Morgunblaðið - 04.10.2002, Page 16

Morgunblaðið - 04.10.2002, Page 16
AKUREYRI 16 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MEISTARINN.IS Herradeild Akureyri, sími 462 3599. Kjólföt Smokingföt Akurliljan í miðbæjarins opið laugard. 10-15 Akurliljan Hafnarstræti 100, Akureyri, sími 462 4261. sérstaklega til barna á skólaaldri og foreldra þeirra en þó væru allir vel- komnir til þátttöku. „Þarna gefst íþróttafélögunum í bænum tækifæri á að kynna sig og sýna hvað þau hafa upp á að bjóða fyrir alla fjöl- skylduna. Við höfum fengið mjög góð viðbrögð við þessum hugmynd- um okkar, m.a. frá Skautafélaginu og Skíðafélaginu, en stóru félögin, KA og Þór, hafa þó ekki enn látið í sér heyra. Við höfum hugsað okkur „FJÖLSKYLDAN saman gaman“ er yfirskrift á samstarfsverkefni nema í fjarnámi í íþróttafræðum, heilsu- þjálfun við Kennaraháskóla Íslands. Þrír þeirra eru á Akureyri, einn á Hornafirði og einn í Hafnarfirði. Markmiðið með verkefninu er m.a. að gera heilsuvernd og forvarn- arvinnu að sameiginlegu átaki fjöl- skyldunnar og jafnframt að gefa fjölskyldunni tækifæri og hugmynd- ir til að stunda heilsurækt saman eða á sama tíma. Hinrik Þórhallsson, íþróttakenn- ari við Verkmenntaskólann á Ak- ureyri, stendur að verkefninu á Ak- ureyri ásamt þeim Ingu Magnús- dóttur og Tryggva J. Heimissyni. Hinrik kynnti verkefnið á fundi íþrótta- og tómstundaráðs í vikunni og samþykkti ÍTA að styrkja verk- efnið um 100 þúsund krónur. Hinrik sagði að markmiðið með verkefninu væri einnig að leita leiða til að efla heilsurækt og forvarnir, bæði fjöl- skyldulega og félagslega, og vekja sveitarfélög og íþróttafélög til um- hugsunar um að sinna þessum hópi fólks og hvetja þau til að aðlaga barna- og unglingastarfið að aukn- um þörfum fjölskyldunnar. Jafn- framt er markmiðið að efla samstarf á milli sveitarfélaga, íþróttafélaga og heilbrigðisstofnana á sviði for- varna og heilsuræktar. Hinrik sagði að verkefnið höfðaði skipulagða dagskrá fjóra laugar- daga í röð nú á haustmisseri, þ.e. 26. október og 2., 9. og 16. nóvember nk. Ekki liggur endanlega fyrir á þess- ari stundu hvort boðið verður upp á sömu dagskrána alla dagana eða hvort við eigum að vera með ákveð- ið þema á hverjum laugardegi.“ Lítið verið horft á fjöl- skylduna sem markhóp Leitað hefur verið eftir þátttöku allra íþróttafélaganna í bænum, skátanna, siglingaklúbbsins, hesta- manna, líkamsræktarstöðva, sjúkra- þjálfara, jógakennara, danskennara og heilbrigðisdeildar HA. Hinrik sagði stefnt að því að bjóða upp á ýmiss konar mælingar, sem og að gera viðhorfskannanir meðal fólks fyrir og eftir þátttöku í verkefninu. „Þeir aðilar sem væntanlega taka þátt í þessu verkefni geta boðið upp á hvað sem þá lystir og á þann hátt sem þeim hentar. Það eina sem við gerum kröfu til er að dagskráin sé skipulögð með alla fjölskylduna í huga, annað hvort að allir taki þátt í sama atriðinu á sama tíma eða að barninu sé sinnt í skipulagðri hreyfi- dagskrá á meðan foreldrar eru einn- ig á hreyfingu. Ef viðbrögð verða góð teljum við mikilvæga forvinnu unna sem við heilsuþjálfarar, sveit- arfélögin og íþróttahreyfingin get- um nýtt til heilsueflingar, þar sem unnið er með markhóp sem lítið hef- ur verið horft á til þessa.