Morgunblaðið - 04.10.2002, Blaðsíða 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 19
Falleg, fullkomin og vönduð
ítölsk raftæki á fínu verði.
E
LD
AV
É
LA
R
•
O
FN
A
R
•
H
E
LL
U
B
O
R
Ð
•
V
IF
T
U
R
ASKALIND 3, KÓP., SÍMI: 562 1500
Fást aðeins hjá okkur
og kosta minna en
þig grunar!
„Enginn annar stenst samanburð.“
Ég var að velja fyrsta bílinn minn og skoðaði vel það
sem stóð til boða. Corolla hafði allt það sem ég var
að leita að, hann er í réttum stærðarflokki fyrir mig,
hefur mjög lága bilanatíðni og hátt endursöluverð.
Auk þess hefur hann afskaplega gott orðspor, er
sparneytinn, traustur og öruggur.
Valið var þess vegna mjög auðvelt því aðrar tegundir
stóðust einfaldlega ekki samanburðinn.
Margrét Valdimarsdóttir
Viðskiptafræðinemi í Háskólanum í Reykjavík…og þú finnur af hverju!
Bíll ársins 2002
REYNSLU
AKSTUR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
18
80
9
1
0/
20
02
COROLLA - TILFINNINGIN ER GÓÐ Það hefur
aldrei verið hagkvæmara en nú að eignast nýjan Corolla, bíl ársins 2002.
Komdu strax og reynsluaktu vinsælasta bíl á Íslandi, fyrr og síðar, og þú finnur
hver ástæðan er. Verð frá 1.599.000. www.toyota.is.
Í TILEFNI vígslu nýju bátabryggj-
unnar á Safnasvæðinu Görðum er
öllum velunnurum safnanna boðið í
opið hús laugardaginn 5. október frá
klukkan 14 til 18.
Safnasvæðið á Akranesi er ein-
stakt og veglegt safn safna á einum
stað en uppbygging safnanna hefur
nú spurst út þannig að gestum fer
hratt fjölgandi. Á Görðum er
Byggðasafn Akraness og nærsveita,
Steinaríki Íslands, Íþróttasafn Ís-
lands og forsýning Landmælinga Ís-
lands. Auk þess er notalegt kaffihús,
Maríukaffi, rekið á staðnum, upplýs-
ingamiðstöð fyrir ferðamenn sem
sækja Akranes heim og minjagripa-
verslun.
Síðasta framkvæmd á svæðinu var
bygging smábátabryggju sem komið
hefur verið fyrir við hlið kútters Sig-
urfara. Bryggjan verður formlega
vígð nk. laugardag. Auk þess verður
ýmislegt skemmtilegt og fróðlegt
gert til dagamunar.
Hildibrandur Bjarnason hákarla-
bóndi í Bjarnarhöfn kemur með
óskorinn hákarl og sýnir verkun
hans. Hann mun einnig selja hákarl,
harðfisk og kofareyktan rauðmaga.
Félagar í Ullarselinu á Hvanneyri
kynna handbragð við ullarvinnslu og
selja handverk. Nemendur í Tónlist-
arskólanum á Akranesi flytja tónlist.
Lúðrasveitin og harmonikkusveitin
mæta. Handverk eldri borgara á
Akranesi sýnt og selt. Dýrfinna
Torfadóttir gullsmiður og listamað-
ur kynnir framleiðslu sína. Opnun
myndlistarsýningar Marlies Wechn-
er, „Veiddu“, í Maríukaffi. Verk unn-
in í tré, blý og jarðliti. Sölusýning
sem opin verður til 5. nóvember.
Opið hús á
Görðum
Akranes
FRAMHALDSSKÓLINN á Húsa-
vík er 15 ára á þessu ári og á dög-
unum var haldin glæsileg afmæl-
ishátíð í Íþróttahöllinni á Húsavík.
Þar fögnuðu nemendur, starfsfólk
og aðrir velunnarar skólans áfang-
anum með ræðuhöldum, tónlistar-
atriðum, myndasýningu o.fl. auk
þess að gera myndarlegri afmæl-
istertu mjög góð skil.
Eftir að þeir Ingimundur Jónsson
og Sigurður Hallmarsson höfðu
töfrað fram ljúfa tóna á gítar og
harmoníku bauð Jóhann Kr. Gunn-
arsson, fyrrverandi nemandi skól-
ans og stjórnandi hátíðarinnar,
gesti velkomna. Þá steig í pontu
Guðmundur Birkir Þorkelsson
skólameistari og flutti ræðu þar sem
hann bæði fór í gegnum sögu skól-
ans og horfði til framtíðar hans.
