Morgunblaðið - 04.10.2002, Síða 18

Morgunblaðið - 04.10.2002, Síða 18
SUÐURNES 18 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ GERÐASKÓLI í Garði er einn elsti samfellt starfandi skóli landsins. Næstkomandi mánudag, 7. októ- ber, verða liðin 130 ár frá því að skólinn tók til starfa og verður af- mælisins minnst með viðeigandi hætti. Undanfarna daga hafa nem- endur skólans verið að undirbúa afmælishátíðina, sem fram fer í dag. Þar verða sögu skólans m.a. gerð góð skil. Það var séra Sigurður Brynjólfs- son Sivertsen prestur að Útskálum sem stóð fyrir stofnum barnaskóla í Gerðum og má rekja aðdragand- ann allt aftur til ársins 1860 þegar Sigurður fór að ræða um stofnun barnaskóla við héraðsbúa. „Saga þessa skóla er mjög merkileg,“ sagði Jón Ögmundsson, aðstoð- arskólastjóri Gerðaskóla, í samtali við Morgunblaðið, en Jón skrifaði sögu skólans fram til 1911 ásamt Sveini Karlssyni í lokaritgerð við Kennaraháskóla Íslands. „Það sem kannski er merkilegast er að skól- inn er byggður fyrir fé sem safnað var til byggingarinnar. Sjálfur lagði Sivertsen töluvert af pen- ingum til byggingarinnar en mestu munaði um þá peninga sem bændur hér í Garði lögðu til, einnig kaup- menn í Keflavík og sjómenn úr Reykjavík sem lögðu hér upp. Það breytti öllu að vel áraði svo flestir gátu gefið eitthvað en einnig unnu margir kauplaust við byggingu skólahússins. Þessa atriðis verður sérstaklega minnst á sjálfan afmæl- isdaginn, en þá verður afhjúpaður minnisvarði á þeim stað sem skól- inn stóð fyrst á, steinn með skildi sem á stendur: „Gerðaskóli. Hér stóð fyrsta hús Barnaskólans í Gerðum byggt af fríviljugum sam- skotum. Í því var kennt 1872– 1887.“,“ sagði Jón. Enn þann dag í dag nýtur skólinn velvildar og ýmis fyrirtæki og félagasamtök leggja peninga til skólans á hverju ári. Skólinn einsettur á afmælisárinu Ekki dugðu heljarþykkir veggir skólahússins mjög vel og fljótlega fór húsið að leka. Svo fór að skól- inn var fluttur í leiguhúsnæði í Mið- húsum 1887 og þaðan að Útskálum. Árið 1910 var hafist handa við byggingu skólahúss í Gerðalandi, á stað sem skólinn stendur enn í dag og hófst kennsla þar 5. október 1911. Elsti hluti hússins er enn í notkun en margoft hefur verið byggt við húsið, enda hefur nem- endum fjölgað úr 15 í 215 á þeim 130 árum sem Gerðaskóli hefur verið starfræktur. Núverandi skólastjóri er Erna M. Sveinbjarn- ardóttir og skráðir starfsmenn skólans eru 39. Eins og gefur að skilja hefur starfsemi skólans breyst mikið á þessum 130 árum og einar stærstu breytingarnar á undanförnum ár- um áttu sér stað á þessu afmæl- isári. „Nýjasta viðbyggingin var tekin í notkun nú síðsumars og í framhaldi varð skólinn einsetinn. Það breytir miklu að hafa alla nem- endur og kennara í skólanum á sama tíma og öll aðstaða til kennslu er eins og best verður á kosið,“ sagði Jón. Í framhaldi af einsetningu skól- ans var ákveðið að bjóða nem- endum upp á heitan mat í hádeg- inu, sem kemur tilbúinn á bökkum í skólastofurnar. Enn sem komið er hefur ekki verið komið upp eld- unaraðstöðu í skólanum en að sögn Jóns er málið í skoðun. „Á meðan borða þeir nemendur sem nýta sér þessa þjónustu hádegismatinn við borðið sitt í skólastofunni og marg- ir nemendur hafa tekið vel í þessa nýbreytni.