Morgunblaðið - 04.10.2002, Síða 24

Morgunblaðið - 04.10.2002, Síða 24
ERLENT 24 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í HÖFUÐSTÖÐVUM Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC) í Genf hafa menn tekið að gera áætlanir um hjálparstarf í Írak ef til þess kemur að þar brjótist út stríð. Francoise Krill, að- stoðaryfirmaður að- gerðasviðs ICRC, von- ast þó til að ekki komi til þess að hrinda þurfi þessum áætlunum í framkvæmd. Krill var hér á landi í vikunni en hún fundaði m.a. með starfsfólki Rauða krossins á Íslandi. Þá átti hún viðræður við Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra um málefni Palestínumanna, svo eitt- hvað sé nefnt, en hún segir mik- ilvægt að Rauði krossinn haldi uppi tengslum við ráðamenn í hinum ýmsu löndum, m.a. vegna þess að Rauði krossinn fari jafnan fram á fjárhagsaðstoð ríkja heims vegna verkefna í stríðshrjáðum löndum og þar sem hungursneyð eða hörm- ungar hafa leikið fólk grátt. ICRC stundar ekki aðeins hjálp- arstarf á herteknu svæðunum í Pal- estínu eða í Írak. Kynnti Krill m.a. fyrir Íslendingum ástandið á Kák- asus-svæðinu í Rússlandi en Rauði krossinn heldur úti starfsemi í Tsjetsjeníu eftir því sem aðstæður þar leyfa. Hún segir að vissulega hafi fréttamiðlar einkum áhuga á stöðu mála á stöðum sem þessum, en Rauði krossinn eyði hins vegar helmingi fjármuna sinna í hjálpar- starf í Afríku – fjarri vökulu auga fjöl- miðlanna. „Okkur ber skylda til að láta fjölmiðlaum- fjöllun ekki ráða gerð- um okkar. Við horfum fyrst og fremst til þess hvar aðstoðar er þörf, sama hvar í heiminum það kann að vera,“ segir hún. Hafa haft sendi- nefnd í Írak und- anfarin 20 ár Aðspurð um ástand- ið í Írak segir Krill að hún sé sjálf þeirrar trúar að ekki þurfi að koma til stríðsátaka. „Við höfum engu að síður gert áætlanir um aðgerðir, ef allt fer á versta veg. Sendinefnd á okkar vegum er þeg- ar í Írak, þar höfum við reyndar haft fólk sl. tuttugu ár. Fyrst vegna stríðsins á milli Íran og Íraks, síð- an Persaflóastríðsins en undanfar- in tólf ár höfum við reynt að hjálpa fólki að ráða við afleiðingar við- skiptaþvingana [Sameinuðu þjóð- anna].“ Segir Krill að aðgerðaáætlanir ICRC geri m.a. ráð fyrir að lyfja- birgðir sendinefndar Rauða kross- ins í Írak verði auknar enda megi gera ráð fyrir að sinna þurfi mörg- um særðum og slösuðum ef til átaka kemur. Þá er verið að bæta gagnasafn og tækjabúnað ef til þess kæmi að Rauði krossinn þyrfti að sinna stríðsföngum, eða Írökum sem hrektust frá heimilum sínum vegna átakanna. Krill vill þó ekki orða hlutina þannig að Rauði krossinn sé að búa sig undir stríð. „Sem mannúðar- samtök verðum við hins vegar að sýna ábyrgð, vera búin undir hið versta,“ segir hún. Krill segir ástandið í Írak býsna erfitt nú þegar vegna viðskipta- bannsins sem er í gildi á þarlend stjórnvöld. „Við værum ekki að eyða 20 milljónum svissneskra franka (rúmlega 1,1 milljarður ísl. kr.) þar á ári hverju í mannúðar- aðstoð ef svo væri ekki,“ segir hún og tekur sem dæmi mataraðstoð- ina, sem veita þarf Írökum. Ljóst sé hins vegar að þjáningar venju- legs fólks muni aukast enn frekar ef stríð brýst út. Það segi sig sjálft. Samstarf við stjórnvöld mikilvægt Krill er spurð að því hvort al- menningur í Írak meti það við er- indreka Rauða krossins að þeir skuli halda þar úti hjálparstarfi – jafnvel þó að þessir erindrekar séu e.t.v. sömu þjóðar og þau ríki sem gagnrýna Íraksstjórn. Hún svarar þessu játandi, kveðst telja að svo sé. „Þeir sáu aðrar hjálparstofnan- ir og samtök hverfa á brott eftir Persaflóastríðið. Við fórum hins vegar hvergi. Það skiptir sköpum, sannar hlutleysi okkar.