Morgunblaðið - 04.10.2002, Page 7

Morgunblaðið - 04.10.2002, Page 7
Neðangreindir keppinautar sameinast um að kosta birtingu auglýsingarinnar: Á morgun stendur Rauði kross Íslands fyrir landssöfnun. Söfnunin er tileinkuð sunnanverðri Afríku en þar ógnar hungurvofan fjórtán milljónum manna. Ef við bregðumst við í tæka tíð getum við bjargað mannslífum og komið í veg fyrir hungursneyð. Þegar neyðarkall berst sýna Íslendingar af öllum stærðum og gerðum samhug sinn í verki. Ólíkir einstaklingar taka höndum saman og ganga til góðs á morgun, þótt þeir eigi kannski ekki samleið aðra daga. Þegar hafa um þúsund sjálfboðaliðar boðið sig fram til að ganga í hús og safna framlögum. Skráðu þig í síma 570 4000 og á redcross.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.