Morgunblaðið - 04.10.2002, Side 6

Morgunblaðið - 04.10.2002, Side 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞJÓÐARGERSEMAR Íslendinga, Flateyjarbók og Konungsbók Eddukvæða ásamt fleiri ómet- anlegum handritum, verða fluttar úr Árnastofnun í Þjóðmenning- arhús í dag, vegna stærstu hand- ritasýningar sem sett hefur verið upp hérlendis. Sýningin byrjar á morgun, laugardag, fyrir boðs- gesti og verður síðan opnuð al- menningi á sunnudag. Sýningin verður í Þjóðmenningarhúsi næstu fimm árin að minnsta kosti og verður ókeypis aðgangur á sunnudögum. Miklar öryggisráðstafanir hafa verið gerðar vegna sýningarinnar og æfðu lögreglu- og slökkviliðs- menn auk öryggisvarða í gær björgun handritanna. Morgunblaðið/Þorkell Æfa björgun þjóðargersema GUÐLAUGUR Þór Þórðarson, borgarfulltrúi D-listans, sagði á fundi borgarstjórnar í gær að þar sem embættismenn hefðu verið fengnir til að fjalla um mál sem væru á verksviði leikskólaráðs Reykjavík- ur og þannig farið á bak við kjörna fulltrúa í ráðinu, væri eins gott að leggja ráðið niður. Í máli Guðlaugs Þórs Þórðarsonar kom fram að stjórn Leikskóla Reykjavíkur hefði komist að því fyrir tilviljun að í gangi væri starfshópur um endurskoðun gjaldskrár og styrkja vegna dagvistarúrræða fyrir börn á leikskólaaldri. Borgarstjóri hefði sett þennan starfshóp á lagg- irnar og hópurinn myndi tilkynna borgarstjóra niðurstöður sínar, en í starfshópnum væru reyndar ein- göngu ágætir embættismenn. Hlut- verk starfshópsins væru skilgreind en um væri að ræða hlutverk stjórn- ar leikskóla Reykjavíkur og alger- lega væri farið fram hjá leikskóla- ráðinu. Því hlyti sú spurning að vakna til hvers leikskólaráðið væri. Í samþykkt fyrir leikskólaráð segi m.a. að það móti stefnu í málefnum leikskóla og gæsluvalla, geri tillögur til borgarráðs um styrkveitingar til leikskóla og daggæslu á vegum ann- arra aðila og að þjónustugjöld og rekstrarstyrkir skuli ákveðnir af borgarráði að fengnum tillögum leik- skólaráðs. Borgarfulltrúinn greindi frá hug- myndum starfshóps um endurskoð- un gjaldskrár Leikskóla Reykjavík- ur, sem skilaði af sér í mars sl. og gat þess að skýrslan hefði aldrei verið kynnt í leikskólaráði heldur hefði það komist að henni fyrir tilviljun. Þá hefði hann óskað eftir að hún yrði rædd í ráðinu og það hefði verið gert á síðasta fundi en ákveðið að fresta málinu til næsta fundar. Við þetta tækifæri hefði komið í ljós að emb- ættismannahópur væri að vinna í fyrrgreindum málum. Hann áréttaði spurninguna til hvers leikskólaráð væri og sagði að hægt væri að spara einhverja peninga með því að leggja ráðið niður. Málinu frestað í leikskólaráði Björk Vilhelmsdóttir, borgar- fulltrúi R-lista, sagði að málið hefði fyrst komið upp á fundi leikskóla- ráðs 1. október sl. og þar hefði verið samstaða um að fresta málinu til næsta fundar, en rétt væri að bíða með umræðu um það þar til eftir þann fund. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri sagði að sér þætti umræða Guðlaugs Þórs undarleg. Það væri fráleit túlkun að líta svo á að borg- arstjóri hefði ekki umboð til þess að láta fara fram skoðun á hinum fjöl- mörgu málum sem undir borgar- kerfið og borgarstjóra heyrðu. Gjaldskrá leikskóla Reykjavíkur væri ákveðin í viðkomandi stjórn, en borgarstjóri hefði fullt umboð til að láta skoða þá möguleika sem væru í stöðunni. Það væri svo leikskólaráðs að fara yfir þessa möguleika og velja úr þeim og hafna. Hugmyndir starfs- hóps lægju fyrir með kostum og göll- um en engin leið hefði verið valin. Hópurinn sem hún hefði sett á lagg- irnar hefði ekki síst verið til þess að skoða hvaða fyrirkomulag skynsam- legt væri að hafa á styrkjum vegna annarra dagvistarúrræða fyrir börn á leikskólaaldri. Guðlaugur Þór Þórðarson við umræður í borgarstjórn Leikskólaráð verði lagt niður Í FRUMVARPI til fjáraukalaga sem fjármálaráðherra lagði fram í gær er gert ráð fyrir að Landspítalinn fái 1.200 milljónir króna til viðbótar til að mæta uppsöfnuðum rekstrarhalla sjúkrahússins. 