Morgunblaðið - 10.10.2002, Page 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 55
ORKUVEITA Reykjavíkur veitti ný-
lega námsstyrki til kvenna sem
stunda verkfræði- eða tækninám,
sjötta árið í röð. Styrkupphæðin
nemur 450.000 kr. og fór afhending
fram í Ráðhúsi Reykjavíkur. Að
þessu sinni hlutu Ólöf Kristjáns-
dóttir og Brynja Baldursdóttir
styrki.
Styrkveitingarnar eru liður í jafn-
réttisáætlun Orkuveitunnar. Er
stofnað til þeirra í þeim tilgangi að
stuðla að aukinni sókn kvenna í nám
í tækni- og verkfræðigreinum. Eitt
markmiða jafnréttisáætlunar Orku-
veitunnar er að jafna hlut kynja í
sérfræði- og stjórnunarstörfum og
til að það markmið geti náðst er
nauðsynlegt að framboð á konum
með þá sérhæfðu menntun sem nýt-
ist Orkuveitunni aukist.
Dómnefnd skipuðu Steinunn Val-
dís Óskarsdóttir, Þorbjörg Vigfús-
dóttir og Hildur Jónsdóttir og völdu
þær styrkþega úr hópi 35 umsækj-
enda.
Orkuveita Reykja-
víkur veitir styrki
Morgunblaðið/Jim Smart
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, varamaður í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur,
Rósa Erlingsdóttir, jafnréttisfulltrúi Háskóla Íslands, Ólöf Kristjánsdóttir
styrkhafi, foreldrar Brynju Baldursóttur styrkhafa, Eva Benediktsdóttir
og Baldur Sigurðsson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, stjórnarmaður í
stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, Ingibjörg Sólrún Jónsdóttir borgarstjóri
og Hildur Jónsdóttir, jafnréttisráðgjafi Reykjavíkurborgar.
AÐALFUNDUR kjördæmisráðs
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs í Norðausturkjördæmi
verður haldinn á Hótel Héraði, Eg-
ilsstöðum, laugardaginn 12. október
kl. 17. Auk hefðbundinna aðalfund-
arstarfa munu þingmenn kjördæm-
isins, þau Steingrímur J. Sigfússon,
Þuríður Backman og Árni Steinar
Jóhannsson, halda erindi um barátt-
una framundan. Pallborðsumræður
verða með fulltrúum flokksins í
sveitarstjórnum á Norður- og Aust-
urlandi um stöðu mála í dag. Þá
verður á fundinum farið yfir hvernig
haga skuli uppstillingu á lista fyrir
komandi alþingiskosningar.
Aðalfundur VG
í Norðurlands-
kjördæmi
ALÞJÓÐLEGA þýskuprófið Test-
DaF verður haldið í Tungumálamið-
stöð Háskóla Íslands í nóvember.
Prófið er ætlað þeim, sem ætla að
fara í nám í Þýskalandi. Prófgjaldið
er ÍKR. 8.000. Nánari upplýsingar er
að finna undir www.testdaf.de.
Umsóknir eiga að berast ekki síð-
ar en 23. október. Umsjón með próf-
um við HÍ hefur Peter Weiss í
Tungumálamiðstöð HÍ, weiss@hi.is.
Alþjóðlegt
þýskupróf
BANDALAG kvenna í Hafnarfirði
verður 30 ára 11. október. Í tilefni af-
mælisins er opið hús laugardaginn 12.
október kl. 14 með afmælisdagskrá
og sýningu á handverki kvenna í
Hraunseli, Flatahrauni 3, Hafnar-
firði. Bandalagið samanstendur af
átta aðildarfélögum: Kvenfélagi
Hafnarfjarðar, Kvenfélagi Víðistaða-
kirkju, Kvenfélagi Fríkirkjunnar,
Kvenfélaginu Hringnum, Kvenfélagi
framsóknarkvenna, Hörpu, Kven-
félagi Alþýðuflokksins og Kvenfélagi
sjálfstæðiskvenna, Vorboðanum.
