Morgunblaðið - 15.11.2002, Page 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2002 31
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess eru
númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt hér
í blaðinu í dag. Upplýsingar um útdregin húsbréf má finna
á heimasíðu Íbúðalánasjóðs: www.ils.is.
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í
eftirtöldum flokkum:
Útdráttur
húsbréfa
Húsbréf
Koma þessi bréf til innlausnar 15. janúar 2003.
1. flokki 1991 – 44. útdráttur
3. flokki 1991 – 41. útdráttur
1. flokki 1992 – 40. útdráttur
2. flokki 1992 – 39. útdráttur
1. flokki 1993 – 35. útdráttur
3. flokki 1993 – 33. útdráttur
1. flokki 1994 – 32. útdráttur
1. flokki 1995 – 29. útdráttur
1. flokki 1996 – 26. útdráttur
3. flokki 1996 – 26. útdráttur
Opið virka daga frá kl. 10-18,
laugardaga frá kl. 10-14.
Sendum lista út á land
Sími 567 3718
TILBOÐSDAGAR
20%
afsláttur af öllum
kvenfatnaði úr
haust- og vetrarlistanum
Nýtt kortatímabil
Frábært úrval - Stærðir 36-52 (S-3XL)
TÍMARIT Hugvísindastofnunar,
Ritið, stendur fyrir málþingi um
menningarfræði í Odda, stofu 101 á
morgun, laugardag, kl. 14.
Erindi flytja: Ástráður Eysteins-
son og fjallar hann um menningar-
stefnu Háskóla Íslands; tengsl
menntunar og menningar; þátttöku
háskólamanna og menntamanna í
samfélagsumræðunni og menning-
arlífinu. Birna Bjarnadóttir nefnir
erindi sitt: Skapandi dauðastríð? Af-
drif fagurfræði á tímum menningar-
fræða. Mun hún skoða meintan
dauða fagurfræðinnar og möguleg
áhrif. Þröstur Helgason nefnir er-
indi sitt Línurnar lagðar: Um lífs-
stílstímaritin Surface og i-D. Hann
fjallar um þessi tvö tímarit, efni
þeirra og efnistök og reynir að
álykta um fagurfræði og hugmynda-
fræði samtímans út frá lestri þeirra.
Ármann Jakobsson veltir fyrir sér
hvort hámenning og lágmenning séu
ennþá til og kallar erindi sitt Kröpp
lægð yfir Vesturheimi?
Umræður verða að loknum erind-
um en þinginu lýkur kl. 16.
Málþing
um menn-
ingarfræði
SÁLMABANDIÐ Lux terrae (Ljós
jarðar) hyggur á tónleikahald í
kirkjum landsins á komandi vetrar-
mánuðum og heldur tónleika í Skál-
holtskirkju í kvöld, föstudagskvöld,
kl. 21.
Hópinn skipa Jóhann Stefánsson,
trompet og slagverk, Sigurgeir Sig-
mundsson, gítar, og Hilmar Örn
Agnarsson, orgel. Söngkona hópsins
er Maríanna Másdóttir óperusöng-
kona.
Hilmar Örn er forsvarsmaður
hópsins: „Lux terrae flytur sálma og
tónlist sem almennt er í dag þekkt
sem sálmalög, en eiga það flest sam-
merkt að eiga alls konar rætur jafnt
utan sem innan kirkjutónlistar.
Einnig flytur Lux terrae lög sem má
segja að tilheyri ýmsum sérstökum
söfnuðum eins og Hvítasunnusöfn-
uðinum og Hjálpræðishernum.
Þegar Lúther fór að yrkja ýmis
lög sem alþýðan söng á sextándu öld-
inni og flytja þau í kirkjum var hann
látinn svara til saka fyrir athæfi sitt.
Hann sagði eitthvað í þessa veru: við
látum ekki djöfulinn hafa öll bestu
lögin og hélt áfram að yrkja guði til
dýrðar. Á sama tíma urðu til mörg
lög sem lifað hafa í kirkjum heimsins
allt fram á þennan dag og sem dæmi
má nefna sálminn Hærra minn Guð
til þín sem á fyrri öldum var eins
konar steppdans. Enskur biskup
fann laginu leið inn í kirkjuna og þar
hefur það verið síðan og notað mikið.
Þannig má segja að söngvar þeir og
sálmar sem í dag eru sungnir í kirkj-
unum eigi margar og ólíkar rætur,“
segir Hilmar Örn.
