Morgunblaðið - 04.10.2002, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.10.2002, Blaðsíða 17
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 17 TÍU ár eru um þessar mundir liðin frá því Heimahlynning á Akureyri, sem er sérhæfð hjúkrunarþjónusta fyrir mikið veika einstaklinga, hóf starf- semi. Í tilefni af því verður efnt til hátíðardagskrár í gryfju Verk- menntaskólans á Akureyri á sunnudag, 6. október, og hefst dagskráin kl. 15. Ávörp flytja Tómas Ingi Ol- rich menntamálaráðherra, Val- gerður Sigurðardóttir, yfir- læknir á Líknardeild Landsspítalans, Friðrik E. Yngvason, sérfræðingur á lyfjadeild FSA, og Elísabet Hjörleifsdóttir, sérfræðingur í krabbameinshjúkrun. Óskar Pétursson, Reynir Schiöth, María Gunnarsdóttir, Daníel Þorsteinsson og fleiri sjá um tónlist, en kynnir verður Jó- hann Hauksson, dagskrárstjóri Rásar 2. Allir velunnarar Heima- hlynningar eru velkomnir, seg- ir í frétt um samkomuna. Heima- hlynning 10 ára ÁRLEG ljóðaganga Gilfélagsins og Skógræktarfélags Eyfirðinga verð- ur á morgun, laugardaginn 5. októ- ber. Að þessu sinni verður farið í Grundarskóg í Eyjafirði og þessi merki skógur kynntur, en hafist var handa við að planta í hann árið 1900. Aðalatriði göngunnar verður þó að njóta góðra kvæða og sam- veru í haustskóginum, segir í frétt. Skáld og skógarmenn fara fyrir göngunni og í lok hennar mun Skógræktarfélagið bjóða gestum upp á ketilkaffi. Sætaferðir verða frá Ketilhúsinu kl. 13. og komið til baka um kl. 16. Verð kr. 500, frítt fyrir börn. Rútumiðinn gildir einnig á Slag- tog í Deiglunni sama dag kl. 16.30 þar sem áfram verður haldið við ljóðalestur, upplestra úr skáldsög- um og söng. Þar fer hópur sem kallar sig Slagtog og er á ferð um landið. Eins og nafnið bendir til er um ákveðinn grunnhóp listamanna að ræða en reiknað með að aðrir listamenn geti slegist í hópinn. Í hópnum sem verður saman- kominn í Deiglunni eru Birgir Svan, Berglind Gunnarsdóttir, Einar Ólafsson, Gísli Magnússon, Hafliði Vilhelmsson, Varði, Þór Stefánsson og Unnur S. Braga- dóttir, og Þórarinn Guðmundsson slæst í hópinn. Miðaverð kr. 500, nema fyrir þá sem greiddu í rútuna. Ljóðalestur í haustskógi VINSTRIHREYFINGIN grænt framboð á Akureyri heldur aðalfund á morgun, laugardaginn 5. október, kl. 20 á Græna hattinum, Hafnar- stræti 96. Að loknum aðalfundarstörfum um kl. 21 mun Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður segja frá ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Jóhannesar- borg. Áhugamenn um umhverfismál eru hvattir til að koma og taka þátt í umræðum um ráðstefnuna og stefnu Íslands í umhverfismálum, segir í frétt. Í framhaldi af erindi Kolbrúnar verða almennar umræður um stjórn- mál, skemmtiatriði og hlutavelta. Hægt er að kaupa veitingar á staðnum. Fundurinn er öllum opinn meðan húsrúm leyfir. Aðalfundur VG á Akureyri BILLINN-Sportbar verður opn- aður á morgun, laugardaginn 5. október kl. 14, en nokkur ár eru liðin frá því slík starfsemi var í boði á Akureyri. Staðurinn er við Strandgötu 49, í portinu bakvið veitingastaðinn Við Pollinn, þar sem Renniverkstæðið var áður. Fyrst um sinn verða á staðnum fjögur tólf feta snókerborð, eitt lítið „pool“borð, pílukastskífur, þykhokký og ýmis önnur leik- tæki. Markmiðið með opnun Billans- Sportbars er að uppfylla að ein- hverju leyti þörfina fyrir sam- komustað fyrir unglinga á aldr- inum 16 til 18 ára, en skortur hefur verið á aðstöðu fyrir þann hóp til samveru og tóm- stundaiðkunar. Áhersla verður lögð á gott samstarf við lög- regluyfirvöld til að koma í veg fyrir að seljendur og neytendur ólöglegra vímuefna geri sig heimakomna á staðnum. Eitt kvöld í viku verða svo- nefnd einkaklúbbskvöld, en þá gefst fyrirtækjum, starfsmanna- félögum eða öðrum að leigja staðinn. Þegar fram líða stundir er stefnt að því að halda keppnir og eins er stefnan sú að sækja síðar um vínveitingaleyfi fyrir staðinn. Opið verður frá kl. 16 virka daga og kl. 14 um helgar og til kl. 1 að nóttu. Billinn-Sportbar opnaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.