Morgunblaðið - 04.10.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GENGIÐ hefur verið frá samstarfs-
samningi milli Þróunarfélags mið-
borgarinnar og Bílastæðasjóðs og
tryggir hann Þróunarfélaginu 5%
hlutdeild í tekjum Bílastæðasjóðs af
stöðu- og miðamælum til ársloka
2005. Ágreiningur var um málið í
borgarráði og fór það því til af-
greiðslu borgarstjórnar, sem sam-
þykkti það með 8 atkvæðum gegn 6 á
fundi sínum í gær.
Í liðnum mánuði fól samgöngu-
nefnd Reykjavíkurborgar fram-
kvæmdastjóra Bílastæðasjóðs að
ganga frá samstarfssamningi um
markaðsmál við Þróunarfélag mið-
borgarinnar. Í bréfi hans með frá-
gengnum samningnum kemur meðal
annars fram að tekjur Bílastæða-
sjóðs af stöðu- og miðamælum hafi
numið um 156 milljónum króna árið
2001 og að óbreyttu megi gera ráð
fyrir því að hlutdeild Þróunarfélags-
ins verði um 7,8 millónir á ári, en um
4,6 milljónir á yfirstandandi ári þar
sem gildistaka samningsins miðist
við 1. júní síðastliðinn. Í samningn-
um kemur auk þess fram að Bíla-
stæðasjóður annist sérstaka mark-
aðssetningu og kynningu bílastæða,
bílahúsa og annars þess sem beinlín-
is lúti að bílastæðamálum.
Drög að samstarfssamningnum
voru kynnt samgöngunefnd 16. sept-
ember sl. og samþykkti hún að fela
framkvæmdastjóra Bílastæðasjóðs
að ganga til samninga við Þróunar-
félagið. Kjartan Magnússon, fulltrúi
D-listans í samgöngunefnd, lagði
fram bókun, þar sem m.a. kemur
fram að hægt sé að fallast á að hluti
þeirra gjalda, sem innheimt séu af
viðskiptavinum miðborgarinnar, sé
nýttur til markaðsstarfs á svæðinu á
vegum Þróunarfélagsins. Hins vegar
sé gerð athugasemd við orðalag
fyrstu greinar uppkastsins, þar sem
segi að félagið skuli gæta hags Bíla-
stæðasjóðs í starfi sínu eins og ann-
arra hagsmunaaðila á starfssvæðinu.
Slíkt ákvæði sé til óþurftar þar sem
mikilvægt sé að Þróunarfélagið hafi
óbundnar hendur í umfjöllun sinni
um bílastæðamál í miðborginni. Þá
sé starfsemi Bílastæðasjóðs afar sér-
tæk og ekki hægt að leggja hana að
jöfnu við aðra starfsemi í miðborg-
inni.
Andvígir ráðstöfun teknanna
til kynningarstarfs
Í borgarráði var erindið samþykkt
með fjórum atkvæðum gegn þremur
en í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins kom fram að þeir
væru andvígir því að fé Bílastæða-
sjóðs væri ráðstafað með þeim hætti
að tengja tekjur hans og kynning-
arstarf fyrir miðborgina. Eðlilegt
væri að fé til slíkrar kynningar kæmi
úr borgarsjóði og að ákvörðun um
það yrði tekin við gerð fjárhagsáætl-
unar. „Eigi að beita Bílastæðasjóði í
því skyni að auka umsvif í miðborg-
inni ber að draga úr tekjuöflun hans
og auðvelda ökumönnum að reka er-
indi sín.“
Í bókun borgarráðsfulltrúa
Reykjavíkurlistans kom fram að þeir
teldu ástæðu til að efla markaðs-
stefnu miðborgarinnar í samvinnu
við þá sem bæru hag hennar fyrir
brjósti. Bílastæðasjóður hefði m.a.
það hlutverk að þjóna miðborginni
með ýmsum hætti og samningurinn
væri til þess fallinn. „Jafnframt telja
borgarráðsfulltrúar Reykjavíkur-
listans eðlilegt að Þróunarfélagið
skili skilgreindum markmiðum varð-
andi nýtingu fjármunanna og mæli-
kvörðum á árangri.“
Með og á móti
Nokkrar umræður urðu um málið
á fundi borgarstjórnar í gær og
gagnrýndu borgarfulltrúar D-lista
framkvæmdina en borgarstjóri varði
hana.
