Morgunblaðið - 15.11.2002, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 268. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2002 mbl.is
Sarah litla
í Avonlea
Kvikmyndin Monster að stórum
hluta tekin á Íslandi Fólk 61
Steinunn Sigurðardóttir
í dásemdum Parísar Listir 30
Að rækta
líkamann
Líkamsrækt komið fyrir
í stundaskránni Daglegt líf 4
VOLVO ER
75 ÁRA
Á MORGUN
Komdu og fáðu
þér ilmandi kaffi
og Myllukleinur
á milli 12-16
Bíó með máls-
verði á undan
VERIÐ er að undirbúa flutning sjúklinga milli deilda á Landakoti vegna
lokunar á öldrunarlækningadeild L-3 eftir að þar fannst nýlega meticillín-
ónæmur stofn af bakteríunni Staphylococcus aureus (MÓSA). Sjúkling-
arnir verða fluttir á deild L-4 en þar þarf að sótthreinsa hátt og lágt áður
samkvæmt ákveðnum reglum.
Morgunblaðið/Þorkell
Sótthreinsun
vegna bakteríusmits
DÓMARI við skiptarétt í Kanada
féllst í fyrradag á kauptilboð Col-
umbia Ventures Corp. í tvöfaldan
sæstreng sem liggur milli Bretlands,
Írlands, Kanada og Bandaríkjanna.
Kaupverð á sæstrengnum, sem nefn-
ist Hibernia, er ekki gefið upp, en
kostnaður við hann var um 800 millj-
ónir dollara eða tæpir 70 milljarðar
íslenskra króna. Samkvæmt heimild-
um blaðsins greiddi Kenneth Peter-
son aðeins brot af þeirri fjárhæð.
Bjarni K. Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs Col-
umbia Ventures, segir lauslega hafa
verið skoðað hvort til greina komi að
tengja Ísland Hibernia-strengnum.
„Við munum skoða það áfram í sam-
ræmi við annað sem gerist á þessum
markaði, þ.e. aðrar tengingar sem
eru að koma til Íslands. Á sínum
tíma voru alltof margir kaplar lagðir
milli Evrópu og Ameríku og það fór
með mörg fyrirtæki. Við verðum að
gæta þess að það gerist ekki á Ís-
landi. Það gæti verið fjárhagslega
fýsilegt að tengja hann Íslandi, með
tilliti til þeirra tenginga sem við höf-
um í dag, en það væri til að æra
óstöðugan að tengja kapalinn Íslandi
ef Farice-strengurinn kemur líka. Þá
væri einfaldlega of mikið framboð.“
Kostnaður við Farice, sem liggur
milli Íslands, Færeyja og Skotlands,
er áætlaður um 4,2-4,5 milljarðar, en
í viðskiptaáætlun er gert ráð fyrir
þátttöku Landssímans og að reynt
verði að fá önnur fjarskiptafyrirtæki
hér að framkvæmdinni.
Sæstrengurinn Hibernia var í eigu
fyrirtækisins 360networks Inc, sem
er gjaldþrota, og ráðstöfun eigna því
háð samþykki dómstóla í Kanada.
Peterson
kaupir sæ-
streng yfir
Atlantshaf
Ekki til Íslands ef
Farice-sæstreng-
urinn kemur líka
Í bréfi sem Sigurður G. Guðjóns-
son, forstjóri Norðurljósa, sendi
Landsbankanum sl. þriðjudag er
hins vegar lýst þeirri skoðun að allt
virðist stefna í að Norðurljós verði
tekin til gjaldþrotaskipta haldi
bankinn við þá kröfu að fá yfir-
dráttarskuldina að fullu greidda
áður en fulltrúar bankans setjist að
samningaborði með fulltrúum
Norðurljósa á nýjan leik.
Tillaga Landsbankans um lausn
á fjárhagsvanda Norðurljósa kem-
ur fram í bréfi bankans til Norður-
ljósa hinn 8. nóvember sl. Þar er
lagt til í fyrsta lagi að Kaupþing
banki hf. afskrifi þann hluta sam-
bankaláns til félagsins, sem nemi
afslætti erlendu bankanna, eða um
1.500 milljónir króna. Í öðru lagi að
söluandvirði hlutabréfa í Tali hf. að
upphæð 1.400 milljónir gangi til að
lækka sambankalán félagsins. Í
þriðja lagi að inn í félagið komi
nýtt hlutafé að upphæð 1.000 millj-
ónir og í fjórða lagi að kostnaður
félagsins verði lækkaður m.a. með
því að fella alveg niður ráðgjafa-
greiðslur til hluthafa.