“ Samstarfsverkefnið „Fjölskyldan saman gaman“ er að fara af stað Heilsuvernd og forvarnir verði sameiginlegt átak fjölskyldunnar Morgunblaðið/Kristján Skíðaíþróttin er ein allra vinsælasta íþróttin sem öll fjölskyldan stundar saman. SÍMINN stóð fyrir ráðstefnu í Sam- komuhúsinu á Akureyri í gær, undir yfirskriftinni Ferskir straumar í GSM-samskiptum fyrirtækja. Á ráð- stefnunni var m.a. fjallað um hag- ræðingu í fjarskiptamálum og bent á að mikilvægt sé fyrir fyrirtæki að skoða dæmið til enda þegar ákvarð- anir um fjarskipti eru teknar. Einnig voru kynntar ýmsar nýjungar sem Síminn hefur þróað að undanförnu, sem allar miða að því að auka hag- ræði í rekstri fyrirtækja og lausnir sem miða að því að létta viðskipta- vinum líf þeirra og starf. Guðjón Pétursson, sérfræðingur á GSM-sviði Símans, fjallaði um lausn- ir sem tengjast notkun GSM-síma. Nína Björk Sigurðardóttir, vöru- stjóri hjá Símanum, flutti fyrirlestur um Centrex sem er sýndareinkasím- stöð sem líkir eftir virkni einkasím- stöðva og Davíð Stefán Guðmunds- son fjallaði um Boða, nýja og hentuga lausn til að ná til margra með einu símtali. Þá var á ráðstefn- unni boðið upp á ýmis tilboð á far- símum og búnaði. Ráðstefnustjóri var Heiðrún Jónsdóttir, forstöðu- maður upplýsinga- og kynningar- deildar Símans. Morgunblaðið/Kristján Guðjón Pétursson, sérfræðingur hjá Símanum, tók ljósmynd af Heiðrúnu Jónsdóttur, forstöðu- manni upplýsinga- og kynning- ardeildar Símans, með nýrri tegund af GSM-síma frá Nokia og sendi myndina úr símanum á netfang hennar. Ferskir straumar í GSM-sam- skiptum ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Akureyrar staðfesti á fundi sín- um í vikunni bókun stjórnar Af- reks- og styrktarsjóðs um styrk að upphæð ein milljón króna til kvennaliðs KA/Þórs í handbolta. Stjórn Afreks- og styrktar- sjóðs barst fyrir skömmu erindi frá Helgu Steinunni Guðmunds- dóttur, formanni KA, þar sem óskað var eftir styrk að upphæð rúmar 2,7 milljónir króna til rekstrar meistaraflokks kvenna í vetur. Kvennalið KA/Þórs fékk síðast styrk að upphæð ein millj- ón króna í apríl sl. vegna rekst- urs síðasta vetrar. Lið KA/Þórs leikur í efstu deild ásamt liðum af höfuðborg- arsvæðinu og ÍBV í Vestmanna- eyjum en alls eru 10 lið í deild- inni. Liðið er með 2 stig að loknum fimm umferðum en næsti leikur liðsins er gegn FH í KA-heimilinu á morgun, laugar- dag. Styrkur til kvenna- liðs KA/ Þórs SLÉTTBAKUR EA, frystitogari Útgerðarfélags Akureyringa, kom til heimahafnar í vikunni með um 340 tonn af afurðum. Afli upp úr sjó var um 460 tonn, þar af 180 tonn af ufsa, 170 tonn af þorski og 60 tonn af grálúðu, og var aflaverðmætið 73 millj. kr. Þetta var jafnframt fyrsti flakatúr skipsins og segist Ívan Brynjarsson skipstjóri nokkuð ánægður með útkomuna, á heima- síðu ÚA. Hann sagði þó að vissulega hefði tekið nokkurn tíma fyrir menn að læra handtökin. Í þessum síðasta túr Sléttbaks voru allir hausar frystir um borð og færðir í land. Lengi hafa grálúðuhausarnir farið á markaði í Asíu, þar sem fengist hef- ur gott verð fyrir þá, en að þessu sinni voru einnig frystir ufsa-, þorsk- og ýsuhausar til þurrkunar hjá Laugafiski. Ívan segir að þessu fylgi aukin vinna um borð en að þetta sé það sem koma skal. Alls kom Sléttbakur með 92 tonn af hausum að landi. Sléttbakur EA með yfir 70 milljónir króna í aflaverðmæti Morgunblaðið/Kristján Unnið við löndun úr Sléttbak EA í Akureyrarhöfn. Allir fiskhausar færðir að landi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.