“ Samstarfið við írösk stjórnvöld gengur þó ekki áreynslulaust – ekki frekar en samskipti við stjórn- völd annars staðar, að sögn Krill. Það sé hins vegar mikilvægt fyrir samtök eins og Rauða krossinn að geta átt gott samstarf við stjórn- völd. Þá sé lykilatriði að stjórnvöld treysti samtökunum og hlutleysi þeirra. „Verðum að vera bú- in undir hið versta“ Francoise Krill, að- stoðaryfirmaður að- gerðasviðs Alþjóða- ráðs Rauða krossins. Ljóskurn- ar lifa af ÝMSIR urðu án efa áhyggju- fullir er fjölmiðlar úti um allan heim sögðu fréttir um síðustu helgi af því að á næstu tveimur öldum myndi arfgerð ljóshærðs fólks hverfa úr mannkyninu. Þessi frétt, sem sögð var byggj- ast á niðurstöðum rannsóknar sem unnin hefði verið á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unarinnar, WHO, var í reynd hreinn uppspuni. Eftir því sem næst verður komizt átti fréttin upptök sín á brezkum netmiðlum og dag- blöðum. Jafnvel þungavigtar- miðlar eins og netfréttastofa BBC flutti fréttina af niður- stöðum meintra rannsókna þýzkra vísindamanna, sem í umboði WHO hefðu skoðað framtíð ljóshærðs fólks. Síðla sl. þriðjudags sendi WHO frá sér tilkynningu, þar sem sagt var, að þessi meinta rannsókn væri stofnuninni með öllu ókunn og óviðkomandi. Þetta var annars frétt af þeirri tegund, sem blaðamenn nenna almennt ekki að kafa of- an í kjölinn á til að ganga úr skugga um sannleiksgildi á, eft- ir því sem fullyrt er í umfjöllun um málið í danska blaðinu Berl- ingske Tidende. Flestar grein- arnar sem birtust um hina meintu þýzku erfðafræðirann- sókn vitnuðu þó einnig í raun- verulega erfðafræðinga sem gáfu lítið fyrir kenninguna um að ljóskur myndu deyja út. Þannig höfðu t.d. netfréttir BBC eftir Jonathan Rees, pró- fessor við háskólasjúkrahúsið í Edinborg, að gen eins og þau sem stýrðu því að fólk verður ljóshært hyrfu einfeldlega ekki úr genamengi mannsins. FJALLAHJÓLREIÐAMENN í Kaliforníu standa frammi fyrir erfiðri samviskuspurningu en yf- irvöld í ríkinu hafa nýverið lagt til að hömlur verði settar á ferðir þeirra um ósnert náttúrusvæði í ríkinu. Flestir eru þeir sammála því að vernda þurfi náttúruna fyr- ir aukinni ásókn almennings en þeir eru þó allt annað en sáttir við að fjallahjólreiðar séu skil- greindar sem hættulegar nátt- úrunni. „Ég er mikill stuðningsmaður þess að óspillt náttúra njóti verndar,“ segir Mike Melton, 35 ára rafvirki, sem kann hvergi bet- ur við sig en á fjallahjóli úti í sveit. „En af hverju að ráðast á fjallahjólreiðar? Við erum bara eins og allt annað fólk, sem ann því að vera úti í náttúrunni.“ Forsaga málsins er sú að stjórn- málaleiðtogar og umhverfisvernd- arsinnar settu það á oddinn í vor að láta lýsa u.