Morgunblaðið - 15.11.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BANDARÍSKA álfyrirtækið
Alcoa mun greiða eigendum
Reyðaráls hf. í áföngum fyrir þá
vinnu sem undirbúningsfélagið
hefur innt af hendi. Ennfremur
er samkomulagið háð því að
áform Alcoa gangi upp um að
reisa álver í Reyðarfirði.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins verður að lokinni
áreiðanaleikakönnun greiddur
hluti af samningnum, sem hljóð-
aði upp á um 600 milljónir króna.
Önnur greiðsla kemur til þegar
og ef Alcoa tekur ákvörðun um
að reisa álverið og lokagreiðslan
mun jafnvel ekki fara fram fyrr
en álverið hefur tekið til starfa.
Samkomulagið við eigendur
Reyðarál er ekki háð því hvort
Alcoa þurfi að láta framkvæma
nýtt umhverfismat, að því er
heimildir blaðsins herma, en
talsmenn Alcoa og Reyðaráls
hafa verið tregir til að tjá sig
frekar um innihald samkomu-
lagsins sem undirritað var á
miðvikudag.
Alcoa
greiðir í
áföngum til
Reyðaráls
sjúkraskrár. En ég segi í bréfinu að við viljum
samstarf við ÍE, það er ekki vandamálið, en auð-
vitað verður að leiða það samstarf til einhvers
þroska.“
Geta ekki lagt til fé eða
mannafla að óbreyttri stöðu
Magnús bendir á að Landspítalinn hafi lagt fé í
undirbúninginn og vitaskuld geti spítalinn ekki
haldið honum áfram nema að gefnum ákveðnum
forsendum sem ekki séu fyrir hendi nú. Spítalinn
sé ekki mjög aflögufær eins og mönnum eigi að
vera kunnugt. Magnús segir að í bréfi ÍE frá 14.
október harmi fyrirtækið þær tafir sem orðið hafi
en tilkynni spítalanum jafnframt að fresta verði
öllum frekari samningaviðræðum um ótilgreind-
an tíma.
„Ég held það sé því ekki ofsagt að staðan sé
óljós. Við höfum sett í undirbúninginn nokkurn
mannafla og þar með fé, raunar í ágætis sam-
starfi við ÍE en fyrirtækið hefur ekki tekið þátt í
að standa undir þeim kostnaði.“
Þolinmæði ÍE einnig á þrotum
Páll Magnússon, framkvæmdastjóri sam-
skipta- og upplýsingasviðs ÍE, segir að þar á bæ
hafi menn svo sem skilning á því að þolinmæði
Landspítalans sé á þrotum en það eigi sömuleiðis
við um ÍE.
„Persónuvernd hefur haft þetta mál í gíslingu í
hátt á fjórða ár og þetta hreyfist ekki út úr þeirri
stofnun. Við gerðum Landspítalanum grein fyrir
því bréflega að við gætum ekki undirgengist
frekari skuldbindingar eða tekið á okkur meiri
fjárútlát í tengslum við þennan grunn fyrr en við
vissum hvort af honum yrði. Við sögðum jafn-
framt í bréfinu til Landspítalans að við myndum
vilja taka þráðinn upp aftur um leið og þessi mál
skýrðust hjá Persónuvernd. Landspítalinn virðist
aftur á móti draga þá ályktun af þessu að sam-
starfinu á þessu sviði sé lokið og okkur finnst það
satt að segja frekar hæpin ályktun,“ segir Páll.
Óvissa með samstarf ÍE og LSH um rafrænan gagnagrunn á heilbrigðissviði
Þolinmæði beggja á þrotum
Forstjóri Landspítalans
segir samstarfið við ÍE
búið að vera að gefnum
óbreyttum forsendum
SAMSTARF Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE) og
Landspítala – háskólasjúkrahúss (LSH) um raf-
rænan gagnagrunn á heilbrigðissviði virðist vera
búið eins og staðan er nú, segir Magnús Pét-
ursson, forstjóri Landspítalans. Páll Magnússon
hjá ÍE segir að fyrirtækið hafi skilning á því að
þolinmæði Landspítalans sé á þrotum. „Þeir eru
þá einfaldlega á sama báti og við því þolinmæði
okkar er einnig á þrotum. Persónuvernd hefur
haft þetta mál í gíslingu í hátt á fjórða ár og mál-
ið hreyfist ekki út úr þeirri stofnun.“
Aðspurður hvaða önnur fyrirtæki gætu komið
til greina sem samstarfsaðili bendir Magnús á að
innlent fyrirtæki reki núverandi sjúkraskrár
spítalans og eins sé út af fyrir sig ekkert sem
komi í veg fyrir að Landspítalinn taki upp sam-
starf við erlenda aðila.
„Ég sendi ÍE bréf 1. október og óskaði eftir af-
stöðu þeirra í þessu samningastarfi, þ.e. hvort
þeir treystu sér til þess að leiða það til ein-
hverrar niðurstöðu og endaði það bréf með því að
segja að þess væri vænst að slík niðurstaða lægi
fyrir við lok október þar sem Landspítalanum er
nauðsyn að taka ákvörðun hið fyrsta hvernig
hann stendur best að uppbyggingu rafrænnar
FULLTRÚARÁÐ Mjólk-
ursamsölunnar, MS, kemur
saman til árlegs haustfundar
í dag í höfuðstöðvum fyr-
irtækisins á Bitruhálsi. Meðal
þeirra mála sem verða til
umræðu eru greiðslur úr sér-
eignarsjóði en eins og fram
hefur komið í Morgunblaðinu
hefur Sigurbjörn Hjaltason,
bóndi á Kiðafelli í Kjós,
gagnrýnt þessar greiðslur og
talið þær vera of lágar.
