Morgunblaðið - 04.10.2002, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.10.2002, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. EKKERT hefur þokast íað koma á fót alþjóð-legum gagnabanka ummænuskaða sem íslensk stjórnvöld höfðu hug á að stofna í samvinnu við Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunina (WHO) og Evr- ópuráðið. Hugmynd að stofnun slíks banka vaknaði á alþjóðlegri ráðstefnu um mænuskaða sem WHO og íslensk stjórnvöld stóðu fyrir hér á landi fyrir rúmu ári, að frumkvæði Auðar Guðjónsdóttur hjúkrunarfræðings, móður Hrafn- hildar Thoroddsen, sem skaddaðist á mænu í bílslysi fyrir þrettán ár- um. Auður segir að Gro Harlem Brundtland, framkvæmdastjóri WHO, hafi boðið Jóni Kristjáns- syni heilbrigðisráðherra í lok síð- asta árs að Landspítalinn – há- skólasjúkrahús (LSH) yrði samstarfssetur WHO hvað mænu- skaða varðar. Aðalhlutverk seturs- ins átti að vera að stofna alþjóð- legan gagnabanka um mænuskaða undir merkjum WHO og íslenskra stjórnvalda, sem Íslendingar veittu forstöðu. Auður segir að rök Brundtland fyrir því að gagnabankinn ætti best heima á Íslandi hafi verið að frumkvæðið væri algjörlega komið héðan, Íslendingar væru rík og vel menntuð þjóð, auk þess sem lega landsins milli austurs og vesturs væri táknræn fyrir að sameina þekkingu ólíkra menningarheima. Þá væru Íslendingar hlutlausir á þessu sviði vísindanna og gætu skoðað málin hlut- og fordóma- laust. Gagnabankinn ekki á fjárlögum Auður segir að sér hafi skilist á fundi sem haldinn var með heil- brigðisráðherra í framhaldinu að gagnabankinn yrði settur á fjárlög fyrir árið 2003, en það hafi ekki gengið eftir. Þá hafi embættis- mönnum í ráðuneytinu verið falið að kalla yfirmenn á LSH til fundar svo hægt yrði að setja málið af stað. Fundurinn hafi þó, einhverra hluta vegna, aldrei verið haldinn. „Það er greinilegt að hér hefur gagnabankans yrði um 15 króna en fyrir liggur a muni ekki fjármagna Auður segir að síðasta vo þingmenn á Evrópuráð eitthvað skolast til og vonandi leið- réttir ráðherra misskilninginn svo að hægt verði að halda verkinu áfram,“ segir Auður. Er talið að stofnkostnaður Ekkert hefur þokast í stofnun alþjóðleg Carlos Lima, taugaskurðlæknir frá Portúgal, stundar rannsó hjúkrunarfræðingur átti frumkvæði að alþjóðlegri ráðstef Mænuskaðaðir væntingar til ga Þótt tæpt ár sé síðan íslensk heilbrigð að því að stofna alþjóðlegan gagnaba nefnd sem átti að fjalla um málið aldre að safna saman upplýsingum um hefð aðferðir sem gætu stuðlað að því að l skaða. Í gær kom hingað til lands port náð árangri með því að græða frumur ÓVIÐUNANDI ÚRRÆÐALEYSI Umræður undanfarna daga um hlut-skipti mikið geðfatlaðs fólks eru af hinu góða. Þessi hópur mætir víða fordóm- um og skilningsleysi á veikindum sínum og málefni hans hafa um of legið í þagnargildi. Full ástæða er til að ræða þau af hrein- skilni eins og önnur viðfangsefni í heil- brigðiskerfinu. Í Morgunblaðinu í síðustu viku skrifaði Laufey Baldursdóttir grein, þar sem hún rakti sögu bróður síns, sem greindist með geðklofa fyrir tvítugt. Laufey segir m.a.: „Í gegnum öll þessi ár hefur fjölskyldan fylgt honum eftir og átt við „Kerfið“ en varanleg lausn er ekki til. Hversu margir þurfa að ganga í gegnum þetta víti áður en lausn finnst? Er endalaust hægt að hegna mönn- um fyrir að vera veikir og skilja ekki reglur þjóðfélagsins? … Í dag er hann í hegning- arhúsinu fyrir að stela mat. Lögreglan seg- ir að hann eigi ekki heima þar, geðdeild- irnar segja að hann eigi ekki heima hjá þeim þar sem þar er eingöngu rekin bráða- þjónusta, meðferðarheimilin geta heldur ekki tekið hann þar sem hann er geðfatl- aður, sambýli er ekki til fyrir hans líka, leigusalar vilja ekki leigja honum, ættingj- ar treysta sér heldur ekki til að hafa hann.