Morgunblaðið - 04.10.2002, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 04.10.2002, Blaðsíða 43
starf kvennanna í Hraunprýði. Hana átti Hulda Sigurjónsdóttir í ríkum mæli, ásamt skapfestu, og miðlaði öðrum í sínu langa og farsæla starfi fyrir félagið. Fyrir það stöndum við hinar konurnar í ævarandi þakkar- skuld. Stjórn Hraunprýði. Kveðja frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg Ein meginrót Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem nú er orðið þriggja ára gamalt, er starfsemi Slysavarnafélags Íslands á árunum 1928–1999. Hulda Sigurjónsdóttir var í hópi þeirra kvenna innan félags- ins sem mest kvað að. Hún var for- maður kvennadeildarinnar Hraun- prýði í Hafnarfirði í tæpa tvo áratugi. Í stjórn Slysavarnafélags Íslands sat hún á árunum 1964–1979, frá 1973 sem varaforseti félagsins. Félagið gerði hana að heiðursfélaga sínum ár- ið 1992. Hulda Sigurjónsdóttir hafði til að bera eldmóð frumkvöðla þessara samtaka, greind og ákveðni, og sem forystukona í svo langan tíma lagði hún mótandi hönd á afar margt sem til framfara horfði á vettvangi slysa- varna og björgunarmála. Á slíkum grunni byggist starf Slysavarna- félagsins Landsbjargar. Blessuð sé minning hennar. Kristbjörn Óli Guðmundsson, framkvæmdastjóri Slysa- varnafélagsins Landsbjargar. Þegar ég minnist vinkonu minnar Huldu Sigurjónsdóttur koma mér fyrst í hug orðin þolgæði og dreng- lyndi. Að leiðarlokum vil ég reyna að þakka samfylgd hennar og vináttu sem mér var alla tíð svo dýrmæt. Hún fæddist inn í sumarið og það var ávallt sólskin í hennar sporum. Vinátta okkar hófst þegar ég, ung kona, kom til liðs við slysavarnadeild- ina Hraunprýði fyrir 53 árum. Móðir Huldu var þá formaður deildarinnar og hafði Hulda þá starfað innan fé- lagsins frá því hún var barn. Síðar varð hún þar formaður í 20 ár. Stjórn- arfundirnir, sem þá voru haldnir heima hjá stjórnarkonum, voru ekki aðeins fundir heldur fyrst og fremst vinamót. Undir hennar stjórn blómstraði því félagið. Við allar vor- um ákveðnar í því að gera Hraun- prýði að öflugustu deildinni innan fé- lagsins og ég er ekki frá því að undir stjórn Huldu hafi það tekist. Henni reyndist auðvelt að hrífa með sér fólk til starfa, enda duglegust sjálf. Hún sat í aðalstjórn SVFÍ um árabil og var lengi varaforseti þess. Hún unni félaginu af heilum hug og á lands- fundum þess vakti hún hvarvetna athygli fyrir glaðværð og gjörvileik. Henni var þann veg farið að byndi hún tryggðir við menn eða málefni héldu þau tryggðabönd ævina út. Lungann úr starfsævi sinni vann Hulda utan heimilisins. Um árabil ráku þau hjón verslun í húsi sínu við Hverfisgötu og síðar starfaði hún í verslun Báru systur sinnar í mörg ár. Mér var lengstum illskiljanlegt hvernig hún komst yfir þetta ásamt öllu því öðru sem hún hafði að sinna. Vinátta okkar Huldu hefur mér alla tíð verið ómetanleg. Oft kom hún manni á óvart. Hún átti t.d. til að birt- ast óvænt og án sjáanlegs tilefnis með einhverja litla fallega gjöf bara til þess að segja hvað henni þætti vænt um mann. Vinátta okkar hefur nú staðið óslit- ið í hálfa öld án þess að á hana hafi nokkurn tíma nokkurn skugga borið. Ég sendi manni hennar og börnum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Það er ætíð gott góðs að minnast. Ester Kláusdóttir. Ég var ekki hár í lofti þegar ég kynntist fjölskyldu þeirra sæmdar- hjóna Rannveigar og Sigurjóns Ein- arssonar, skipstjóra í Hafnarfirði. Með einum eða öðrum hætti urðu börn þeirra hjóna fljótt vinir mínir og vináttan styrktist eftir því sem ald- urinn færðist yfir. Í þeirra hópi var Hulda Sigurjónsdóttir