Magnús H. Sigurðsson,
stjórnarformaður MS og for-
maður fulltrúaráðsins, sagði
mál Sigurbjörns verða rætt
ásamt fleirum sem brynnu á
mjólkurframleiðendum. Hann
átti þó ekki von á sérstakri
ályktun eða niðurstöðu í því
máli. Það væri til almennrar
skoðunar innan fyrirtækisins
sem og á borði lögmanna.
Fulltrúaráð
MS fundar
GUNNAR Snorri Gunnarsson
sendiherra tók í gær við starfi
ráðuneytisstjóra í utanríkis-
ráðuneytinu af
Sverri Hauki
Gunnlaugssyni
sendiherra
sem gegnt hef-
ur starfinu frá
því í mars árið
1999.
Sverrir
Haukur Gunn-
laugsson tekur
á næstunni við starfi sendi-
herra Íslands í Bretlandi, jafn-
framt því að gegna starfi sendi-
herra í Hollandi, Írlandi,
Grikklandi, Nígeríu og Ind-
landi.
Gunnar Snorri Gunnarsson
var skipaður sendiherra í utan-
ríkisþjónustunni árið 1991 og
jafnframt skrifstofustjóri við-
skiptaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins. Gunnar Snorri
gegndi starfi fastafulltrúa Ís-
lands gagnvart EFTA í Genf
frá 1994 til ársins 1997 og frá
þeim tíma hefur hann gegnt
starfi sendiherra Íslands hjá
Evrópusambandinu í Brussel
og gagnvart Belgíu, Lúxem-
borg og Liechtenstein.
Nýr ráðu-
neytisstjóri
VIÐRÆÐUR hafa ekki borið árang-
ur milli fulltrúa heilbrigðisráðuneyt-
isins og heilsugæslulækna á Suður-
nesjum og í Hafnarfirði. Ráðuneytið
hefur boðið þjónustusamninga á báð-
um stöðunum en þeim verið hafnað.
Gripið hefur verið til þess ráðs m.a.
að leita eftir íslenskum læknum er-
lendis.
Elsa B. Friðfinnsdóttir, aðstoðar-
maður heilbrigðisráðherra, segir að
viðræður um samninga við tvo lækna
í Grindavík hafi verið vel á veg
komnar í síðustu viku þegar slitnað
hafi upp úr. Eftir það hafi verið
reynt að styrkja móttökuna á Suð-
urnesjum með því að ráða tvo heilsu-
gæslulækna inn á Heilbrigðisstofn-
un Suðurnesja.
Elsa segir viðræður einnig verið
við stjórnarformann og fram-
kvæmdastjóra heilsugæslustöðvar-
innar Sólvangs í Hafnarfirði. Þjón-
ustusamningi þar hafi einnig verið
hafnað og í framhaldi af því var reynt
að finna málamiðlun. „Staðan í Hafn-
arfirði er þannig núna að uppsagnir
læknanna virðast standa og við erum
farin að skoða hvernig öryggisþjón-
usta verður skipulögð. Enn vonum
við að læknarnir annaðhvort gefi það
tveggja mánaða svigrúm sem við
óskuðum eftir til að vinna að gerð
þjónustusamnings eða að þeir dragi
uppsagnir sínar til baka. Við teljum
okkur vera búin að tryggja lágmarks
öryggisþjónustu og síðan er verið að
reyna að manna stöðurnar,“ segir
Elsa.
Að hennar sögn er búið að auglýsa
stöður þeirra heilsugæslulækna sem
sagt hafa upp störfum í Hafnarfirði
og á Suðurnesjum. Heimild hafi
einnig fengist til að leita til íslenskra
heimilislækna erlendis.
Elsa segir ráðuneytið hafa verið
að skoða stöðu unglækna í heilsu-
gæslunni. Ráðherra taki undir með
þeim að þeir hafi ekki komið vel útúr
úrskurði kjaranefndar og full ástæða
sé til að hafa áhyggjur af nýliðun í
stéttinni. Að sögn Elsu hefur verið
ákveðið að fjölga námsstöðum fyrir
unglækna um þrjár og verða þær
stöður auglýstar fljótlega. Síðast var
stöðunum fjölgað um tvær fyrir ári.
Árangurslausar
viðræður við
heilsugæslulækna
Leitað eftir íslenskum læknum
erlendis til að manna stöður
ALLT tiltækt vakthafandi lið Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins var kallað út síð-
degis í gær vegna elds í Umbúðamiðstöð-
inni á Héðinsgötu. Síðar kom í ljós að eld-
ur var ekki eins mikill og talið var í fyrstu
og var því hluti liðsins kallaður inn aftur.
Aðstæður voru slæmar á vettvangi
enda mikill eldsmatur í einu stóru rými
hússins. Tildrög eldsins eru rakin til þess
að pappírstætari hafði ofhitnað og kveikt
í pappír.
Starfsmaður við tætarann tók strax
duftslökkvitæki og sprautaði á eldinn og
voru því glóðir einar sem biðu slökkviliðs-
manna, en mikill reykur. Slökkviliðið var
kallað út í verkefnið klukkan 17.14 og
lauk störfum kl. 18.42.
Pappírstæt-
ari ofhitnaði
og kveikti í
Morgunblaðið/Þorkell
Minni eldur en
talið var í fyrstu
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