Morgunblaðið - 04.10.2002, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
SAMGÖNGURÁÐHERRA, Sturla
Böðvarsson, hefur að tillögu Rann-
sóknarnefndar flugslysa, RNF,
ákveðið að skipa sérstaka rannsókn-
arnefnd innlendra og erlendra sér-
fræðinga til að rannsaka orsakir
flugslyssins er varð í Skerjafirði 7.
ágúst árið 2000. RNF hefur jafn-
framt ákveðið að víkja sæti við með-
ferð þessa máls, „svo enginn vafi
leiki á hlutleysi rannsóknarinnar“,
eins og segir í tilkynningu sem sam-
gönguráðuneytið sendi frá sér í gær.
Hyggst ráðherra kynna skipun
nefndarinnar á næstunni.
Samgönguráðherra fékk sl. mánu-
dag í hendur skýrslu bresku sér-
fræðinganna en í henni kom fram
gagnrýni á ýmis atriði rannsóknar-
innar. Aðstandendurnir fóru fram á
það við ráðherra að ný rannsókn færi
fram.
Samgönguráðherra sendi skýrsl-
una til umsagnar RNF og Flugmála-
stjórnar. Barst ráðherra umsögn
RNF í gær. Þar fer nefndin þess á
leit við ráðherra að skipuð verði sér-
stök rannsóknarnefnd, innlendra og
erlendra sérfræðinga, sem falið
verði að skila sem fyrst mati á nið-
urstöðu í skýrslu RNF um flugslysið
og eftir atvikum koma fram með aðr-
ar mögulegar skýringar á slysinu,
svo og viðbótarábendingar í öryggis-
átt.
Nefndinni stýrt
af innlendum aðila
Sturla Böðvarsson segist taka fullt
tillit til ábendinga Bretanna en hann
vildi ekki á þessu stigi tjá sig um ein-
staka þætti í skýrslu þeirra. Full
ástæða hefði hins vegar verið til að
skipa rannsóknarnefnd.
Að sögn Sturlu koma fimm menn
til með að skipa þessa rannsóknar-
nefnd og er reiknað með að innlend-
ur aðili stýri henni.
Aðspurður hvaða ábendingar
Bretanna væru helstar sem taka
þyrfti tillit til sagði Sturla að vakið
hefðu sérstaka athygli þau atriði
sem sneru að mótor vélarinnar sem
fórst. Skoða þyrfti það mál nánar.
„Miklu skiptir að komast til botns í
þessu máli þannig að ekki verði frek-
ari deilur um það. Við þurfum að
sjálfsögðu að taka tillit til þess að
vinna nefndarinnar getur orðið um-
fangsmikil og muni kosta nokkra
fjármuni. Leitað verður leiða til að
standa undir þeim kostnaði,“ sagði
Sturla.
Fram kom í máli ráðherra að von
væri á breytingum á lögum um RNF
í kjölfar úttektar Alþjóðaflugmála-
stofnunarinnar (ICAO) sl. vor á
starfsemi nefndarinnar og Flug-
málastjórnar. ICAO hefði skilað
ráðuneytinu ýmsum tillögum að úr-
bótum á sviði flugmála hér á landi.
Minnti Sturla jafnframt á að strax
eftir rannsókn á flugslysinu hefði
verið brugðist við athugasemdum
RNF og ábendingum ICAO. Loft-
ferðalögum hefði verið breytt og
reglur Flugöryggissamtaka Evrópu,
JAA, tekið gildi um kröfur á hendur
minni flugfélögum.
Í greinargerð Rannsóknarnefndar
flugslysa kemur fram gagnrýni á
skýrslu Bretanna. Segir þar að mat
Bretanna sé í veigamiklum atriðum
vafasamt og styðjist oft ekki við fyr-
irliggjandi gögn eða staðreyndir eða
sé jafnvel byggt á misskilningi. Því
miður verði umsagnir þeirra og til-
lögur því ekki á rökum reistar.
Viðbrögð samgönguráðherra vegna breskrar skýrslu um flugslysið í Skerjafirði
Ný rannsókn-
arnefnd skipuð
Mat Bretanna/11
BLEIKUR litur leikur nú um
Perluna í Reykjavík eftir að
skyggja tekur. Tilefnið er ár-
veknisátak um brjóstakrabbamein
og verða næstu daga seldir trefl-
ar til stuðnings verkefninu. Það
var Vigdís Finnbogadóttir, vernd-
ari Krabbameinsfélags Íslands,
sem kveikti á lýsingunni um
kvöldmatarleytið í gær.
Átakið mun standa allan mán-
uðinn en Perlan verður bleik
fram á sunnudag, lýst upp með
48 ljóskösturum til viðbótar þeim
sem fyrir eru og voru settar
bleikar filmur á alla kastarana.
Með þessum hætti verður vakin
athygli á átakinu víða um heim
og verða mannvirki í fjölmörgum
borgum lýst upp, m.a. Empire
State-byggingin í New York.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skuggar
í bleikri
birtu
LANDSPÍTALINN fær 1.200 millj-
ónir króna í frumvarpi til fjárauka-
laga sem lagt var fram á Alþingi í
gær. Fjárveitingin er til að mæta
uppsöfnuðum halla á rekstri spítal-
ans, en um mitt þetta ár var áætlað
að hann yrði 1.144 milljónir. Inni í
þessari tölu er 306 milljóna króna
halli vegna svonefndra S-merktra
lyfja. Alls er gert ráð fyrir að út-
gjöld heilbrigðisráðuneytisins á yf-
irstandandi ári aukist um nærri þrjá
milljarða króna frá fjárlögum vegna
hallareksturs sjúkrastofnana og
sjúkratrygginga.