“ Þetta er aðeins eitt dæmi af alltof mörg- um um það úrræðaleysi, sem virðist ríkja í málum þeirra, sem verst eru farnir af geð- sjúkdómum. Að mati Geðhjálpar fá 50 geð- sjúkir einstaklingar ekki þá þjónustu, sem þeir eiga rétt á. Þar af eru yfir 20 manns í fangelsum og aðrir 30 heimilislausir. Í Morgunblaðinu á miðvikudag kom fram að þrátt fyrir að mál þessa hóps verði erfiðari viðfangs með árunum, m.a. vegna aukinnar vímuefnaneyzlu, hefur plássum á geðdeildum fækkað um 40 á undanförnum árum. Jafnframt kemur fram í máli Sveins Magnússonar, framkvæmdastjóra Geð- hjálpar, að mikil þörf sé á „sértækri um- önnunarstofnun fyrir einstaklinga sem eru mikið veikir og eru úti í horni í þjóðfélaginu vegna sjúkdóms síns“. Sveinn telur að á slíkri umönnunarstofnun væri með aðstoð lögreglu unnt að koma mjög veikum ein- staklingum í umsjá fagfólks, sem gæti kom- ið þeim í bærilegra ástand. Lausn á vanda þessa hóps hlýtur að vera á meðal markmiða dómsmála-, heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytis, sem nú hyggjast taka höndum saman um að taka á málum al- varlega geðsjúks fólks. Núverandi úrræða- leysi er óviðunandi. ÞAKKARVERT STARF SÁÁ Það er þakkarvert starf sem SÁÁ, Sam-tök áhugafólks um áfengis- og vímu- efnavandann, hafa unnið á þeim aldarfjórð- ungi sem liðinn er frá stofnun þeirra. Á þeim tíma voru vandamál tengd áfengis- og vímu- efnum feimnismál sem helst ekki mátti ræða. En með óeigingjörnu starfi hafa Sam- tökin opnað umræðuna og um leið opnað möguleika fyrir vímuefnaneytendur til að leita sér hjálpar. En margt hefur breyst á ekki lengri tíma en 25 árum eins og kom fram í viðtali við Þórarin Tyrfingsson, yf- irlækni SÁÁ, í Morgunblaðinu á miðviku- dag. Hann segir að vímuefnaneysla hafi aukist hjá ungu fólki og fólki með geðræn vandamál en fyrir daga SÁÁ hafi menn ekki haft trú á að hægt væri að gera eitthvað fyr- ir þetta fólk. Alls hafa 15.700 einstaklingar komið í áfengis- og vímuefnameðferð hjá SÁÁ frá því samtökin voru stofnuð og segist Þórar- inn telja að aðstandendur sem hafi fengið stuðning og meðferð hljóti að vera um 20.000. SÁÁ rekur sjúkrahús á Vogi í Reykjavík, tvö endurhæfingarheimili, ann- að í Vík á Kjalarnesi og hitt á Staðarfelli í Dölum. Hvort um sig tekur 30 sjúklinga þannig að 60 einstaklingar eru í endurhæf- ingu hverju sinni. Þá er göngudeild starf- rækt í Reykjavík og á Akureyri. Milli 12 og 13.000 einstaklingar heimsækja göngu- deildina í Reykjavík á hverju ári. Samtökin reka einnig tvö sambýli í Reykjavík og eitt á Akureyri. Segir Þórarinn að um 2.000 manns leiti til SÁÁ á ári og um 1.000 að- standendur. Þessi fjöldi sem leitar aðstoðar Samtak- anna sýnir svart á hvítu að stofnun SÁÁ var tímabær en þau voru stofnuð af áfengisneyt- endum sem höfðu fengið lækningu erlendis og vildu færa nýjar hugmyndir um vandann og vímuefnameðferð heim. Allar götur síðan hafa flestir þeir sem eru við stjórnvöl sam- takanna og margir starfsmenn kynnst vand- anum af eigin raun, annaðhvort sem að- standendur eða neytendur vímuefna, og enginn kemur að samtökunum nema sá sem hefur mikinn áhuga á vandamálinu. Starfsemi sem tengist áfengis- og vímu- efnum er oft vanþakklátt starf en um leið gefandi. Sú aðstoð sem SÁÁ veitir er kostn- aðarsöm og því mikilvægt að Samtökin fái stuðning til þess að halda þeirri starfsemi áfram. Bæði fórnarlömb áfengis- og vímu- efnavandans og aðstandendur þeirra vita að það eru fáir aðilar sem jafn gott hefur verið að leita til um aðstoð þegar vandamál af þessum toga herjar á. MEÐ ÞVÍ að græða lyktarskynsfrumur úr nefslímhúðinni inn í mænuskaða virðist mega fá fram starfsemi í skaðaða mænu. Þetta kemur fram sem tilfinning og hreyfing í lamaða hluta líkamans. Portú- galskur taugalæknir og taugameinfræð- ingur, Carlos Lima að nafni, sem staddur er hér á landi, hefur stjórnað rann- sóknum á þessari aðferð við Egas Moniz háskólasjúkrahúsið í Lissabon. Rann- sóknir hans hafa vakið mikla athygli um allan heim meðal þeirra sem vinna að rannsóknum á mænuskaða. Þegar hefur verið gerð aðgerð á sex mænusköðuðum sjúklingum og sá sjöundi