Morgunblaðið - 04.10.2002, Blaðsíða 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 47
LANCÔME kemur enn og aftur skemmtilega á óvart
með spennandi haustlitum:
PURPLE RAIN.
Haust- og vetrarlitirnir
2002-2003
Hönnun Fred FarrugiaHeimsæktu www.lancome.com
Komið og prófið litina og fáið ráðleggingar hjá
snyrtifræðingum í dag og á morgun laugardag.
Frábærir kaupaukar.
Kringlan, sími 533 4533.
Smáralind, sími 554 3960.
FUGLAVERNDARFÉLAG Ís-
lands heldur Evrópska fugladaga
hátíðlega, í samstarfi við önnur að-
ildarfélög Alþjóða fuglaverndarsam-
takanna, BirdLife International, í
Evrópu helgina 5.–6. október. Af því
tilefni verður fuglaskoðun í Grafar-
vogi sunnudaginn 6. október kl. 14–
16. Hist verður við fuglaskoðunar-
húsið við Stórhöfða, sunnan megin
við voginn.
Á þessum árstíma eru oftast hóp-
ar af rauðhöfðum, urtöndum, máv-
um, tjöldum, sendlingum, lóum í
vetrarskrúða og fleiri fjörufuglum.
Fálki sést oft á sveimi við að reyna
að hremma bráð á leirunni. Leið-
sögumenn verða Hallgrímur Gunn-
arsson og Ólafur Einarsson.
Fuglaskoðun
í Grafarvogi
STÓMASAMTÖK Íslands verða
með opið hús laugardaginn 5. októ-
ber í húsnæði Krabbameinsfélags
Íslands að Skógarhlíð 8, í Reykjavík
4. hæð kl. 14–16 í tilefni alþjóða-
stómadagsins.
Yfirskrift dagsins er: „Okkur eru
allir vegir færir“. Allir eru velkomn-
ir.
Alþjóðastóma-
dagurinn
AGLOW-konur í Hafnarfirði og
Garðabæ halda fund laugardaginn 5.
október kl. 15 á Reykjavíkurvegi 68,
2 hæð. Alda Hauksdóttir meina-
tæknir flytur hugvekju.
Aglow eru alþjóðleg samtök krist-
inna kvenna, sem hafa helgað líf sitt
Jesú Kristi. Allar konur eru vel-
komnar.
Aglow-konur
funda á morgun
ÚTIVIST verður með göngu um
Reykjaveginn laugardaginn 5. októ-
ber og er hún er frá Dyrdal að Heið-
arbæ. Gangan er u.þ.b 12–14 km og
tekur um 5 klst. Brottför verður frá
BSÍ kl. 10.30. Verð kr. 1.700 / 1.900.
Fararstjóri er Steinar Frímannsson.
Gengið verður á Esjuna sunnu-
daginn 6. október og farið upp Gunn-
laugsskarð og að Meðalfellsvatni.
Reiknað er með rúmlega sjö tíma
göngu, hæðaraukning er tæplega
900 m. og er leiðin 15–16 km. Brott-
för frá BSÍ kl. 10:30. Verð kr. 1.500 /
1.700. Fararstjóri er Tómas Þröstur
Rögnvaldsson.
Gengið um
Reykjaveg
og á Esju
ÞJÓÐMINJASAFN Íslands býður
útlendingum, búsettum á Íslandi, til
kynningardagskrár í Sjóminjasafni
Íslands, Vesturgötu 8, Hafnarfirði
laugardaginn 5. október kl. 13.
Barnauppeldi og skólakerfi á Íslandi.
Sigurborg Hilmarsdóttir safnkennari
Þjóðminjasafni. Íslensk hús. Harald-
ur Helgason arkitekt Þjóðminjasafni.
Íslenskur matur. Sigrún Kristjáns-
dóttir safnvörður Þjóðminjasafni
segir frá og gefur að smakka. Kynn-
ing á Sjóminjasafni Íslands. Ágúst
Georgsson forstöðumaður.
