Morgunblaðið - 04.10.2002, Page 28

Morgunblaðið - 04.10.2002, Page 28
Sambíóin og Háskólabíó frumsýna Insomnia með Al Pacino, Robin Williams, Hilary Swank, Maura Tierney, Jonathan Jackson, Martin Donovan og Paul Dooley. ÞAÐ eru hvorki færri né fleiri en þrír Óskarsverðlaunahafar sem skartað er í sakamála- myndinni Insomnia, sem frum- sýnd verður í dag. Það eru Al Pacino, Hilary Swank og Robin Williams, sem nú í fyrsta skipti á löngum kvikmyndaferli leikur skúrk og óþokka. Insomnia er nýjasta kvikmyndin frá leik- stjóranum Christopher Nolan, sem síðast leikstýrði Memento. Al Pacino leikur Will Dormer, harðsnúinn lögreglumann frá Los Angeles sem fær það verkefni ásamt félaga sínum Hap að fara til smá- bæjar í Alaska þar sem sólin sest aldrei á sumrin, til að leysa úr óvenjulegu morðmáli og hafa hendur í hári afar snjalls raðmorðingja. Sautján ára stúlka hefur þar verið myrt á óhugnanlegan hátt. Þá Dorm- er og Hap grunar fljótt að morðing- inn sé hinn einræni skáldsagnahöf- undur Walter Finch (Robin Williams) og ákveða að veita honum eftirför. Þegar komið er í klettótta og þokukennda strönd missir Dorm- er sjónar af félaga sínum, sem hverf- ur í þokuna. Skothvellur heyrist og Hap er allur. Í kjölfarið þarf Dormer að stríða við ýmsar sálrænar tilfinn- ingar, sem snúast m.a. um ábyrgð- artilfinningu og samviskubit yfir fé- laga sínum og á meðan leikur kötturinn sér að músinni eða óþokk- inn sér að löggunni. Sér til fulltingis fær Dormer aðstoð frá lítt reyndri en næmri lögreglukonu, sem flækist samstundis inn í þann vef sem hinn grunaði morðingi er að spinna. George Clooney, Steven Soder- bergh, Paul Junger Witt og Ed McDonnell eru aðalframleiðendur myndarinnar og handritshöfundur er Hillary Seitz. Leikstjórinn Chris Nolan, sem fæddur er í Lundúnum og hóf sinn kvik- myndaferil sjö ára gamall með því að búa til myndir á 8mm tökuvél föður síns, segir að að- alleikarinn þurfi að kljást við áskoranir af ýmsu tagi. Fyrir utan erfiðan andstæðing og þá sálrænu leiki, sem hann kjósi að tefla fram, bjóði umhverfið í norðri honum að sama skapi birginn með birtu alla daga og allar nætur með tilheyrandi svefnleysi og sálrænum trufl- unum. Þess má að lokum geta að Insomnia var upphaflega norsk kvik- mynd, sem frumsýnd var árið 1997. Upp frá því ákváðu bandarískir framleiðendur að gera úr henni Hollywood-útgáfu. Leikarar: Al Pacino (Scent of a Woman, Any Given Sunday, And Justice for All); Robin Williams (Good Will Hunting, Mrs. Doubtfire, Toys); Hilary Swank (Boys Don’t Cry, Affair of the Necklace, The Gift); Maura Tierney (Instinct, Liar Liar, Primary Colors); Jonathan Jackson (Deep End of the Ocean, The Prisoner); Martin Donovan (Portrait of a Lady, Liv- ing Out Loud); Paul Dooley (The Pract- ice, A Perfect Couple). Leikstjóri: Christopher Nolan. Will Dormer (Al Pacino) grunar að Walter Finch (Robin Williams) sé morðinginn. Hendur í hári raðmorðingja LISTIR 28 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ GAMANMYNDIN Orange County fjallar um Shaun Brumder, sem leik- inn er af Colin Hanks, syni Tom Hanks. Hann er menntskælingur sem æstur er í að komast sem lengst frá brimbrettaaulum og búgörðum appelsínusýslunnar sem hann býr í. Hann hefur fyrir löngu einsett sér að stunda nám við hinn virta Stan- ford-háskóla, allt