Morgunblaðið - 04.10.2002, Blaðsíða 50
DAGBÓK
50 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Nord-
ic Frost kemur í dag.
Skógarfoss fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Ýmir og Nikolay Af-
anasyev fara í dag. Son-
ar fór í gær, Vysokovsk
kom í gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa, leikfimi og bað-
þjónusta kl. 9, bingó kl.
14. Kynning kl. 15:
Lyfjafræðileg umsjá,
blóðþrýstingsmæling,
lyfjaskömmtun og fl.
Bíóferð að sjá kvik-
myndina Hafið verður
farin mánud. 7. okt.
Rútuferð kl. 12.45.
Skráning í afgreiðslu í s.
562 2571.
Árskógar 4. kl. 13–16.30
opin smíða- og handa-
vinnustofan, kl. 10–16
púttvöllurinn. Sviða-
veisla verður 11. októ-
ber. Sigvaldi byrjar að
kenna dans 15. október.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16, hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
spilað. Haustfagnaður
verður fimmtud. 17. okt.
Hlaðborð, salurinn opn-
ar kl. 16.30. Dagskráin
hefst með borðhaldi kl.
17. Strætókórinn syngur
undir stjórn Guðmundar
Ómars Óskarssonar,
Ragnar Leví og félagar
leika fyrir dansi. Happ-
drætti. Skráning á skrif-
stofu fyrir kl. 12 mið-
vikud. 16. okt.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud: kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bóka-
safnið, kl. 15–16 bóka-
spjall, kl. 17–19 æfing
Kórs eldri borgara í
Damos. Laugard: kl. 10–
12 bókband, línudans
byrjar 5. okt. kl. 11.
Námskeið í postulíns-
málun byrjar 18. nóv.
Uppl. og skráningar
Svanhildur s. 586 8014
e.h.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Grafarvogi. Púttað
er annan hvern fimmtu-
dag að Korpúlfsstöðum
kl. 10 , og annan hvern
fimmtudag er leikin
keila í Keilu í Mjódd.
Þriðjudagar: kl. 9.45 og
föstudagar kl. 9.30
vatnsleikfimi í Graf-
arvogslaug. Uppl. í s.
5454 500, Þráinn.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl. 9–
12 applikering, kl. 10–13
opin verslunin.
Félagsstarfið Furugerði
1. Kl. 9 útskurður og að-
stoð við böðun, kl. 10
leikfimi, kl. 14 bingó.
Allir velkomnir
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30. Fé-
lagið verður með opið
hús fyrir félaga í Gull-
smára 13, laugard. 5.
okt. kl 14. Dagskrá:
Hannes Jónsson, fyrrv.
sendiherra, flytur Minn-
ingabrot frá frum-
bernsku Kópavogs.
Danssýning: Klassískur
ballet. Helga Ingv-
arsdóttir flytur
skemmtiefni og stýrir
fjöldasöng. Kaffi og
meðlæti.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13. „Opið
hús“ spilað á spil.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Tréút-
skurður kl 13, brids kl
13.30, púttað á Hrafn-
istuvelli kl. 14–16. Leik-
húsferð í Borgarleik-
húsið laugard. 12. okt.
að sjá Kryddlegin
hjörtu, miðar seldir í
dag í Hraunseli kl. 13–
16. Á morgun morg-
unganga kl. 10 frá
Hraunseli
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Félagið hefur
opnað heimasíðu
www.feb.is. Kaffistofan
verður lokuð vegna
breytinga í Glæsibæ
þessa viku.
Föstud: Félagsvist kl.
13.30. Bridsnámskeið
hefst fimmtud. 10. okt.
kl. 19.30. Leiðbeinandi
Ólafur Lárusson. Þátt-
taka tilkynnist skrif-
stofu FEB s. 588-2111.
Silfurlínan er opin á
mánu- og miðvikudögum
kl. 10–12. Skrifstofa fé-
lagsins er flutt í Faxafen
12 s. 588 2111. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12 böð-
un, kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, myndlist, kl.
9.30 gönguhópurinn
Gönuhlaup leggur af
stað, kaffi á eftir göng-
unni, allir velkomnir, kl.
14 bridge og spila-
mennska.
Gerðuberg, Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, kl.
9.30 sund og leikfimiæf-
ingar í Breiðholtslaug,
frá hádegi spilasalur op-
inn, kl. 13 bókband, kl.