Áætlað er að hagræðingaraðgerð-
ir innan Landspítalans á síðari hluta
árs muni skila 86 milljónum og
rekstrarhalli ársins verði því um
1.058 milljónir. Þá er óskað eftir 90
milljóna króna fjárveitingu til
greiðslu á uppsöfnuðum frítökurétti
lækna á sjúkrahúsinu til ársloka
2001. Frítökurétturinn fram að þeim
tíma nemur alls 441 milljón króna og
samkvæmt bókun í kjarasamningi
milli Læknafélags Íslands og fjár-
málaráðherra frá 2. júlí sl. eiga þeir
sem hlut eiga að máli rétt á því að fá
greiddan sem nemur þriðjungi við-
urkennds réttar eða 147 milljónir.
Í frumvarpinu er gerð tillaga um
að Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
fái 108 milljónir til viðbótar, St. Jós-
efsspítali 24,5 milljónir og Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja 28,5
milljónir.
Lyfjaútgjöld aukast mikið
Í frumvarpinu kemur fram að út-
gjöld vegna lyfja hafa aukist mikið á
árinu og er lagt til að fjárveitingar
til að mæta þeim verði auknar um
677 milljónir.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að út-
gjöld félagsmálaráðuneytisins auk-
ist um 1,4 milljarða. 513,4 milljarðar
eiga að fara til Jöfnunarsjóðs sveit-
arfélaga, 500 milljónir til Atvinnu-
leysistryggingasjóðs vegna aukins
atvinnuleysis og 300 milljónir til
Ábyrgðasjóðs launa.
Alls er gert ráð fyrir að útgjöld
ríkissjóðs hækki um 7,3 milljarða
króna á þessu ári frá fjárlögum og
tekjur um 5,7 milljarða. Tekjuskatt-
ar einstaklinga skila tæplega fjög-
urra milljarða króna meiri tekjum
en áætlað var og tekjuskattur fyr-
irtækja er talinn verða einum millj-
arði hærri en á fjárlögum.
Frumvarp til fjáraukalaga lagt fram á Alþingi
Landspítali fær 1.200
milljónir til viðbótar
Tekjur hækka/6
EKIÐ var á ellefu ára stúlku á
gatnamótum Bæjarbrautar og Hofs-
staðabrautar í Garðabæ um sjöleytið
í gærkvöldi. Stúlkan var flutt á slysa-
deild Landspítala – háskólasjúkra-
húss í Reykjavík, en hún slasaðist í
andliti, að sögn lögreglunnar í Hafn-
arfirði.
Ekið á barn
♦ ♦ ♦
LANDSBANKI Íslands og Ís-
landsbanki standa sameiginlega að
lánveitingu til Columbia Ventures
Corporation, móðurfélags Norður-
áls. Samningurinn um sambanka-
lánið, sem er til fimm ára, hljóðar
upp á allt að fimmtíu milljónir
Bandaríkjadala eða jafngildi um
4,3 milljarða íslenskra króna.
Gerir fjárfestingu hér á landi
og erlendis mögulega
Kenneth Peterson, eigandi Col-
umbia Ventures Corporation, hef-
ur stofnað eignarhaldsfélag hér á
landi, Iceland Holdings, en það
mun halda utan um fjárfestingar
Columbia Ventures Corporation
utan Bandaríkjanna. Peterson seg-
ir að sambankalán íslensku bank-
anna muni gera Columbia Vent-
ures kleift að fjárfesta bæði hér á
landi, þar sem aðstæður fyrir at-
vinnulífið séu góðar, svo og erlend-
is. Peterson er þegar með nokkur
fjárfestingarverkefni í undirbún-
ingi, s.s. fjárfestingu í sæstreng
fyrir fjarskipti á milli Evrópu og
Norður-Ameríku. Samkomulag um
kaup á strengnum og öðrum
tækjabúnaði hefur þegar tekist en
það er hins vegar háð samþykki
gjaldþrotadómstóls í Ameríku.
Þá segir Peterson að áfram
verði kannaðir möguleikar á fjár-
festingum á íslenskum fjarskipta-
markaði.
Veita allt
að 4,3 millj-
arða sam-
bankalán
Jákvætt umhverfi/20
Landsbanki, Íslands-
banki og Columbia
Ventures Corporation
TALSVERÐ skjálftavirkni
hefur verið í Mýrdalsjökli und-
anfarið líkt og venja er á þess-
um árstíma.
Skjálftarnir hafa farið upp í
2,5 á Richter, að sögn Stein-
unnar Jakobsdóttur jarð-
skjálftafræðings.
Steinunn segir skjálftana
vera um tuttugu á sólarhring.
Talið er að virknin sé vegna
minna fargs á jöklinum. Jök-
ullinn bráðnar yfir sumarið,
meira vatn er í kerfinu og því
er talið að jarðskjálftavirknin
sé mest á tímabilinu frá
júlílokum til nóvember. Stein-
unn segir virknina ekki neitt
til að hafa áhyggjur af, að
minnsta kosti ekki enn sem
komið er.
Skjálfta-
virkni
í Mýr-
dalsjökli