Morgunblaðið - 04.10.2002, Page 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 37
Á UNDANFÖRNUM átta árum
hefur verið unnið mikið frumkvöðla-
starf í jafnréttismálum á vettvangi
Reykjavíkurborgar. Allar borgar-
stofnanir gera nú starfsáætlanir í
jafnréttismálum og ýmsir þættir
borgarrekstursins hafa verið skoðað-
ir með tilliti til kynjasamþættingar. Á
árinu 1997 ákvað t.d. stjórn Veitu-
stofnana, sem lið í nýrri jafnrétt-
isáætlun Vatnsveitu Reykjavíkur, að
stofna til árlegrar styrkveitingar til
kvenna í verk- og tæknifræðigrein-
um. Tilgangurinn var að stuðla að
breyttu námsvali kvenna í ljósi lang-
tímamarkmiða um að jafna kynja-
skiptingu í störfum sérfræðinga og
stjórnenda hjá Vatnsveitu Reykjavík-
ur. Við sameiningu veitustofnana
ákvað síðan Orkuveita Reykjavíkur
að halda áfram að styrkja konur til
náms í sömu greinum og hafa styrk-
irnir því verið veittir í nafni Orkuveit-
unnar frá árinu 2000.
Okkar lóð á vogarskálarnar
Eflaust geta verið uppi ýmsar
skoðanir um aðgerðir af þessu tagi en
Orkuveita Reykjavíkur vill gjarnan
leggja sitt af mörkum til að fram-
fylgja lagaákvæðum sem leggja at-
vinnurekendum þær skyldur á herðar
að stuðla að því að störf flokkist ekki í
sérstök kvennastörf eða karlastörf.
Þá kveður jafnréttisáætlun Reykja-
víkurborgar á um að fjölga beri kon-
um í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum
hjá Reykjavíkurborg. Til að Orku-
veitan, þar sem karlar eru í miklum
meirihluta í stjórnunar- og sérfræði-
störfum, geti náð þessu markmiði er
það mat stjórnarinnar að nauðsynlegt
sé að konur sæki í auknum mæli í
nám á tækni- og verkfræðisviði. Við
viljum því leggja okkar lóð á vogar-
skálarnar og úthlutum í dag styrkjum
til kvenna í verk- og tækninámi.
Styrkirnir eru nú veittir í sjötta
sinn og hafa alls 14 konur hlotið þá frá
upphafi. Það er athyglisvert að skoða
hlutfall kvenna í verkfræðideild Há-
skóla Íslands frá því byrjað var að
veita styrkina árið 1997. Þá var hlut-
fall kvenna 14,3% en núna árið 2002
er hlutfall kvenna í verkfræðideild
komið upp í 26% sem er um 82%
aukning. Frá árinu 2000 hefur Há-
skóli Íslands einnig staðið fyrir sér-
stöku átaki um breytt námsval
kynjanna og hefur það auðvitað beint
kastljósinu í miklum mæli að hlut
kvenna innan verkfræðideildar.
Orkuveitan hefur tekið þátt í þessu
átaki frá upphafi og er stolt af því að
geta sem eitt af fyrirtækjum borgar-
innar lagt sitt af mörkum í jafnrétt-
ismálum.
Áframhaldandi starf
Um nokkurt skeið hefur staðið yfir
endurskoðun jafnréttisáætlunar
Reykjavíkurborgar sem sett var fram
árið 1996. Þar voru sett fram mörg
metnaðarfull markmið sem sum eru í
höfn en önnur í vinnslu, eins og geng-
ur. Það er ákaflega mikilvægt að stöð-
ugt séu í gangi markvissar aðgerðir í
jafnréttismálum og gleymum því
heldur ekki að þar sem konur komast
til valda og hafa skýra feminíska
framtíðarsýn er hægt að ná góðum
árangri. Að undanförnu hefur gætt
nokkurrar stöðnunar í almennri um-
ræðu um jafnréttismál. Ýmsir hafa
haldið því fram að útvíkka þurfi jafn-
réttishugtakið og skilgreina það víðar
en gert hefur verið. Með því er átt við
að lögð verði áhersla á jafnrétti allra
án tillits til kyns, trúar, litarháttar,
stöðu eða stéttar. Hér er um ákaflega
spennandi hugmyndir að ræða sem
þó eiga eftir að þroskast og þróast í
umræðunni. Reykjavíkurborg mun á
næstunni halda áfram á þeirri braut
sem mörkuð hefur verið í núgildandi
jafnréttisáætlun og þar mun Orku-
veita Reykjavíkur leggja sitt af mörk-
um. Jafnframt tel ég afar mikilvægt
að fram fari fræðandi og markviss
umræða um nýjar jafnréttisáherslur,
sem vonandi skilar okkur auknum
lífsgæðum og betra mannlífi.