14 kóræfing, kl. 20–23.30
dansleikur hljómsveit
Hjördísar Geirs leikur,
Allir velkomnir. Vetr-
ardagskráin komin. All-
ar upplýsingar á staðn-
um og í síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm og silf-
ursmíði, kl. 9.15 ramma-
vefnaður, kl. 13 bók-
band.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 glerlistahópur,
kl. 14–15 Gleðigjafarnir
syngja.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
fótaaðgerð og hár-
greiðsla
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, kl. 10 mæðra-
morgunn, Fótaaðgerð,
hársnyrting. Allir vel-
komnir. kl. 14–16 bingó,
spilaðar verða 8–10 um-
ferðir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17,
hárgreiðsla kl. 10–11
boccia. Farið verður að
sjá kvikmyndina Hafið í
Sambíóunum mánudag-
inn 7. okt. Sýningin
hefst kl. 13.30, lagt af
stað kl. 13. Skráning í
síma 568 6960.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
alm. handavinna, kl. 10–
11 kántrýdans, kl. 11–12
stepp, kl. 13.30–14.30
Sungið við flygilinn, kl.
14–15 félagsráðgjafi á
staðnum, kl. 14.30–16
dansað í aðalsal. Sigrún
Huld Hrafnsdóttir opn-
ar myndlistarsýningu,
miðvikud. 9. okt kl. 15.
Sýningin stendur til fös-
tud. 8. nóv. kl. 9–16.30
virka daga, allir vel-
komnir.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla og
myndlist, kl. 9.30 bók-
band og morgunstund,
kl. 10 fótaaðgerðir og
leikfimi, kl. 12.30 leir-
mótun, kl. 13.30 bingó.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur á
morgun kl. 21 í Konna-
koti Hverfisgötu 105,
Nýir félagar velkomnir.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum (u.þ.b.
16–25 ára) að mæta með
börnin sín á laugard.
kl.15–17 á Geysi, Kakó-
bar, Aðalstræti 2 (Geng-
ið inn Vesturgötu-
megin). Opið hús og
kaffi á könnunni, djús,
leikföng og dýnur fyrir
börnin.
Gigtarfélagið. Gigt-
arfélagið stendur fyrir
gönguferð um Elliðaár-
dalinn í dag, laugardag-
inn 5. okt. Mæting er við
hús Gigtarfélagsins í Ár-
múla 5 kl. 11. Klukku-
tíma ganga í fylgd
sjúkraþjálfara sem sér
um létta upphitun og
teygjur í lokin. Allir vel-
komnir – ekkert gjald.
Sjáumst hress!
Félag kennara á eft-
irlaunum. Skemmti-
fundur verður laugard.
5. okt. kl. 13.30 í Húna-
búð, Skeifunni 11. Á
dagskrá: félagsvist,
veislukaffi og skemmti-
og fræðsluefni sem
Hörður Zophaníasson
og Ásthildur Ólafsdóttir
sjá um.
Borgfirðingafélagið í
Reykjavík spilar fé-
lagsvist á morgun, laug-
ardag, kl.14 á Suður-
landsbraut 30. Allir
velkomnir.
Söngvinir Kópavogi.
Fyrsta söngæfing verð-
ur mánud. 7. okt. kl. 17 í
Gjábakka.
Í dag er föstudagur 4. október, 277.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Gleð þú sál þjóns þíns, því að til þín,
Drottinn, hef ég sál mína.
(Sálm. 86, 4.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 kýr, 4 ritverkið, 7 fjáð-
an, 8 álút, 9 máttur, 11
einkenni, 13 kappnóga,
14 spjör, 15 drýldni, 17
bára, 20 borða, 22 upp-
tök, 23 hnossið, 24 dans,
25 sigar.
LÓÐRÉTT:
1 hefja, 2 tæla, 3 ráða við,
4 skemmtun, 5 pexar, 6
kona, 10 ágengt, 12 sé, 13
hrópa, 15 veggir, 16
brúkum, 18 þjáist, 19 rán-
fugls, 20 baun, 21 sníkju-
dýr.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 ágreining, 8 hnáta, 9 negri, 10 son, 11 flaut, 13
apann, 15 hanga, 18 úthey, 21 ræl, 22 tefji, 23 dauðu, 24
manngildi.
Lóðrétt: 2 gráta, 3 efast, 4 nenna, 5 nægja, 6 óhæf, 7
kinn, 12 ugg, 14 pot, 15 hatt, 16 nefna, 17 arinn, 18 úldni,
19 hrund, 20 ylur.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur verið undrandi áþeim umræðum, sem fram hafa
farið í fjölmiðlum eftir fjöldauppsagn-
irnar hjá Íslenzkri erfðagreiningu,
um stéttarfélagsaðild starfsmanna.