487 milljónir fara til að mæta hallarekstri á hjúkrunar- heimilum. Atvinnuleysistrygginga- sjóður fær 513 milljónir vegna aukins atvinnuleysis og Ábyrgðarsjóður launa 300 milljónir til að bregðast við auknum útgjöldum. Fjárlög, sem samþykkt voru á Al- þingi í lok síðasta árs, gerðu ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs yrðu 257,9 millj- arðar, en samkvæmt fjáraukalaga- frumvarpinu hækka tekjurnar um 5,7 milljarða og verða 263,6 milljarðar. Auknar tekjur koma fyrst og fremst vegna meiri tekjuskattsgreiðslna frá einstaklingum (4 milljarðar) og frá fyrirtækjum (1 milljarður), en veltu- skattar eru nokkurn veginn á áætlun. Gjöld í fjárlögum voru ákveðin rúmlega 239,4 milljarðar, en lagt er til í fjáraukalagafrumvarpinu að þau hækki um 7,3 milljarða. Stærstu breytingarnar eru í heilbrigðis- og fé- lagsmálum. Lagt er til að útgjöld heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytisins hækki um tæplega 3 millj- arða króna, mest vegna hallareksturs sjúkrastofnana og sjúkratrygginga. Útgjöld til félagsmála hækka um tæplega milljarð, einkum vegna auk- ins atvinnuleysis og aukinna útgjalda Ábyrgðasjóðs launa. Loks hækka launa- og verðlagsmál um 900 millj- ónir vegna kjarasamninga og kja- raúrskurða en á móti lækka gengis- bundin útgjöld um rúmlega 450 milljónir. Í frumvarpinu kemur fram að mið- að við hálfsárs uppgjör sé reiknað með að 1.144 milljóna króna halli verði á rekstri Landspítala á þessu ári. Lagt er til að Alþingi samþykki að auka fjárveitingar til spítalans um 1.200 milljónir. Ennfremur er gert ráð fyrir að verja 487 milljónum til hjúkrunarheimila. Þá er gert ráð fyr- ir 677 milljóna króna aukafjárveit- ingu vegna lyfjaútgjalda. Félagsmálaráðuneytið óskar eftir að útgjöld þess verði aukin um tæp- lega 1,4 milljarða. Stærstu liðirnir eru 513 milljónir til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, 500 milljónir til At- vinnuleysistryggingasjóðs og 300 milljónir til Ábyrgðarsjóðs launa. Fjárheimild sjóðsins var 223 milljón- ir á þessu ári, en útgjöldin á fyrstu sjö mánuðum ársins voru orðin 368 milljónir. Stofnanir fá greiddan uppsafnaðan vanda Frumvarpið gerir ráð fyrir að út- gjöld til menntamála aukist um 436,4 milljónir. Stærstu liðirnir eru 158 milljónir til Lánasjóðs íslenskra námsmanna, 150 milljónir vegna flýt- ingar á framkvæmdum við Kenn- araháskóla Íslands og 205 milljónir til að greiða uppsafnaðan halla Tækniskóla Íslands. Nokkrar fleiri stofnanir fá auknar fjárveitingar vegna uppsafnaðs halla. Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins fær 54 milljónir. Landhelgisgæslan fær 30 milljónir til að mæta rekstr- arhalla, auk 90 milljóna vegna halla á viðhaldslið Landhelgisgæslunnar. Óskað er eftir að Alþingi samþykki 38,8 milljóna króna aukafjárveitingu vegna heimsóknar forseta Kína til Ís- lands. Frumvarp til fjáraukalaga lagt fram í gær Tekjur hækka um 5,7 milljarða og gjöld um 7,3 SAMKEPPNISSTOFNUN á að eigin frumkvæði að vinna skýrslu um það hvers vegna matvöruverð er ekki lægra en raun ber vitni enda hafi óheilbrigðir verslunarhættir fengið að dafna í skjóli stofnunarinn- ar auk þess sem hún hafi látið það líðast að til mikillar hringamyndunar hafi komið í matvöruverslun. Þetta kom fram í máli Halldórs Blöndal, Sjálfstæðisflokki, í um- ræðum um þingsályktunartillögu Rannveigar Guðmundsdóttur, Bryn- dísar Hlöðversdóttur og Össurar Skarphéðinssonar um matvælaverð hérlendis, á Norðurlöndunum og í Evrópusambandinu. Halldór sagði að fyrir lægi að einn verslunarhringur hefði ofurvald á matvælamarkaðnum bæði í innflutn- ingi og verðlagningu á smásölu. Halldór sagði og ljóst að samkeppni væri engin og fróðlegt væri að fá um það skýrslu frá Samkeppnisstofnun hvernig stæði á því. Það væri raunar makalaust, hvernig Samkeppnis- stofnun sæi stundum ástæðu til þess að grípa inn í og stundum ekki. Þá taldi Halldór einnig eðlilegt að vekja athygli á því að Samkeppnis- stofnun liti svo á að smásölum væri heimilt að verðleggja vörur undir markaðsverði þannig að virðisauka- skattur yrði öfugur. Slíkir verslunar- hættir væru bannaðir annars staðar. Hið sama ætti við þegar einokunar- hringur af þessu tagi léki sér að því að fá ódýrar auglýsingar með því að selja vörur undir framleiðslu- eða innkaupsverði. Halldór taldi þetta vera óheilbrigða verslunarhætti sem hefðu dafnað í skjóli Samkeppnis- stofnunar. Menn verði að ætlast til þess að Samkeppnisstofnun vinni að eigin frumkvæði skýrslu um það hvernig á því standi að matvöruverð skuli ekki vera lægra en raun beri vitni þar sem stofnunin hafi látið það líðast að til svo mikillar hringamynd- unar hafi komið í þessari grein. Halldór Blöndal vill skýringar á háu matvælaverði Hringamyndun dafnað í skjóli Samkeppnisstofnunar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.