Í bréfi forstjóra Norðurljósa til
Landsbankans sl. þriðjudag segir
hins vegar að þetta dugi ekki til og
þess vegna óski Norðurljós eftir
því að Landsbankinn afskrifi vexti
og verðbætur sambankalánsins,
sem nemi nú um 230 milljónum
króna. Yfirdráttarskuld Norður-
ljósa verði breytt í kröfu tryggða
með 1. veðrétti samhliða 1. veðrétti
sambankalánsins.
Bréfaskipti Landsbanka Íslands
og Norðurljósa hf. vegna þessa
máls eru birt að hluta í Morgun-
blaðinu í dag.
Landsbanki telur
hægt að bjarga
Norðurljósum
!
"#
$
%
&
'
(
)
*
+
&
( "
- *
.
/
0- *
1
+
+
+
"
! ( *
+
!
"
Norðurljós segja skilyrði
bankans stefna fyrirtækinu í þrot
LANDSBANKI Íslands sendi forráðamönnum Norðurljósa samskiptafélags
hf. bréf síðdegis í gær, þar sem bankinn ítrekar fyrri skoðun þess efnis, að
verði tillögur bankans um fjárhagslega endurskipulagningu félagsins fram-
kvæmdar geti Norðurljós staðið við skuldbindingar sínar í framhaldinu. Bréf
þetta var sent í kjölfar þess, að dómur féll í málaferlum Landsbankans á
hendur Norðurljósum, og var félagið dæmt til að greiða bankanum 265 millj-
ónir króna vegna yfirdráttarskuldar.
EFNAHAGSKREPPAN í
Argentínu magnaðist í gær
þegar landið lenti í vanskilum
með lán frá Alþjóðabankanum
sem ákvað þess vegna að veita
því ekki fleiri lán.
Efnahagsmálaráðherra Arg-
entínu, Roberto Lavagna, sagði
að lánið yrði ekki endurgreitt
fyrr en landið fengi nýtt lán frá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
AP
Roberto Lavagna (t.h.) á leið
til fundar við fulltrúa IMF.
Argentína
í vanskilum
Washington. AFP.
EMBÆTTISMENN í Bandaríkjun-
um og Írak virtust í gær vera að búa
sig undir lokauppgjör í deilu
ríkjanna eftir að íraska stjórnin sam-
þykkti með semingi ályktun örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna um
vopnaeftirlit í Írak. Bandaríkja-
stjórn varaði við því að stríð væri
óhjákvæmilegt ef Írakar hlíttu ekki
skilmálum ályktunarinnar.
Íraksstjórn ýjaði að því að hún
kynni að bera brigður á umboð
vopnaeftirlitsmanna SÞ og setja
skilyrði fyrir vopnaleitinni. Hún
kvaðst ætla að senda framkvæmda-
stjóra SÞ bréf þar sem tíundað yrði
hvaða skilmála ályktunarinnar Írak-
ar teldu ekki samræmast þjóðarétti.
Í bréfi, sem utanríkisráðherra
Íraks sendi framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna í fyrradag,
sagði að Írakar myndu fylgjast mjög
grannt með störfum eftirlitsmann-
anna. „Í samskiptum sínum við eft-
irlitsmennina hyggst stjórn Íraks
hafa hliðsjón af hegðun þeirra,
ásetningi þeirra sem hafa í hyggju að
koma illu til leiðar og því hvort þeir
sýni reisn þjóðarinnar, fullveldi
hennar og öryggishagsmunum til-
hlýðilega virðingu.“
Áhrifamikið dagblað í Írak, Babel,
sagði að með því að samþykkja
ályktunina hefðu Írakar „sannað vel-
vilja sinn“ og staðfest að í landinu
væru engin gereyðingarvopn. Blaðið
varaði einnig við því að hættunni á
stríði hefði ekki verið afstýrt. „Eftir
jákvætt svar Íraka þurfa aðildarríki
öryggisráðsins – einkum Rússland,
Frakkland og Kína – að gera sér
grein fyrir því að vandamálum okkar
og deilum við Bandaríkin er ekki enn
lokið og deilurnar eru ef til vill rétt
að byrja.“
Bandarískir embættismenn sögðu
að stríð væri óhjákvæmilegt ef Írak-
ar veittu ekki upplýsingar um ger-
eyðingarvopn sín fyrir 8. desember
og héldu því enn fram að þeir hefðu
ekki yfir slíkum vopnum að ráða.
Stjórn Bush viðbúin
lokauppgjöri við Íraka
Stjórn Íraks boð-
ar skilyrði fyrir
vopnaeftirliti
Bagdad, Washington. AFP, AP.