Björn Bjarnason, oddviti D-listans
í borgarstjórn, sagði að efla þyrfti
miðborgina og þörf væri á kynningu
um hana en það ætti að gerast með
öðrum hætti en að flytja fé úr Bíla-
stæðasjóði. Frekar ætti að létta
álögum á borgarbúa og laða þá inn í
miðborgina með því að auðvelda
þeim dvölina þar, t.d. með framrúðu-
klukkukerfi. Samkvæmt bókun
R-listans væri ljóst að Þróunarfélag-
inu væri vantreyst til að fara með
umrætt fé og skynsamlegra hefði
verið að fá spurningum svarað áður
en eftirá hvað ætti að gera við pen-
ingana. Væri ætlunin að setja fé í
þetta kynningarstarf í gegnum Þró-
unarfélagið ætti að gera það úr borg-
arsjóðnum en ekki með svona milli-
færslum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri, sagði að skynsamlega
væri að málinu staðið. Bílastæða-
sjóður starfaði eingöngu á miðborg-
arsvæðinu og eðlilegt væri að hann
tengdist Þróunarfélaginu með þess-
um hætti frekar en að sérstakir fjár-
munir kæmu úr borgarsjóði til að
standa undir markaðssetningu á
miðborginni, því þá mætti færa fyrir
því rök að verslunarsvæðum í borg-
inni væri mismunað.
Sjálfstæðismenn bentu á að veit-
ingastaður McDonalds væri að
hætta í miðborginni og það væri
einsdæmi að þetta alþjóða fjöl-
skylduvæna fyrirtæki hætti starf-
semi í miðborg. Borgarstjóri sagði
það sérkennilegt að nefna það til
marks um að ekki væri gott að starf-
rækja veitingastaði í miðborginni.
Þvert á móti hefði veitingastöðum
fjölgað í miðborginni.
Í þessu sambandi sagði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir að erfiðleikar
miðborgarinnar væru ekki síður
vegna þeirrar umræðu, sem stöðugt
væri haldið uppi, m.a. í borgarstjórn,
um neikvæðu þættina en mun síður
um þá ágætu kosti sem svæðið hefði
upp á að bjóða og þá starfsemi sem
þar færi fram með miklum sóma.
Samstarf Bílastæðasjóðs og Þróunarfélagsins um markaðsmál rætt í borgarstjórn
Þróunarfélagið fær
um átta milljónir
árlega frá sjóðnum
RITSAFN Snorra Sturlusonar kom
út hjá Máli og menningu í gær og
var boðið til hátíðlegrar athafnar af
því tilefni í nýjum skála Alþingis við
Austurvöll. Er þetta í fyrsta sinn
sem ritsafn Snorra er gefið út sem
heild á íslensku og felur það í sér
þrjú verk sem eru eftir eða eignuð
Snorra Sturlusyni. Þetta eru
Snorra-Edda, Heimskringla og Eg-
ils saga. Öll bindin eru prýdd nýjum
myndlýsingum eftir íslenska mynd-
listarmenn.
Halldór Blöndal, forseti Alþingis,
bauð gesti velkomna og óskaði út-
gefendum og aðstandendum til
hamingju með útkomu þessa veg-
lega ritsafns, sem jafnframt væri
fyrsta heildarútgáfa á verkum
Snorra Sturlusonar.
Halldór Guðmundsson, forstjóri
Eddu – miðlunar og útgáfu, sem
Mál og menning heyrir til, flutti í
kjölfarið erindi og afhenti Halldóri
Blöndal fyrsta eintakið af ritsafninu
og þakkaði jafnframt þann styrk
sem Alþingi veitti til útgáfunnar.
Vésteinn Ólason, höfundur inn-
gangs ritraðarinnar, ræddi um arf-
leifð Snorra Sturlusonar. Sagði
hann það eðlilegt að menn settu
spurningarmerki við það að Snorra
Sturlusyni væru eignuð verkin þrjú,
á meðan aðeins Snorra-Edda væri
merkt honum sem höfundi. Á und-
anförnum áratugum hefðu hins
vegar komið fram rök erlendra og
íslenskra fræðimanna sem styddu
þá kenningu að Snorri Sturluson
væri höfundur ekki aðeins Heims-
kringlu heldur Egils sögu einnig.
„Má ef til vill segja að með útgáfu
ritraðarinnar hafi fengist óbein við-
urkenning Alþingis að Egils saga
og Heimskringla séu eftir Snorra
Sturluson,“ sagði Vésteinn, en Al-
þingi studdu útgáfuna með 5 millj-
óna króna framlagi.