Ef Víkverji skilur formenn stéttar-
félaga rétt, þá harma þeir mjög að
þeir eigi í erfiðleikum með að gæta
hagsmuna félagsmanna sinna, sem
störfuðu hjá fyrirtækinu, af því að
þeir hafi ekki verið í stéttarfélagi(!).
En voru þeir þá félagsmenn? Í frétt-
um á mánudag heyrði Víkverji haft
eftir formanni stéttarfélags að kanna
þyrfti hverjir af þeim, sem sagt var
upp hjá ÍE, hefðu „átt að vera“ í hans
stéttarfélagi. Það er engu líkara en að
fólk með einhverja tiltekna menntun
sé að áliti stéttarfélagsforkólfanna
„náttúrulegir“ félagar í „sínu“ stétt-
arfélagi, alveg burtséð frá því hvort
það hefur skráð sig í félagið, greitt fé-
lagsgjöld o.s.frv.
Víkverji sem hélt að það væri fé-
lagafrelsi í landinu og fólk réði því
hvort það væri í stéttarfélagi eða
ekki. Málið horfði kannski öðruvísi
við ef Íslenzk erfðagreining hefði
bannað starfsmönnum sínum að vera
í stéttarfélögum, en komið hefur fram
að fyrirtækið stóð t.d. skil á fé-
lagsgjöldum fyrir þá, sem kusu að
vera í stéttarfélagi.
Það athyglisverða er, að þótt menn
hafi ekki verið skráðir í stéttarfélag
og þar af leiðandi ekki borgað fé-
lagsgjöldin, hyggjast stéttarfélögin
samt gæta hagsmuna þeirra ef þeir
„áttu að vera“ í félaginu. Það er auð-
vitað góðra gjalda vert og kannski er
þetta það nýjasta, að vera ekki í stétt-
arfélagi en fá samt þjónustu frá sínu
„náttúrulega“ félagi ef eitthvað bját-
ar á.
x x x
VÍKVERJI hefur heyrt í allnokkr-um broddborgurum, sem voru
boðnir á frumsýningu á kvikmyndinni
Fálkum en urðu frá að hverfa þegar í
ljós kom að alltof mörgum, líklega svo
hundruðum skipti, hafði verið boðið á
sýninguna. Var hún þó haldin í stóra
sal Háskólabíós, þar sem þúsund
manns rúmast í sæti. Hér hefur eitt-
hvað klúðrazt hjá þeim, sem mark-
aðssetja myndina. Tilgangurinn með
því að bjóða mörgum á frumsýn-
inguna er væntanlega að skapa gott
umtal um bíómyndina, en það hlýtur
að þjóna þveröfugum tilgangi þegar
tugir eða hundruð manna verða frá að
hverfa, margir súrir yfir því að hafa
kannski haft fyrir því að fá barna-
pössun eða hafnað öðru boði sama
kvöld – og sjá svo ekki einu sinni bíó-
myndina.
x x x
ÞAÐ á ekki af Flugleiðum aðganga vegna fáklæddu flug-
freyjanna í Sopranos. Líklega hefði
verið skynsamlegast fyrir fyrirtækið
að þegja þunnu hljóði eftir að „ís-
lenzkar“ flugfreyjur voru sýndar í
vafasömum félagsskap söguhetja
þáttarins. Vefur San Fransisco
Chronicle birti fréttina af viðbrögð-
um Flugleiða við þættinum til dæmis
undir yfirskriftinni furðufréttir
(weird news). Nú síðast gerði háð-
fuglinn Jay Leno stólpagrín að Flug-
leiðum í sjónvarpsþætti sínum og
fannst dæmalaust fyndið að fyrirtæk-
ið skyldi hafa mótmælt vegna þess að
það teldi að Sopranos-þátturinn hefði
slæm áhrif á viðskipti þess – það
gagnstæða hlyti að vera tilfellið. Það
sakar heldur enginn Jay Leno um að
vera laus við karlrembu.
Mismunur á verði
strætisvagnamiða
KRISTÍN hafði samband
við Velvakanda og var hún
að velta því fyrir sér af
hverju 20 miðar í strætó
kosti 1.000 kr. fyrir öryrkja
en fyrir ellilífeyrisþega
kosti þeir 1.600 kr. Hún
spyr hver sé skýringin á
þessum mismun.