sem jarðsett verður í dag. Mér er Hulda minnisstæð þegar hún var ung stúlka á leiksviðinu í Góðtemplarahúsinu og lék blómarós- ina í Spanskflugunni eftir Arnold & Bach með ungan Hafnfirðing, Pál Guðjónsson, sem mótleikara. Sam- leikur þeirra var eftirminnilegur og innilegur og kom því þeim sem til þekktu ekki á óvart hvert framhaldið varð. Bundust þau þar tryggðar- böndum. Fjölskylda Huldu var ávallt í fyr- irrúmi, gleymdi hún því aldrei að víða eru erfiðleikar hjá fólki og sorgin kveður oft dyra vegna slysa. Hún ólst upp við það í foreldrahúsum að leggja þeim málefnum lið sem skapað gætu betra mannlíf, aukið frelsi og velferð fólks og komið í veg fyrir slysin. Vann hún á vegum Slysavarnafélagsins Hraunprýði og Slysavarnafélags Ís- lands ómetanlegt starf. Þrátt fyrir nokkurn aldursmun urðum við Hulda eftir því sem árin liðu nánari samstarfsmenn og vinir. Það var á vettvangi Sjálfstæðis- manna og þegar mér voru falin ábyrgðarmikil trúnaðarstörf var Hulda og hennar fólk þar í broddi fylkingar. Ég minnist þess þegar hún kynnti þingframboð mitt fyrir Vor- boðakonum í Hafnarfirði við alþing- iskosningarnar 1959. Því mun ég aldrei gleyma. Hulda er kvödd með virðingu og þakklæti og við sjálfstæðismenn minnumst ómetanlegra starfa henn- ar. Ég og fjölskylda mín þökkum vin- áttu hennar og tryggð og sendum eiginmanni hennar, börnum þeirra og fjölskyldum samúðarkveðjur. Við biðjum Huldu Sigurjónsdóttur Guðs blessunar á landi lifenda. Matthías Á. Mathiesen. Kæra Hulda mín. Mig langar til að þakka þér fyrir hvað þú varst mér alltaf góð, við tengdumst góðum vina- böndum í gegnum Jóhönnu þína, mína góðu og traustu vinkonu frá ungum aldri, og langan vinskap ykk- ar Palla við foreldra mína ævinlega. Við tvær áttum saman margar góðar stundir yfir glasi af sérríi og ræddum lífið og tilveruna og kom ég ríkari frá þeim. Þú varst sérlega skynsöm, falleg og tíguleg kona og með sérlega létta lund sem kom best fram í baráttu þinni við hjartasjúkdóm um mörg ár. Ef birti upp varstu ævinlega tilbúin í smá selskap, að búa þig uppá og skarta þínum fallegu skartgripum var þitt yndi. Fallega heimilið ykkar Palla þíns bar af öllum öðrum, allir fallegu hlutirnir ykkar fengu sinn stað af þinni fágætu smekkvísi, þú varst fagurkeri af lífi og sál. Að hluta til höfðuð þið flutt ykkur með búslóðina á Hrafnistu í Hafnar- firði. Þar áttuð þið góðan tíma þar sem vel var um ykkur hugsað, ég kom til þín fyrir nokkru síðan og sem áður settumst við og spjölluðum og sérrí- flaskan á sínum fengna stað. Þar kvaddi ég þig í síðasta sinn, ég mun alltaf muna þig Hulda mín, eins og örugglega þeir fjölmörgu sem áttu vináttu þína. Palla og öllum ykkar myndarbörnum og barnabörnum votta ég samúð mína og virðingu. Far þú í friði til guðsheima. Þín vinkona Hildur Hilmarsdóttir. Elsku besta frænka og vinkona. Við kveðjum þig með miklum sökn- uði í hjarta, þú varst okkur svo mik- ilvæg, trygg, traust og einlægur vin- ur. Hafðu hjartans þökk fyrir allt. Ég sá þig hverfa í sólarátt sólskinsdag og sólin vermdi veginn þinn. Þá var svo bjart um himininn en svo kom sólarlag. Og húmið skyggði huga minn harmadag og hjartað finnur söknuð sinn. Þótt sólin gylli himininn er sífellt sólarlag. (Jörundur Gestsson frá Hellu.) Elsku Palli og fjölskylda, megi guð styrkja ykkur í sorginni. Ragnhildur og Lárus. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 43 ✝ Brynjólfur Jóns-son fæddist 18. nóv. 1901 á Dag- verðareyri við Eyja- fjörð. Hann lést 28. september síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Jón Hallgríms- son og Guðrún Jóns- dóttir. Brynjólfur átti einn bróður, Að- alstein, vélstjóra á Akureyri, f. 20. ágúst 1899. Árið 1939 kvænt- ist Brynjólfur Sig- ríði Jónsdóttur, f. 5. febr. 1914. Foreldrar hennar voru Þórdís Árnadóttir og Jón Trampe, bændur í Litla-Dal í Saurbæj- arhreppi. Fósturbarn Brynjólfs er Franz Árnason, f. 9. maí 1944, forstjóri Norðurorku á Akur- eyri. Hann er kvæntur Katrínu Friðriksdóttur hjúkrunarfræðingi. Börn þeirra eru Sig- ríður Rut og Davíð Brynjar. Brynjólfur var lærður járnsmiður og vann við skipa- smíðar og viðgerðir á Siglufirði á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar. Hann flutti til Akureyrar 1949 og vann í hartnær hálfa öld hjá Vélsmiðjunni Atla hf. Útför Brynjólfs fer fram frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Dýrð þeirra geisla, er á dagperlum sjást, frá dagröðli streymir, hin mikla fegurð af mannviti og ást, sem mannsandinn geymir, er öll frá þeim, sem þér aldrei brást og aldrei þér gleymir. (Steingrímur Arason.) Binni frændi er dáinn. Minning- arnar frá bernskunni á Eyrinni tengjast á svo margan hátt Binna frænda. Okkur bræðrunum er það bæði ljúft og skylt að minnast Binna með okkar eigin orðum. Mér sem yngri bróður er minn- ingin skýr frá mínum upphafsárum þegar faðir minn sagði við mig ung- an: Nú förum við og heimsækjum Binna frænda. Þessi setning var mér æ síðan ljúf í minningunni. Þarna hitti ég Binna frænda og hann færði okkur bræðrunum gjöf sem var kúluspil og þótti gersemi í þá daga. Jólin voru að nálgast og upp frá þeim jólum man ég að ég fékk ætíð bók að gjöf frá Binna frænda hvar í heiminum sem ég var staddur. Síð- ar meir er dætur mínar fæddust fengu þær einnig sendar bækur frá honum sem voru lesnar hátt fyrir alla fjölskylduna um jólin. Mér þótti alltaf jafnvænt um þessa jólagjafir sem alltaf komu frá Binna frænda. Það var bara einn Binni frændi í hugum okkar bræðra og okkar fjöl- skyldna. Síðasta skiptið sem við bræðurnir hittum þennan öðlingsmann var á hundrað ára afmæli hans á síðast- liðnu ári. Þá höfðum við ekki sést í nokkur ár. Þegar við bræðurnir komum í hús þar sem æfmælishófið fór fram og gengum í salinn varð okkur að orði: Já, þarna er Binni frændi! Og það var gleði í hjörtum okkar bræðra að fá að hitta þennan frænda okkar einu sinni enn á þess- um merku tímamótum. Báðir erum við bræður keppn- ismenn, en að ná þessum áfanga er ekki á margra færi. Við viljum með þessum orðum kveðja okkar kæra frænda og ljúfa dreng. Megi minn- ingin um hann lifa. Viðar Már og Árni Krist- ján Aðalsteinssynir. BRYNJÓLFUR JÓNSSON stórum pokum, slíkir pakkar voru sjaldséðir á þeim tíma. Jana var líka heimskona. Hún ferð- aðist ein á sjöunda áratug aldarinnar sem leið á heimssýninguna í Japan og svo heimsótti hún líka Ísrael. Hún var með þeim fyrstu sem fóru til sólar- landa, oftar en einu sinni. En svo kom að því að starfsgeta Jönu þvarr og hún hætti að ferðast og hún dró sig meir og meir úr skarkalanum. Síð- ustu árin fór hún ekki mikið út á með- al fólks en var þó alltaf jafn glaðleg þegar gest bar að garði. Jana var gull af manni en var ekki allra. Ég vil fyrir hönd okkar systkinanna þakka Jönu fyrir allar góðu stundirnar. Blessuð sé minning hennar. Jóna K. Kristinsdóttir. Til eru konur sem strá í kringum sig birtu og yl og sigrast á öllum erfiðleikum lífsins hversu stórir og þungir sem þeir eru. Slík varstu, elsku Jana mín. Nú langar mig til að minnast þín með nokkrum minn- ingarbrotum. Frá því að ég man eftir mér ert þú svo stór hluti af lífi mínu, þú geislaðir af glaðværð og hafðir svo yndislega nærveru. Þú gerðir æsku mína líka ævintýri þegar þú fórst