Dagskráin tekur um eina og hálfa
klukkustund. Hún fer fram á ein-
faldri íslensku með myndum og sýn-
ishornum og er ætluð fólki sem ekki
hefur dvalið hér lengi en skilur eitt-
hvað í íslensku. Aðgangur er ókeypis
og öllum heimill.
Fyrirhugað er að ein af fyrstu sér-
sýningum Þjóðminjasafnsins eftir
enduropnun sýningarhússins við
Suðurgötu fjalli um innflytjendur á
Íslandi í tímans rás, segir í frétta-
tilkynningu frá Þjóðminjasafni Ís-
lands.
Kynningardagskrá
fyrir innflytjendur
EINKAÞJÁLFARASKÓLINN
FIA hefur senn 13. starfsár sitt.
Skólinn hefst 12. október en kennt
er um helgar samtals fjórar helg-
ar.
Um er að ræða verklegt sem og
bóklegt nám. Skólinn hefur verið
starfræktur á öllum Norðurlönd-
unum og útskrifað á annað þúsund
einkaþjálfara.
Námið felur í sér kennslu í líf-
færafræði, lífeðlisfræði, hreyfinga-
fræði, sjúkdómafræði, þjálffræði
og sálfræði. Að námi loknu hefur
einkaþjálfarinn ágætis þekkingu á
helstu atriðum þjálfunar og lífs-
stílsbreytinga til þess að ráðleggja
heilbrigðu fólki við að koma sér í
form.
Kennslugögnin eru frá Ace eða
American counsil on exercise:
„The personal trainers manual“.
Kennarar við skólann eru allt
fagmenn á sínu sviði og hafa mikla
reynslu og þekkingu á sviði þjálf-
unar.
Um verklegt nám sér Jón Hall-
dórsson, íþróttakennari og einka-
þjálfari, og fer verklega námið
fram í Planet Reykjavík, Austur-
stræti 8.
Bóklegt nám fer fram í íþrótta-
og Ólympíumiðstöðinni í Laugar-
dal og er námsstjóri FIA Jónína
Ben. íþróttafræðingur.
Nánari upplýsingar eru hjá
Planet Pulse eða á skrifstofunni að
Mýrargötu 2, Reykjavík.
Einkaþjálfaraskólinn
FIA hefur 13. starfsárið
SUNDURLIÐUÐ lokatala er komin
úr Soginu, en þar var veitt nokkrum
dögum lengur fram á haustið heldur
en gengur og gerist. Alls veiddust
266 laxar í ánni og 659 bleikjur. Þetta
er nokkuð minni veiði en í fyrra, en að
sögn Ólafs Kr. Ólafssonar, umsjónar-
manns Sogsveiða fyrir hönd SVFR,
stafar það líklega af afgerandi mis-
skiptingu afla milli svæða.
„Þetta er 10 löxum og 100 bleikjum
minni veiði en í fyrra og við erum að
sjálfsögðu ekkert ánægðir með það.
Það var aðallega Ásgarðssvæðið sem
brást. Maður hefði kannski haldið að
þar sem það var illa bókað síðsumars
og um haustið, þá hefði e.t.v. veiðst
meira ef fleiri hefðu staðið vaktina.
Hins vegar vissi ég dæmi þess að
kunnugir menn komu þangað á svæð-
ið hvílt og fengu kannski einn lax eða
engan, það var því líklega bara lítið af
laxi á svæðinu. Þá hefur Alviðra líka
oft verið betri,“ sagði Ólafur.
Bíldsfell bar af og gaf 115 laxa og
345 bleikjur. Alviðra var með 73 laxa
og 44 bleikjur, Ásgarður 45 laxa og
268 bleikjur og loks Syðri-Brú 33 laxa
og 6 bleikjur. Syðri-Brú er aðeins
með eina stöng, hin svæðin þrjár
hvert. Auk þessa má reikna með að
2–3 tugir laxa hafi veiðst í Þrastar-
lundi og Torfastöðum og svo er alltaf
spurning hvort Tannastaðatanginn
telst sjálfstæður veiðistaður eða hluti
af Soginu. Þar er veitt í vatnaskilum
við Hvítá og þarna komu nokkur skot
í sumar, m.a. eitt upp á eina sjö laxa á
einu kvöldi, þar af 19, 15 og 12 punda
fiska.