Lux terrae
í Skálholts-
kirkju
HVÍTUR stormsveipur er yfirskrift tvennra
djasstónleika sem haldnir verða á Græna hatt-
inum á Akureyri á morgun. Tónleikarnir eru
tileinkaði minningu Finns Eydal tónlistar-
manns, sem lést þennan dag fyrir sex árum,
langt um aldur fram. Heiti tónleikanna er kom-
ið af þekktasta lagi Finns, Hvítum stormsveipi,
sem hann lék á klarinettu með hljómsveit bróð-
ur síns, Ingimars Eydal og eiginkonu sinni,
söngkonunni Helenu Eyjólfsdóttur. Efnisskrá
tónleikanna er mjög í anda Finns, því þar verð-
ur sveifludjassinn allsráðandi. Fjölmargir tón-
listarmenn koma fram; frá Akureyri: Inga Ey-
dal söngkona, Snorri Guðvarðsson gítarleikari,
Árni Ketill trommari, og Helena Eyjólfsdóttir.
Frá Reykjavík koma Akureyringarnir Gunnar
Gunnarsson píanóleikari og Ingvi Rafn Ingva-
son trommuleikari auk Sunnlendinganna Jóns
Rafnssonar kontrabassaleikara og Björns
Thoroddsen gítarleikara. Frá Danmörku kem-
ur svo klarinettuleikarinn, Jørgen Svare, en
hann hefur til margra ára verið talinn einn
allrabesti djassklarinettuleikari Evrópu.
Jón Rafnsson bassaleikari er einn skipu-
leggjenda tónleikanna. „Finnur var frábær
tónlistarmaður og bar mikla virðingu fyrir
starfi sínu. Ég spilaði töluvert með honum eftir
að ég flutti norður 1990. Við Gunnar Gunnars-
son og Árni Ketill stofnuðum djasstríó, en það
leið ekki á löngu þar til Finnur fór að spila með
okkur við betri tækifæri. Ég spilaði líka með
honum í Danshljómsveit Ingu Eydal, en Finnur
og Helena voru gjarnan gestir þar. Þá var far-
ið í gegnum gamla dansprógrammið úr Hljóm-
sveit Ingimars, sem var ansi skemmtilegt.“
Jón segir tónleikana á morgun verða fyrst
og fremst djasstónleika og að tónlistarmenn-
irnir tileinki Finni lögin. „Við verðum líka með
lög sem hann lék sjálfur, bæði útlend og ís-
lensk. Við ætlum ekkert að herma eftir Finni,
en fengum Jørgen Svare sem er mjög flottur
swing klarinettuleikari til að vera með okkur á
klarinettu. Þeir Finnur hittust að minnsta kosti
einu sinni eða tvisvar og eru af sömu kynslóð.“
Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 20.30, en þeir
seinni kl. 23.30.
Tvennir minningartónleikar um Finn Eydal haldnir á Akureyri
Finnur var frábær
tónlistarmaður
Finnur Eydal með baritonsaxinn sem var hans
annað aðalhljóðfæri, ásamt klarinettunni.
PJETUR Stefánsson var kosinn
gjaldkeri Alþjóðasamtaka myndlist-
armanna, IAA, nýverið en þá var
heimsráðstefna Alþjóðasamtakanna
haldin í Aþenu. Pjetur er stjórnar-
formaður Sambands íslenskra
myndlistarmanna, SÍM.
Á ráðstefnunni var kosin ný fram-
kvæmdastjórn og hlaut Pjetur 25 at-
kvæði af 45 mögulegum, en alls voru
20 manns í kjöri um 12 sæti í fram-
kvæmdastjórn. Auk Pjeturs, sem
kosinn er til þriggja ára, voru kosin í
stjórn Lily Bakoyannis frá Grikk-
landi forseti og varaforseti Werner
Schaub frá Þýskalandi. Alþjóðalista-
samtökin (IAA) voru stofnuð árið
1954 undir verndarvæng Menning-
armálastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna (UNESCO) og hafa skrifstofu í
París.
Að sögn Pjeturs gerðist það á ráð-
stefnunni að tveggja og hálfs árs
samrunaferli Evrópu vestur og Evr-
ópu austur deilda IAA lauk með
sameiningu í eina Evrópudeild og
lauk þar gömlu járntjaldsmunstri.
Á þessum fundi voru nokkur ný
ríki tekin inn og Kínverjar fengu inn-
göngu í samtökin í fyrsta sinn.
Pjetur Stefánsson
kosinn gjaldkeri IAA
Plebbabókin er eft-
ir Jón Gnarr. Þar
tekur hann saman
nokkur lykilatriði í
skilgreiningu
plebbans. T.d.:
Hvað er plebbi? Ert
þú plebbi? Ef þú
ert ekki viss eða
skilur ekki merk-
ingu orðsins, þá er þetta bók fyrir þig.
Fylgistu með kosningavökum til að
sjá skemmtiatriðin? Ferðu út á bens-
ínstöð til þess eingöngu að skoða
grill? Viti menn, þú ert strax orðinn
gott efni í plebba.
Útgefandi er Mál og menning. Bók-
in er 74 bls., prentuð hjá Odda hf.
Kápu hannaði Sveinbjörn Gunn-
arsson. Verð: 2.490 kr.
Vangaveltur