“ Sívertsens minnst á afmælisdaginn Undanfarna daga hafa nem- endur verið að undirbúa afmæl- ishátíðina á þemadögum þar sem sérstök áhersla hefur verið lögð á sögu skólans. Að sögn Helgu Ei- ríksdóttur, kennara í Gerðaskóla, sem sæti á í undirbúningsnefnd, hafa nemendur verið að taka viðtöl við eldri nemendur, teikna myndir sem snerta sögu skólans og hengja upp slagorð og gamlar ljósmyndir úr skólastarfinu. Yngstu bekkj- ardeildirnar hafa svo verið í íþróttahúsinu að kynnast fornum leikfimiæfingum sem nemendur Gerðaskóla iðkuðu til forna. Nemendur munu halda sína af- mælishátíð fyrir hádegi í dag en kl. 14 hefst hátíð fyrir fullorðna fólk- ið, sem hefst með ávarpi formanns skólanefndar. Sögu skólans verða gerð skil með stuttu ávarpi og gest- um gefst kostur á að skoða skólann og þau verkefni sem nemendur hafa verið að vinna að á þemadög- um. Þá verður einnig boðið upp á söngatriði og nemendur í 10. bekk og foreldrar þeirra sjá um kaffi- veitingar. Á sjálfan afmælisdaginn, mánu- daginn 7. október, verður opið hús fyrir þá sem vilja koma í heimsókn og nemendur ætla í skrúðgöngu að Útskálakirkju þar sem Sívertsens verður minnst og þaðan að þeim stað sem elsta skólahúsið stóð, þar sem áðurnefndur minnisvarði verð- ur afhjúpaður. Minnast 130 ára afmælis Gerðaskóla „Byggður af fríviljugum samskotum“ Garður Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Nemendur 10. bekkjar teiknuðu merki skólans og skáru út í tré. FORELDRUM barna í 10. bekk grunnskólanna í Reykjanesbæ stendur nú til boða án endurgjalds að sækja námskeiðið „Öflugt sjálfs- traust“, sem ætlað er að styrkja foreldra í uppeldishlutverkinu. Að því er fram kemur á vef Reykja- nesbæjar ríkir mikil ánægja meðal foreldra sem sótt hafa námskeiðið en það er unnið af sálfræðingunum Jóhanni Inga Gunnarssyni og Sæ- mundi Hafsteinssyni. Námskeiði er lokið í Heiðarskóla en stendur þessa vikuna yfir í Holtaskóla. Í næstu viku gefst for- eldrum barna í 10. bekk Myllu- bakkaskóla kostur á slíku nám- skeiði og vikuna þar á eftir í Njarðvíkurskóla. Reykjanesbær stefnir einnig að því að bjóða foreldrum barna í öðr- um bekkjum upp á námskeið af þessu tagi. Námskeiðin eru haldin mánudaga og miðvikudaga frá kl. 18 til 21 í viðkomandi skólum. Foreldrar ánægðir með uppeldis- námskeið Reykjanesbær FORRÁÐAMENN Fjölbrautaskóla Suðurnesja, FS, fengu Tómas Inga Olrich menntamálaráðherra í heim- sókn í byrjun vikunnar þar sem farið var rækilega yfir húsnæðismál skól- ans. Formaður byggingarnefndar FS, Hjálmar Árnason, sagði heim- sóknina hafa verið mjög árangurs- ríka og aukin bjartsýni væri á að ráð- ist yrði sem fyrst í framkvæmdir við 2.700 fermetra viðbyggingu í einum áfanga. Sagði Hjálmar vonir standa til að útboð gæti farið fram um ára- mót og byggingin yrði tekin í notkun ári síðar. Að sögn Hjálmars er ákvörðunar að vænta á næstunni af hálfu menntamálaráðuneytisins og fjár- málaráðuneytisins um þátttöku rík- isins í smíði viðbyggingarinnar. Í framhaldi af því er vonast eftir undir- skrift samnings við sveitarfélögin á Suðurnesjum þar sem fram á að fara svonefnt alútboð. Hjálmar sagði góða reynslu af slíku útboði síðast þegar byggt var við skólann. Byggingar- nefndin hefði útvegað lánsfé og síðan hefðu ríki og sveitarfélög greitt reikninginn á nokkrum árum. Bæði hönnun og framkvæmd hefði verið boðin út í einu. Sú viðbygging er svip- uð að stærð og nú stendur til að reisa. „Viðbygging hefur verið í undir- búningi um nokkurt skeið. Allar for- sendur eru til staðar um að ráðast í framkvæmdina. Með byggingunni yrði skólanum komið í það horf sem upphaflega átti að vera,“ sagði Hjálmar en skólinn hefur verið starf- andi í rúman aldarfjórðung. Starfsemi FS fer nú fram í um 8 þúsund fermetra húsnæði og sagði Hjálmar það vera löngu sprungið. Húsnæðismálin gerðu skólanum erf- itt um vik að þróa nýjar námsbrautir, ekki síst á sviði starfsmenntunar. Skólinn hefði m.a. náð samkomulagi við Flugleiðir og Flugþjónustuna að taka upp námsbrautir sem tengdust fluginu. Sömuleiðis væri sameigin- legt rými fyrir nemendur ekki til staðar. Fjölbrautaskóli Suðurnesja Bjartsýni eftir fund með ráðherra Suðurnes

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.