Morgunblaðið - 04.10.2002, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 04.10.2002, Blaðsíða 22
ERLENT 22 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ 20% afsláttur á löngum laugardegi DISNEY BANGSAR Góð, falleg og skemmtileg leikföng Skólavörðustíg 16 Úrvals myndlistarvörur og innrömmun. Skólavörðustíg 12 Mikið úrval af föndurvörum. Með kaupum á föndurvöruversluninni Tiffanys hefur fjölbreytnin aukist mjög. Sími 552 1412 og 551 2242 Verið velkomin Áhersla lögð á góða þjónustu Opið kl. 10-18 mán. til fös. og kl. 11-16 alla laugardaga til jóla. Njálsgötu 86 - sími 552 0978 10% afsláttur í dag og á morgun Glaðningur fylgir hverju setti NÝJAR VÖRUR Opið laugardag frá kl. 11-16 Laugavegi 29, s. 552 4320 Hverfissteinar 2 stærðir Mikið úrval af handverksbókum Skólavörðustíg 7, s. 551 5814 Stærsta töskuverslun landsins Ný töskusending 15% afsláttur af útsöluvörum á löngum laugardegi Snorrabraut 38, sími 562 4362 STÓRRÝMINGARSALAN Heldur áfram Enn meiri lækkun Nýjar vörur komnar EKKI líða nema fjörutíu sekúndur að meðaltali á milli þess að mann- eskja fellur fyrir eigin hendi ein- hvers staðar í heiminum. Morð á sér stað á sextíu sekúndna fresti og þá deyr einhver í styrjöld einhvers stað- ar á eitt hundrað sekúndna fresti að meðaltali. Árið 2000 dó samanlagt um 1,6 milljónir manna af völdum of- beldisverka, þar af frömdu um 815 þúsund manns sjálfsmorð. Þessar upplýsingar er að finna í nýrri skýrslu Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar (WHO) sem kynnt var í gær. Um er að ræða um- fangsmestu rannsókn á ofbeldis- glæpum og sjálfsvígum sem um get- ur, að sögn talsmanna WHO. Þykja niðurstöðurnar beina sjónum manna svo um munar að umfangi ofbeldis á heimilum og á götum úti, ofbeldi gegn bæði börnum og öldruðum, sem og tíðni sjálfsvíga og dauðsfalla sem eiga sér stað í stríði. „Tölur um fjölda dauðsfalla sem ofbeldi orsakaði segja alls ekki alla söguna,“ sagði Etienne Krug, sem ritaði skýrsluna fyrir hönd WHO. „Líkamlegt, kynferðislegt og sál- rænt ofbeldi á sér stað í öllum lönd- um heimsins á hverjum degi og gref- ur undan heilsu og hreysti margra milljóna manna.“ Í Kína fremja fleiri konur sjálfsmorð en karlar Það tók Krug og félaga hennar þrjú ár að safna saman upplýsingum í skýrsluna en hún er byggð á gögn- um frá 160 sérfræðingum um alls 170 lönd. Eru niðurstöðurnar sláandi og sýna m.a. að voveifleg dauðsföll eiga sér ólíkar skýringar eftir því hvar menn búa. Má nefna sem dæmi að hlutfallslega eru níu sinnum fleiri myrtir í Kólumbíu heldur en í Bandaríkjunum og 88 sinnum fleiri en í Frakklandi. Þá er Kína líklega eini staðurinn á jarðríki þar sem fleiri konur fremja sjálfsmorð heldur en karlar. Sé miðað við meðaltal í heiminum fremja að meðaltali þrisvar sinnum fleiri karlar sjálfsmorð en konur. Nefna má einnig að einn af hverj- um 236 íbúum í Kambódíu hefur misst útlim af völdum jarðsprengna. Þá má nefna að helmingur þeirra kvenna sem eru myrtar í borginni Alexandríu í Egyptalandi fellur fyrir hendi náins ættingja vegna þess að fjölskyldur kvennana þoldu ekki þá skömm sem fólst í því að konunni hafði verið nauðgað. Þá eru um 500 aldraðar konur myrtar í Tanzaníu á ári hverju vegna þess að þær eru taldar göldróttar. Vilja forvarnaraðgerðir sem einkum beinist að ungu fólki Með því að safna þessum upplýs- ingum á einn stað vonast forráða- menn WHO til að geta stuðlað að for- varnaraðgerðum í löndum heimsins. Vill WHO einkum að sjónum verði beint að ungu fólki en tæplega 200 þúsund af þeim u.