mun bætast í hópinn strax í næstu viku, að sögn Lima. Góður árangur í dýratilraunum Lyktarfrumur eru sérhæfðar frumur sem finnast á litlu svæði í nefslímhúðinni. Þær eru óvenjulegar vegna þess að um taugavef er að ræða sem er í beinu sam- bandi við heilann og skipta þessar frumur sér mjög ört, ólíkt frumum í mænunni. Þetta kveikti þá hugmynd hjá Lima að e.t.v. mætti nota þessar frumur til að stuðla að viðgerð á skemmd í mænu og fyrir meira en tíu árum framkvæmdi hann fyrstu aðgerðina á tilraunadýrum. „Við fengum þá strax jákvæðan árang- ur og hreyfing fékkst í lamaða afturfætur tilraunadýranna,“ sagði Lima í samtali við Morgunblaðið í gær. Fyrir rúmu ári var hafist handa, undir hans stjórn, við að beita þessari aðferð á mænuskaðaða einstaklinga. Margir fag- eða bo brjóstm dugað ið er a Eng Eins frumur þeirra líklega ann í m ist á að að lykt úr söm Lima s um, en líkama aukave gerðin frumur aðilar koma að þessu auk Lima, þ. á m. taugaskurðlæknir, háls-, nef- og eyrna- læknir, taugalífeðlisfræðingur, sjúkra- þjálfarar, taugasálfræðingar o.fl. „Teknar eru frumur efst úr nefi sjúk- lings, rétt við heilann, sem komið er fyrir í holrúmi í mænunni sem áverkinn hefur skilið eftir sig.“ Sjúklingarnir hafa ýmist verið lamaðir frá hálsi og niður eða neð- an mittis. Bestur árangur hefur fengist við að auka snertiskyn. „Tilfinningin sem sjúk- lingarnir fá er ekki eðlileg,“ segir Lima, „en þeir finna greinilega fyrir snertingu sem þeir gerðu ekki áður. Um mánuði eftir að aðgerðin er framkvæmd höfum við tekið eftir að máttur hefur aukist í líkama sjúklinganna.“ Sjúklingarnir hafa fengið aukinn mátt, fyrst og fremst í efri hluta handleggja við hálsmænuáverka Portúgalskur taugaskurðlæknir græðir ly Tilfinning í lamaða hluta líkam FARIÐ YFIR RANNSÓKN FLUGSLYSSINS Í SKERJAFIRÐI Sturla Böðvarsson samgönguráðherrahefur ákveðið að skipa nefnd til aðfara yfir rannsóknina á flugslysinu í Skerjafirði fyrir tveimur árum eftir að tveir breskir sérfræðingar, Frank Taylor og Bernie Forward, gerðu alvarlegar at- hugasemdir við meðferð málsins. Hin nýja nefnd verður skipuð bæði innlendum og er- lendum sérfræðingum og verður henni ætl- að að leggja mat á niðurstöður Rannsókn- arnefndar flugslysa á hinu hörmulega slysi, leita skýringa á slysinu og leggja fram ábendingar um það hvernig efla megi ör- yggi í flugsamgöngum. Ákvörðun ráð- herrans er eðlileg í ljósi þess, hvernig mál hafa þróast. Athugasemdirnar, sem bresku sérfræð- ingarnir gera, lúta að flestum hliðum máls- ins. Dregið er í efa að flugvélin, sem hrap- aði í Skerjafjörð með þeim afleiðingum að sex manns létu lífið, hafi verið hæf til flugs, sagt að með því að einblína á eina tilgátu í skýrslu Rannsóknarnefndar flugslysa séu aðrar útilokaðar, þótt þær séu síst ósenni- legri, og einnig segir að ýmislegt varðandi rannsóknina varpi spurningum á samband Rannsóknarnefndar flugslysa og Flug- málastjórnar. Bæði Rannsóknarnefnd flugslysa og Flugmálastjórn hafa svarað þeim athuga- semdum, sem fram koma í skýrslunni. Hvað sem þeim svörum líður er ljóst að mál þetta þarf að brjóta til mergjar. Í bresku skýrslunni, sem aðstandendur tveggja pilt- anna, sem fórust, létu gera, er skýrt tekið fram að tilgangurinn sé ekki að finna söku- dólg, heldur að afstýra slysum og bjarga mannslífum í framtíðinni. Þess vegna er nauðsynlegt að sú rannsókn, sem nú fer í hönd, verði hafin yfir alla tortryggni og ljóst sé að hún snúist um hagsmuni almenn- ings, en ekki stofnana. Það er fyrir þraut- seigju aðstandenda piltanna tveggja að far- ið verður yfir rannsókn málsins, en vaknað hafa spurningar um það hvort á Íslandi skorti forsendur til að rannsaka atvik af þessu tagi þannig að við verði unað. Það verður að fara þannig fram að almenningur beri fullt traust til þess hvernig flugsam- göngum er háttað hér á landi og hvernig staðið er að rannsókn mála þegar slysin gerast.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.