Ábending til foreldra
ELDRI kona, sem nýlega
missti innikisuna sína, vildi
koma því á framfæri að for-
eldrar brýndu fyrir börnum
sínum að vera ekki að taka
upp ókunnar kisur (innikis-
ur) og fara með þær eitt-
hvert því þær rötuðu ekki
heim aftur.
Sammála Erlu
VEGNA skrifa Erlu Berg-
mann í Velvakanda sl.
sunnudag um að nefnd sé
að fara yfir málefni eldri
borgara þá vil ég koma því á
framfæri að vegna dapurr-
ar reynslu hef ég ekki trú á
að neitt komi út úr þeim
nefndarstörfum.
Guðrún.
Framkvæmdir –
Hamrahlíð
Í Hamrahlíðinni standa yfir
miklar framkvæmdir og
undrar mig að ekki skuli
vera nein löggæsla eða eft-
irlit með umferðinni meðan
á þessu stendur. Í nágrenn-
inu eru tveir skólar,
blindraheimili og verslanir
og eru börn og unglingar
mikið á ferðinni. Þarna er
búið að loka annarri akrein-
inni og getur þarna mynd-
ast umferðarteppa.
Finnst mér það skrýtið
að hafa ekki heyrt neinar
ábendingar frá Umferðar-
ráði um þessar fram-
kvæmdir.
Hlíðabúi.
Peninga- og tímasóun
ÉG vil benda landsmönnum
sem komist hafa í þáttinn
Viltu vinna milljón á að vera
ekki að eyða símtölum eða
peningum til að reyna að
komast aftur í þáttinn. Ein-
ungis þeir sem aldrei hafa
komið í þáttinn fá að taka
þátt. Ég hef komist í þátt-
inn án þess að komast í stól-
inn og fæ þar af leiðandi
ekki að taka oftar þátt í
þessum þætti. Finnst mér
þetta harla óréttlátt. Svona
eins og ef maður ynni í
happdrætti þá fengi maður
ekki að spila meira með.
Fyrrv. keppandi.
Tapað/fundið
Sími með slöngu-
mynstri týndist
GRÆNLEITUR GSM-
sími með slöngumynstri
týndist á Kaffi Reykjavík
25. september. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
553 0711 og 868 4835.
Kápa frá Sand
tekin í misgripum
SVÖRT kápa frá Sand var
tekin í misgripum á Hótel
Holti sl. laugardag. Skilin
var eftir önnur kápa. Upp-
lýsingar í síma 897 1600.
Dýrahald
Alex er týnd
UNG læða, 10 mánaða, sí-
amsblönduð með blá augu,
hvít með grábrúnum rönd-
um, týndist í Mosfellsbæ sl.
mánudag. Þeir sem hafa
orðið hennar varir hafi
samband í síma 565 0353
eða 694 3153.
Högni fæst gefins
GULBRÖNDÓTTUR fjög-
urra mánaða högni fæst
gefins vegna breytinga á
heimilisaðstæðum. Hann er
mjög kelinn og góður. Upp-
lýsingar í síma 564 0524 eða
823 9822.
Fressköttur
á flakki
UNGUR fressköttur, grá-
bröndóttur, með hvítt á
nefi, hvítan smekk og hvítar
loppur er á flakki í norð-
urbæ Hafnarfjarðar. Upp-
lýsingar í síma 555 3918.
Páfagaukur
týndist í Kópavogi
LJÓSBLÁR páfagaukur,
gári, karlkyns, týndist 1.
október í austurbæ Kópa-
vogs. Þeir sem vita um
hann vinsamlegast hringi í
síma 564 1354 eða 849 0447.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
ÉG var svo ánægð um
daginn þegar ég sá frétt
um lögregluna á Blöndu-
ósi og hvað hún hefur
staðið sig vel að halda
niðri hraðakstri um
Húnaþing.
Fólk sem er á norð-
urleið þarf ekki að passa
sig eins mikið á leiðinni
frá Hvalfjarðargöngum
að Holtavörðuheiði því
þar sést lögreglan aldr-
ei. Á þessari leið er iðu-
lega um ofsaakstur að
ræða og venjulegt fólk
sem keyrir á 90–100 km
hraða hlýtur að teljast
vera fyrir. Fólk sem á
leið um Húnaþing fær
oft ábendingar um að
„passa sig á Blönduóss-
lögreglunni“. Mættu lög-
gæslumenn í öðrum um-
dæmum taka sér
Blönduósslögregluna til
fyrirmyndar.
Vegfarandi.
Blönduósslögreglan
til fyrirmyndar
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16