Morgunblaðið - 15.11.2002, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
NEMENDUR 4. bekkjar á Aust-
urlandi náðu bestum árangri í
samræmdum könnunarprófum í ís-
lensku og stærðfræði. Nemendur
7. bekkjar í skólum í nágrenni
Reykjavíkur náðu hins vegar best-
um árangri í þessum greinum.
Meðaleinkunn í stærðfræði í
fjórða bekk var 7,1 yfir allt landið.
Meðaleinkunn í íslensku var hins
vegar 6,6. Nemendur í 7. bekk
fengu 7,6 í meðaleinkunn í stærð-
fræði, en 7,0 í íslensku.
Árangurinn var áberandi verst-
ur á Suðurnesjum. Þar eru ein-
kunnir undir landsmeðaltali í öll-
um greinum nema einkunnir fjórða
bekkjar í stærðfræði.
Góður árangur í 4. bekk
skilar sér ekki í 7. bekk
Einkunnir nemenda í skólum í
Reykjavík og í nágrenni Reykja-
víkur eru jafnar og yfir landsmeð-
altali. Einkunnir í skólum utan
þessa svæðis eru hins vegar al-
mennt undir meðallagi. Undan-
tekning þar á eru skólar á Norður-
landi eystra og Austurlandi, en
skólar á Austurlandi eru með
hæstu meðaleinkunnina ef horft er
á allt landið.
Nemendur sjöunda bekkjar á
Vestfjörðum eru einnig yfir lands-
meðaltali.
Sigurgrímur Skúlason hjá
Námsmatsstofnun segir að þegar
grunnskólanemendur sem nú eru í
sjöunda bekk voru prófaðir fyrir
fjórum árum hefði ekki komið
fram marktækur munur á nem-
endum í skólum á landsbyggðinni
annars vegar og höfuðborgarsvæð-
inu hins vegar. Núna væri hins
vegar kominn fram marktækur
munur á einkunnum milli þessara
landshluta. Af einhverjum orsök-
um virtust nemendur á lands-
byggðinni ekki ná jafngóðum ár-
angri í sjöunda bekk og í fjórða
bekk.
Átak í stærðfræði
á Suðurnesjum
Sigurgrímur sagði að árangur
nemenda á Suðurnesjum hefði ver-
ið nokkuð misjafn í gegnum árin.
Hann hefði ýmist verið lélegur eða
allgóður. Grunnskólar á svæðinu
hefðu gert sérstakt átak í stærð-
fræðikennslu og það hefði skilað
árangri. Árangur nemenda fjórða
bekkjar væri góður í stærðfræði,
en þeir sem voru í sjöunda bekk
hefðu hins vegar ekki náð sama
árangri.
!
"
"
#
$%
$%
$%
$%
&%'
&%
$%
$%
&%(
$%
$%
&%&
&%)
&%'
$%
$%
$%(
&%
$%
$%
&%$
&%'
$%
&%
$%
$%
&%)
$%
$%
&%*
&%$
$%
&%
$%
$%
&%)
Skólar á Aust-
urlandi með
góða útkomu
„KJÖRNEFNDIN ákveður að gera
nánast ekki neitt annað en að við-
urkenna að ágallar hafi verið á próf-
kjörinu. Þá vaknar að sjálfsögðu sú
spurning hvað ágallar á prófkjöri
þurfi yfirleitt að vera miklir til þess
að það sé gert ógilt og hvaða skila-
boð það eru til manna sem brjóta
reglurnar jafnfreklega og af jafn-
miklum ásetningi og þarna var um
að ræða,“ segir Vilhjálmur Egilsson
alþingismaður um niðurstöður funda
kjörnefndar prófkjörsins í Norðvest-
urkjördæmi og stjórnar kjördæmis-
ráðs Sjálfstæðisflokksins í Hrúta-
firði sl. miðvikudag.
Vilhjálmur er mjög ósáttur við
niðurstöðuna. „Hún er bara sú að
þeir sem brjóta reglurnar njóta þess
en þeir sem brotið er á eru látnir
gjalda fyrir,“ segir Vilhjálmur. Hann
segir þó eðlilegt að endurtalning at-
kvæða fari fram í ljósi þess hvað
mjótt var á munum í kosningunni.
Farið að ræða hugmyndir um
sérframboð fyrir norðan
Vilhjálmur var spurður hvort sér-
framboð í kjördæminu komi til álita
og staðfestir hann að sjálfstæðis-
menn fyrir norðan séu farnir að
nefna hugmyndir um sérframboð.