frá því að hann las verk prófessors Marcusar Skinner, enda er árangur hans úr mennta- skóla alveg nógu góður til að fleyta honum inn í þennan virta háskóla og vel það. Það kemur því Shaun eðli- lega sem þruma úr heiðskíru lofti þegar honum berst höfnunarbréf frá Stanford, enda bregst hann ókvæða við og hefur rannsókn á málinu. Fljótlega kemst hann að því að hið annars hugar starfslið menntaskól- ans hafði í misgáningi sent háskól- anum upplýsingar um rangan nem- anda og eru nú góð ráð dýr. Shaun hefur nú aðeins sólarhring til að koma réttum upplýsingum til skila og með hjálp kærustunnar sinnar, Ashley, og iðjuleysingjans og vit- leysingsins bróður síns, Lance, legg- ur hann af stað til Stanford-háskóla staðráðinn í að komast þar að með öllum tiltækum ráðum. Aðalleikar- inn Colin Hanks kom fyrst fram á hvíta tjaldinu í mynd föður síns That Thing You Do árið 1996 og er hér í fyrsta sinn í aðalhlutverki. Hann var tilnefndur til MTV-kvikmyndaverð- launanna árið 2002 fyrir óvæntustu frammistöðu karlleikara á árinu. Kærustuna Ashley leikur svo Schuyler Fisk, sem er dóttir leik- konunnar Sissy Spacek. Leikstjóri myndarinnar er hinn ungi Jake Kasdan, sem gerði m.a. Zero Effect. Faðir hans er leikstjór- inn, framleiðandinn og handritshöf- undurinn Lawrence Kasdan, en eftir hann liggja myndir á borð við The Accidental Tourist, Body Heat og The Big Chill auk handrita að ekki ómerkari myndun en Star Wars, The Empire Strikes Back, Return of the Jedi og The Raiders of the Lost Ark. Kasdan yngri og handritshöf- undur Orange County, Mike White, hafa m.a. getið sér gott orð í banda- rísku sjónvarpi fyrir hina óhefð- bundnu gamanþætti Freaks and Geeks sem þeir hafa unnið að í sam- einingu á síðustu misserum. Leikarar: Colin Hanks (Get Over It, Whatever it Takes, That Thing You Do); Jack Black (High Fidelity, Shallow Hal); Catherine O’Hara (Beetlejuice, Home Alone); John Lithgow (Cliffhanger, Shrek); Schuyler Fisk (Snow Day, Skeletons in the Closet, My Friend Joe); Kevin Kline (A Fish Called Wanda, Dave). Leikstjóri: Jake Kasdan. Colin Hanks og Schuyler Fisk leika ungt par í Orange County. Staðráðinn í að feta menntaveginn Laugarásbíó frumsýnir Orange County með Colin Hanks, Jack Black, Catherine O’Hara, John Lithgow, Schuyler Fisk og Kevin Kline. koma í ljós hvort aðalsöguhetjan myndi drepa besta vin sinn fyrir þjóð- ina. Hér er á ferðinni spennumynd í leikstjórn Johns Woo, sem síðast leik- stýrði Tom Cruise í Misson: Imposs- ible 2, en hann hefur auk þess komið að leikstjórn fjölda annarra kvik- mynda. Nefna má Broken Arrow með John Travolta og Christian Slater og Face/Off með John Travolta og Nicol- as Cage. Woo, sem er fæddur árið 1946 og er af kínversku bergi brotinn, STRÍÐSMYNDIN Windtalkers, sem frumsýnd verður í dag, er byggð á sannsögulegum atburðum úr seinni heimsstyrjöldinni, en þá notuðu Bandaríkjamenn svokallað Navajo- dulmál sem engar aðrar þjóðir heims kunnu að ráða í. Af þeim sökum þurfti að passa sérlega vel upp á það að sá sem kunni dulmálið myndi ekki falla lifandi í óvinahendur. Til að tryggja það var ávallt einn hermaður látinn fylgja hverjum og einum Navajo-hermanni og var hon- um skylt að skjóta hann næðu óvin- irnir til hans. Myndin fjallar einmitt um tvo slíka hermenn, Ben Yahzee, sem