Bandalagskonur hafa hist sameig-
inlega 4–5 sinnum á ári. Innan Banda-
lagsins er starfandi mæðrastyrks-
nefnd, orlofsnefnd og ræktunarnefnd,
segir í fréttatilkynningu.
Bandalag
kvenna í Hafn-
arfirði 30 ára
Þá var jafnframt skýrt frá því á
blaðamannafundi KSÍ og Heklu
að íslenska landsliðið muni leika í
nýjum búningum frá Errea í Evr-
ópukeppni landsliða í knatt-
spyrnu.
Hekla mun, í samstarfi við KSÍ,
vera aðalsöluaðili búninganna,
sem verða eingöngu seldir í gegn-
um vef fyrirtækisins, www.hekla.-
is. Ákveðið hefur verið að 10% af
söluandvirði búninganna renni í
byggingarsjóð Barnaspítala
Hringsins.
KNATTSPYRNUSAMBAND Ís-
lands og Hekla hf. hafa skrifað
undir nýjan samstarfssamning í
höfuðstöðvum Heklu við Lauga-
veg. Samningurinn er til fjögurra
ára og var undirritaður af Eggerti
Magnússyni, formanni KSÍ, og
Sigfúsi R. Sigfússyni, forstjóra
Heklu.
Á samningstímanum verða bif-
reiðir frá Heklu áberandi í starf-
semi KSÍ auk þess sem æfinga-
búningar A-landsliða karla og
kvenna verða merktir Heklu.
KSÍ OG Hekla semja
til fjögurra ára
VEÐUR mbl.is
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
-
IT
M
90
30
V. Fellsmúla • S. 588 7332
Opið: Mán. - föst. 9-18, lau. 10-14
Ný vefsíða: www.i-t.is
Tilboðsverð aðeins:
1. WC rúlluhaldari-króm Kr. 1.190,-
2. Handklæðasnagi-króm Kr. 1.090,-
3. WC bursti+haldari-króm/gler Kr. 2.150,-
4. Handklæðaslá 60 cm-króm Kr. 2.100,-
5. Spegilhilla 70 cm-gler/króm Kr. 2.500,-
6. Glasahaldari+glös/króm Kr. 1.750,-
7. Sápustatíf-króm/gler Kr. 1.250,-
8. Handklæðahringur 17 cm-króm Kr. 1.350,-
9. Spegilhilla 60 cm-lökkuð fura, kirsub., hvítt Kr. 1.450,-
10. Glasa- og tannburstahaldari+glas/lökkuð fura Kr. 1.390,-
11. Sápustatíf-lökkuð fura, kirsub., hvítt Kr. 1.390,-
12. Handklæðahringur 18 cm-lökkuð fura, kirsub., hvítt Kr. 1.050,-
13. Handklæðaslá 61,5 cm-lökkuð fura, kirsub., hvítt Kr. 1.070,-
14. Handklæðastöng tvöföld 61,5 cm-lökkuð fura Kr. 1.250,-
15. Handklæðastöng tvöföld 52 cm-lökkuð fura Kr. 1.270,-
16. Handklæðasnagar tvöf.-lökkuð fura, kirsuber, hvítt Kr. 490,-
17. WC rúlluhaldari-lökkuð fura, kirsuber, hvítt Kr. 850,-
18. WC bursti+haldari-lökkuð fura/gler Kr. 3.020,-
19. Sturtuhilla einföld/horn h11b23d14 cm-króm Kr. 520,-
20. Sturtuhilla þreföld/vegg h43b25d11 cm-króm Kr. 1.720,-
21. Baðherbergisspegill 42x60 cm-tré kirsuber
fura eða hvítt. Kr. 2.900,-
22. WC gegnheilar viðarsetur-fura, mahony
Kirsuber og antikútlit. Kr. 5.800,-
23. Baðherbergisskápur m. spegilhurðum
b56h51d14 cm-Fura eða kirsuber Kr. 7.900,-
24. Lyfjaskápur b34h40d14 cm-fura eða hvítbæs Kr. 5.900,-
25. Sturtusett-króm Kr. 2.790,-
Smáatriðin í lag!
1 2 3
4 5 6
7 8 9
10 11 12
13 14 15
16 17 18
19 20
22
23 24
25
21
Komið aftur