þ.b. 2,5 milljóna ekra svæði í Kaliforníu verndaðan þjóðgarð, þar sem umferð öku- tækja yrði bönnuð og sömuleiðis allt skógarhögg og námugröftur. Tillagan, sem lögð var fram af Barböru Boxer, þingmanni öld- ungadeildarinnar, felur í sér að útivistarfólki fái áfram að fara í fjallgöngur eða gönguferðir en umferð fjallahjóla verður bönnuð nema á tilteknum slóðum og þau skilgreind sem ökutæki. Óttast gífurlega fólksfjölgun Talsverð umræða hefur farið fram um þetta mál vestra og er hún til marks um þau óvenjulegu álitamál, sem geta komið upp þegar menn hyggjast á þessum síðustu og verstu tímum stuðla að náttúruvernd. Segja ýmis um- hverfisverndarsamtök að lög- gjöfin nýja sé bráðnauðsynleg enda er því spáð að íbúum Kali- forníu fjölgi mikið á næstu ára- tugum. Ríkið er nú þegar hið fjöl- mennasta í Bandaríkjunum og því telja margir að huga þurfi sér- staklega að verndun ósnortinna náttúrusvæða. Er því haldið fram að stór land- svæði, sem áður voru ósnortin víðerni, hafi á undanförnum tveimur áratugum látið mjög á sjá vegna skógarhöggs og húsabygg- ingum, auk þess sem ásókn úti- vistarfólks hafi aukist verulega. „Þegar íbúarnir eru 34 millj- ónir og fjölgar stöðugt þá má færa fyrir því sterk rök að vernda þurfi víðernið,“ segir Jay Watson, talsmaður Wilderness-samtak- anna. „Við reyndum að koma til móts við fjallahjólreiðamenn á til- teknum stöðum en við verðum samt að halda þessu til streitu.“ Dekkin sögð skaða náttúruna Samið var um það við fjallahjól- reiðamenn á hvaða slóðum ætti að heimila þeim að stunda sína íþrótt. Fullyrða aðstoðarmenn Boxer að ekki sé verið að reyna að gera fjallahjólreiðafólki lífið leitt. Sumir umhverfisverndar- sinnar halda því engu að síður fram að dekk fjallahjóla séu svo breið að þau skaði ósnerta nátt- úru, auk þess sem margir fjalla- hjólreiðamenn beiti hjólum sínum með þeim hætti að það valdi skaða. Sumir hjólreiðamenn eru sam- mála náttúruverndarsinnum og hafa lýst sig tilbúna að fórna að- gangi sínum að meginhluta gönguslóðanna. Aðrir segja að um ofsóknir sé að ræða. Halda þeir því fram að vel hefði mátt hugsa sér aðrar aðferðir til að vernda náttúruna – menn hafi hins vegar valið þá einu sem felur í sér að fjallahjól verði bönnuð úti í óspilltri náttúrunni. „Vandamálið er að sumir virð- ast telja okkur fara um á vél- arlausu mótorhjóli,“ segir Gary Sprung, forsvarsmaður fjallahjól- reiðahóps í Kaliforníu, „á meðan staðreyndin er sú að við erum eins og puttaferðalangar á gúmmídekkjum.“ Fjallahjólreiða- menn ofsóttir í Kaliforníu? The Washington Post Mike Melton á fjallahjólinu sínu í skóglendi í Kaliforníu sem hann fengi ekki að fara um ef lög um verndun óspilltrar náttúru verða samþykkt. Sunland í Kaliforníu. The Washington Post. ’ Vandamálið er aðsumir virðast telja okkur fara um á vél- arlausu mótorhjóli. ‘ AP ÁTTA hús hrundu til grunna í borginni Aleppo í Sýrlandi í gær og þá um kvöldið var búið að finna lík 32 manna í rústunum. Óttast var, að um 40 manns væru grafnir undir þeim en tekist hafði að bjarga 22 mismikið slösuðum. Haft er eftir embættismönnum, að húsin hafi verið reist í óleyfi yfir gömlum hellum og undirstaðan ekki verið sem traustust. Var það haft eftir bæjarstjóranum, að jarðvegurinn undir þeim hefði skriðið af stað en það hafði ekki verið staðfest. Stórslys í Sýrlandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.