Það sé þó ekki gert að hans frum-
kvæði og sjálfur vill hann ekkert um
það segja fyrr en að afloknum fundi
sem haldinn verður á Blönduósi á
sunnudag. Þar hefur verið boðað til
fundar fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Skagafirði og Húnavatns-
sýslum til að fara yfir stöðu málsins.
„Eftir því sem málið verður um-
fangsmeira finnst mér það líka vera
farið að snúast um pólitíska ábyrgð
þeirra sem telja sig vera sigurvegara
í prófkjörinu. Það er spurning hvort
þeir sem brutu reglurnar taki á sig
þessa pólitísku ábyrgð og viðurkenni
að þeir hafi haft rangt við og við-
urkenni einfaldlega að sigurinn var
okkar í þessu prófkjöri,“ segir Vil-
hjálmur.
Vísar yfirlýsingu á bug
Vilhjálmur vísar með öllu á bug yf-
irlýsingu undirkjörstjórnar á Akra-
nesi vegna prófkjörsins sem birt var
í Morgunblaðinu í gær. Þar er Vil-
hjálmur sakaður um að hafa farið
með ósannindi um framkvæmd hinn-
ar umdeildu utankjörfundarat-
kvæðagreiðslu á Akranesi.
Í yfirlýsingunni segir m.a. að það
séu hrein ósannindi í Vilhjálmi að at-
kvæðaseðlar hafi verið rifnir upp
þegar utankjörfundarkosningu var
lokið á Akranesi og sturtað í pott.
Vilhjálmur bendir hins vegar á að
hann hafi haft undir höndum fax með
leiðbeiningum um meðferð atkvæða-
seðlanna sem starfsmaður próf-
kjörsins sendi kjörnefndarmönnum
þar sem fram komi að utankjörfund-
aratkvæðum eigi að skila í umslög-
um í Borgarnes, þar sem talning fór
fram, ásamt blaði yfir þá sem kjósa.
„Áður en talning hefst í Borgarnesi,
daginn eftir prófkjör, munu öll at-
kvæðin verða sett í einn pott þannig
að ekki á að vera hægt að greina
hvernig atkvæði liggja í kjördæm-
inu,“ segir í leiðbeiningunum.
Fengu vitneskju um kosningu
í ýmsum fyrirtækjum
Vilhjálmur segir að þegar ákveðið
var á fundi sl. fimmtudagskvöld að
ógilda atkvæðaseðla vegna utankjör-
fundaratkvæðagreiðslu sem fram
hafði farið í slippnum á Akranesi,
þ.e. í Skaganum hf. og Þorgeiri &
Ellert, sem hann gerði alvarlegar at-
hugasemdir við, hafi honum verið
talin trú um að tilvikin væru ekki
fleiri. Síðar hafi hins vegar komið á
daginn að umfang þessa máls væri
miklu meira. „Þeir lögðu ekki spilin
á borðið um þessa umfangsmiklu að-
gerð,“ segir hann.
Að sögn Vilhjálms óx málið stig af
stigi er nær dró kosningum. Hann
segir að um miðja síðustu viku hafi
hann einnig vitað um eitt tilvik þar
sem Hörður Pálsson hafi farið í
heimahús og boðið fólki að kjósa.
„Ég spurði þá að því hvort væri verið
að fara í heimahús en mér var sagt
að svo væri ekki. Þar sem ákveðið
var í samráði við formann kjördæm-
isráðsins að þessi atkvæði yrðu gerð
ógild ætlaði ég bara að láta þetta
kyrrt liggja, enda var ég látinn halda
að þetta væri einstakt mál og hefði
orðið til fyrir misskilning. Síðdegis á
miðvikudeginum fæ ég fregnir um
að Sigurjón Skúlason og Ólöf Agn-
arsdóttir hafi gengið í hús með
skipulögðum hætti, bankað upp á hjá
fólki og fengið það til að kjósa. Þegar
ég kem með þessar upplýsingar til
þeirra á Akranesi vilja þeir að málið
verði tekið fyrir í heild á fimmtu-
dagskvöldinu. Þegar fulltrúi minn er
svo á leiðinni uppeftir berst okkur til
eyrna að líka hafi verið kosið í HB
[Haraldi Böðvarssyni] og á raf-
magnsverkstæði HB. Á fimmtudags-
kvöldinu vissum við sem sagt um
Hörð Pálsson, Sigurjón Skúlason og
Ólöfu Agnarsdóttur og að þeir sem
önnuðust kosningu í Slippnum hafi
verið Valdimar Axelsson og Þórður
Þórðarson. Það hefur hins vegar
aldrei verið útskýrt hvernig kjör-
gögn komust í hendur alls þessa
fólks, sem átti ekki að koma nálægt
utankjörstaðaatkvæðagreiðslunni.