þ.b. 520 þúsund sem voru myrt árið 2000 voru á aldr- inum 10–29 ára. Voru morðingjarnir oftast einnig ungir að árum og gjarnan mátti skýra ofbeldisverkið með misnotkun áfengis eða eiturlyfja, eða þá að að- gangur að skotvopni reyndist ung- mennunum of auðveldur. Tölur sem þessar eru þó afar sveiflukenndar eftir því um hvaða þjóðfélagshóp er að ræða. Í Banda- ríkjunum voru svört ungmenni á árinu 2000 t.a.m. tólf sinnum líklegri en hvít til að verða myrt. Um 57 þúsund börn dóu af völdum misnotkunar. Milljónir til viðbótar mega þola barsmíðar og nefna skýrsluhöfundar sem dæmi að í Suð- ur-Kóreu gengust 67% foreldra við því að hafa hýtt börn sín og 45% sögðust hafa barið eða sparkað í börnin. Það færist hins vegar einnig mjög í aukana að aldraðir þurfi að þola misnotkun eða ofbeldi – einkum í löndum þar sem hlutfall aldraðra hefur aukist verulega. 815.000 sjálfsmorð í heiminum árið 2000 Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin kynnir óhugnanlegar tölur um tíðni ofbeldisverka Genf. AP, The Washington Post. ’ Tæplega 200 þús-und af þeim u.þ.b. 520 þúsund sem voru myrt árið 2000 voru á aldrinum 10– 29 ára. ‘ RICHARD Perle, háttsettur ráð- gjafi Bandaríkjastjórnar í varnar- málum, hvatti á miðvikudag til þess að Gerhard Schröder, kanzlari Þýzkalands, segði af sér vegna and- stöðu sinnar við stefnu Bandaríkja- manna gagnvart Írak. Í viðtali í þýzka dagblaðinu Hand- elsblatt sagði Perle að Schröder hefði með lýðskrumslegum hætti nýtt sér þetta mál til að ná endur- kjöri í kosningunum sem fram fóru til þýzka þingsins hinn 22. septem- ber. Schröder tók í kosningabarátt- unni þá afstöðu að undir sinni stjórn myndi Þýzkaland ekki koma nálægt því að styðja við hernað gegn Írak, hvort sem hann færi fram með um- boði frá Sameinuðu þjóðunum eður ei. „Aldrei á ævi minni hef ég séð tengsl við náinn bandamann sköðuð svo hratt og svo alvarlega eins og í kosningabaráttu Schröders kanzl- ara,“ hefur blaðið eftir Perle, sem er formaður varnarstefnuráðs banda- ríska varnarmálaráðuneytisins og er sem slíkur einn helzti ráðgjafi Don- alds Rumsfelds, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna. „Hann ætti að sjá sóma sinn í að segja af sér,“ sagði Perle um Schröder. Gekk Perle svo langt að halda því fram að Schröder hefði með hegðun sinni vísvitandi haft að engu hlut- verk Bandaríkjanna við að frelsa Þýzkaland undan ógnarstjórn Adolfs Hitlers svo og við uppbygginguna í Þýzkalandi eftir stríð og við samein- ingu landsins 1990. Þessu hefði Schröder öllu „hent fyrir róða“, tjáði Perle Handelsblatt. Ráðgjafi Bandaríkjastjórnar Vill afsögn Schröders Berlín. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.