Stefán Baldursson, skrifstofustjóri í
menntamálaráðuneytinu, flutti ræðu
fyrir hönd Tómasar Inga Olrich
menntamálaráðherra, sem ekki gat
verið viðstaddur hátíðina. Þeir rokk-
arar Þórir Georg Jónsson, Baldur
Ragnarsson og Ásgeir Logi Ólafs-
son fluttu tónlist sína, allsendis
ólíka þeirri sem þeir Ingimundur og
Sigurður höfðu flutt áður. Einnig
komu fram þær systur Sigurveig og
Jóhanna Gunnarsdætur, sem
spiluðu og sungu nokkur lög við
mikla hrifningu viðstaddra.
Gullmerki skólans voru veitt í
fyrsta skipti og það þrenn að þessu
sinni. Þau hlutu Sigurjón Jóhann-
esson, Ingimundur Jónsson og Hall-
dór Bjarnason, sem allir störfuðu
lengi við Gagnfræðaskólann og síðar
Framhaldsskólann. Þá bárust skól-
anum heillaskeyti og hamingjuóskir
víða að, auk þess sem fjölmargir
færðu skólanum gjafir í tilefni af-
mælisins.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Ingimundur Jónsson og Sigurður Hallmarsson t.h. spiluðu á gítar og
harmóniku fyrir gesti afmælishátíðarinnar.
15 ára afmælishátíð
Framhaldsskólans
Húsavík
Í TILEFNI af evrópska tungumála-
deginum 26. september fengu nem-
endur á miðstigi í Grunnskólanum í
Borgarnesi að reyna færni sína í er-
lendum tungumálum. Þeir fengu sex
til átta setningar á ensku, frönsku,
spænsku, þýsku, dönsku og sænsku
og áttu síðan að finna þjóðfána og
einkenni hvers lands. Nemendur
teiknuðu viðeigandi myndir og skrif-
uðu setningar á plaköt sem síðan
voru hengd upp í skólanum.
Menntamálaráðuneytið hvatti
skóla og fræðslustofnanir til þess að
minnast dagsins með einhverjum
hætti. Áherslan var á þau markmið
sem Evrópuráðið hefur skilgreint og
miðast að því að vekja athygli á mik-
ilvægi tungumálakunnáttu, halda á
lofti fjölbreytileika tungumála og
menningar í Evrópu og hvetja til sí-
menntunar á sviði tungumála.
Evrópski tungu-
máladagurinn í
grunnskólanum
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Ánægðar stelpur í 7. bekk með vinnuna sína.
Borgarnes
ÞAÐ eru fleiri en fullorðnir íbúar í
Þórshafnar- og Svalbarðshreppi
sem eru óhressir með slæmt ástand
Öxarfjarðarheiðar því nemendur
10. bekkjar í Grunnskólanum á
Þórshöfn fóru fyrir skömmu í
áheitagöngu yfir heiðina. Tilgang-
urinn með göngunni var að vekja
athygli á slæmum vegi yfir þessa
heiði milli Þórshafnar og Húsavík-
ur en hún er um 36 kílómetra löng
og styttir leiðina milli Þórshafnar
og Akureyrar um um það bil 70 km.
Öxarfjarðarheiðin er aðeins fær
yfir sumartímann en heilsársvegur
yfir hana er framtíðarsýnin hjá
fólki austan heiðar. Mikil umferð er
jafnan yfir heiðina þegar hún er op-
in en í umferðarkönnun og talningu
sem Vegagerðin lét gera á heiðinni
í sumar þá fóru tæplega 400 bílar
yfir Öxarfjarðarheiðina á venjuleg-
um fimmtudegi í ágúst. Unglingum
sóttist gangan vel yfir heiðina og
þeir fá væntanlega góða viðbót í
ferðasjóð sinn þegar áheit vegna
göngunnar verða innheimt.
Morgunblaðið/Líney Sigurðard.
Nemendur 10. bekkjar tilbúnir í áheitagöngu yfir Öxarfjarðarheiði.
Áheitaganga yfir
Öxarfjarðarheiði
Þórshöfn
Meðgöngubuxur
margar gerðir og litir
Póstsendum, Þumalína