Þeir sem önnuðust utankjörstaðaat-
kvæðagreiðsluna voru Benedikt
Jónmundsson og Sigurður Sigurðs-
son.
Þetta voru þær upplýsingar sem
við höfðum í höndunum á fimmtu-
dagskvöldið og á þessum tímapunkti
var ákveðið að samþykkja að þeir
fengju möguleika á að leiðrétta
þessa hluti. Samkomulagið þetta
kvöld var gert á grundvelli þessarar
vitneskju og ekki annarrar, enda
lögðu þeir aldrei spilin á borðið sjálf-
ir. Þeim var treyst til þess að ógilda
þessi atkvæði. Þau 80 atkvæði sem
þeir komu síðan með, og telja sjálfir
að hafi verið illa fengin, passa við
þetta umfang.
Það kemur síðan í ljós að aðrir hafi
verið að fara með kjörgögn út um
allt. Þeir sem við vitum um eru Sig-
urður Sigurðsson, annar þeirra sem
sáu um utankjörstaðaatkvæða-
greiðsluna, Helgi Ibsen, Björn
Tryggvason, Gylfi Þórðarson, Hauk-
ur Þórisson og Pétur Ottesen. Þau
fyrirtæki sem við vitum að kosið hafi
verið í eru Skóflan, Vignir G. Jóns-
son og Bátasmiðja Guðgeirs. Síðar
kom svo fram í útvarpinu að þetta
hefði líka verið gert í Sementsverk-
smiðjunni. Allt þetta mál var því
miklu umfangsmeira en við höfðum
vitneskju um á fimmtudeginum og
okkur var aldrei gerð grein fyrir því.
Við vitum líka að þessi aðgerð var í
gangi allt frá 25. október. Það þarf
enginn að segja mér að með öllu
þessu fólki sem þarna á í hlut og á
öllum þessum tíma hafi bara verið
skrapað saman einhverjum 80 at-
kvæðum. Umfangið bendir til þess
að þetta séu a.m.k. 300 atkvæði og
væntanlega fleiri. Þessir menn eru
ýmist yfirlýstir stuðningsmenn Guð-
jóns [Guðmundssonar] eða Sturlu
[Böðvarssonar],“ segir Vilhjálmur.
Vilhjálmur segir að hann og stuðn-
ingsmenn hans hafi haft ofantaldar
upplýsingar undir höndum á sunnu-
dag þegar hefja átti talningu í próf-
kjörinu í Borgarnesi. Þeir hafi óskað
eftir því að lögð yrði fram skilagrein
með utankjörfundaratkvæðunum
sem komið var með frá Akranesi, svo
unnt yrði að sannreyna upplýsing-
arnar, en því hafi verið hafnað.
Með ólíkindum
Hann bendir einnig á að í fram-
haldi af þessu hafi borist fréttir af at-
kvæðagreiðslu í bát á Grundarfirði
og af einu tilviki þar sem gengið hafi
verið í heimahús í Stykkishólmi.
„Þegar á allt er litið lítur út fyrir
að á Vesturlandi hafi verið staðið að
þessari kosningu með miklum ólík-
indum. Þess vegna veltir maður nú
fyrir sér pólitískri ábyrgð frambjóð-
endanna. Hver er hin pólitíska
ábyrgð þeirra?“ segir Vilhjálmur.
Vilhjálmur Egilsson er ósáttur við niðurstöðu
kjörnefndar og stjórnar kjördæmisráðs
Snýst um pólitíska
ábyrgð þeirra sem
telja sig sigurvegara
Í KOSNINGALÖGUM er ekkert
sem kemur í veg fyrir að stjórn-
málaflokkur bjóði fram tvo eða
fleiri framboðslista í sama kjör-
dæminu. Vilhjálmur Egilsson og
stuðningsmenn hans geta því
boðið fram lista í nafni Sjálf-
stæðiflokksins í Norðvest-
urkjördæmi, sem yrði nefndur
DD-listi, svo lengi sem til þess
bærar stofnanir Sjálfstæði-
flokksins veiti samþykki sitt fyr-
ir listanum. Samkvæmt upplýs-
ingum blaðsins hefur
Sjálfstæðisflokkurinn aldrei
samþykkt slíkt framboð.