Aðalsteinn Ingólfsson listfræð-
ingur ræddi því næst um mynd-
skreytingar safnsins, en hann er
myndritstjóri safnsins. Sagði hann
að áhersla hefði verið lögð á að fá
unga myndlistarmenn til að túlka
viðfangsefnið með augum sinnar
kynslóðar. Myndskreytingar eru
unnar af þeim Valgarði Gunn-
arssyni, sem vann teikningar í
Snorra-Eddu, Jóni Axel Björnssyni,
sem myndlýsti Egils sögu, og þeim
Jóhanni L. Torfasyni, Magdalenu
Margréti Kjartansdóttur og Pétri
Halldórssyni, sem unnu myndlýs-
ingar við Heimskringlu. Í kjölfar af-
hendingar fyrsta eintaks ritsafnsins
var opnuð sýning á frumteikn-
ingum listamannanna að mynd-
skreytingunum í Ritsafni Snorra
Sturlusonar í þjónustuskála Alþing-
is.
Ritstjórn verksins skipa Helgi
Bernódusson, Jónas Kristjánsson
og Örnólfur Thorsson.
Mál og menning gefur út Ritsafn Snorra Sturlusonar
Óbein viðurkenning Alþing-
is á höfundarverki Snorra
Í tilefni af útkomu ritsafnsins var opnuð sýning í þjónustuskála Alþingis
á frumeintökum myndlýsinganna er prýða bindin í Ritsafni Snorra
Sturlusonar, þ.e. Snorra-Eddu, Heimskringlu og Egils sögu.
Morgunblaðið/Þorkell
Halldór Blöndal, forseti Alþingis, skoðar eintakið af Ritsafni Snorra
Sturlusonar sem Halldór Guðmundsson, forstjóri Eddu – miðlunar og
útgáfu, afhenti honum við hátíðlega athöfn í Skála Alþingis í gær.
FIMM bíla árekstur varð á Reykja-
nesbraut við Sprengisand í Reykja-
vík um hádegið í gær og varð að
draga þrjá þeirra af vettvangi með
kranabíl.
Tildrög óhappsins voru ókunn í
gær en þó urðu ekki teljandi slys á
fólki.
Þá varð árekstur tveggja bíla á
mótum Sæbrautar og Reykjanes-
brautar um svipað leyti og voru þrír
fluttir á slysadeild. Bílarnir voru
fjarlægðir með kranabíl. Óvenju-
mörg umferðaróhöpp urðu í höfuð-
borginni í gær, eða yfir 30, sem er
tvöfalt meira en á venjulegum degi.
Ljósmynd/Eðvarð Hermannsson
Fimm bíla árekstur
á Reykjanesbraut
LESTUR mbl.is hefur aukist til
muna síðustu vikurnar. Samkvæmt
samræmdri vefmælingu Modernus
voru síðuflettingar á vefjum Morg-
unblaðsins samtals 9.078.591 í
september og hafa þær aldrei verið
fleiri í einum mánuði frá því þessar
mælingar hófust í apríl 2001. Svo-
nefnd innlit, eða einstakar heim-
sóknir, í september voru 2.646.648
og hafa heldur aldrei verið fleiri.
Samkvæmt lista sem Modernus
birtir er Leit.is sá vefur sem næst-
ur kemur mbl.is hvað notkun varð-
ar en í september voru flettingar á
vefjum Leitar.is 3.571.136 talsins.
Flettingar á vefjum Vísis.is voru
3.209.841, hjá Femin.is voru flett-
ingar 2.579.636 og á Símaskrá.is
2.219.117 talsins. Heildarfjöldi
flettinga á þeim 252 vefjum sem
Modernus mælir var 45.949.140 í
september.
Að jafnaði heimsækja nokkuð yf-
ir hundrað þúsund gestir mbl.is í
viku hverrri. Samkvæmt vefmæl-
ingunni var fjöldi stakra gesta í
síðustu viku 109.619.
Yfir 9 milljónir
síðuflettinga á
mbl.is í september
36 ÁRA kona var í gær dæmd í
þriggja mánaða fangelsi í Héraðs-
dómi Reykjavíkur fyrir fíkniefna-
brot með því að hafa komið með
tæplega eitt kg af hassi til landsins
26. september sl.
Fíkniefnin fundust hjá henni við
komuna og var hún úrskurðuð í
gæsluvarðhald og ákærð af lög-
reglustjóranum í Reykjavík 2.
október. Málið fékk skjóta af-
greiðslu en konan játaði sakargiftir
og var því dæmt í málinu strax
daginn eftir.
Þriggja mán-
aða fangelsi
fyrir hasssmygl