leikinn er af Adam Beach, og Joe Enders, sem leikinn er af Óskars- verðlaunahafanum Nicolas Cage. Þeir lenda í heljarinnar vandræðum á bak við óvinalínur. Það á svo eftir að hóf sinn kvikmyndaferil í heimaland- inu við góðan orðstír en er þekktur fyrir að nota fugla sem tákn í mynd- um sínum. Alison Rosenzweig, sem ásamt Tracie Graham, John Woo og Ter- ence Chang framleiddi myndina, seg- ist hafa orðið uppnumin af hugmynd- inni um að gera bíómynd um efnið um leið og bróðir hennar, sem er fyrrum stríðsmaður, sagði henni frá leyndar- málinu um Navajo-dulmálið fyrir um tíu árum síðan. Woo hefði frá upphafi verið kjörinn til að leikstýra myndinni þar sem hann hafi meðal annars átt að baki frábærar myndir sem fjölluðu um vináttu karlmanna. Handritið skrifuðu þeir John Rice og Joe Batt- eer. Dulmálið er talið hafa átt stóran þátt í að Bandaríkjamenn unnu stríð- ið við Japani, en eftir að Japönum tókst í sífellu að brjóta á bak fjarskipti Bandaríkjamanna, brugðu þeir á það ráð árið 1942 að þjálfa sína menn í Navajo-dulmálinu, sem byggt var á þeirra eigin móðurmáli. Leikarar: Nicolas Cage (8MM, Bringing Out the Dead); Adam Beach (Mystery, Alaska, Joe Dirt); Christian Slater (True Romance, Broken Arrow); Peter Storm- are (Dancer in the Dark, Armageddon); Noah Emmerich (The Truman Show, Beautiful Girls); Mark Ruffalo (You Can Count on Me, Ride with the Devil); Brian Van Holt (Black Hawk Down, Basic). Leikstjóri: John Woo. Stríðsmyndin Windtalkers er byggð á sannsögulegum atburð- um úr seinni heimsstyrjöldinni. Vináttan fram yfir þjóðarhag Smárabíó, Regnboginn og Borgarbíó á Akureyri frumsýna Windtalkers með Nicolas Cage, Adam Beach, Christian Slater, Peter Stormare, Noah Emme- rich, Mark Ruffalo, Brian Van Holt og Martin Henderson. DAGANA 4. og 5. október stend- ur Rannsóknastofa í kvennafræð- um fyrir ráðstefnu um kvenna- og kynjarannsóknir. Rætt verður um kvikmyndir og kyngervi, of- beldi, kvenfrelsishugmyndir 19. aldar, líkamann, lífsýni, konur í listum, ævisögur, heilsu kvenna, vinnu og velferðarkerfið, svo fátt eitt sé nefnt. Það er rannsóknarstofa í kvennafræðum sem stendur fyrir ráðstefnunni og er þetta í þriðja sinn sem slík ráðstefna er haldin við Háskóla Íslands. Að sögn Erlu Huldu Halldórsdóttur, eins skipu- leggjenda, hefur undirbúningur staðið í rúmt ár, og en um 60 fræðimenn taka þátt í ráðstefn- unni sem skiptist í tólf málstofur. Þar koma saman íslenskir og er- lendirfræðimenn af ólíkum fræði- sviðum og kynna nýjar og eldri rannsóknir er tengjast kvenna- og kynjafræðilegu sjónhorni á einhvern hátt. „Á ráðstefnunni mun fræðimönnum gefast tæki- færi til að bera saman bækur sín- ar, auk þess sem almenningur getur kynnst þeim mörgu spenn- andi rannsóknum sem verið er að vinna á þessu sviði,“ segir Erla Hulda. Ráðstefnan verður sett í hátíð- arsal aðalbyggingar Háskóla Ís- lands kl. 14 í dag, föstudaginn 4. október. Þar mun Rosi Braidotti, heimskunnur heimspekingur og prófessor við Utrecht-háskóla í Hollandi, flytja fyrirlestur um hnattvæðingu og kyn en að fyr- irlestrinum loknum verða pall- borðsumræður. Málstofur ráðstefnunnar verða haldnar í Odda, Háskóla Íslands, og verða þær þrjár fyrstu síðdeg- is á föstudaginn milli kl. 16.30 og 18. Þar á meðal verður málstofa um kvikmyndir og kyngervi en þar flytur erindi Anneke Smelik kvikmyndafræðingur sem er heiðursgestur ráðstefnunnar ásamt Rosi Braidotti. Dagskrá ráðstefnunnar hefst að nýju kl. 9 að morgni laugardags og standa málstofur til kl. 15.15. Lýkur dagskránni í stofu 101 í Odda þar sem Helga Kress prófessor mun flytja fyrirlesturinn Hlátur Hall- gerðar. Þess má geta að dagskrá ráð- stefnunnar og útdrættir erinda eru á heimasíðu Rannsóknastofu í kvennafræðum www.hi.is/stofn/ fem. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og öllum heimill. Þing um kvenna- og kynjarannsóknir Fræði úr ólíkum áttum Morgunblaðið/Þorkell Rosi Braidotti og Anneke Smelik eru komnar hingað til lands til að taka þátt í ráðstefnu um kvenna- og kynjarannsóknir í Háskóla Íslands, en báðar eru þær virtir fræðimenn á sínu sviði. Ráðstefnan hefst í dag með fyrirlestri Braidotti í hátíðarsal háskólans kl. 14. UM helgina verða tveir nýir söngv- arar í hlutverki tónlistarkennarans Don Basilios í sýningu Íslensku óp- erunnar á Rakaranum í Sevilla eftir Rossini. Upphaflega átti Viðar Gunn- arsson að syngja í báðum sýningum helgarinnar, en hann kemst ekki heim til Íslands í tæka tíð fyrir sýn- inguna í kvöld og því er það Jóhann Sigurðarson sem syngur hlutverk tónlistarkennar- ans, en Jóhann mun einnig syngja í sýningum í lok október og byrjun nóvember. Viðar mun hins vegar syngja hlutverkið frá og með morg- undeginum og til 20. október, og svo aftur helgina 8. til 10. nóvember. „Ég er búinn að syngja þetta hlut- verk ansi oft,“ segir Viðar, „bæði á ítölsku og þýsku. Það er mikill munur þar á – ítalskan er mun þjálli. Hjá Rossini gengur músíkin oft mjög hratt fyrir sig, og maður þarf að syngja mörg orð á stuttum tíma; og þá er nú ítalskan betri. Fyrir mér er Don Basilio óttaleg sleikja. Hann þarf að koma sér vel við alla. Til að hann fái vinnu, þarf hann að koma sér vel við báða keppinaut- ana um ástir Rosinu. Hann hjálpar öllum, bara ef hann fær greitt fyrir – hann er gírugur, en það er gaman að fást við þannig karakter.“ Jóhann Sigurðarson er leikari, en færri vita kannski að hann á að baki söngnám, bæði hér heima og á Ítalíu. „Ég lærði í fimm, sex vetur hjá Sig- urði Demetz í gamla daga og var svo hjá Kristni Sigmundssyni í tvo vetur. Ég var í Nýja Tónlistarskólanum hjá Ragnari heitnum Björnssyni, og var bæði í tónfræði- greinum og tón- listarsögu og öðru því sem tónlistar- náminu fylgir. Síðan hef ég alltaf verið í söngtímum annað slagið, og fór svo loks til Ítalíu fyrir tveim- ur árum og var í einn vetur. Ég er því búinn að vera með annan fótinn í söngnum lengi. Auk þess hef ég mikið verið að syngja í söngleikjum í leikhúsinu. Í mínum augum er Don Basilio svolítið fúl- menni – hann leggur á ráðin fyrir dr. Bartolo og er undirförull gaur. Það er aldrei að vita með löngun hans til Ros- inu – það er alveg flötur á því.“ Jóhann er alinn upp í tónlistarfjöl- skyldu, móðir hans er tónlistarkenn- ari og bróðir hans píanóleikari. Hann segir tónlistina því alltaf hafa verið ríkjandi í sínu uppeldi. „Mér finnst óperan magnað form og þar finnur maður skemmtilegar gamanóperur eins og þessa og líka hádramatískt efni. Ég held ég væri alveg til í að prófa þetta oftar.“ Viðar og Jóhann syngja Don Basilio Viðar Gunnarsson Jóhann Sigurðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.