Öll atkvæði sem DD-listi
myndi fá myndu nýtast Sjálf-
stæðisflokknum á landsvísu.
Skipting atkvæða á tvo lista
myndi ekki skerða heildartölu
þingsæta flokksins. Frá Norð-
vesturkjördæmi koma 10 þing-
menn, 9 eru kjördæmakjörnir en
auk þess er 1 jöfnunarþingsæti.
Færi Vilhjálmur fram með sér-
framboð væri hann öruggur um
þingsæti fengi hann 10% at-
kvæða en gæti hugsanlega náð
kosningu með 8% atkvæða. Byði
hann sig fram á DD-lista kynnu
færri atkvæði að nægja honum
til að komast inn á þing sem
jöfnunarþingmaður. Sérframboð
ætti á hinn bóginn nánast enga
möguleika á jöfnunarþingsæti
en til þess yrði listinn að fá
a.m.k. 5% á landsvísu, eða um
40–50% fylgi í Norðvestur-
kjördæmi.
Kunnáttumaður í kosn-
ingalögum sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að þótt öll
atkvæði greidd DD-lista myndu
nýtast Sjálfstæðisflokknum á
landsvísu gæti DD-listi haft áhrif
á hvernig jöfnunarþingsætin
myndu raðast, þ.e. hverjir yrðu
jöfnunarþingmenn. Þetta gæti
jafnvel haft áhrif á röðun jöfn-
unarþingsæta hjá öðrum flokk-
um en Sjálfstæðisflokknum.
Flokkurinn yrði
að samþykkja DD-lista
TUTTUGU og sex aðildarfélög úr
Norðvesturkjördæmi eiga fulltrúa
á kjördæmisþingi Framsóknar-
flokksins sem fram fer á Laugum í
Sælingsdal í Dalasýslu næstkom-
andi laugardag. Þar verður kosið
um sex efstu sætin á lista fram-
sóknarmanna í kjördæminu vegna
alþingiskosninganna í vor en at-
kvæðisrétt eiga 481 fulltrúi úr
framsóknarfélögunum.
Af þeim eru 436 félagskjörnir en
sjálfkjörnir eru 45, sem koma úr
miðstjórn flokksins og stjórn kjör-
dæmissambandsins í kjördæminu.
Að sögn Sigurðar Eyþórssonar,
skrifstofustjóra flokksskrifstofu
Framsóknarflokksins, hafa á bilinu
450 til 500 nýir félagar bæst við,
flestir á undanförnum vikum, en
skránni var lokað sl. mánudag. Þar
af hafa í kringum 200 félagsmenn
bæst við á Vestfjörðum, 150 á
Vesturlandi og 100 á Norðurlandi.
Félögin fá fulltrúa út á nýja fé-
lagsmenn, eða einn fulltrúa fyrir
hverja fimm félagsmenn. Í aðild-
arfélögunum eru samtals 2.094 fé-
lagar.
Af félagskjörnum fulltrúum sem
hafa atkvæðisrétt á þinginu eru 29
í Framsóknarfélagi Akraness, 12 í
Félagi ungra framsóknarmanna á
Akranesi, 12 í Framsóknarfélagi
Borgarfjarðar, 29 í Framsóknar-
félagi Mýrasýslu, 24 í Framsókn-
arfélagi Snæfellsbæjar, 13 í Fram-
sóknarfélagi Dalamanna. Í Fram-
sóknarfélagi Ísafjarðarbæjar eru
50 félagskjörnir, 18 í Framsókn-
arfélagi Bolungarvíkur, 22 í Barða-
strandarsýslu, 12 í Framsóknar-
félagi Hólmavíkur, 17 í Fram-
sóknarfélagi V-Húnavatnssýslu, 29
í A-Húnavatnssýslu, 62 í Fram-
sóknarfélagi Skagafjarðar og 31 í
Félagi ungra framsóknarmanna í
Skagafirði. Í öðrum framsóknar-
félögum eru tíu eða færri fé-
lagskjörnir fulltrúar.
Framsóknarflokkurinn
í NV-kjördæmi
Á bilinu 450 til
500 nýir félagar
hafa bæst við