Volinn góður
Ágætis skot hafa verið í Volanum
að undanförnu og greinilega talsvert
af fiski þar á ferðinni. Fyrir
skemmstu voru t.d. menn á staðnum
sem fengu um 40 fiska og var það fjöl-
breyttur kokteill, staðbundnir urrið-
ar, eins til þriggja punda, bleikjur
upp í þrjú pund og sjóbirtingar,
tveggja til fjögurra punda. Stuttu
seinna voru síðan tveir félagar á ferð
sem fengu á þriðja tug fiska, mest
2–4 punda sjóbirtinga og þá stærstu
allt að 6 punda. Þeir félagarnir
veiddu allt á flugu, mest á Flæðar-
mús og reyndist best að bera litla
virðingu fyrir veiðistaðmerkingum
og kasta á ómerktar breiður. Fundu
þeir „bunka“ af fiski á 2–3 stöðum
eins og þeir komust að orði. Mest af
birtingnum var þó leginn fiskur, fáir
bjartir og nýlegir.
Sogið
lakara
en í
fyrra
Morgunblaðið/Emilía
Frændurnir Stefán Geir Sigfússon og Sigurður Kristinn Sigurðsson
stoltir með laxana sem þeir veiddu í Breiðdalsá.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
VIÐSKIPTAHÁSKÓLINN á Bif-
röst hefur hafið útgáfu á rann-
sóknaskýrslum kennara og fræði-
manna skólans. Skýrslurnar verða
gefnar út í ritröð og hefur hvert
hefti sitt númer. Fyrsta hefti rit-
raðarinnar ber heitið Towards a
New Social Economy; On Rural-
ism and the Struggle of the Coop-
erative Movement in Iceland in
the Pre-War Era, eftir Ívar Jóns-
son prófessor. Heftið hefur verið
gefið út í pdf-formi, en það má
nálgast með því að fara á heima-
síðu skólans.
„Í íslenskri samantekt rann-
sóknarskýrslunnar segir: Megin-
markmið skýrslunnar er að þróa
kenningarlegan ramma fyrir sam-
anburðarrannsóknir á grundvallar-
viðmiðum sem liggja að baki sam-
félagsþróunar í ólíkum löndum á
ólíkum tímabilum. Með grundvall-
arviðmiðum er átt við hugmyndir
um það hvernig æskilegt er að
skipuleggja menningu, félagsmál,
stjórnmál og efnahagslíf til lengri
tíma“ segir m.a. í fréttatilkynn-
ingu.
Gefa út rann-
sóknarskýrslur
VG í Reykjavík heldur sinn fyrsta
laugardagsfund á starfsárinu að
Hafnarstræti 20, 3.hæð, laugardag-
inn 5. október nk. kl. 11.
Boðið verður upp á kaffiveitingar
á meðan Ögmundur Jónasson fer yf-
ir stjórnmálaástandið og helstu
áherslur þingflokks VG á vetri kom-
anda.
Félagsmenn eru hvattir til að
koma og taka með sér gesti, segir í
fréttatilkynningu.
Laugardags-
kaffi VG
í Reykjavík
VINIR og aðstandendur fjölskyld-
unnar á Syðri-Kárastöðum í Húna-
þingi vestra hafa stofnað styktarsjóð
fyrir hana, en íbúðarhúsið á bænum
brann 1. október sl. Sex manna fjöl-
skylda átti þarna heimili sitt og
missti hún allt. Reikningur er opinn í
Sparisjóði Húnaþings og Stranda,
bankaslóðin er 1105-05-402800, og
kennitala 280553-7949.
Nú þegar hafa margir boðið fram
aðstoð, búnað og fjármuni, segir í
fréttatilkynningu.
Styrktarsjóður
vegna húsbruna