með mig í Tívolí og bíó. Þú hafðir alltaf tíma fyrir aðra þó þú hefðir svo sannarlega mikið að gera. Þú hélst heimili fyrir föður þinn og bróður með miklum myndarskap og hugsaðir um pabba þinn til dauðadags með sóma og ekki voru eftirtölurnar. Svo líða árin, ég giftist og börnin koma með stuttu millibili. Alltaf varstu tilbúin að hjálpa okkur að passa þau. Þau minnast þín alltaf með glampa í augum; Jana frænka var engri lík. Hún gaf sér tíma til að tala við þau og að hlusta á hvað þau höfðu að segja. Leikandi létt skáldaði hún heilu ævintýrin eins og ekkert væri og svo voru það gullmolarnir hennar, stelpurnar hans Dóra bróður hennar og Eyglóar konu hans. Hún elskaði þær eins og hennar börn væru. Hún hjálpaði Eygló eins og hún best gat þegar Halldór bróðir hennar lést langt um aldur fram. Þegar ég horfi á myndina fallegu sem þú málaðir af fögrum dal í Borg- arfirði mun ég alltaf minnast Jönu frænku sem var engri lík. Ég kveð þig með ást og virðingu og þakka þér fyr- ir allt, elsku frænka mín. Blessuð sé minning þín. Erna og Kristinn. Í dag verður hún Jana frænka jarð- sungin, aðeins viku eftir að móðir mín, Gróa, systir hennar Jönu, var jarð- sett. Lífið kemur manni alltaf á óvart og ég átti síst von á því að þurfa að horfa á eftir Jönu svona snemma, þrátt fyrir að hún hafi verið veik lengi. Það eina sem ég get huggað mig við er að ég veit að nú líður Jönu vel og hún er hjá þeim sem henni þótti vænt um. Það koma allir til með að sakna hennar Jönu frænku, þess að geta komið til hennar og hlustað á hana segja sögur og láta hana spá í bolla. Ég kem til með að sakna smitandi hláturs hennar og hvernig hún kom okkur öllum allaf í gott skap með glaðværð sinni og framkomu. Ég minnist þess hvernig hún lýsti gleðigloppum og lukkustólpum í boll- unum hjá okkur og hvernig allir voru sannfærðir um að innan skamms ættu þeir von á happdrættisvinningi eða stórri breytingu í lífinu. Þær voru ófá- ar ferðirnar sem við Gyða mín fórum til Jönu, til að fá að vita um hvort stóri vinningurinn væri ekki á leiðinni og stæði í bollanum. Ég minnist þess þegar hún passaði mig þegar ég var lítill og sagði mér ævintýri og sögur úr frumskóginum og frá fjarlægum stöðum. Ég minnist ævintýranna sem hún sjálf hafði lent í á ferðum sínum um víða veröld, á staði sem voru svo fjarlægir að aðeins frægir landkönnuðir og fuglinn fljúg- andi gátu hafa verið þar á undan henni. Jana hafði sérstaka eiginleika við að segja frá þannig að hún átti alla athyglina og hélt manni hugföngnum í langan tíma. Ég kveð Jönu í dag með sárum söknuði, en hugga mig við að minn- ingin lifir alltaf í hjarta mínu og glæð- ir hugann. Guð geymi þig, elsku Kristjana frænka. Gunnar. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, HRÖNN ALBERTSDÓTTIR, Seiðakvísl 13, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut miðviku- daginn 2. október. Sverrir Ólafsson, Sæmundur Hólmar Sverrisson, Margrét Rafnsdóttir, Rúnar Már Sverrisson, Ásta Ástþórsdóttir, Greta Sverrisdóttir, Davíð Art Sigurðsson og barnabörn. Frænka okkar, JÓHANNA ELÍASDÓTTIR frá Melkoti, Stafholtstungum, andaðist á Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, þriðjudaginn 1. október. Frændfólk hinnar látnu. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLFRÍÐUR K.H. STEFÁNSDÓTTIR ökukennari, Sogavegi 180, lést á Landspítala við Hringbraut þriðjudaginn 1. október. Guðlaugur S. Helgason, Margrét Á. Gunnarsdóttir, Lúðvík K. Helgason, Lovísa B. Einarsdóttir, Stefán E. Helgason, Kristín E. Harðardóttir, barnabörn og langömmubarn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.