Kvennastyrkir Orku-
veitu Reykjavíkur
Eftir Steinunni Valdísi
Óskarsdóttur
„Atvinnurek-
endum eru
lagðar þær
skyldur á
herðar að
stuðla að því að störf
flokkist ekki í sérstök
kvennastörf eða karla-
störf.“
Höfundur er borgarfulltrúi í stjórn
Orkuveitu Reykjavíkur.
Í RÖKRÆÐU forystumanna
stjórnmálaflokkanna í Kastljósinu á
dögunum gerði Össur Skarphéðins-
son stefnu Sambands ungra sjálf-
stæðismanna að umtalsefni. Vil ég
þakka Össuri fyrir áhugann á okkar
stefnumótun. Hann hefði hins vegar
gott af því að kynna sér stefnumálin
ögn betur, svo hann geti útskýrt þau
af meiri nákvæmni næst þegar hann
kemur fram.
Af máli formanns Samfylkingar-
innar mátti ætla að ungir sjálfstæð-
ismenn vildu einkavæða heilbrigðis-
kerfið og legðu til að ríkisvaldið kæmi
ekki frekar að málaflokknum. Það er
hins vegar ekki rétt. Á nýlegu mál-
efnaþingi SUS ályktuðu ungir sjálf-
stæðismenn um að fjármögnun og
rekstur í heilbrigðiskerfinu verði að-
skilin. Fjarmögnunin komi áfram frá
hinu opinbera, en það dragi sig úr
rekstrinum hvar sem færi gefst og
einkaaðilum hleypt að.
Með þessu móti teljum við að þeir
miklu fjármunir sem varið er til heil-
brigðisþjónustunnar nýtist betur, því
einkareksturinn er jafnan hagkvæm-
ari en opinber rekstur og skilar betri
þjónustu. Tillögur ungra sjálfstæðis-
manna snúast því fyrst og fremst um
að heilbrigðiskerfið njóti kosta einka-
framtaksins, ekki um að aðgengi al-
mennings að þjónustunni minnki.
Þetta taldi Össur óþarft að nefna.
Í raun á ekki að þurfa að hafa mörg
orð um yfirburði einkaframtaksins
gagnvart opinberri skipulagningu.
Þessir yfirburðir eru almennt þekktir
og viðurkenndir. Jafnvel Samfylking-
in lætur venjulega eins og hún sé
hlynnt einkaframtakinu. Það gerir
hún hins vegar ekki í þessu máli. Og
færir ekki fram rök, heldur lætur
hræðsluáróðurinn duga. Það vekur
óneitanlega spurningar um hve djúpt
yfirlýstur stuðningur Samfylkingar-
innar við einkarekstur og markaðs-
hagkerfið ristir. Þarna glittir í hið
rétta andlit Samfylkingarinnar,
stjórnmálaafls sem rígheldur í allar
gömlu vinstrikreddurnar, þótt öðru
sé ævinlega haldið fram.
Hið rétta
andlit Samfylk-
ingarinnar
Eftir Ingva Hrafn
Óskarsson
Höfundur er formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna.
„Málflutn-
ingur Öss-
urar vekur
spurningar
um hve djúpt
yfirlýstur stuðningur
Samfylkingarinnar við
einkarekstur og mark-
aðshagkerfið ristir.“