muni starfa við búnað- inn. Þjálfun starfsmanna er hafin en búnaðurinn er sjálfvirkur að hluta. Sprengjuleitarbún- aður í Keflavík HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær karlmann í þriggja og hálfs árs fang- elsi fyrir kynferðisbrot gegn stjúp- dóttur sinni. Dómurinn er með þyngstu kynferðisbrotadómum sem fallið hafa hérlendis. Héraðsdómur Austurlands dæmdi ákærða í eins og hálfs árs fangelsi hinn 3. apríl og var því um mjög verulega refsiþyngingu að ræða í Hæstarétti. Hafði smitast af tveimur kynsjúkdómum Stúlkan var 6–7 ára að aldri þegar brotin voru framin og var framburð- ur hennar talinn trúverðugur. Hún reyndist smituð af tveimur kynsjúk- dómum og var það talið styðja að um kynferðismök hefði verið að ræða. Hæstiréttur taldi ákærða ekki eiga sér neinar málsbætur og við ákvörð- un refsingar var litið til þess að hann hefði brotið gegn mjög ungri telpu undir umsjá hans á heimili hans. Brást hann þannig með öllu trúnað- arskyldum sínum gagnvart henni. Hæstiréttur taldi atferli ákærða gróft og var talið ljóst að það hefði valdið stúlkunni tjóni sem hún kynni að búa lengi að, og mátti ákærða vera það ljóst. Hæstiréttur taldi einnig óhjákvæmilegt að líta til framferðis ákærða eftir að upp komst um brotin. Hefði hann ekki sýnt eftirsjá og sá framburður hans í héraðsdómi að stúlkan hefði átt frumkvæði að kynferðismökum að honum sofandi hefði verið mjög ótrú- verðugur að mati dómsins. Taldi Hæstiréttur ekkert benda til að það mat væri rangt. Á hinn bóginn bæri að líta til þess að hann hefði ekki ver- ið dæmdur fyrir lagabrot áður. Með þetta í huga taldi Hæstiréttur refs- ing ákærða hæfilega ákveðin með fangelsi í þrjú ár og sex mánuði. Dæmdur til að greiða 1,2 milljónir í skaðabætur Ákærði var ennfremur gerður bótaábyrgur á grundvelli skaðabóta- laga vegna stórfellds gáleysis þar sem hann lét sig engu skipta að hann var með kynsjúkdóm sem hætt væri við að smitaðist við athæfi hans. Var hann dæmdur til að greiða stúlkunni 1,2 milljónir króna í skaðabætur. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Haraldur Henrysson, Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Pétur Kr. Hafstein. Verjandi ákærða var Brynjar Níelsson hrl. og sækjandi Ragnheið- ur Harðardóttir, saksóknari hjá rík- issaksóknara. Karlmaður dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot Refsingin þyngd um tvö ár í Hæstarétti ÞEIR VORU greinilega ákaflega samstilltir í salíbununni þessir strákar sem steyptust í einni bendu úr rennibrautinni í Kópavogslaug- ina í gær. Sólin yljaði bæði kropp- um og geði í laugunum í gær. En það er veröld sem var: veðurstofan spáir nú stífum suðlægum áttum næstu daga og votviðri um mestallt landið. Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson Í salíbunu TVÖ tilboð hafa borist í Perluna. Innlendur aðili bauð 600 milljónir króna í sumar en stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hafnaði því. Þá barst, að sögn Guðmundar Þóroddssonar, forstjóra Orkuveitunnar, fyrir nokkrum dögum annað formlegt til- boð frá umboðsmanni erlends aðila upp á um 300 milljónir. Hefur ekki enn verið fjallað um það í stjórninni. Aðspurður hvort fyrra tilboðið hafi verið langt frá því verði sem Orkuveitan gerir sér vonir um að fá segir Guðmundur það kannski ekki hafa verið svo langt frá því sem menn hefðu séð ástæðu til þess að skoða frekar. Menn hafi gert því skóna að fengist gæti í kringum milljarður fyrir Perluna. Tvö form- leg tilboð í Perluna FYRRVERANDI fjármálastjóri Ol- íuverzlunar Íslands vann skýrslu fyrir Baug um olíuverslun á Íslandi meðan hann var enn á starfsloka- samningi. Þessu er haldið fram í nýrri bók Halls Hallssonar um Olís, „Þeir létu dæluna ganga“. Í bókinni segir Hallur að ljóst sé að skýrslugerðin sé „skýlaust brot á trúnaði gagnvart fyrirtækinu“. Þar kemur og fram að „Bónus-feðgar höfðu lengi sýnt áhuga á innkomu í verslun með olíu og meðal annars stofnað Orkuna. Áhugi þeirra krist- allaðist í yfirtökutilraunum Straums í Esso og Olís“. Samkvæmt heimild- um Halls vann fyrrverandi fjármála- stjóri Olís skýrsluna fyrir Baug á fyrrihluta árs 2001, meðan hann var enn á starfslokasamningi. Fjallað er um átök í viðskiptalífinu og segir að í ljósi þeirra „og skýrslunnar sem fyrrverandi fjármálastjóri Olís gerði fyrir Baug vekur atlaga Samkeppn- isstofnunar að olíufélögunum sér- staka athygli“, og er þar vísað til meints verðsamráðs félaganna. Vann skýrslu um olíuversl- un fyrir Baug ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.